Morgunblaðið - 11.08.1956, Side 10

Morgunblaðið - 11.08.1956, Side 10
ir M ORCVNBLAÐIÐ Laugardagur lt. ágúst 1956 Leikur íslanclsmeisraranna og hrezka iandslidsins LE I K U R íslandsmeistaranna og enska landsliðsins var í heild fremur bragðdaufur. Var nú allt annar blær j'fir leik KR- inga en á móti Lokómótíf fyrir skömmu. Leikmenn voru seinir að gefa frá sér knöttinn, fram- iínan sundurlaus og ónákvæm. Aftasta vörnin og markvörður- inn voru þeir einu, er héldu leik- inn út, ef svo má segja. Fram- verðirnir Hörður og Sherriffs gátu talizt allvirkir fyrri hálfleik- inn, en týndust að mestu í þeim síðari, einkum Hörður, sem virtist æfingarlaus. Sendingar framlín- unnar sín á milli voru mjög ó- nákvæmar og langir tilgangsiaus- ir einleikssprettir of tíðir. Bret- arnir með sínar langsprynur upp miðju og kanta voru mun virk- ari í öllum leik sínum úti á vell- inum, en er nálgast tók markið rann margt upphlaupið út í sand- inn. Útherjarnir Twissell og Lew- is ásamt vinstri bakverðinum Fryer voru skenuntilegustu menn liðsins, ávallt virkir og uppbyggj- andi. Skiptingar miðframherjans Laybourne út á kantana voru og skemmtilegar og rugluðu vörn- ina stundum gjörsamlega. í skiptingum liðsins var áberandi, að ávallt var kominn maður í manns stað og hreint og beint lærdómsrílct að horfa á þær, eink- um í seinni hálfleik, eftir að mót- spyrna KR-inga fór að minnka. Fyrri hálfleikur var hratt leikinn og mun skemmtilegri en sá síðari. KR-ingar fylgdust vel með í hraða til að byrja með án þess að fá þó nokkru sinni veru lega góð marktækifæri. Bretarn- ir léku mikið upp kantana, eink- um þann vinstri og hafði Hreiðar nóg að gera með að gæta hins hættulega Twissell. Upp úr einu slíku upphlaupi kom fyrsta mark leiksins Twissell lék upp með endamörkum gaf inn að mark- teig til Lewis ,sem þangað var kominn og snúa þurfti sér í half- hring til þess að geta potað í knöttiim og komið honum í mark. Mjög snöggt og fallega gert í erfiðri stöðu. Er líða tók á hálf- leikinn urðu Bretarnir ágengari og áttu Lewis og Bromilow hættu leg skot á mark, en ýmist höfn- uðu þau í fangi Ólafs markvarðar eða voru yfir og framhjá. Síðari hálfleikur var lausari í reipunum og næsta þófkenndur á köflum. Áhlaup Bretanna urðu nú sífellt fleiri og hættulegri, en KR-ingar náðu aldrei árangurs- ríkum leik, nema inn að vítateig. Lengra komust þeir aðeins ör- sjaldan og án þess þó að veruleg hætta skapaðizt. Það var þó ekki fyrr en á 22. minútu hálfleiksins, að Bretunum tókst að ná öðru marki sínu og gerði það vinstri innherjinn Bromilow með mjög fallegum skalla í stöng og inn, niðri við jörðu, eftir ágætan und- irbúning miðframherjans Lay- bourne, sem kominn var út á hægri kantinn og sendi innherj- anum hæðarspyrnu, sem hann var ekki seinn að nota sér með fyrrgreindum árangri. 5 minút- um fyrir leikslok kom svo þriðja markið. Marshall bakvörður náði knettinum .miðju vega milli víta- teigs og miðlínu á vallarhelm- ingi KR-inga. Hann sendir knöttinn strax til Lewis út á hægri kantinn. Lewis lék með hann örlítið áfram. en sendir síðan knöttinn með geysilega fastri hæðarspyrnu, — engu lík- ara en um markskot væri að ræða — inn í vítateiginn. Þar kom Laybourne brunandi og koll- spyrnti viðstöðulaust í mark. Þessi sending Lewis og viðbrögð miðframherjans voru svo snögg og fljót að ske, að enginn gat áttað sig fyrr en allt var um garð gengið. — Tvímælalaust skemmtilegasta atvik leiksins. — Bretarnir höfðu alltaf yfirtök- in í leiknum og 3:0 verða að teljast sanngjörn úrslit eftir gangi hans. Hinsvegar fer ekki hjá því, að manni verði hugsað til, hverju KR-ingar hefðu get- að komið til leiðar, ef nákvæmni í sendingum hefði verið fyrir hendi. Þeir erfiðuðu mikið, en ónákvæmnin stöðvaði margoft upphlau.p, sem voru vel á veg komin og líkleg til að geta með framhaldi orðið hættuleg. Lánsmennirnir Haukur Bjarna- son og Ólafur í markinu voru beztu menn liðsins, Sherriffs barðist og vel, en framlínan var slök og lítils megnandi. Síðasti leikur Bretanna fer fram á mánudagskvöldið og mæta þeir þá Akurnesingum. Má búast við mjög skemmtilegum leik og ekki kæmi mér á óvart, að Akur- nesingar sigruðu. Þetta enska lið er taktiskt sterkt með sínar langspyrnur, en stutti samleikur- inn er án efa það sem þeir eiga erfiðast með að ráða við og tak- ist Akurnesíngum upp eru sig- urhorfumar góðar. Framliðið kemtiz ósigrað 2 FL. KNATTSPYRNUMANNA úr Fram hefir nú lokið leikjum sínum í Danmerkurförinni. Alls unnu þeir 4 leiki og gerðu 1 jafntefli skoruðu 26 mör-k á móti 9. Þrír síðustu leíkirnir fóru sem hér segir. í Roskildi léku þeir öðru sinni og styrktu heimamenn lið sitt. Lauk þeim leik með jafntefli 2:2. í Holbæk og Hille- röd sigruðu Framararnir með 4 móti 2 á báðum stöðunum. STAÐREYNDIR. Eilífar „tilbakaspyrnur“ til markvarðar með ágenga mót- berja á milli effa á næstu grös- um eru jafnan stórliættulegar og hvimleiffar. Knötturinn á aff ganga áfram en ekki til baka. Þessar spyrnur eru orffnar svo al- gengar aff furðulegt er aff þær hafa ekki þegar kostaff mörg niörk. Leikmenn ættu aff vcnja sig aí þessum hættulegu senu- ingum sem fyrst. ★ Ólafur markvörffur stóff sig prýffisvel milli stanganna í þess- um leik og átíi auk þess ágæt úthlaup. En eiít þarf hann aff vanda sig betur viff. Það eru frá- spyrnurnar frá marki. Helming- ur þcirra í fyrri hálfieik lentu lijá móthcrjunum og þegar hann henti frá marki kom slíkt ekki aff tilætluffum notum, því Eng- lendingarnir voru oft fyrri til, og náffu knettinum af okkar mönn- um, áffur en hann komst svo mik- iff sem framfyrir miðju. Þaff er bezt aff spyrna frá markinu — nota teiginn og spyrna langt. Þaff gerffi sá enski næstum undan- tekningarlaust. * Skipulagslcysi framlínunnai var áberandi í þessum ieik, sem og fjölda annara aff undanförnu. En um þverbak keyrir, þegar all- ur kvintettinn stendur kyrr og bíður í einhverskonar spenningi effa ervæntingu og horfir ein- göngu á kyrrstæffan samherja, sem ekkert vcit hvert hann skal senda knöítinn og gefur hann fyrir fætnr mótherjans að lok- um, vegna þess að engan sam- hcrja í aðstöðu var hægt aff eygja. Þetta kom fyrir meff Gunnar Gunnarsson á vítateig. Framlín- an fylgdi vel eftir, en staðnæmd- ist öli um leiff og Gunnar, sem var meff knöttinn. Engum kom til hugar að hjálpa honunt effa öllu heldur skapa sér affstöðu til aff taka viff knettinum. Áhorf- endur hlógu og hentu gaman aff þessu atviki. En þetta er alvar- legt mál, sem þið getiff Iagaff strákar. Aðeins aff hugsa örlitið, þá koma svona atvik ekki fyrir. II a n n e s . Skandin&visV. BOLDKLUB Ferff til Gullfoss og Geys- is 19. ágúst. Munið mynda- kvöldið í Tjarnar-café 15. ágúst. Ponl H&nsen Sími 1195. Bezt ú auglýsa í Morgunh!aðinu Fyrir nokkru tólt til starfa í Lundúnum heimili fyrir blind börn. Hin fagra leikkona Esther Williams, sem fræg er fyrir sundkunn- áttu sína og fagurt sund, var viffstödd þessa athöfn en leikkonan eyffir miklu af frístundum sínum viff' aff kenna hlindum börnum aff synda. 22 þús. flúðu i júnl 23 þús. flúðn i júlí IJÚLÍ-MÁNUÐI s.l. flúðu 23,124 menn frá Austur-Þýzkalandi vestur á bóginn. Er það 1000 manns fleira en í mánuðinum áöur. Síðustu mánuði hefur borið sérstaklega mikið á því að kennarar bæði úr barnaskólum og menntaskólum flýi ánauð hinnar austur- þýzku kommúnistastjórnar. VONIR SEM BREGÐAST Flóttamannaráðherra veslur- þýzku stjórnarinnar Theodor Oberlánder birti nýlega skýrslu um aultningu flóítamannastraums ins frá Austur-Þýzkalandi. Um skeið hafa menn vonazt eftir að flóttafólki færi að fækka, vegna þeirrar nýju stefnu, sem Krúsjeff hefur talað svo rniltið um. En blákaldur raunveruleik- inn segir affra sögu. í júni s.l. flúðu 22 þús. mamss vestur á bóginn og í júlí 23 þús. Rúm- lega helmingur nóttafólksins er undir 25 ára aldri. 171 flóttaniann:mna í júlí voru mefflimir í her og lögreglu Austur-Þýzkalands. ÓBREYTT ÁSTAND Oberlánder sagði í tilkynning- unni: — Ástandið virðist óbreytt í Austur-Þýzkalandi, þrátt fyrir loforð Rússa um efnahagsaðstoð og malvælasendingar. íbúar á austursvæðinu tengja enn ekki sh'kar vonir við þessi loforð, að það hafi áhrif á flóttamanna- strauminn. SÁLARLAUS FRAMKOMA Walíer Ulbriclit foringl austur-þýzka kommúnista- flokksins viðurkenndi nýlega að flóttamannasaraumurinn úr lanðinu væri sök stjórnar- valdanna. Hann sagði aff orsök flóttans væri „sálarlaus fram- koma embættisrnanna ríkis- ins.“ Meff framkomu sinni, sagði hann, brjóta embættis- mennirnir í bága við hags- muni einstaklinganna, þeir hirffa ckkert uui lýffræffislegar reglur og þaff rýrir traust al- mennings til vikisvaldsins. Og efnahagsörðugleikarnir sem enn koma fyrir og eru óhjákvæmilegir, valda því aff borgararnir missa allt barátlu- þrek og telja erfiðleikana óyfirstíganlega." Þetta er fyrsta játning" Ul- brichts. Nú er eftir að vita, hvort játningin hefur í för með sér rrunhæfar endurbætur. AIEir bezfu frjálsiþróttanienn landsins kegipa á * sem hefst á íþróttavellinum í dag kl. 2,30 með keppni í 200 m, 800 m og 5000 m hlaupum, 400 m grindahlaupi, há- stokki, langstökki, kúluvarpi og spjótkasti. Á morgun kl. 5 verður keppt í 100 m, 400 m og 1500 m hlaupum, 110 m grindahlaupi, þrístökki, stangarstökki, kringlukasti og sleggjukasti. Komið og sjáið skemmtilega keppni. Frjálsíþróttadeild K. R.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.