Morgunblaðið - 22.07.1956, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.07.1956, Blaðsíða 16
Veðrið SV-kaldi. Smáskúrir. irrggtittilftfrtb 165. tbl. — Sunnudagur 22. júlí 1956 Reykjavíkurbréf er á bls. 9. — Danski drengjakórinn á Akureyri DANSKI Park-drengjakórinn hef ur dvalið hér á Akureyri undan- farna daga. Á mánudaginn s. 1. söng hann í samkomuhúsi bæj- arins fyrir fullu húsi við ágætar undirtektir, undir stjórn Jörgens Bremholm og með undirleik Niels Aage Bundbaar. Á þriðju- dagskvöld hélt hann kirkjuhljóm- leika við góðan orðstír. Til Mý- vatns héidu drengirnir svo í boði bæjarstjórnar Akureyrar á mið- vikudaginn í sólskini og hita og var sú ferð hin ánægjulegasta. Á fimmtudagskvöldið endurtólc kór inn söngskemmtun sína í sam- komuhúsinu fyrir troðfullu húsi og urðu fjölmargir frá að hverfa. Óhætt er að segja að kórinn hafi vakið mikla hrifningu, bæði fyrir fágaðan söng og hina hríf- andi fjörugu meðferð bæði í söng og leik, en sem kunnugt er leikur kórinn „Sunnudagur á Amager“ og óperuskopstælingu á hnefa- leikum. Á föstudaginn héldu drengirnir til Sauðárkróks og sungu þar um kvöldið. Þaðan héldu þeir tii sumarbúða KFUM í Vatnaskogi og munu þeir dvelja þar nokkra daga. H. Vald. Þessi mynd sýnir síldarsöltunina á Raufarhöfn, en hún liggur nú niðri vegna tunnuskorts. Á Rauf- arhöfn hefur verið blómlegt at- hafnalif að undanförnu. Allir hafa lagt að sér eins og þeir hafa get- að, enda er nú búið 9ð salta þar mjög mikið. Hér sér yfir síldar- söltunarstöð Hafsilfurs h.f., þar sem saltað hefur verið í þúsundir síldartunna og fjær á myndinni sjást stúlkur að söláun á bryggju stöðvarinnar. Lengra í burtu sjást aðrar söltunarstöðvar í þessum öðrum mesta síldarbæ landsins. Lítil síldveiði í gær ^Raufarhöfn og Siglufirði 21. júlí. Rólegt er yfir síldveiðunum í dag. Þoka er á miðunum og hafa skipin fengið litla síld. Nokkur skip fengu þó síld í gærkvöldi á svæðinu við Kolbeinsey og var sú síld söltuð á Siglufirði í dag. Söltunarstöðvarnar reyna nú eftir föngum að ná í síld til sölt- unar eins og unnt er til þess að ná sem hæstum hlut áður en lok- ið er að salta^upp í samninga, en allt er óvíst um söltun eftir það. Bisavaxin snurpinót fiutt til íslands af Kyrrahafsströndinni 261 drukkinn á almannafæri LÖGREGLAN hefur skýrt blaðinu svo frá að drykkju- skapur á götum bæjarins sc með almesta móti. Daglega er fjöldi manns tekinn úr um- ferð og er tala þeirra sem gist hafa kjallarann þá 20 daga, sem eru af júlímánuði, nú komin upp í 261. — í júní- mánuði tók lögreglan alls 469 manns úr umferö. Þess skal gctið, að oft er um sömu menn að' ræða, en þó aldrei sama manninn tvisvar á sólar- hring. í fyrrinótt var mikil ölvun á götunum. Var slökkviliðið gabbað niður í Austurstræti. Var ekki vitað hver hinna ölvuðu manna, sem þar voru brauðíættir og óstyrkir að þvælast, hafði verið valdur að þessu. V Undirbúningi að útliiutim lokið Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í fyrradag kom lóðaúthlutun í Hálogalandshverfi til tals. í því sambandi skýrði borgarstjóri svo frá að verkíræðilegum undirbún- ingi væri nú langt komið og yrði honum bráðlega lokið. Borgarstjóri skýrði frá að sam- ið hefði verið við verkfræðinga um að leggja fram aukamenn í því skyni að undirbúningnum gæti orðið lokið sem ailra fyrsl og hefðu þeir unnið að þessu verkefni af kappi undanfarna mánuði. Þegar verkfræðistörfum varð- andi svæðið væri lokið, sem yrði mjög bráðlega, væri bæjarráði ekkert að vanbúnaði að úthluta lóðunum. Algengt að í slíkar ncetur veiðist 10 þúsund tunnur sildar NÝLEGA hefur Haraldur Böðvarsson á Akranesi flutt hingað til lands í tilraunaskyni stórvirkustu síldarnót sem þekkist í heiminum. Er hún af þeirri gerð sem tíðkast |á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna, en þar keniur það oft I fyrir að um 10 þúsund tunnur af síld veiðist í einu kasti |með þessari tegund nótar. Sturlaugur Böðvarsson er nú á Siglufirði og mun hann gera tilraun með notkun þessarar nótar á næstunni MEÐ FLUGVEL FRÁ OAKLAND Síðastliðið mánudagskvöld kom þessi mikla sildarnót til landsins með Skymaster-flugvél alla leið frá San Francisco. Stóð Húsefahlulnrinn rdm- ar 1000 kr. d dag IJLAÐINU var í gær ekki kunnugt um fiskveiðiskýrslu " skipanna í heild. Hins vegar er vitað að allmörg skip cru komin mcð allgóða veiði. í gær átti blaðið tal við Gísla Konráðsson forstjóra Út- gerðarfélags KEA á Akureyri, en það er eigandi Snæfells, sem er eitt af aflahæstu skipunum. Það hefur veitt miðað við uppmælda síld 7178 mál og tunnur. Hlutur háseta þar um borð er nú orðinn rúmlega 15 þús. krónur, en hlutar- skipti eru þar í 18 staði. Skipið hefur verið að veiðum frá því um mánaðamót. Hins vegar mun hluturinn vera orðinn hærri á hringnótaskipunum, þar sem þar eru færri menn á en á skipum, sem veiða í herpinót. í samtali, er hlaðið átti í gær við Sigurð Baldvinsson í Ólafsfirði, sem gerir út hringnótabátinn Gunnólf, fékk það þær upplýsingar að hlutur háseta næmi 1000 kr. á dag þar um borð. Sá bátur hefur aflað mjög vel, en verðmæti afla hans nemur nú 650 þús. krónum. Hásetarnir fá af þessu 40% og hluturinn skiptist í 11 staði. Ilefur því hver háseti þar nú í hlut um 23.600 kr. Gunnólfur mun hafa byrjað veiðar um mánaðamótin síðustu og hefur því hver háseti haft rúmar 1000 kr. á dag. Frá Raufarhöfn er símað að hiutur háseta á þeim skip- um sem veiða með herpinót og mestan afla hafa fengið sé um 15 þús. krónur, en aftur á móti um 20 þús. kr. hjá hring- nótabátunum. En þetta er eins og happdrætti, sum skip hafa enn sem komið er fengið mjög lítinn afla en vonandi eiga þau eftir að fá stóra vinninginn. svo vel á að norski útgerðarma'ð- urinn Ludvig Braathen var að kaupa þessa flugvél í Oakland, einni af útborgum San Francisco. Var enginn flutningur með flug- véinni svo að það kom sér vel fyrir Harald Böðvarsson að fá ferðina fyrir lægra flutnings- gjald en ella tíðkast í loftflutn- ingum. Flugvélin kom við í Winnipeg og Gander á leið sinni austur á bóginn. Mun þungi nót- arinnar og tækja sem henni fylgja hafa verið um 8 smálestir. RISAVAXIN SNURPINÓT Kyrrahafsnótin er af snurpi- nótargerð, en risavaxin. Hún er 300 faðmar á lengd og um 60 faðmar á dýpt. En venjulegar snurpinætur eru 150 faðmar á lengd og 2—30 faðmar á dýpt. VANUR NÓTABASSI Með nótinni kom til landsins maður einn af sænskum ættum, mikill aflakóngur á vesturströnd Bandaríkjanna. Hann heitir Knut Larsson og hefur um 30 ár starf- að við síldveiðar á Kyrrahafs- ströndinni. Honum var fært að koma hingað vegna þess, að síld- arvertíðin á Kyrrahafsströndinni er á öðrum árstíma, venjulega á veturna frá því í nóvember til febrúar. Þessar risavöxnu snurpinætur eru almennt notaðar til síldveiða á Kyrrahafsströndinni. Kemur það oft fyrir að í þær veiðist í einu kasti um 10 þúsund tunnur. Síldin þar er líkrar stærðar og Faxasíld. Eru þá venjulega mörg skip um hverja nót. Eitt þeirra kastar henni en önnur 10 dæla síld úr nótinni. MIKIL FRAMTAKSSEMI Haía þeir feðgar Haraldur Böðvarsson og Sturiaugur Böðv- arsson sýnt mikla framtakssemi með því að flytja nót þessa hingað til lands og verður fróð- legt að kynnast því hvernig hún reynist. Vegna stærðar nótarinn- ar verður að nota miklu sterk- ari vindu en tíðkast á síldveiði- skipum. Kom hún um leið og nótin og gengur fyrir vökva- þrýstingi. Er þrýstingur hennar þrisvar sinnum meiri en tíðkast á fiskiskipavindum. REYND VIÐ FYRSTA TÆKIFÆRI Sturlaugur Böðvarsson er nú farinn til Siglufjarðar til að reyna nótina. Hefur hann verið úti með fiskiskipinu Böðvari að reyna Hvalfjarðarnótina, en þeg- ar þeir koma í höfn aftur til Siglufjarðar verður allt undir- búið til að búa skipið út með hina nýju risanót. Hér er að sjálfsögðu um fyrstu tilraun að ræða og ekki hægt að fullyrða neitt um hvernig hún muni tak- ast. 48 nýjar íbúðir byggðar við Gnoðarvog Á FUNDI bæjarráðs á föstudag var samþykkt að hefja byggingu tveggja fjölbýlishúsa til viðbótar við Gnoðar- vog. Með þessari samþykkt hefur því Verið tekin ákvörðun um að byggja 96 íbúöir við Gnoðarvog. Áður er hafizt handa um byggingu tveggja fjölbýlishúsa. I hvcrju þcssara húsa eru 24 íbúðir, tveggja og þriggja her- bergja. Verður fyrirkomulag hinna nýju fjölhýlishúsa hið sama. Húsin eru fjögurra hæða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.