Morgunblaðið - 11.08.1956, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.08.1956, Blaðsíða 2
9 MORCUISBLAÐIÐ Laugardagur 1T. ágðst 195C i Birti Timinn fnlsaðo mynd of guðsþjdnustu ? FltETT frá fréXtaritara Mbl. í Borgarnesi, sem birtist hér í biaðinu s.l. miðvikudag var frá því skýrt, að á móti samvinnu- manna að Bifröst um verzlunar- mannahclgina hefði drykkjuskap- ur og óreiða vaðið uppi. Allir, sem til þekkja vita að þetta er satt og rétt. En Morgunblaðinu hefur að sjálfsögðu aldrei komið til hugar, að kenna forstöðu- mönnum samkomunnar þau !eið- indi og spjöll, sem slík framkoma fjölda fólks hefur í för með sér. ★ ★ ★ Tíminn reynir að snúa frásögn Mbl. upp í árás á samvinnumenn og telja fólki trú um að hún sé uppspuni. Því til sönnunar birtir blaðið mynd, sem á að vera frá guðsþjónuslu á staðnum. Sýnir hún barnahóp eu í öðrum enda hennar sézt presturinn í IIÁLF- UM prédikunarstólnum. Undir myndinni spyr Tíminn svo: Hvað sýnist ykkur á myndinni? Auð- vitað ekkert annað en það að hún virðist grcinilega vera föls- uð. Sézt það m.a. af því að ckki eitt einasta barnanna horfir á prestinn heldur í allt aðra átt. Tvaer myndir eru hersýnilega akeyttar saman. Samkeppni um pólferðirnar KAUPMANNAHÖFN 10. ágúst: Pólferðir SAS yfir Grænland til Kaliforníu hafa nú náð miklum vinsældum, vegna þess að þær eru skjótustu ferðirnar milli Evrópu og Vesturstrandar Banda ríkjanna. Nú er SAS að fá harða keppinauta á flugleið þessa, því að bandaríska flugmálastjórnin. hefur lagt til að báðum amerísku flugíélögunum Pan American og Trans World Airways verði veitt heimild til pólferða. Flug- vélar þessara félaga munu þó ekki fljúga til Norðurlanda, held- ur til Lundúna og París. Timinn hefur því gerst sekur um það fáheyrða atferli að falsa mynd AF GUÐSÞJÓNUSTU. Hefur hann með því slegið öll sín fyrri met í óheiðarlcgri og ómerkilegri blaðamennsku. lm\í 10 ára m þessar mundír TIVOLI, skemmtistaður Beykvíkinga, er 10 ára um þessar mund- ir. í tilefni af því hefir stjórn garðsins ákveðið að bjóða öllum þeim sem vilja ókeypis aðgang að garðinum á sunnudag. — Ýmis skemmtiatriði verða þar á boðstólum og gjafapakkar handa börnunum sem varpað verður úr flugvél. Hefir það notið mjög mikilla vinsælda hjá börnum að geta fengið gjafapakka úr lofti, og nú verða ávísanir á reiðhjól í tveim þessum bögglum. í hinum verður svo sælgæti og leikföng. „F AKFU GL AK“ Einar Jónsson framlcv.stjóri Tívolís skýrði blaðinu frá því að mjög sérstætt skemmtiatriði verði einnig í Tívolí á sunnudag. Þar skemmta nefnilega um 50 „farfuglar" frá Þýzkalandi, sem kalla sig „Nerother-singer von Rhein und Saar“. Leika þeir og syngja í fulla klukkustund, þ.á.m. donkósakkalög. Er ekki að efa að mönnum þyki gaman að hlusta á þá félagana, enda ekki oft að svo stór hópur útlendinga skemmti Reykvíkingum. „Far- fuglarnir“ koma frá Afríku og ferðast um landið. Þeir eru á öll- um aldri. — Þess má geta að þeir fara í skrúðgöngu suður í Tívolí, og hefst hún frá Austurbæjar- barnaskólanum kl. 3,30 á sunnu- dag. Verður gengið niður Lauga- veg og suður Lækjargötu og komið til Tívolis skömmu fyrir kl. 4. VINSÆLL SKEMMTISTAÐUR Skemmtigarðurinn Tívolí hefur i notið vinsælda þann áratug, sem 1 hann heíur starfað hér. Einkum ! hafa börnin sótt hann mjög, eins j og skiljanlegt er, en fullorðnir. hafa einnig sótt marga góða! skemmtan þangað suður eftir. — Eins og kunnugt er, rekur íþrótta félag Reykjavikur garðinn, en stjórn hans skipa nú: Haraldur Johannessen formaður og með- stjórnendur þeir Sigurpáll Jóns- son, Skúli Rúnar Guðjúnsson, Magnús Baldvinsson og Sigurð- ur Magnússon. Ný brú Þetta mikla brúarmannvirki er verið að reisa á Gilsá í Skriðdal í Fljótsdalshéraði. Þarf hún að vera svo sterk og voldtig sem raun ber vitni til þess að geta borið uppi hin þungu stykki, sem fiytja þarf yfir liana og að Grimsárvirkjtin, sem verið er að reysa ör- skammt frá brúnni. Finnskir boðnir síldarinnflytjendur hingað til lands NÝLEGA komu hingað til lands fimm fulltrúar frá finnskum síldarinnflytjendasamtökum. — Síldarútvegsnefnd bauð fulltrú- unum hingað, en þeir komu með Gullfossi fyrir rúmri viku. Til- gangurinn með boðinu var að gefa Fir.nunum kost á að sjá hvernig sú framleiðsla varður til, sem þeir flytja til lands síns. — Þeir sem komu hingað voru frá samvinnufélögum og öðrum sam- tökum og heita: V. Luuka frá O. T. K., sambandi samvinnufé- laga í Finnlandi; M. Tapaninen írá S. O K„ öðru sambandi sam- vinnufélaga; Reinikka frá Tuko, sem er verksmiðjusamband; Lat- öll umferð um Norður- landsveg stöðvaðist Akureyri, 10. ágúst. Frá fréttaritara Mbl. VEGNA bifreiðaárekstrar í gærmorgun stöðvaðist öll umferð við Grjótá á öxnadalsheiði i meira en klukkustund. Tafðist áætl- unarbifreið Norðurleiða m.a. af þessum sökum. Fulikomsn hótelsýn- ingf á Noreffi á huust Hin fyrsta sinnar fegundar í heiminum NÝLEGA skýrði Lúðvík Hjálmtýsson, formaður Sambands veit- inga- og gistihúsaeigenda hér á landi, blaðamönnum frá því, að halda aetti sýningu á starísemi liótela o. fl. í Osló í haust. Sýning þessi stendur írá 7.—23. september og er einstaeð í sinni röð, því sýning af þessu tagi hefir hvergi verið lialdiu áður. láta í té á sviði gisti- og veitinga- húsarekstrar og í öðru lagi að Á VEGUM NORÐMANNA, EN ÞÁTTAXENDUR VÍDA AÐ. Það er norska hótel- og ferða- mannaráðið, en það er skipað af ríkinu, ásamt hinu norska sambandi veitinga- og gistihúsa- eigenda og fagsamböndum starfs- manna gisthúsa, sem gengst fyrir þessari sýningu. Þátítakendur eru víðsvegar að úr heiminum og eru það fyrirtæki, sem fram- leiða eittlivað til hótelreksturs og ferðalaga. M.a. verður þarna sýnt íull- komið nýtízku hótel, sem sér- staklega hefir verið byggt vegna sýningarinnar og er tvær hæðir og 2000 ferm. að ílatamáli, en auk þess verður sýninarsvæði j fyrir ýmislegt annað 2500 ferm.! Sýnt verður, auk hótelsins, full- J komið eldhús á matsölu með öll- j um tækjum, útiveitingastaður, | allur búnaður til ferðalaga og j viðlegu svo og fjöldi tegunda af \ allskyns varningi, sem nota þarf ' við rekstur veitingaiiúsa og gisti- húsa. Auk þessa verður sýnikennsla fyrir starfsfólk gistihúsa og veit-. ingastaða, svo og kvikmyndasýn- ingar þessu viðkomandi. Takmarkið með þessari sýningu glæða áhuga á Noregi sem ferða- mannalandi og laða ferðamenn þangað. ÁREKSTUR Á BRÚARHOLI Það voru tvær bifreiðar írá Reykjavík, sem kl. 11 í gærmorg- un rákust saman á ræsi vestan Grjótár á Öxnadalsheiði. — Skemmdust báðar bifreiðarnar talsvert, en hvorki ökumenn né farþegar hlutu meiðsli. UMFERD STÖÐVAST Kallað var á lögreglumenn frá Akureyri að koma á staðinn og stóðu bifreiðarnar á meðan kvrr- ar á ræsinu og stöðvaðist öll um- ferð þar á meðan. Höfðu um 20 bifreiöar safnazt saman sitt livoru megin, þegar lögteglan loksins kom. Þegar lögreglumenn irnir höfðu gert nauðsynlegar mælingar, tekið Ijósmyndir o. fl., greiddist úr þessari umferða- flækju. Aðra árekstursbifreiðina varð að draga til Akureyrar, hinni var ekið þangað. — JOB. Siglufirði, 10. ágúst. ENGAR síldarfréttir hafa borizt a£ miðunum í dag. Nokkrir bát- ar hafa tekið grunnnætur og veiða upsa, sem allvíða hefir orð- ið vart við Grímsey og á Skaga- íirði. Hjá S.R. lönduðu eftirtalin skip upsa: Kári Sölmundarson 134 mál, Vörður TH. 62, Helga 1100, Hukur fyrsti 314, Sigurður SI. 408. Hjá Rauðku: Sigurður Pét- ur 8—900 mál. I dag er brsela og ekki veiði- veður. — Guðjón. '3f3. í • « ' hað berta 'Finnskn síldarinnflytjendurnir, sem hingað komu. Frá vinstri: Nyholm, Reinika, I.uuka, Lathinen, ^ fuEmnaTta sem hægt er að j Tapaninen. Myndin er tekin um borð í Goðafopd í gær. Ljósm. Mbl. ÓI. K. M. hinen frá Keskooy, sem er heild- sölufirma, og Georg Nyholm, fulltrúi hjá ræðismanni íslands í Helsingfors. I gær var blaðamönnum gefinn kostur á að hitta Finnana að máli ásamt fulltrúum frá síldarútvegs- nefnd. Eggert Kristjánsson og Gunnar Flóvenz gáfu stutt yfirlit yfir viðskipti íslands og Finn- lands undanfarið. 95% AF SÍLDARINN- FLUTNINGI FINNA Fyrir styrjöldina tókst íslend- ingum ekki að komast inn á Finnlandsmarkað, og fyrsti við- skiptasamningur milli ríkjanna var gerður árið 1946, er samið var um sölu á fimmtán þúsund tunnum síldar. Síðan hafa við- skiptin vaxið ár frá ári og nú í sumar er gert ráð fyrir að fluttar verði til Finnlands um það bil 75 þúsund tunnur. — Íslandssíldin nemur 95% af sildarinnflutningi Finna, en 5% flytja þeir inn frá Skotlandi. OTUIiL FULLTRUI Síldarútvegsnefnd er mjög ánægð með þessi viðskipti, sem ekki eru hvað minnst að þakka hinum ötula fulltrúa síldarútvegs nefndar í Helsingfors, Erik Juur- anto, ræðismanni. Hefur hann verið mjög hjálplegur að vinna íinnskan markað. Verðmæti síld- arinnar, sem flutt er til Finn- lands í ár nemur 36 milljónum íslenzkra króna. SAU SOLTUN A AKRANESI Finnslcu gestimir ltomu það seint hingað til lands, að ekki var hægt að sýna þeim mikla söítun. Eina söltunin, sem þeir sáu, var á Akranesi, en auk þess fóru þeir um Norðurland, allt til Mývatnssveitar, undir ágætri leiðsögn Gunnars Norland. Einn- ig skoðuðu þeir Suðurlandsundir- lendi. Þótti þeim ferðin hin ánægju- legasta, en hræddir sögðust þeir hafa verið í Siglufjarðarskarði. BEZT ÓBREYTT Síldin, sem fer til Finnlands er verkuð þannig, að um það bil helmingur fer í verksmiðjur. og er tilreiddur á mismunandi hátt sem kryddsíld. Hinn helmingur- inn fer aftur á móti á markað- inn óbreyttur, en mikið er gert að því að skipta síldinni á litla kúta, seirr síðan eru seldir almenn ingi. Einn fulltrúinn sagði að sér þætti síldin bezt óbreytt. Þróun- in er þó sú að húsmæður vilja fá síldina þannig tilreidda að hægt sé að setja hana beint á borðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.