Morgunblaðið - 22.07.1956, Síða 16
Veðrið
SV-kaldi.
Smáskúrir.
irrggtittilftfrtb
165. tbl. — Sunnudagur 22. júlí 1956
Reykjavíkurbréf
er á bls. 9. —
Danski drengjakórinn
á Akureyri
DANSKI Park-drengjakórinn hef
ur dvalið hér á Akureyri undan-
farna daga. Á mánudaginn s. 1.
söng hann í samkomuhúsi bæj-
arins fyrir fullu húsi við ágætar
undirtektir, undir stjórn Jörgens
Bremholm og með undirleik
Niels Aage Bundbaar. Á þriðju-
dagskvöld hélt hann kirkjuhljóm-
leika við góðan orðstír. Til Mý-
vatns héidu drengirnir svo í boði
bæjarstjórnar Akureyrar á mið-
vikudaginn í sólskini og hita og
var sú ferð hin ánægjulegasta. Á
fimmtudagskvöldið endurtólc kór
inn söngskemmtun sína í sam-
komuhúsinu fyrir troðfullu húsi
og urðu fjölmargir frá að hverfa.
Óhætt er að segja að kórinn
hafi vakið mikla hrifningu, bæði
fyrir fágaðan söng og hina hríf-
andi fjörugu meðferð bæði í söng
og leik, en sem kunnugt er leikur
kórinn „Sunnudagur á Amager“
og óperuskopstælingu á hnefa-
leikum.
Á föstudaginn héldu drengirnir
til Sauðárkróks og sungu þar um
kvöldið. Þaðan héldu þeir tii
sumarbúða KFUM í Vatnaskogi
og munu þeir dvelja þar nokkra
daga.
H. Vald.
Þessi mynd sýnir síldarsöltunina
á Raufarhöfn, en hún liggur nú
niðri vegna tunnuskorts. Á Rauf-
arhöfn hefur verið blómlegt at-
hafnalif að undanförnu. Allir hafa
lagt að sér eins og þeir hafa get-
að, enda er nú búið 9ð salta þar
mjög mikið. Hér sér yfir síldar-
söltunarstöð Hafsilfurs h.f., þar
sem saltað hefur verið í þúsundir
síldartunna og fjær á myndinni
sjást stúlkur að söláun á bryggju
stöðvarinnar. Lengra í burtu sjást
aðrar söltunarstöðvar í þessum
öðrum mesta síldarbæ landsins.
Lítil síldveiði í gær
^Raufarhöfn og Siglufirði 21. júlí.
Rólegt er yfir síldveiðunum í
dag. Þoka er á miðunum og hafa
skipin fengið litla síld. Nokkur
skip fengu þó síld í gærkvöldi á
svæðinu við Kolbeinsey og var
sú síld söltuð á Siglufirði í dag.
Söltunarstöðvarnar reyna nú
eftir föngum að ná í síld til sölt-
unar eins og unnt er til þess að
ná sem hæstum hlut áður en lok-
ið er að salta^upp í samninga, en
allt er óvíst um söltun eftir það.
Bisavaxin snurpinót fiutt til
íslands af Kyrrahafsströndinni
261 drukkinn
á almannafæri
LÖGREGLAN hefur skýrt
blaðinu svo frá að drykkju-
skapur á götum bæjarins sc
með almesta móti. Daglega er
fjöldi manns tekinn úr um-
ferð og er tala þeirra sem gist
hafa kjallarann þá 20 daga,
sem eru af júlímánuði, nú
komin upp í 261. — í júní-
mánuði tók lögreglan alls 469
manns úr umferö. Þess skal
gctið, að oft er um sömu menn
að' ræða, en þó aldrei sama
manninn tvisvar á sólar-
hring.
í fyrrinótt var mikil ölvun
á götunum. Var slökkviliðið
gabbað niður í Austurstræti.
Var ekki vitað hver hinna
ölvuðu manna, sem þar voru
brauðíættir og óstyrkir að
þvælast, hafði verið valdur að
þessu.
V
Undirbúningi að
útliiutim lokið
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í
fyrradag kom lóðaúthlutun í
Hálogalandshverfi til tals. í því
sambandi skýrði borgarstjóri svo
frá að verkíræðilegum undirbún-
ingi væri nú langt komið og yrði
honum bráðlega lokið.
Borgarstjóri skýrði frá að sam-
ið hefði verið við verkfræðinga
um að leggja fram aukamenn í
því skyni að undirbúningnum
gæti orðið lokið sem ailra fyrsl
og hefðu þeir unnið að þessu
verkefni af kappi undanfarna
mánuði.
Þegar verkfræðistörfum varð-
andi svæðið væri lokið, sem yrði
mjög bráðlega, væri bæjarráði
ekkert að vanbúnaði að úthluta
lóðunum.
Algengt að í slíkar ncetur veiðist
10 þúsund tunnur sildar
NÝLEGA hefur Haraldur Böðvarsson á Akranesi flutt
hingað til lands í tilraunaskyni stórvirkustu síldarnót
sem þekkist í heiminum. Er hún af þeirri gerð sem tíðkast
|á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna, en þar keniur það oft
I fyrir að um 10 þúsund tunnur af síld veiðist í einu kasti
|með þessari tegund nótar. Sturlaugur Böðvarsson er nú á
Siglufirði og mun hann gera tilraun með notkun þessarar
nótar á næstunni
MEÐ FLUGVEL
FRÁ OAKLAND
Síðastliðið mánudagskvöld
kom þessi mikla sildarnót til
landsins með Skymaster-flugvél
alla leið frá San Francisco. Stóð
Húsefahlulnrinn rdm-
ar 1000 kr. d dag
IJLAÐINU var í gær ekki kunnugt um fiskveiðiskýrslu
" skipanna í heild. Hins vegar er vitað að allmörg skip
cru komin mcð allgóða veiði.
í gær átti blaðið tal við Gísla Konráðsson forstjóra Út-
gerðarfélags KEA á Akureyri, en það er eigandi Snæfells,
sem er eitt af aflahæstu skipunum. Það hefur veitt miðað
við uppmælda síld 7178 mál og tunnur. Hlutur háseta þar
um borð er nú orðinn rúmlega 15 þús. krónur, en hlutar-
skipti eru þar í 18 staði. Skipið hefur verið að veiðum frá
því um mánaðamót. Hins vegar mun hluturinn vera orðinn
hærri á hringnótaskipunum, þar sem þar eru færri menn á
en á skipum, sem veiða í herpinót.
í samtali, er hlaðið átti í gær við Sigurð Baldvinsson í
Ólafsfirði, sem gerir út hringnótabátinn Gunnólf, fékk það
þær upplýsingar að hlutur háseta næmi 1000 kr. á dag þar
um borð. Sá bátur hefur aflað mjög vel, en verðmæti afla
hans nemur nú 650 þús. krónum. Hásetarnir fá af þessu
40% og hluturinn skiptist í 11 staði. Ilefur því hver háseti
þar nú í hlut um 23.600 kr. Gunnólfur mun hafa byrjað
veiðar um mánaðamótin síðustu og hefur því hver háseti
haft rúmar 1000 kr. á dag.
Frá Raufarhöfn er símað að hiutur háseta á þeim skip-
um sem veiða með herpinót og mestan afla hafa fengið sé
um 15 þús. krónur, en aftur á móti um 20 þús. kr. hjá hring-
nótabátunum. En þetta er eins og happdrætti, sum skip
hafa enn sem komið er fengið mjög lítinn afla en vonandi
eiga þau eftir að fá stóra vinninginn.
svo vel á að norski útgerðarma'ð-
urinn Ludvig Braathen var að
kaupa þessa flugvél í Oakland,
einni af útborgum San Francisco.
Var enginn flutningur með flug-
véinni svo að það kom sér vel
fyrir Harald Böðvarsson að fá
ferðina fyrir lægra flutnings-
gjald en ella tíðkast í loftflutn-
ingum. Flugvélin kom við í
Winnipeg og Gander á leið sinni
austur á bóginn. Mun þungi nót-
arinnar og tækja sem henni
fylgja hafa verið um 8 smálestir.
RISAVAXIN SNURPINÓT
Kyrrahafsnótin er af snurpi-
nótargerð, en risavaxin. Hún er
300 faðmar á lengd og um 60
faðmar á dýpt. En venjulegar
snurpinætur eru 150 faðmar á
lengd og 2—30 faðmar á dýpt.
VANUR NÓTABASSI
Með nótinni kom til landsins
maður einn af sænskum ættum,
mikill aflakóngur á vesturströnd
Bandaríkjanna. Hann heitir Knut
Larsson og hefur um 30 ár starf-
að við síldveiðar á Kyrrahafs-
ströndinni. Honum var fært að
koma hingað vegna þess, að síld-
arvertíðin á Kyrrahafsströndinni
er á öðrum árstíma, venjulega á
veturna frá því í nóvember til
febrúar.
Þessar risavöxnu snurpinætur
eru almennt notaðar til síldveiða
á Kyrrahafsströndinni. Kemur
það oft fyrir að í þær veiðist í
einu kasti um 10 þúsund tunnur.
Síldin þar er líkrar stærðar og
Faxasíld. Eru þá venjulega mörg
skip um hverja nót. Eitt þeirra
kastar henni en önnur 10 dæla
síld úr nótinni.
MIKIL
FRAMTAKSSEMI
Haía þeir feðgar Haraldur
Böðvarsson og Sturiaugur Böðv-
arsson sýnt mikla framtakssemi
með því að flytja nót þessa
hingað til lands og verður fróð-
legt að kynnast því hvernig hún
reynist. Vegna stærðar nótarinn-
ar verður að nota miklu sterk-
ari vindu en tíðkast á síldveiði-
skipum. Kom hún um leið og
nótin og gengur fyrir vökva-
þrýstingi. Er þrýstingur hennar
þrisvar sinnum meiri en tíðkast
á fiskiskipavindum.
REYND
VIÐ FYRSTA TÆKIFÆRI
Sturlaugur Böðvarsson er nú
farinn til Siglufjarðar til að
reyna nótina. Hefur hann verið
úti með fiskiskipinu Böðvari að
reyna Hvalfjarðarnótina, en þeg-
ar þeir koma í höfn aftur til
Siglufjarðar verður allt undir-
búið til að búa skipið út með
hina nýju risanót. Hér er að
sjálfsögðu um fyrstu tilraun að
ræða og ekki hægt að fullyrða
neitt um hvernig hún muni tak-
ast.
48 nýjar íbúðir byggðar
við Gnoðarvog
Á FUNDI bæjarráðs á föstudag var samþykkt að hefja
byggingu tveggja fjölbýlishúsa til viðbótar við Gnoðar-
vog. Með þessari samþykkt hefur því Verið tekin ákvörðun
um að byggja 96 íbúöir við Gnoðarvog.
Áður er hafizt handa um byggingu tveggja fjölbýlishúsa.
I hvcrju þcssara húsa eru 24 íbúðir, tveggja og þriggja her-
bergja. Verður fyrirkomulag hinna nýju fjölhýlishúsa hið
sama. Húsin eru fjögurra hæða.