Morgunblaðið - 22.07.1956, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.07.1956, Blaðsíða 4
TM ORCVNniAÐlÐ Sunnudagur 22. iúlí 195C % Slysavarðstofa Reykjavíkur I Heilsuverndarstöðinni, er opin allan sólarhringinn. Laeknavörð- ur, L. R. (fyrir vitjanir) er á sama stað kl. 18—8. — Sími 5030. Næturvörður er í Lyfjabúðinni Iðunni, sími 7911. Ennfremur eru Holts-apótek, Apótek Austur bæjar og Vesturbæjar-apótek, op in daglega til kl. 8, nema á laug- ardögum til kl. 4. Holts-apótek er opið á sunnudögum milli kl. 1 og 4. Hafnarfjarðar- og Keflavíkur- apótek eru opin alla virka daga frá kl. 9—19, laugardaga frá kl. 9—16 og helga daga frá kl. 13,00 til 16,00. • Afmæli • Áttræð verður á morgun 23. júlí Valgerður Kr. Kristjánsdótt- ir, Skipasundi 3. Sigurður Guðmundsson, pípulm. Barónsstíg 18 verður 7ö ára á morgun 23. júlí. Er hann staddur á Kópareykjum, Borgarfirði. 50 ára er á morgun, mánudaginn 23. júlí, Grímur Norðquist Magn- Ússon, Görðum, Akranesi. • Brúðkaup • Gefin hafa verið saman í hjóna band í Þingeyrarkirkju ungfrú Hómhildur Jónsdóttir, kennslu- kona, Akureyri og sr. Pétur Þ. Ingjaldsson, Höskuldsstöðum. Sr. Þorsteinn Gíslason, próf. í Steins nesi gaf brúðhjónin saman. Tjarnargolfið Opið helga daga 10—10 og virka daga 2—10 síðdegis þegar veður leyfir. Það er firra að halda að drykkjuskapur auki á gleði og lifshamingju. Umdæmisstúkan. • Útvarpið • Sunnudagur 22. júlí. Fastir liðir eins og venjulega. 9.30 Fréttir og morguntónleikar. 11.00 Messa í Dómkirkjunni (Prestur Séra Jón Auðuns, dóm- prófastur. Organleikari: Páll Is- ólfsson). 15.15 Miðdegistónleikar. (plötur). 16.15 Fréttaútvarp til ls lendinga erlendis. 16.30 Færeysk guðsþjónusta (Hljóðrituð í Þórs- höfn). 18,30 Barnatími (Baldur Pálmason). 19.30 Tónleikar (plöt- ur). 20.20 Erindi: Fulltrúar mann kynsins; III: Platon (Grétar Fells í DAG fyllir Tryggvi Ófeigsson framkvæmdastjóri sina sex ára- tugi, og væri hann þess makleg- ur, að hans væri minnzt með meiri reisn en nokkrum sundur- lausum þankabrotum. Tvær áttir standa að Tryggva, suðrið og norðrið. Faðir hans var Ófeigur, sonarsonur Ófeigs ríka í Fjalli á Skeiðum og konu hans, Ingunnar Eiríksdóttur á Reykj- um. Ófeigur faðir Tryggva er látinn fyrir allmörgum árum í góðri elli. Hann var maður vitur, hæglátur og óvenju fróðleiks- gjarn og ávann sér traust manna og vináttu. — Þvi miður hvarf hann með of margar óskráðar minningar. Sá var siður tápmikilla Árnes- inga fyrir aldamótin síðustu, að fara norður í land um sláttinn og ráða sig þar í kaupavinnu, venju- lega á höfuðból. Vinnuafköstin þar voru geypileg, viðurgerning- urinn nokkru betri en sunnan- lands, en kaupið með öllu hófi. Eitt sumar gerði Ófeigur þó þang að ferð sína bezta. Þar hreppti hann konuefni sitt, Jóhönnu Frí- mannsdóttur frá Hvammi í Langa dal, sem reyndist honum hinn traustasti förunautur til dauða- dags og varð móðir margra efni- legra barna. Tryggvi sá fyrst ljós þessa heims þar í norðurbyggðum, á Brún í Svartárdal í Húnaþingi, rithöfundur). 20.45. Frá tónleik- um Sinfóniuhljómsveitar Islands í Þjóðleikhúsinu 3. þ.m. 21.35 Upp lestur: „Undirvitundin", smásaga þar sem foreldrar hans reistu fyrst bú, en fjögurra ára gamall fluttist hann með þeim til Suður- nesja og dvaldi þar sín æskuár. Síðan hafa Suðurnesjamenn jafn- an viljað eigna sér Tryggva. Ungur að árum hóf hann sjó- sókn og þekkir af eigin raun öll stig sjómennskunnar. Rúmlega fermdur fór hann til sjóróðra austur á firði og reri þar fjögur sumur. Sjór var þá sóttur á véla- lausum skeljum, stundum róið 2—3 tíma til hafs. Kaupgjaldið mun hafa verið um 30 krónur á mánuði. Á togurum var Tryggvi aila tíð frá 1914 til 1940, fyrst sem háseti, svo bátsmaður, stýrimað- ur, en lengst af sem skipstjóri. Skipstjórnin fór honum giftusam lega úr hendi. Sjórinn var að visu sóttur fast, en jafnan tókst hon- um að koma áhöfn sinni og skipi heilu í höfn, þótt mörg þau sigl- ingatæki væru þá ekki komin til sögunnar, sem nú þykja ómiss- andi við okkar klettóttu strönd. Árið 1920 gekk Tryggvi að eiga konu sína, Herdísi Ásgeirs- dóttur, skipstjóra í Reykjavik. Ásgeir var stofnandi skipstjóra- félagsins „Öldunnar" og styrkar- sjóðs fyrir ekkjur og börn skip- stjóra og stýrimanna. Lézt hann þó um aldur fram, aðeins 35 ára. IHann var sonur Þorsteins í Kjör- | vogi, sem lengi mun í minnum Mánudagur 23. júlí Fastir liðir eins og venjulega. 19.30 Tónleikar: Lög úr kvik- myndum (plötur). 20.30 Útvarps- hljómsveitin; Þórarinn Guðmunds hafður á þeim köldu Ströndum. Þau hjón Herdís og Tryggvi hafa átt við vaxandi gengi að búa og barnalán, eiga fjórar dætur, góð- ar og glæsilegar, þar af þrjár giftar, og einn son, Pál Ásgeir, fulltrúa í utanríkisráðuneytinu. Síðan Tryggvi kom á þurr- lendið hefur hann stjórnað einni stærstu togaraútgerð hér á landi og margþættri fiskverkun í sam- bandi við hana. í þjónustu þeirra fyrirtækja hafa að jafnaði starf- að upp undir hundrað manns á sjó og yfir stórthundrað í landi. Vinnudagur hans sjálfs er því oftast bæði langur og erilsamur, og enginn skyldi öfunda hann af tveim símatækjum sínu til hvorr- ar handar, sem samhringja frá morgni tii kvölds. Með þeiin hraða, sem kominn er á athafnalíf hérlendis, er þess tæplega að vænta, að fiskimenn vorir vinni sér til verðlauna úr sjóði Kristjáns konungs níunda fyrir langa þjónustu í sömu vist. Þó finnast þeir menn við útveg Tryggva, sem staldrað hafa þar við, sumir í tvo, aðrir hátt í þrjá áratugi. Slíkt þótti, að minnsta kosti á öldinni sem leið, tala sínu máli bæði um hjú og húsbændur. Tryggvi er maður athugull og skyggn. Sérhvert handtak, sem hann sér unnið af viti og snar- ræði, hlýtur hjá honum þá viður- kenningu, sem geymist. Honum hefur líka oftast tekizt að velja sér samverkamenn, þar sem hverjum og einum mátti treysta, þegar á reyndi. Á því samstarfi hefur líka verið reist sú farsæld, sem fylgt hefur fyrirtækjum hans til þessa dags. Til þess að tryggja sér góða heilsu þarf Tryggvi helzt að byggja sem svarar einu húsi á ári, og nú stendur hann í því, að reisa inni á Kirkjusandi fiskiðju- ver í mörgum deildum, þar sem unnið verður til fulls úr hverjum Við bjöðum dvallt það bezta ! Sunbeam .... kr. 1.563,00 Sunbeam m/hakkavél kr. 1.954,00 Dormayer m/hakkavél kr. 1.535,00 — m/hakv. og stálsk. kr. 1.985,00 Laugaveg 63 og Vesturgötu 2 Sími 80946 Tryggvi Ofeigsson útgerðarmaður sextugur son stjórnar. 20.50 Um daginn og veginn (Andrés Kristjánsson, blaðam.). 21.10 Einsöngur: Paolo Silveri syngur (plötur). 21.30 Út- varpssagan: „Gullbikarinn" eftir John Steinbeck; IX. (Hannes Sig- fússon les). 22.00 Kvæði kvölds- ins. 22.10 Fræðsluþáttur Fiskifé- lagsins: Hjálmar R. Bárðarson, skipaskoðunarstjóri talar um tonnatölu skipa. 22.25 Kammer- tónleikar (plötur). 23.00 Dagskrár lok. þeim uggá, sem berst á land á hans vegum. Tryggvi er enn á fullu mann- dómsskeiði, hraustur og glæstur og hlutgengur til allra verka, enda jafnan verið manna hóf- samastur í öllu líferni. Ein af þeim fáu lystisemdum, er hanri lætur eftir sér, er að skreppa norður í land á laugardögum um sumartímann og renna fyrir lax. Hann veit af eigin raun, að eng- inn stendur laxinum á sporði um það, að veita mönn'um hvíld og gleymsku um stund frá öllum áhyggjum og umstangi. — Hins vegar munu þeir mánudagar vera teljandi, að Tryggvi sé ekki með þeim fyrstu aftur kominn á skansinn. Tryggvi ólst ekki aðeins upp við útveg, heldur jafnframt við búskap, og þótt sjórinn yrði hans aðalvettvangur, á sveitin þó merkileg tök í honum. Hann hægir jafnan á ferð sinni úti um landsbyggðina, ef hann kemur auga á sællegan búpening, og beri gæðinga fyrir augu, nemur hann alveg staðar. — Ef til vill eru þar gamlar óskir og minn- ingar að skjóta upp kollinum, því margir munu þeir fiskimenn, sem frekar þrá hinn græna völl og hans margbreytni, heldur en þann bláa, sem að jafnaði um- lykur skip þeirra. Væri mér gert að skrá t.d. þrjá athafnamenn af vorri kyn- slóð, er ég teldi merkasta, þá þyrfti ég að minnsta kosti ekki að naga blýantinn við að tilnefna einn þeirra. Þó fer því fjarri, að framleiðslustörf hafi verið einu viðfangs- og hugðarefni Tryggva. í íöðurarf hlaut hann hneigð til þjóðlegra fræða og minja. Hann er vel heima í íslenzkum bók- benntum, fornum og nýjum, næmur á hljóðfall íslenzkrar tungu og kann manna bezt að meta orðsins list, hvar sem hún birtist. Sökum veikinda yngstu dóttur sinnar dvelja þau hjón nú sem stendur í Kaupmannahöfn, og þangað munu þeim á þessum tímamótum berast margar vina- kveðjur og árnaðaróskir. Kjartan Sveinsson. Uionskviðu í myndum ÞESSA dagana ræða menn mik- ið um soxprit — og fleira slíkt, svo að ekki væri úr vegi að geta eins góðs á þeim vettvangi. Fyrir nokkru var hafin útgáfa tíma- rits, sem nefnist „Sígildar sögur“. Er hér um að ræða útgáfu sí- gildra bókmennta í myndum. — Fyrirmyndin er bandarísk, en þessi útgáfustarfsemi hefur hlot- ið mörg verðlaun þar í landi — því að Bandaríkjamenn telja hana skera sig svo mjög úr út- gáfu ýmissa sorp- og æsirita, að hún sé viðurkenninga verð. Búningur ritsins er allur hinn smekklegasti, og er það ætlað, til þess að glæða áhuga unglinga á lestri sígildra bólcmennta. — Hingað til hafa komið út m. a. Hamlet eftir Shakespeare, Wil- helm Tell eftir Schiller, Leitin að Livingstone eftir Stanley, Mærin frá Orleange — og fleiri mætti nefna. Nú um helgina lcemur út 13. ritið í þessum flokki — og eru það Illionskviða. h.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.