Morgunblaðið - 18.10.1956, Blaðsíða 1
43. árgangur
239. tbl. — Fimmtudagur 18. október 1956
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mdl
Fyrsti Varðarfundurinn á vetrinum var geysifjölmennur
s'aCsmeim mimu stylp iáfit, en spyrna gegn oréifii
Olafur Thors, formaður Sjálfstæðisfl. flutti þar
ýtariega og yfirgripsmikla ræðu. I félagið
gengu 148 manns á fundinum
IGÆBKVÖLDI var haldinn fyrsti fundur Sjálfstæðisfé-
lagsins Varðar. Hófst hann í Sjálfstæðishúsinu kl. 8,30.
Var fundur þessi frábærlega vel sóttur og var Sjálfstæðis-
húsið fullt út úr dyrum. Sýnir þetta glöggt þrótt og mátt
Sjálfstæðismanna hér í Reykjavík þar sem svo mikið fjöl-
menni sækir fyrsta fundinn á stjórnmálastarfsárinu, ef svo
má að orði kveða. Höfuðræðuna á fundinum flutti Olafur
Thors formaður Sjálfstæðisflokksins. Var ræðan mjög ýtar-
leg og yfirgripsmikil, snjöll og rökföst, en þrungin ádeilum
og réttlátrr gagnrýni á andstæðingunum og furðulegum
stjórnmálaferli þeirra. Vakti ræðan mikla athygli og hlaut
ágætar undirtektir.
Formaður Varðar, Davíð Ól-
afsson, fiskimálastjóri, setti
fundinn og las inntökubeiðnir frá
148 manns, er samþykktir voru
sem nýir félagar einróma. Því
næst gaf hann Ólafi Thors orðið.
RÆÐA ÓLAFS THORS
í upphafi ræthi sinnar gat
Ólafur Thors þess, að Herniann
Jónasson, forsætisráðherra,
hefði í félagi Framsóknar-
manna hér í bænum deiK fast á
fyrrverandi ríkisstjórn. KvaSst
hann nú mundi svara þeirri
ræSu og jafnframt einstökum
árásum, sem komiS hefSu fram
í stuðningsblöSum forsætisráð-
herrans.
RAKTI GANG
EINSTAKRA MALA
Ólafur Thors rakti síðan land-
varnarmálin og ábyrgð þá er Her-
mann Jónasson ber á því, að ein-
ing lýðræðisflokkanna um þau
mál var rofin. Gerði hann síðan
grein fyrir óskum meginþorra
þjóðarinnar í þessum málum. Þá
rakti hann landhelgismálið og
hrakti rógburð kommúnista um
það. Síðan söluna til Rússa og
það að íslendingar vildu ekki
verða neinni einstakri þjóð of háð
ir með viðskipti sín.
Um sjávarútvegrinn og skammir
Framsóknar um frv. sjávarútvegs
málaráðherra sagði ræðumaður,
að þar bæru ráðherrar Framsókn-
ar jafnan heiður og hann, svo og
ræddi hann um lánsfjárútveganir
frv. ríkisstjðmar og gerði grein
fyrir hinum mikla árangri er sú
stjórn náði f þeim efnum.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
VILL STYÐJA ALLAR RAUN-
HÆFAR AÐGERÐIR í EFNA-
HAGSMÁLUM
Þá rakti hann sögu núverandi
ríkisstjórnar, myndun hennar,
starf, fyrirheit og framtíð og svar-
aði aðalefni ræðu forsætisráð-
herra. Síðan gerði hann verðlags-
og efnahagsmálunum víðtæk skil.
Kvað hann Sjálfstæðisflokkinn
reiðubúinn til þess að styðja
allar raunhæfar aðgerðir, sem
ÓLAFUR THORS
fram kæmu til þess að stöðva
verðbólguna.
Taldi hann það ekki hyggi-
legt fyrir stjérnina að reyna að
telja þjóðinni trú um, að Sjálf-
stæðisflokkurinn væri á móti
Framh. á bls. 2.
BRETAR RÍÐA Á VAÐIÐ
MEÐ KJARNORKUVER
LONDON, 17. okt. — Elísabet
Bretadrottning vígði í dag fyrsta
kjarnorkuverið í þágu almenn-
ings, sem byggt hefur verið í
heiminum. Þetta er kjarnorku-
verið í Calder Hall í Cumber-
landi. Mun það framleiða svo
mikla raforku, að það mun vega
upp á móti þeirri stöðnun, sem
síðustu fimm árin hefur orðið á
brezkri kolaframleiðslu, og þann-
ig tryggja brezkum iðnaði ör-
ugga framtíð. Á næsta ári verða
tvö svipuð kjarnorkuver fullgerð,
og mun orka þeirra ekki verða
dýrari en orkan úr venjulegu raf-
magni eða kolum. Þessi ver munu
framleiða um 150.000 kílóvött af
rafmagni, en það nægir til að hita
og lýsa borg með einni milljón
íbúa.
Elísabet drottning lét svo um
mælt í ræðu sinni í dag, að opn-
un þessa nýja orkuvers væri
heimssögulegur viðburður, sem
mundi gefa öllu mannkyni von
um bjartari framtíð, og þá fyrst
og fremst þeim löndum, sem
skammt væru á veg komin tækni-
lega.
Bretar munu enn færa út kví-
arnar á þessum vettvangi, og er
búizt við að kjarnorkuframleiðsla
þeirra muni margfaldast á næstu
þremur fjórum árum.
Hverjir tefja þinystörfin ?
FUNDUR stóð aðeins í hálfa klukkustund í Sam-
einuðu þingi í gær. Voru þá kosnir forsetar, skrif-
arar og kjörbréfanefnd. Næst lá fyrir að kjósa til Efri
deildar, en þá frestaði forseti fundi, án allra skýringa.
í fyrrakvöld var vitað að stjórnariiðið var á fundi
langt fram á nótt og í gærmorgun hóf það einnig
fundi, sem ekki lauk fyrr en rétt áður en fundur var
settur í Samcin. þingi kl. 1,30. Fengu stjórnarþing-
menn því ekki tækifæri til þess að fá sér matarbita
áður en til forsetakosninganna var gengið. Menn eru
nú að velta því fyrir sér, hvort heldur stjórnarþing-
mennirnir hafi verið orðnir svo svangir að þeir gætu
ekki haldið áfram fundi, eða hvort samkomulag um
virðingarstöðurnar í Alþingi sé ekki að fullu fengið?!
Styfifirí herskyldu-
tími hættulegur
KAUPMANNAHÖFN, 17. okt.: —
í danska þinginu hófust í dag
umræður um ræðu forsætisráð-
herrans, og þá einkum um her-
skyldutímann. Formælandi rík-
isstjórnarinnar sagði, að ljóst
væri að 16-mánaða herskylda
væri bæði erfið fyrir einstakl-
inga og kostnaðarsöm fyrir rík-
issjóð, en stytting herskyldutím-
ans væri óframkvæmanleg eins
og sakir stæðu, þar sem hún
mundi draga mjög úr varnar-
mætti danska hersins.
Halvard Lange, utanríkisráð-
herra Noregs, lýsti því yfir í
ræðu, sem hann hélt f Osló i
mánudagskvöld, að ekki kæmi til
mála að stytta herskyldutímann
í Noregi. Það væri að vísu gleði-
legt að friðsamlegar horfði í heixn
inum, en slíkt mætti ekki leiða
menn til óskhyggju eða blinda þi
fyrir þeirri meginstaðreynd, að
enn væri Austur-Evrópa grá fyr-
ir járnum. Við verðum nefnilega
að muna, sagði Lange, að einu
sinni spurði Stalín: Hvað hefur
páfinn margar herdeildir? Við
megum ekki stofna í hættu því,
sem unnizt hefur með vörnum
vestrænna þjóða á síðustu árum.
7,4 lítrar af vínanda
STOKKHÓLMI, 17. okt.: —
Á þessu ári hefur víndrykkja
í Svíþjóð farið mjög vaxandi
— og telja margir, að ástand
það, er nú er að skapast, sé
mjög uggvænlegt. Frá 1. okt.
Moskvu-línan
ekki slitnuð
WASHINGTON, 17. okt.: —
„Washington Post“ birti í dag
efni bréfs, sem það segir að
sent hafi verið frá Kreml til
allra leppstjórna kommúnista-
ríkjanna. Efni bréfs þessa er
það, að rússneski kommúnista-
flokkurinn sé enn sem fyrr
leiðarstjarna kommúnismans,
og kommúnistaflokkum ann-
arra landa beri að hlíta ráð-
um og fyrirskipunum hans.
Segir blaðið, að bréf þetta
hafi orðið til þess, að Tito
og Krúsjeff áttu með sér fund
á dögunum.
Ennfremur seglr, að englnn
/afi leiki á því, að afrit það
af umræddu bréfi sé alger-
lega rétt. — Reuter.
í fyrra til sama dags í ár mun
hver Svíi hafa drukkið að jafn
aði sem svarar 7,4 lítrum af
hreinum vínanda. Til saman-
burðar má geta þess, að hlið-
stæðan í Noregi er 2,2 lítrar
en 0,9 í Danmörku. Tekjur
ríkisins af vini hafa vaxlð
mjög, og eru nú uppi hávær-
ar raddir um það, að nauðsyn
beri til þess að grípa til ein-
hverra ráðstafana til þess að
draga úr drykkjunni. Hefur
m.a. komið til tals að hækka
bæri vínið, en sumir telja, að
slíkt mundi ekki bera árangur.
Svo sem kunnugt er af fréttum kom til mikilla óeirða í Hong Kong á dögunum. AIls munu 33
hafa beðið bana í átökum þessum, en á annað hundrað munu hafa særzt. Áttust þar við Kínverj-
ar, fylgismenn þjóðernissinna og kommúnista, og má segja, að þeir hafi ekki þyrmt neinu, sem
fyrir var. Meðal annars réðust þeir á bifreið, er svissneskur sendiráðsstarfsmaður og kona hans
óku í. Velti múgurinn bifreiðinni á hliðina og kveikti siðan í henni. Tókst sendiráðsmanninum
með naumindum að bjarga sér út með konu sína í fanginu, sem þá var skaðbrennd. Var hún flutt1
í sjúkrahús — og lézt hún þar nokkru síðar. Bifreiðastjórinn varð einnig fyrir slysum, og kom I
ljósmyndarinn að í þvi augnabliki, er hann lá ósjálfbjarga við bifreiðina — mikið brenndur.
Kvika hvergi
LONDON, 17. október. — Á
morgun mun notaendasam-
bandið koma saman í London
— og er tilgangur fundarins
sá að undirbúa að fullu starf-
semi sambandsins.
Eden og Lloyd komu til
London í dag frá París, en
þar ræddu þeir við þá Mollet
og Pineau. Við komuna til
London sagði Eden, að Bretar
og Frakkar væru algerlega
sammála um það, að halda
bæri áfram á sömu braut og
áður, enda þótt Rússar hefðu
beitt neitunarvaldi gegn
fransk-ensku tiilögunni í Ör-
yggisráðinu.