Morgunblaðið - 22.07.1956, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.07.1956, Blaðsíða 3
Sunnudagur 22. júlí IPS wop^T'VRr./i»rí> Sfærsía ís'snzf.a LóSasaín i Englandi er v/ð norrænudeild hins fræga hJskóla í Leeds Togliatfi tekur á ný við skipunum frá Moskvu RÓM, 18. júlí: — „II Messa- gero“ skýrSi frá því í dag, að' ítalski kommúnistaforinginn Togliatti hefði á mánudaginn tekið við skýrslu þeirri, er sendinefnd ítalska kommún- istaflokksins, sem sótti Krús- jeff heim á dögunum, hefur gefið um austurförina. Síðar hefði Togliatti lýst því yfir. að „aðliyllast bæri skilyrðislaust" hina nýju Moskvulínu, og hef- ur hann nú elnnig fallizt á það að núverandi leiðtogar Ráð- stjórnarinnar séu algerlega saklausir af þcim glæpum, sem Stalin drýgði — og lét þá einnig framkvæma. Hinn 25. júní sagði Togliatti, að með fordæmingu Stalins væru höfðingjamir í Kreml að snúa vopnunum í höndum kommúnista á Vesturlöndum — og.að erlendir kommúnista- flokkar mundu þaðan í frá hætta að taka við skipunum frá Moskvu. Blaðið „II Messa- gero“ segir, að augijóst sé, að Togliatti liafi verið þröngvað tii þess að játa nýju línuna og einnig það: að með þessu sýni hann, að erlendir kommúnista flokkar taki nú jafnt við skip- unum frá Moskvu og í tíð Staiíns. Gikhrisl sendiherra Breta á íslandi ÁNÆGJULEGT AÐ MÆTA HÉR „HvaS um störf víkinga?" „Þetta er fyrsti víkingafundur, sem ég mæti á og mér þykir sér- staklega vænt um að einmitt hann skuli haldinn hér á ís- landi.“ Arnold R. Taylor er kvæntur íslenzkri konu, Sigríði Ásgeirs- döttur, Þorvaldssonar prests á Hjaltabakka. HELDUR ÁFRAM í dag skoða víkingar Reykja- nes. Á morgun fara þeir til Þing- valla í boði bæjarstjórnar Reykja víkur. Prófessor Einar Ól. Svein* son flytur erindi á Þingvöllum. VÍKINGAFUNDURINN hélt áfram í gær, í fyrstu kennslustofu Háskólans, og hófst kl. 10, með því að prófessor Jón Steffensen flutti erindi, um vaxtarlag og mataræði íslendinga á Víkingaöld. Prófessor A. C. O’Dell, M. Sc. frá Aberdeen talaði um jarðeðlis- íræði á Söguöld. Kl. 2 var framhald fyrirlestra. Alex B. Taylor Ph. D. frá Edinborg flutti fyrirlestur um skozk staðanöfn í forn- sögunum, Dr. Chr. Matras, prófessor í færeysku í Kaupmannahöfn, talaði um færeysk staðanöfn af keltneskum uppruna, og Svend Ellehöj, mag. art. frá Kaupmannahöfn ræddi um fall Ólafs Tryggva- sonar. olid 56 er SPORY J AKKINN i ar er kúlupenni PARKER ‘51’ PENNA Einn víkinganna er Arnold R. Taylor M. A., lektor í ensku við háskólann í Leeds, en kennir þar einnig íslenzku. VINNUMAÐUR í SVEIT „Ég kom fyrst hingað til lands 1933, og vann sex vikur við hey- skap að Hurðabaki í Borgarfirði,“ sagði Taylor í stuttu samtali. „Þá kunni ég ekki orð í íslenzku. Kom hingað aftur 1934 og dvaldi hér einn vetur." Arnold R. Taylor. GÓÐ AÐSTAÐA „Er mikill áhugi á norrænu- námi við skóla yðar?“ „Að jafnaði munu vera 10—20 nemendur á ári, sem lesa ensku sem aðalfag, en af þeim taka þrír til fjórir norrænu sem aukafag. Við kennum bók eftir E. V. Gor- don. Nú vinn ég að cndurútgáfu hennar, vegna prentvilla, sem slæðzt höfðu inn í fyrstu útgáfu. Vonast ég til að hún komi út snemma á næsta ári. Aðstaða okkar til ír’ ’k.ennslu er að mörgu leyti . il dæmis eig- um við stærsta íslenzka bókasafn, sem til er í Englandi, en það var bókasafn Boga Melsted í Kaup- mannahöfn, sem við fer.gum 1929 eða 1930. Bætast okkur oft góð- ar bókagjafir. Erum við ákaflega þakklátir þeim íslendingum, sem hafa gefið okkur bækur. Auk Englendinga sem lesa við okkar deild hef ég kennt sjö íslend- ingum." í STÍL VIÐ 4000 ktn krókur far- þega til íslands FARÞEGAR sem voru á leiðinni frá Bandaríkjunum til íslands með Pan American-flugvél á þriðjudaginn, urðu að taka all stóran krók á leið sína. Þegar flugvélin kom yfir Keflavík var dimm þoka yfir flugvellinum, svo að sú ákvörðun var tekin að halda förinni áfram rakleitt til næsta viðkomustaðar, Oslo. Það- an hélt flugvélin aftur áfram til Stokkhólms, en farþegarnir til íslands urðu eftir í Oslo. Þannig rættist úr fyrir farþeg- unum, sem ætluðu til fslands, að þeir flugu með SAS flugvél til Lundúna, en þaðan skyldu þeir aftur fara til íslands með Pan- American-flugvél. Þessi lykkja sem farþegarnir urðu að leggja á leið sína mun vera að vegalengd hvorki meira né minna en um 4000 km. RÍKISSTJÓRN íslands hefur fall izt á, að hr. Andrew Graham Gil- christ verði skipaður sendiherra Breta hér á landi. Hr. Gilchrist er 46 ára að aldri og hefur starfað í brezku utan- ríkisþjónustunni síðan 1933, lengst af í Austurlöndum. Auk þcss hefur hann gegnt ræðis- mannsstörfum í Frakklandi og Þýzkalandi, og 1944—45 var hann i brezka hernum. Hann hefur síðan i ágúst 1954 verið sendiráðunautur í Singapore. — Hann hefur nafnbótina CMG. Skipaúfgerð ríkisins SKJALDBREIÐ vestur um land til Raufarhafnar hinn 26. þ.m. Tekið á móti flutn ingi til Tálknaf jarðar, Súganda- fjarðar, Húnaflða- og Skagafjarð arhafna, Ólafsfjarðar, Dalvíkur og Flateyjar á Skjálfanda á morg un. Farseðlar seldir á þriðjudag. TP'R sérstaklega í stil við eftirsóttasta lindarpenna heims- ins, Parker ”51“ kúlupenni er laus við alla .negin galla sem fyrir finnast í ódýrum kúlupennum. Þessi kúlupenni veitir yður alla þá, og betri kosti en nokkur annar, hvað sem hann kostar. ”51“ kúlupenni hefir hina sígildu fegurð hins fræga ”51“ penna. Hin stóra fylling hans endist fimm sinnum lengur en hjá venjulegum kúlupennum . . . sannað af öryggri reynslu! Hinn hreifanlegi okKur Parker veitir ávallt jafna skrift. Enn fremur er það varanleg skrift, sem þér fáið hjá Parker kúlupenna, varanleg á öllum skjlum, tékkum bréfspjöldum og myndum. < Kynnist hinum nýja kúupenna . . . og yðui mun ekki yðra. þess. Stór fylling. sem endist fimm sinnum lengur en venjuleg fylling. Kúlupenninn Parker ‘51* fæst í sama iit og með hettu i stíl við ‘51’ penna Verð: Parker kúlupenni: Frá kr. 82,00 til kr. 262,00. _ Fylling kr. 21 00 Einkaumboðsmaður Sigurður H. Egilsson, P. O. Box 283, Reykjavík. Viðgerðir annast: Gleraugnaverzlun Ingóifs Gíslasonar, Skólavörðustíg 5, Reykjavik. BPI-24

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.