Morgunblaðið - 08.08.1956, Síða 6

Morgunblaðið - 08.08.1956, Síða 6
M ORGVNBLAt)1b Miðvikudagur 8. ágúst 1956 Þrtr fjallgöngugarpar sígrq erfiðasta fjallstind landsins ÍTrarBgpriiin yfir l-frauini § Öxna- (SétS kiiffnn um heigiiia ERFIÐASTI fjalltoppur hér á landi, Drangurinn í öxnadal, sem fram að þessu hefur verið talinn ófær með öllu, var klifinn um verzlunarmannahelgina, er tveir ungir menn héðan úr Reykjavík og bandarískur fjall- göngugarpur, gengu á þennan snarbratta tind, sem er 80 metra hár þar sem hann rís upp úr Öxnadalsfjallgarði. Hafa þessir fjallgöngugarpar unnið afrek, sem lengi mun minnst verða. Menn þeir er hér eiga hlut að máli efu þeir Sigurður Waage, Laugarásvegi 73, Finnur Eyjólfs- son, Vitastíg 12 og Bandaríkja- maðurinn Nikulas Clinch. — Með þeim voru svo til aðstoðar þeir Ingólfur Ástmarsson og Haukur Viktorsson, báðir Akureyringar. Fóru þeir með þremenningunum allt upp undir rætur Drangsins, en þar voru þeir eftir, til taks og viðbúnaðar ef eitthvert ó- happ kæmi fyrir. ÞAULVANIR FJALLGÖNGU- MENN. í gær átti tíðindamaður Mbl. stutt samtal við þá Sigurð og Finn um þetta ævintýri þeirra. Enginn skyldi ætla að hér hefðu verið á ferðinni einhverjir við- vaningar. Báðir hafa þeir verið í Flugbjörgunarsveitinni frá stofnun og á hennar vegum fóru þeir til Svíþjóðar í fyrra sumar og voru þar á námskeiði í fjall- göngu. Þeir hafa svo leiðbeint Flugbjörgunarsveitarmönnum og annast þjálfun fjallgöngumanna í sveitinni. DRANGURINN EKKI ÁRENNILEGUR. Þeir félagar láta vel yfir þess- ari för sinni norður í Öxnadal og kváðu Flugbjörgunarsveitar- menn á Akureyri hafa veitt sér ómetanlega aðstoð. — Þegar við nálguðumst Akureyri, en þangað fórum við í flugvél, sáum við til Drangs og var hann ekki sér- lega árennilegur, sögðu þeir. Eft- ir skamma viðdvöl á Akureyri, var svo lagt af stað að Hrauni í öxnadal. MEÐ NÆLONLÍNUR — FLEYGA O. FL. Klukkan var nær níu er lagt var af stað á brattann og er skemmst frá því að segja, að eftir um þriggja klukkustunda gang, var komið upp undir rætur hið bezta veður og útsýnið dá- samlegt. Þi'emenningarnir hvíldu sig nokkra stund þarna uppi og héldu svo niður aftur. Ferðin nið- ur var líka seinfarin og voru þeir um þrjár klukkustundir niður til félaga sinne, og klukkan var um hálf eitt um nóttina er þeir komu niður að Hrauni aftur. LAUSA GRJÓTIÐ HÆTTU- LEGT. Það sem einkum gerði þeim erfitt fyrír við að klífa Drang- inn er hversu grjótið í honum er laust og urðu þeir því að gæta stökustu varfærni, enda má segja að þessi hættulega gönguför hafi tækni. Þetta eru þremenningarnir, sem sigruðu Dranginn í Öxnadal um helgina. Til vinstri er Sigurður Waage, þá Nikulas Clinch og Finnur Eyjólfsson. tekizt svo vel, að þeir félagar þá góðu aðstoð er þeir veittu í hlutu naumast skrámu. Þeir báðu Mbl. að færa Akureyringunum þakkir fyrir skemmtilega för og Hraun í öxnadal, fæðingastaður Jónasar Hallgrímssonar, og Drangurinn, sem ríkir yfir fjall- garðinum stórbrotna. Frá þeim stað sem örinn bendir á, og á Drangtindinn, voru þremenning- arnir 6 klst. að klífa brattann. Drangsins og hafði gönguferðin gengið mjög að óskum. Nú reis Drangurinn þverhníptur 80 metra I hár og hófst nú hin erfiða ganga Allskonar útbúnaður var nú tek- inn upp, nælonlínur, fleygar, snæri o.fl. en án slíks útbúnað- ar er tindurinn með öllu óklíf- andi. Urðu þeir að Ieita fót og hand- festu með mestu gætni og færa sig til einn og einn í senn, meðan hinir veittu aðstoð og tryggðu eftir föngum, að ekki hlytist slys, ,þó steinnybba sem staðið var á | eða haldið var í myndi skyndi- lega losna. Á stöku staff þurfti aff gera tröppur, meff fleygum og snærum. Þeir félagar sögðu að tindurinn hefði verið erfiðari uppgöngu en þeir hefðu ætlað í fyrstu, en þrátt fyrir það, hvarflaði aldrei að okk- ur að hætta við uppgönguna, sagði Sigurður, jafnvel þó stund- um væri aðstaðan allt annað en hagstæð þarna utan í Drangnum. Um það bil sex klukkustund- um eftir að þremenningarnir hófu lokasóknina við að sigra Öxnadals Dranginn, komst fyrsti maðurinn upp á tindinn, en hinn síðasti þremenninganna komst upp klukkust. dðar. Þar uppi var Hátíðahöld verzlunar- manna í Reykjavík HÁTÍÐAHÖLD verzlúnar- manna um s.l. helgi tókust vel. Aðalhátíðin fór fram í skemmtigarði Tivoli, eins og áð- ur hefur verið skýrt frá hér | í blaðinu. Veður var mjög gott og mikill mannfjöldi þar suður- I frá, báða fyrri daga hátíðarinn- ar, en á mánudag spilltist veður og dró það nokkuð úr aðsókn. FLUGELDASÝNING OG GJAFABÖGGLAR. Skemmtiskrá var f jölbrey It, flugeldasýningin vel heppnuð, og gjafabögglum varpað niður sam- kvæmt áætlun. Auk skemmtiat- riða í Tivoli, sáu verzlunarmenn um dagskrá útvarpsins á mánu- dagskvöldið. Viskiptamálaráðherra flutti á- varp. Einnig töluðu Þorvarður Jón Júlíusson, framkvæmdast. Verzlunarráðs íslands og Guðjón Einarsson, formaður Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur. Gísli Halldórsson, vélaverkfræðingur flutti erindi. Fluttur var leik- þáttur o.fl. hvívetna. — Þeir kváðu Banda- ríkjamanninn, hafa sýnt mikla reynslu og kunnáttu í fjallgöngu- Fyrsla frostnóttin skemmdi karlöflugras ARNESI, 4. ágúst HÉR hefur verið stórrigning s.l. þrjá daga. Skall rigningin á að- faranótt s.l. miðvikudags, en veð- urspá var góð og fengu margir því illa ofan í hey sín. Fyrsta frostnóttin á sumrinu var s.l. þriðjudagsnótt. Var jörð alhvít af hélu um morguninn, þegar menn komu á fætur. Sá á kartöflugrasi, en ekki getur það talist stórskemmt. í dag er hér sólskin og ágætur þurrkur, en meiri þurrk þarf nú eftir hina miklu rigningu. —Flermóður. shrifar úr daglega lífinu Þessi mynd er tekin ofan af efstu brún Drangsins og sýnir tvo þremenninganna klífa síffasta spölinn upp, cn Öxnadalstindur er í 1975 metra hæff. — Geta má þess aff Esjan er 909 m þar sem hún ar hæ&t. „Stríff og friður“ kvikmynduff HINN 23. ágúst n.k. á að frum- sýna vestur í New York kvikmyndina „Stríð og friður“ eftir samnefndu skáldverki Tol- stoys, einni hinni mestu og merkilegustu skáldsögu, sem skrifuð hefur verið fyrr og síðar. Kvikmyndastjórar hafa lengi haft augastað á að gera kvik- mynd eftir henni og nú hefur loksins verið ráðizt í stórvirkið. Það er sagt að leikstjórinn, sem er ítalskur — Dino De Laur- entis að nafni — hafi hafst við í felum á eyjunni Capri, meðan á heimsstyrjöldinni stóð (þeirri síð ari) og þar hafi hann haft hjá sér aðeins tvær bækur, „Odys- seifs-kviða“ og „Stríð og frið“ — 1 og lesið hvort tveggja ofan í kjöl- inn. Hann hefur þegar gert kvik- mynd eftir Odysseifi, sem íslenzk ir kvikmyndahúsgestir hafa skemmt sér við að horfa á að undanförnu — suður í Hafnar- firði, en De Laurentis kvað hafa látið svo um mælt, að Odysseifur „haíi verið aðeins lítil og auð- veld æfing og undirbúningur undir „Stríð og frið“, sem hann síðar réðist til atlögu við. Viffbúnaffur og vandi STRÍÐ og friður“ fjallar eins og kunnugt er um ýmsa at- burði á Napeleons-tímabilinu í Evrópu — um fall Napoleons og um daglegt líf, gleði og sorgir fjölmargra einstaklinga, sem fléttað er inn í hina sögulegu stórviðburði. Á kvikmyndatjald- inu líður fyrir auga áhorfandans orustan við Austerlitz, bruni Moskvu-borgar og flótti Napole- ons — eins og nútímamaðurinn ímyndar sér þessa atburði Geta má nærri að mikill viðbúnaður og vandi er samfara þessari kvik myndatöku —- og kostnaður gíf- urlegur. — Um 15 þúsundir ítala kofha þar fram i gervi rússneskra og franskra hermanna, 8 þúsund hestar og nær 3 þúsund blýþung- ar fallbyssur, sem stritað er með um vígvellina. Kvikmyndatökumennirnir tóku svissneska hnappaverksmiðju í sína þjónustu í tvær vikur til að búa til hnappa á alla búningana en til að sauma þá hafði þurft 90 klæðskera — önnum kafna í 7 mánuði. Vanhelgun? YMSIR eru þeirrar skoðunar, að það sé hrein og bein van- helgun á meistaraverkum heims- bókmenntanna að gera eftir þeim kvikmyndir. Með því sé svo greinilega perlum kastað fyrir svín — og er þar átt við almenn- ing, sem kvikmyndahúsin sækja. Mér finnst þetta rangt sjónar- mið. Það er alger óþarfi að líta kvikmynd.ir almennt hornauga, þótt framleiddar séu margar rusl- myndir, sem betur væru ógerð- ar og margar blátt áfram skað- legar. En er það ekki eins í öll- um listgreinum, að framleitt er bæði gott og lélegt?. — Á sama tíma og Tolstoy skrifaði „Stríð og frið“ hefir sjálfsagt verið rubbað upp fjölda ómerkilegra og einsk- isverðra skáldsagna, sem birzt hafa og gleymzt jafnharðan. Til aukins áhuga og skilnings. VAFALAUST er það mikið og críit1< verk að ráðast í að kvikmynda annað eins risa- verk og „Stríð og friður“. —. Það kostar mikla um- hugsun og marga svitadropa — hvar og hvernig eigi að draga saman, fella úr og endurskapa svo að vel megi fara. Hér á að sýna á tjaldi skáldverk, sem er allt að því 1500 prentaðar síður — á rúmlega þremur klukku- stundum. Það er einmitt þetta: hin gríðarlega lengd þessa meist- araverks, sem hefir fælt of marga frá þvi að lesa það. — Er þá ekki fullt eins gott að almenningur fái að kynnast því á kvikmyndatjald inu — jafnvel þótt í ófullkominni mynd sé — fremur en alls ekki? Geta ekki einmitt kvikmyndirnar orðið til þess að opna fjöldanum leið til skilnings á því bezta á sviði bókmenntanna fyrr og síð- ar, glætt áhuga fólks á því að kynnast fleiru af því tagi og kennt því að meta gildi þess? Of fáar sorpíunnur? ■JVTJÖRÐUR hefur skrifað mér i i'l þessá leið: — Ég bý við þá góðu götu, Njarðargötu hér í bæ. Hún er svo sem hverri annarri götu lík, nema kannski að hún er með þeim lengri og brattari og svo að þessu leyti, sem eg held, að hún hljóti að skera sig úr með — að hún er alltaf löðrandi í rusli, ef einhver vindgola er úr einhverri átt. Eg hefi oft verið að velta því fyrir mér, hvort þetta geti stafað af því að of lítið sé um sorptunnur við húsin, svo að fólk af þeim ástæðum hendi bréf- um og rusli á götuna, eða hvort einhverjir geri sér það blátt á- fram að leik að hvolfa úr bréfa- körfunum sínum út á gangstétt- ina til að horfa á Kára gamna sér við tætlurnar! En þetta er allt annað en skemmtileg sjón fyrir venjulegt fólk og setur þvi- líkan draslarabrag á götuna að mér dámar ekki. Eg vildi óska, að þeim, sem hér eru að valdir, væri sárara um bréfsneplana sína. Njörður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.