Morgunblaðið - 18.10.1956, Síða 2
2
M ORCVVnr tpjB
Flmmtuðagur 18. okt. 1956
¥afinr§uEdurinn
--Xy- *>&?■ .-m*tfpnpr*
3^9KgSgHB>8
Framh. af bls 1
stöðvun verðbólgunnar, þótt
blöð flokksins skopuðust að
hringsnúningi krata og komiiia,
þar sem þeir, nú \ stjórn, eru
með öllu sem þeir áður voru
á móti. Þá rakti hann og þvætt-
ing Hermanns Jónassonar um
„helsjúkt fjármálakeríi“ lið
fyrir lið.
Togarinn á flot
BLAÐIÐ Fishing News skýrir frá
því, að tekizt hafi að bjarga 1
brezka togaranum Prinee Charl- I
es, sem strandaði og sökk við
Noregsstrendur fyrir um það bil
10 mánuðum. Var . þessi togari
einn hinna nýjustu og beztu í
togaraflota Breta og er frá Hull.
— Er hann nú kominn þangað
til viðgerðar, en togarinn er mik-
ið skemmdur.
Með tvo heilo
MADRID: — Á mánudag
fæddi kona nokkur í Madrid
stúlkubarn, sem reyndist vera
með óvenjustórt höfuð. Við
nána rannsókn kom í ljós, að
stúlkan hafi tvö heilabú
og var hvort um sigí eðlilegri
stærð. Einnig hafði litla stúxk-
an tólf fingur og tólf tær.
Bæði móður og dóttur líður
vel, og segja læknar, að litla
stúlkan komi til með að ve.öa
frábærlega gáfuð.
Ræðumaður rakti síðan aðgei
ir fyrrverandi ríkisstjórnar og
leiðir þær, sem nú væri um að
velja í efnahagsmálum þjóðarinn-
ar, sem væru í aðalatriðum 4, og
hefðu allar verið til umræðu hjá
stjórnmálamönnum áður og yfir-
vegunar hjá sérfx-æðingum.
Að lokum ræddi Ólafur Thors
um framtíð þt rar ríkisstjórnar
og kvað mönnum leika forvitni á
að fá að sjá framan í „vinstri úr-
ræðin“. Kvað hann að Sjálfstæðis-
menn myndu bíða rólegir átekta
og meta og dæma hvert mál og að-
stöðu fyrir sig. Þeir myndu styðja
rétt, en spyrna gegn órétti. Hann
lauk máli sínu á þessa leið:
HANGIR SAMAN Á ILLU
Ef ég segi hug minn allan,
játa ég, að ég hygg að aldrei
hafi ósamstæðari stjóm setzt að
vöklum ú íslandi né náð völd-
um með meiri „óheilindum,
prettum og brigðmælgi“ en
þessi stjórn. Hún hangir
kannske lengi saman á illu.
Hið góða endist henni ekki til
langlífis.
A myndinni eru stúdentarnir fimm talið frá vinstri: Ted Huller
frá háskólanum í Minneapolis, af sænskum ættum og nemur líf-
efnafræði; Dick Quanrud frá háskólanum í Minneapolis, af norsk-
um ættum og nemur stærðfræði; John Hill, varaformaður stúd-
entasamtakanna í Duluth, af finnsk-frönskum ættum og nemur
bókmenntir og stjómmálavísindi; Sandra Ericsson frá háskólan-
um í Minneapolis, af finnskum ættum og nemur barnafræðslu; og
loks Peter Thorsteinsson, formaður stúdentasamtakanna í Duluth,
Inf íslenzkum ættuin og nemur félagsfræði.
Fimm handarískir
stúdeniar í heimsókn
ÍGÆR komu hingað til lands
fimm bandarískir stúdentar
í boði Stúdentaráðs Háskóla ís-
lands. Eru þeir frá Minnesota,
sem er helzta heimkynni manna
af norrænu kyni í Bandaríkjun-
liinan Iskndsdeildar Cu5-
spekifélagsins eru 11 slúkur
Aðalfundur deiidarinnar haldinn um síðusfu
mánaðamóf
41. ÁRSFUNDUR íslandsdeildar Guðspekifélagsins var haldinn
um sl. mánaðamót. Fluttar voru skýrslur og lagðir fram reikningar,
kosið í stjórn og fastar nefndir, fyrri dag fundarins, en að kveldi
hins 1. þ. m. flutti Grétar Fells erindi, er hann nefndi „Rök
Guðspekinnar".
KJÖRINN HEIÐURSFORSETI
DEILDARINNAR
Innan íslandsdeildarinnar eru
nú starfandi 11 stúkur, þar af
fjórar í Reykjavík. Grétar Fells,
sem gegnt hefur forsetastöríum í
félaginu s.l. 21 ár, skoraðist und-
an endurkjöri, en fundurinn
heiðraði hann og þakkaði störf
hans með því að velja hann sem
heiðursforseta deildarinnar. For-
seti deildarinnar var kjörinn
Sigvaldi Hjálmarsson, en aðrir í
stjóm eru: Frú Guðrún Indriða-
dóttir, Sigurjón Danivalsson,
Þórir Ben. Sigurjónsson og Guð-
jón B. Baldvinsson.
VETRARSTARFIÐ HAFH)
Stúkurnar hér í Reykjavík
hafa nú hafið vetrarstarfið, og
eru fundir þeirra á hverju föstu-
dagskvöldi, ennfremur hefjast nú
störf í fræðsluflokkum félagsins,
og fyrstu þrjá sunnudagana á
vetrinum verða haldin kynni-
kvöld félagsins, þar sem flutt
verða erindi fyrir almenning, en
þeirri starfsemi hefur verið hald-
ið uppi um mörg undanfarin ár.
um, enda eru þessir gestir allir
af norrænum stofni. Stúdentarn-
ir munu dveljast hér á landi í
hálfan mánuð og kynna sér ís-
lenzkt háskólalíf. Þeir hafa valið
þennan tíma til heimsóknarinnar
einmitt með það fyrir augum að
sjá Káskólann að störfum. Þannig
munu þeir bæði geta tekið þátt
í Háskóla-hátíðinni 27. okt. og
verið viðstaddir kosningar í Stúd
entaráð. Jafnframt munu þeir
skoða Reykjavík og nágrenni,
fara til Reykjalundar, Þingvalla,
Sogsvirkjunarinnar, Akureyrar
— og Gullfoss og Geysis, ef veð-
ur leyfir.
Þessi heimsókn stendur í sam-
bandi við jtúdentaskipti, sem
tekizt hafa með Stúdentaráði og
Bandaríska stúdentasambandinu.
Á s.l. vori fóru fimm íslenzkir
stúdentar til Bandaríkjanna á
vegum sambandsins. Voru þeir
fyrst 10 daga í Minneapolis í boði
háskólans þar, en heimsóttu síðan
háskóla í Wisconsin, Chicago,
Washington og Boston. Kostaði
Bandaríska stúdentasambandið
allar ferðir þeirra innan Banda-
ríkjanna, og nú mun Stúdenta-
ráð kosta dvöl gestanna hér. Það
var háskólinn í Minneapolis, sem
valdi þessa fimm stúdenta til far-
arinnar, en alls bárust um 40
umsóknir.
Björgvin Guðmundsson, for-
maður Stúdentaráðs, kallaði
fréttamenn á fund gestanna í
gær, og létu þeir hið bezta yfir
kcmu sinni hingað og hinu ágæta
veðri. Þeir eru allir mjög at-
hafnasamir í stúdentalífi vestra
og vænta sér mikils af kynnum
sínum við íslenzka stúdenta. —
Meðal þeirra er formaður stúd-
entasamtakanna í Duluth, sem er
af íslenzku bergi brotinn í báðar
ættir. Annar afi hans fluttist frá
Hrútafirði vestur um haf, en hinn
kom af Rangárvöllum. Kvaðst
hann hafa í huga að komast í
samband við ættfólk sitt hér á
landi.
15 ár fráþví kennsla
hófsl í viðskipfa-
Mænusóttarbólu-
setmngin í Heilsu-
verndarstöðiniii
TIL þess að gera mænusóttar-
bólusetningu smábarna, sem nú
stendur yfir í Heilsuverndarstöð-
inni, auðveldari, hefur því verið
komið á að börnin við fleiri eða
færri götur koma samtímis á á-
kveðnum tíma dagsins. Þess skal
getið að það var á misskilningi
byggt sem stóð í Mbl. í gær að
hafin væri bólusetning hálfs árs
barna, yngstu börnin sem nú eru
tekin eru eins árs.
Piltnr slasast
VEGFARENDUR á Skólabrú
komu þar að um klukkan 6 í
gærkvöldi er piltur lá í götunni
á grúfu og virtist vera meðvit-
undarlaus. — Hann hafði dottið
af reiðhjóli og blæddi úr vitum
hans. Var hann fyrst fluttur í
sjúkrastofu Stefáns Ólafssonar
læknis,*en síðan er lögreglumenn
komu, var farið með hann í slysa-
varðstofuna. Pilturinn heitir
Hjálmar Karlsson til heimilis að
Hringbraut 43. Var ekki í gær-
kvöldi fyllilega ljóst með hverj-
um hætti slysið hafði orðið.
VIÐSKIPTAFRÆÐINGAR og
viðskiptafræðinemar munu minn
ast þess í dag að 15 ár eru liðin
frá því, að kennsla hófst í við-
skiptafræðum við Háskólá fs-
lands. Verður samkoma í Há-
tíðarsal Háskólans kl. 5. Meðal
ræðumanna verður menntamála-
ráðherra og formenn Félags við-
skiptafræðinga og Félags við-
skiptafræðinema. Próf. Ólafur
Björnsson mun flytja erindi. Öll-
um er heimill aðgangur.
Um kvöldið munu viðskipta-
fræðingar og viðskiptafræðinem-
ar hittast í Þjóðleikhúsinu.
Sæmilegur afli
AKRANESI, 18. október: — 10
bátar komu í dag með alls 700
tunnur af síld. Aflahæstir voru
Sigurvon með 215 tunnur,
Sveinn Guðmundsson með 110 og
Höfrungur með 83.
Heldur er að glæðast afli hjá
línubátunum. Þeir aflahæstu
voru í dag með á aðra lest.
Finnskt skip kom hingað í dag,
87 ára gamall og losaði 4000 tóm-
ar tunnur. Skipið fer héðan til
Keflavíkur. — Oddur.
Gætu eytt lifinu
á jörðunni
WASHINGTON, 17. okt. —
Varaforsetaefni demókrata,
Kefauver, viðhafði þau um-
mæli í dag, að nú þegar væru
til það miklar birgðir af
vetnissprengjum, að nægði til
þess að eyða öllu lífi á jörð-
unni. Blaðafulltrúi Eisenhow-
ers lét þess getið í dag, að til-
lögur Stevensons um að til-
raunum með vetnssprengjur
yrði hætt, væru byggðar á
röngum forsendum. — Reuter.
Tehús ágústmánans
frumsýnt í Þjóðleikhús-
inu á sunnudag
Ófri&arblika
Öryggisráðið kemur saman á
Bílhoppdrættið
SJÁLFSTÆÐISMENN. — Efliff
Sjálfstæðisflokkinn og kaupið
miða í bílhappdrættinu.
Jafnframt fáið þér tækifæri
til að eignast glæsilega ameríska
fólksbifreið.
Skrifstofa h.ippdr ættisins er
opin dag hvern kl. 9—12 og
1—6. — Sími 7100.
Við sendum miða til þeirra er
þess óska.
SÖLUBÖRN
Komið á skrifstofu happdrætt-
ísins í Sjálfstæðishúsinu og takið
'miða til sölu.
^ ÖRYGGISKÁÐIÐ kemur sam-
an á föstudag til að ræða kæru
Jórdaníu á hendur ísrael
vegna árásanna í síðustu viku.
ísrael hefur einnig sent ráð-
inu kæru á hendur Jórdaníu,
og verður hún tekin fyrir síð-
ar. — Undanfarna daga hafa
verið látlausar skærur á
landamærum rikjanna, og
hefur mannfall úr liðum
beggja, skipt tugum.
Á Ben Gurion, forsætisráðherra
ísraels, hefur ítrekað það, að
stjóm hans muni líta svo á,
að flutningur erlendra her-
sveita til Jórdaníu sé freklegt
brot á vopnahléssáttmála land
anna og verði ekki þolað. —
ný
Sagði hann, að ísraelsmenn
mundu gera hverjar þær ráð-
stafanir, sem nauðsynlegar
teldust til að tryggja öryggi
sitt.
Á Brezka utanríkisráðuneytið
hefur birt yfirlýsingu þess
efnis, að það telji brezkar
flugsveitir í Jórdaníu ekki
skuldbundnar til að veita
Jórdaníumönnum lið í landa-
mæraskærum. í varnarsamn-
ingi Bretlands og Jórdaníu er
kveðið svo á, að hvort ríkið
hjálpi hinu, ef á það er ráðizt,
og verður það loforð haldið,
en brezka stjómin áskilur sér
rétt til að ákveða sjálf, hve-
nær þetta ákvæðf komi til
framkvæmda.
ASUNNUDAGINN verður frumsýnt nýtt bandarískt gamanleikrit
í Þjóðleikhúsinu. Nefnist það Tehús ágústmánans og hefur farið
sigurför um heim allan. Fjallar það um dvöl bandaríska herliðsins
á eyjunni Okinawa eftir styrjöldina og samskiptin við hina inn-
fæddu. Sigurður Grímsson hefur þýtt leikritið, en Einar Pálsson
retur það á svið.
FRÁ AUSTURLÖNDUM
Er þetta fyrsta leikritið, sem
Einar setur á svið hjá Þjóðleik-
húsinu. Höfundur þessa leikrits
er John Patrick, allkunnt banda-
rískt leikritaskáld. Stundaði hann
nám í Harward í leikgerð, barð-
ist með hersveitum Montgomerys
í styrjöldinni, en hélt síðan til
Austurlanda. Leikritið „Segðu
það steininum" sem Leikfélag
Reykjavíkur sýndi fyrir nokkru
ritaði hann um líf hermannanna
þar og síðan þetta sem hér verður
sýnt.
SIGURFÖR VÍÐA
Tehús ágústmánans er í þrem
þáttum og tekur um þrjá tíma
að sýna það. Fyrst var það sýnt
á Broadway 1953 og tvö ár sam-
fleytt. Það hefur verið sýnt á
öllum Norðurlöndum og verður
m. a. bráðlega sýnt í Moskvu.
Höfundurinn fékk fyrir það Pul-
itzer-verðlaunin bandarísku og
silfurlampa þarlendra.
LÍKT OG JEPPI
Aðalhlutverkið leikur Láms
Pálsson, en með önnur aðalhlut-
verk fara Rúrik Haraldsson og
Margrét Guðmundsdóttir, sem
leikur japanska geishu. Þá leika
og þrjú börn af kínverskum ætt-
um og ein geit ofan úr Úlfars-
felli kemur og fram og leggur
sitt til málanna. Herjeppa er
einnig ekið um sviðið og er það
nýlunda að svo stórbrotin farar-
tæki þeysist þar um völl. Leik-
tjöld gerði Lárus Ingólfsson.