Morgunblaðið - 22.07.1956, Page 4
TM ORCVNniAÐlÐ
Sunnudagur 22. iúlí 195C
%
Slysavarðstofa Reykjavíkur I
Heilsuverndarstöðinni, er opin
allan sólarhringinn. Laeknavörð-
ur, L. R. (fyrir vitjanir) er á
sama stað kl. 18—8. — Sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunni, sími 7911. Ennfremur
eru Holts-apótek, Apótek Austur
bæjar og Vesturbæjar-apótek, op
in daglega til kl. 8, nema á laug-
ardögum til kl. 4. Holts-apótek
er opið á sunnudögum milli kl. 1
og 4.
Hafnarfjarðar- og Keflavíkur-
apótek eru opin alla virka daga
frá kl. 9—19, laugardaga frá kl.
9—16 og helga daga frá kl. 13,00
til 16,00.
• Afmæli •
Áttræð verður á morgun 23.
júlí Valgerður Kr. Kristjánsdótt-
ir, Skipasundi 3.
Sigurður Guðmundsson, pípulm.
Barónsstíg 18 verður 7ö ára á
morgun 23. júlí. Er hann staddur
á Kópareykjum, Borgarfirði.
50 ára er á morgun, mánudaginn
23. júlí, Grímur Norðquist Magn-
Ússon, Görðum, Akranesi.
• Brúðkaup •
Gefin hafa verið saman í hjóna
band í Þingeyrarkirkju ungfrú
Hómhildur Jónsdóttir, kennslu-
kona, Akureyri og sr. Pétur Þ.
Ingjaldsson, Höskuldsstöðum. Sr.
Þorsteinn Gíslason, próf. í Steins
nesi gaf brúðhjónin saman.
Tjarnargolfið
Opið helga daga 10—10 og virka
daga 2—10 síðdegis þegar veður
leyfir.
Það er firra að halda að
drykkjuskapur auki á gleði og
lifshamingju.
Umdæmisstúkan.
• Útvarpið •
Sunnudagur 22. júlí.
Fastir liðir eins og venjulega.
9.30 Fréttir og morguntónleikar.
11.00 Messa í Dómkirkjunni
(Prestur Séra Jón Auðuns, dóm-
prófastur. Organleikari: Páll Is-
ólfsson). 15.15 Miðdegistónleikar.
(plötur). 16.15 Fréttaútvarp til ls
lendinga erlendis. 16.30 Færeysk
guðsþjónusta (Hljóðrituð í Þórs-
höfn). 18,30 Barnatími (Baldur
Pálmason). 19.30 Tónleikar (plöt-
ur). 20.20 Erindi: Fulltrúar mann
kynsins; III: Platon (Grétar Fells
í DAG fyllir Tryggvi Ófeigsson
framkvæmdastjóri sina sex ára-
tugi, og væri hann þess makleg-
ur, að hans væri minnzt með
meiri reisn en nokkrum sundur-
lausum þankabrotum.
Tvær áttir standa að Tryggva,
suðrið og norðrið. Faðir hans var
Ófeigur, sonarsonur Ófeigs ríka
í Fjalli á Skeiðum og konu hans,
Ingunnar Eiríksdóttur á Reykj-
um. Ófeigur faðir Tryggva er
látinn fyrir allmörgum árum í
góðri elli. Hann var maður vitur,
hæglátur og óvenju fróðleiks-
gjarn og ávann sér traust manna
og vináttu. — Þvi miður hvarf
hann með of margar óskráðar
minningar.
Sá var siður tápmikilla Árnes-
inga fyrir aldamótin síðustu, að
fara norður í land um sláttinn og
ráða sig þar í kaupavinnu, venju-
lega á höfuðból. Vinnuafköstin
þar voru geypileg, viðurgerning-
urinn nokkru betri en sunnan-
lands, en kaupið með öllu hófi.
Eitt sumar gerði Ófeigur þó þang
að ferð sína bezta. Þar hreppti
hann konuefni sitt, Jóhönnu Frí-
mannsdóttur frá Hvammi í Langa
dal, sem reyndist honum hinn
traustasti förunautur til dauða-
dags og varð móðir margra efni-
legra barna.
Tryggvi sá fyrst ljós þessa
heims þar í norðurbyggðum, á
Brún í Svartárdal í Húnaþingi,
rithöfundur). 20.45. Frá tónleik-
um Sinfóniuhljómsveitar Islands
í Þjóðleikhúsinu 3. þ.m. 21.35 Upp
lestur: „Undirvitundin", smásaga
þar sem foreldrar hans reistu
fyrst bú, en fjögurra ára gamall
fluttist hann með þeim til Suður-
nesja og dvaldi þar sín æskuár.
Síðan hafa Suðurnesjamenn jafn-
an viljað eigna sér Tryggva.
Ungur að árum hóf hann sjó-
sókn og þekkir af eigin raun öll
stig sjómennskunnar. Rúmlega
fermdur fór hann til sjóróðra
austur á firði og reri þar fjögur
sumur. Sjór var þá sóttur á véla-
lausum skeljum, stundum róið
2—3 tíma til hafs. Kaupgjaldið
mun hafa verið um 30 krónur
á mánuði.
Á togurum var Tryggvi aila
tíð frá 1914 til 1940, fyrst sem
háseti, svo bátsmaður, stýrimað-
ur, en lengst af sem skipstjóri.
Skipstjórnin fór honum giftusam
lega úr hendi. Sjórinn var að visu
sóttur fast, en jafnan tókst hon-
um að koma áhöfn sinni og skipi
heilu í höfn, þótt mörg þau sigl-
ingatæki væru þá ekki komin til
sögunnar, sem nú þykja ómiss-
andi við okkar klettóttu strönd.
Árið 1920 gekk Tryggvi að
eiga konu sína, Herdísi Ásgeirs-
dóttur, skipstjóra í Reykjavik.
Ásgeir var stofnandi skipstjóra-
félagsins „Öldunnar" og styrkar-
sjóðs fyrir ekkjur og börn skip-
stjóra og stýrimanna. Lézt hann
þó um aldur fram, aðeins 35 ára.
IHann var sonur Þorsteins í Kjör-
| vogi, sem lengi mun í minnum
Mánudagur 23. júlí
Fastir liðir eins og venjulega.
19.30 Tónleikar: Lög úr kvik-
myndum (plötur). 20.30 Útvarps-
hljómsveitin; Þórarinn Guðmunds
hafður á þeim köldu Ströndum.
Þau hjón Herdís og Tryggvi hafa
átt við vaxandi gengi að búa og
barnalán, eiga fjórar dætur, góð-
ar og glæsilegar, þar af þrjár
giftar, og einn son, Pál Ásgeir,
fulltrúa í utanríkisráðuneytinu.
Síðan Tryggvi kom á þurr-
lendið hefur hann stjórnað einni
stærstu togaraútgerð hér á landi
og margþættri fiskverkun í sam-
bandi við hana. í þjónustu þeirra
fyrirtækja hafa að jafnaði starf-
að upp undir hundrað manns á
sjó og yfir stórthundrað í landi.
Vinnudagur hans sjálfs er því
oftast bæði langur og erilsamur,
og enginn skyldi öfunda hann af
tveim símatækjum sínu til hvorr-
ar handar, sem samhringja frá
morgni tii kvölds.
Með þeiin hraða, sem kominn
er á athafnalíf hérlendis, er þess
tæplega að vænta, að fiskimenn
vorir vinni sér til verðlauna úr
sjóði Kristjáns konungs níunda
fyrir langa þjónustu í sömu vist.
Þó finnast þeir menn við útveg
Tryggva, sem staldrað hafa þar
við, sumir í tvo, aðrir hátt í þrjá
áratugi. Slíkt þótti, að minnsta
kosti á öldinni sem leið, tala sínu
máli bæði um hjú og húsbændur.
Tryggvi er maður athugull og
skyggn. Sérhvert handtak, sem
hann sér unnið af viti og snar-
ræði, hlýtur hjá honum þá viður-
kenningu, sem geymist. Honum
hefur líka oftast tekizt að velja
sér samverkamenn, þar sem
hverjum og einum mátti treysta,
þegar á reyndi. Á því samstarfi
hefur líka verið reist sú farsæld,
sem fylgt hefur fyrirtækjum
hans til þessa dags.
Til þess að tryggja sér góða
heilsu þarf Tryggvi helzt að
byggja sem svarar einu húsi á
ári, og nú stendur hann í því, að
reisa inni á Kirkjusandi fiskiðju-
ver í mörgum deildum, þar sem
unnið verður til fulls úr hverjum
Við bjöðum dvallt það bezta !
Sunbeam .... kr. 1.563,00
Sunbeam m/hakkavél kr. 1.954,00
Dormayer m/hakkavél kr. 1.535,00
— m/hakv. og stálsk. kr. 1.985,00
Laugaveg 63 og Vesturgötu 2
Sími 80946
Tryggvi Ofeigsson
útgerðarmaður sextugur
son stjórnar. 20.50 Um daginn og
veginn (Andrés Kristjánsson,
blaðam.). 21.10 Einsöngur: Paolo
Silveri syngur (plötur). 21.30 Út-
varpssagan: „Gullbikarinn" eftir
John Steinbeck; IX. (Hannes Sig-
fússon les). 22.00 Kvæði kvölds-
ins. 22.10 Fræðsluþáttur Fiskifé-
lagsins: Hjálmar R. Bárðarson,
skipaskoðunarstjóri talar um
tonnatölu skipa. 22.25 Kammer-
tónleikar (plötur). 23.00 Dagskrár
lok.
þeim uggá, sem berst á land á
hans vegum.
Tryggvi er enn á fullu mann-
dómsskeiði, hraustur og glæstur
og hlutgengur til allra verka,
enda jafnan verið manna hóf-
samastur í öllu líferni. Ein af
þeim fáu lystisemdum, er hanri
lætur eftir sér, er að skreppa
norður í land á laugardögum um
sumartímann og renna fyrir lax.
Hann veit af eigin raun, að eng-
inn stendur laxinum á sporði um
það, að veita mönn'um hvíld og
gleymsku um stund frá öllum
áhyggjum og umstangi. — Hins
vegar munu þeir mánudagar vera
teljandi, að Tryggvi sé ekki með
þeim fyrstu aftur kominn á
skansinn.
Tryggvi ólst ekki aðeins upp
við útveg, heldur jafnframt við
búskap, og þótt sjórinn yrði hans
aðalvettvangur, á sveitin þó
merkileg tök í honum. Hann
hægir jafnan á ferð sinni úti um
landsbyggðina, ef hann kemur
auga á sællegan búpening, og
beri gæðinga fyrir augu, nemur
hann alveg staðar. — Ef til vill
eru þar gamlar óskir og minn-
ingar að skjóta upp kollinum, því
margir munu þeir fiskimenn, sem
frekar þrá hinn græna völl og
hans margbreytni, heldur en
þann bláa, sem að jafnaði um-
lykur skip þeirra.
Væri mér gert að skrá t.d.
þrjá athafnamenn af vorri kyn-
slóð, er ég teldi merkasta, þá
þyrfti ég að minnsta kosti ekki
að naga blýantinn við að tilnefna
einn þeirra. Þó fer því fjarri, að
framleiðslustörf hafi verið einu
viðfangs- og hugðarefni Tryggva.
í íöðurarf hlaut hann hneigð til
þjóðlegra fræða og minja. Hann
er vel heima í íslenzkum bók-
benntum, fornum og nýjum,
næmur á hljóðfall íslenzkrar
tungu og kann manna bezt að
meta orðsins list, hvar sem hún
birtist.
Sökum veikinda yngstu dóttur
sinnar dvelja þau hjón nú sem
stendur í Kaupmannahöfn, og
þangað munu þeim á þessum
tímamótum berast margar vina-
kveðjur og árnaðaróskir.
Kjartan Sveinsson.
Uionskviðu
í myndum
ÞESSA dagana ræða menn mik-
ið um soxprit — og fleira slíkt,
svo að ekki væri úr vegi að geta
eins góðs á þeim vettvangi. Fyrir
nokkru var hafin útgáfa tíma-
rits, sem nefnist „Sígildar sögur“.
Er hér um að ræða útgáfu sí-
gildra bókmennta í myndum. —
Fyrirmyndin er bandarísk, en
þessi útgáfustarfsemi hefur hlot-
ið mörg verðlaun þar í landi —
því að Bandaríkjamenn telja
hana skera sig svo mjög úr út-
gáfu ýmissa sorp- og æsirita, að
hún sé viðurkenninga verð.
Búningur ritsins er allur hinn
smekklegasti, og er það ætlað,
til þess að glæða áhuga unglinga
á lestri sígildra bólcmennta. —
Hingað til hafa komið út m. a.
Hamlet eftir Shakespeare, Wil-
helm Tell eftir Schiller, Leitin
að Livingstone eftir Stanley,
Mærin frá Orleange — og fleiri
mætti nefna. Nú um helgina
lcemur út 13. ritið í þessum
flokki — og eru það Illionskviða.
h.