Morgunblaðið - 19.09.1956, Blaðsíða 8
8
MORCVyBLAÐlÐ
MiSvikudagur 19. sept. 195f
Útg.: H.í. Arvakur, Reykjavík
í rarnkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsso"
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingpr og afgreiðsla: Aðalstr&ti 6. Sími 1600
Askriftargjald kr. 25,00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1,50 eintakið
UTAN UR HEIMI
i
Kvartað undan ,,hörku"
HVERS vegna eru Sjálfstæðis-
menn og Morgunblaðið eiginlega
svona vont við okkur? Hvað höf-
um við af okkur gert? Erum við
ekki saklausir, hreinir og flekk-
lausir, eins og englar? Hvers
vegna er verið að gagnrýna
stefnu okkar? Lofið okkur að
vera í friði og njóta sætleika
valda og upphefðar.
Þetta er í raun og veru aðal-
innihaldið í forystugreinum
stjórnarblaðanna um þessar
mundir. Þau eru sífellt að kvarta
undan því að blöð stjórnarand-
stöðunnar séu svo vond við aum-
ingja stjórnina. Hún fái ekki að
vera í friði með stefnu sína,
hvorki í utanríkis- né innan-
landsmálum. Alltaf sé ótætis
Morgunblaðið með „hörku“ i
garð stjórnarliðsins!
Öllu aumingjalegri og ve-
sældarlegri tónn hefur áreiðan
lega aldrei heyrzt í ríkisstjórn,
sem hefur setið nokkrar vikur
við völd. Það má ekki gagn-
rýna gerðir hennar án þess að
málgögn hennar setji upp
skeifu og reyni að gera sig og
fiokka sína að píslarvottum!!
Stjórnað með bráða-
birgðalögum án
Alþingis
Sr er það nú í raun og veru
þannig, að þessari nýju stjórn
hafi verið mætt af einhverri sér-
stakri „hörku“ og ósanngirni?
Vissulega ekki. Þegar á það er
litið, hver aðdragandi stjórnar-
samstarfsins var og hver stefna
stjórnarinnar er í hinum þýðing-
armestu málum má þvert á móti
segja, að stjórnin hefur sloppið
furðu vel við gagnrýni og á-
drepur.
Þessi nýja r’íkisstjórn var sett
á laggirnar nokkrum vikum eftir
kosningar. Hún. kvaddi Alþingi
ekki saman til fundar eins og
eðlilegt hefði verið, sérstaklega
vegna þess, að miklar deilur voru
uppi um það, hverjir væru rétt-
kjörnir þingmenn. Enda þótt
stjórnin hefði öruggan meirihluta
á þinginu þorði hún ekki að kalla
það saman.
Síðan hefur stjórnin svo gefið
út bráðabirgðalög og skipað
nefndir. Það eru ekki stór afrek.
En auðvitað er það þægilegra
fyrir stjórnina að gefa út bráða-
birgðalög en að þurfa að standa
í kappræðum á þingi um löggjaf-
aratriði. En til lengdar er ekki
hægt að skjóta sér þannig undan
að ræða málin innan vébanda
löggjafarsamkomunnar. Alþingi
á lögum samkvæmt að koma
saman á þessu ári ekki síðar en
10. október.
Lairt á flótta
Kvartanir og skeifumyndanir
stjórnarflokkanna vegna „hörku“
s’tjórnarandstöðunnar eru greini-
legur vottur þess, að stjórnarliðið
er eiginlega lagt á flótta áður en
til nokkurrar orrustu hefur dreg-
ið. Hvað mundi þá verða síðar
þegar raunverulega slær í
snerru?
Kjarni málsins er auðvitað
sá, að það er ein af frumskyld
um stjórnarandstöðunnar í
lýðræðislandi að gagnrýna
framkvæmdir og stefnu ríkis-
stjórnarinnar á hverjum tíma.
Sjálfstæðismenn tclja hins
vegar að slíkri gagnrýni beri
ævinlega að beita af ábyrgðar
tilfinningu, en ekki af hneigð
dag kemur saman ráð-
stefna sú, er vesturveldin hafa
boðað til í London og fjalla á
um stofnun hins fyrirhugaða
sambands þeirra ríkja, er mestra
hagsmuna eiga að gæta viðvíkj-
andi siglingum um Súez-skurð-
inn. Utanrikisráðherrar vestur-
veldanna þriggja (Bretlands,
Bandaríkjanna og Frakklands),
ræddust við í gær og undirbjuggu
dagskrármálið, en óljóst þykir
hvernig starfsemi hins fyrirhug-
aða „Notendasambands“ verði
háttað.
(L-cjijptar $ecjja,
laóamban
L
gu ocjn u n vi
l^jotendí
heinió
did
inn
O vo sem kunnugt er,
sitja ráðstefnu þessa öll ríkin 18,
er stóðu að miðlunartillögu
Dylles á fyrri Lundúnaráðstefn-
unni, en sýnt þykir, að ekki mun
gæta jafnmikils einhugar um
dagskrármál þessarar ráðstefnu
og hinnar fyrri. Utanríkisráð-
herrar Norðurlandanna þriggja
hafa lýst sig fylgjandi þvi, að
málið verði þegar lagt fyrir S.Þ.
og svo er einnig um mörg Asíu-
ríki. Egyptar hafa sent öryggis-
ráðinu orðsendingu, þar sem
hvatt er til þess að vel verði
„fylgzt með þvi, sem Lundúnaráð
stefnan aðhafist". Þar segir og,
I að „Notendasambandið", ef eitt-
J hvað verði úr stofnun þess, sé
í bein ógnun við heimsfriðinn.
Rússar hafa tilkynnt, að þeir
| muni ekki sitja hjá, ef til átaka
kemur í Súez, >tn vesturveldin
I þrjú hafa einnig tilkynnt, að
I „Notendasambandið“ verði stofn-
| að hvort sem þjóðirnar 18, er
Lundúnaráðstefnuna sitja, verði
I því samþykkar eða ekki. Þannig
til æsinga og uppnáms. Heil-
brigð gagnrýni stjórnarand-
stöðunnar á að vera trygging
gegn hlutdrægni og spillingu
af hálfu valdhafanna.
Hefur illt í huga
Margt bendir til þess að sú
ríkisstjórn, sem byrjar þegar í
upphafi valdatímabils síns að
kvarta undan „hörku“ í gagn-
rýni andstæðinga sinna hafi illt
í huga. Hún ætli sér ekki fyrst
og fremst að stjórna af sanngirni
og með alþjóðarhagsmuni fyrir
augum. Þvert á móti sé það ætlun
hennar að beita ýmiss konar póli-
tískum fantabrögðum gagnvart
andstæðingum sínum. Þess vegna
reyni hún fyrir fram að stimpla
alla gagnrýni á sig sem „hörku“.
Það er rétt að þjóðin hafi
þetta í huga þegar hún heyrir
og sér væl og skeifu stjórnar-
liðsins vegna sanngjarnrar og
sjálfsagðrar gagnrýni Sjálf-
stæðismanna.
T umboði helmings
bmðarinnar
Ríkisstjórnin verður einnig að
gera sér það ljóst, að Sjálfstæðis-
flokkurinn og málgögn hans talr
fyrir munn nær helmings þjóðar-
innar. Bak við Framsóknar- og
Alþýðuflokkinn stendur hins veg
ar um það bil einn þriðji hluti ís-
lenzkra kjósenda. Og stór hluti
kjósenda þessara tveggja flokka
fyrirlítur þriðja stjórnarflokk-
inn, kommúnista, og telur sam-
vinnu við hann hina mestu
hneisu.
Stjórnin er þess vegna ekki
eins stcrk eins og flokkar
hennar vilja vera láta. Hún
er brotajárn, sem aldrei verð-
ur bræddur úr hreinn og skír
málmur.
Getur aldrei trypgrt
farsæla forystu
Þessi brotajárnssöfnuður getur
aldrei tryggt landi og þjóð far-
sæla forystu. Þegar á.fyrstu vik-
um valda sinna hefur hann skap-
að íslandi mikið og geigvænlegt
tjón út á við. Inn á við mótast
stefna hans af fullkomnu úrræða-
leysi. Það eina, sem hann hefur
aðhafzt af viti er að éta upp til-
lögur, sem fyrri ríkisstjórnir
höfðu áður flutt um stöðvun verð
lags og kaupgjalds.
Hinir nýju stjórnarflokkar
mega vera þess fullvissir, að
því heimskulegri, sem stjórn-
arstefna þeirra verður og því
meira tjón, sem þeir yalda Mynd j,essi er dr einu Rómar-blaðanna. „Að baki mér standa öll
þjoðmni, ut a við og mn a við, j Arabaríkin“ segir Nasser. En margir eru sennilega sömu skoð-
Enaíandstaða" SjálfJtæðis- | “»ar °S ítalski teiknarinn - að fleiri en Arabar standi að baki
flokksins og málgagna hans.
liggur málið fyrir, er ráðstefnan
hefst í dag.
E,
nn er ekki ljóst, með
hvaða hætti hið fyrirhugaða „Not
endasamband“ á að starfa. Ekki
er annað sýnt, en því sé ætlaður
svipaður starfsgrundvöllur og
Súez-skurðarfélaginu gamla,
enda þótt sambandið við Egypta
eigi nú að verða miklu nánara en
áður var. Miklu mun það skipta,
hvort Egyptum tekst að anna
eðlilegum siglingum um skurð-
inn — og takist þeim það með
hinu fámenna starfsliði, er þeir
nú hafa á að skipa, verður að-
staða hins fyrirhugaða „Notenda-
sambands" mun lakari. Yfirlýs-
ing talsmanns brezku stjórnarinn
ar í fyrradag um það, að „Not-
endasambandið“ verði stofnað,
hvort sem ríkin 18 verði því öll
fylgjandi — eða ekki — er vissu-
lega umhugsunarverð, ef við lít-
um einnig á það, aðEgyptarskoða
stofnun „Notendasambandsins“
sem stríðsyfirlýsingu — og þau
ummæli Dulles á dögunum, að
Bandaríkjamenn sigldu skipum
sínum frekar suður fyrir Afriku
en að brjóta skipum sínum leið
um skurðinn með vopnum.
mt að er þess vegna ljóst,
að ekkert verður úr starfsemi
„Notendasambandsins", ef Egypt-
ar standa við fyrri yfirlýsingar
og sýna engan samningsvilja, en
það má líklegt telja — og aldrei
líklegra en nú — þar eð Rússar
hafa heitið þeim eindregnum
stuðningi í blíðu sem stríðu.
Þeir eru ef til vill margir, sem
ekki gera sér grein fyrir hve
mikilvægi Súez-skurðarins er
geysimikið fyrir hag Evrópuþjóð-
anna. Segja má, að styrkustu
stoðunum sé kippt undan efna-
hagskerfi margra þessara landa,
ef siglingar um Súez-skurðinn
verða ótryggar, eða leggjast nið-
ur með öllu. Enda þótt Nasser
leggi nú áherzlu á að halda skurð-
inum opnum — og leggi engar
hindranir í veg skipa — þá er
ekki þar með tryggt, að ástandið
verði alla tíð þannig. Með hverj-
um deginum sem líður verða
Egyptar háðari kommúnistum —■
og allir gera sér það ljóst, að það,
sem fyrir kommúnistum vakir í
Egyptalandi er að hefta frjálsar
siglingar um Súez-skipaskurð-
inn.
E
Nasser.
Marilyn með magaþembu!
ÞAÐ er ekki að sökum að
spyrja, þegar tízkan er annars
vegar. Skáld geta komizt í
tízku, bækur, kvikmynda-
stjörnur, stjórnmálamenn og
— já, bókstaflega allt milli
himins og jarðar. — Ein þeirra
kvikmyndastjarna, sem virð-
ist vera einna mest í tízku
um þessar mundir er, Mari-
lyn Monroe Miller. Nai'n henn
ar er daglega á síðum stór-
blaðanna, einkum eftir að
hún giftist Arthur Miller og
fór að leika undir stjórn Sir
L. Oliviers. — í síðustu viku
tók hún sér frí frá störfum
í 2—3 daga — og ekki stóð
á blöðunum! Sum þeirra sögðu
að hún væri með barni, en
hin, sem voru ekki fyrst með
fréttina, neituðu því harðlega.
Það var ekki fyrr «n Miller,
maður hennar, hafði rætt við
fréttamenn að heimurinn var
leiddur i allan sannleika:
„Tóm vitlcysa“, hrópaði leik-
ritaskáldið fræga. „Ég ætti að
vita það, hvort hún er ófrísk
eða ekki. Hún fær oft í mag-
ann, þegar hún er að leika.
Það stafar aðeins af kvíðanum.
Og nú er hún með maga-
þembu“. — Sem sagt: þá vit-
um við það!
nginn, sem þetta hug-
leiðir, þarf því að undrast hina
einbeittu afstöðu, sem bæði Bret-
ar og Frakkar hafa tekið til þess-
arar deilu, enda þótt Bandaríkja-
menn hafi ekki sýnt í verki jafn-
ákveðinn vilja til þess að brjóta
Egypta á bak aftur. Forsetakosn-
ingarnar, sem nú standa fyrir
dyrum í Bandaríkjunum, munu
hafa ráðið því, að afstaða Banda-
ríkjanna er ekki jafneindregin og
hinna vesturveldanna — en hins
vegar hafa bæði Eisenhower og
Dulles lýst því yfir, að Banda-
ríkin muni ekki þola neitt ofbeldi
af hálfu Egypta viðvíkjandi sigl-
ingum um Súez. Eisenhower hef-
ur einnig lýst yfir því, að vald-
beiting af hálfu vesturveldanna
sé frá sjónarmiði Bandaríkjanna
réttlætanleg, ef Egyptar sýna
ágang. Þó þykir yfirlýsing Dulles
um að fremur sigli Bandaríkja-
menn skipum sínum suður fyrir
Góðrarvonarhöfða, en að taka
þátt í vopnaviðskiptum í Súez,
Framh. á bls. 15