Morgunblaðið - 18.10.1956, Síða 3

Morgunblaðið - 18.10.1956, Síða 3
Fimmtudagur 18. okt. 1956 MORCTJTSBL 4 Ð1Ð 3 Mynd eftir Ásgrím frá tndónesíu og höggmynd eftir Einar Jónsson á listaverkauppboði í dag jr DAG og á morgun heldur Sigurður Benediktsson listaverka- 1 uppboð i Sj álfstæðishúsinu. Þar verða 31 málverk eftir kunn- ustu málara og ýmsir aðrir listgripir, m. a. konumynd eftir Einar J ónsson. --------------—---^GERÐ í HÖFN Á 10. Jbús. líflömb flutt í Dalasýslu Hagstætt heyskaparsumar — Miklar byggingaframkvæmdir og ræktun HALLBJÖRG í HAMBORG HAMBORGARBLAÐIÐ „Bild- Zeitung“, birti nýlega mynd af frú Hallbjörgu Bjarnadóttur und ir fyrirsögninni „Konan með raddirnar hundrað“. Segir blaðið, að frúin sé jafnvíg á raddir Ric- hard Taubers, Louis Armstrongs og Paul Robesons, auk fjölda annarra þekktra söngvara. Þátt sinn sýnir hún um þessar mundir í „Allotria“ fjölleikahúsinu í Hamborg við mikla hrifning til- héyrenda. Blaðið segir að Hall- björg sé eina íslenzka konan, sem getið hefur sér alþjóðaorð í fjöl- leikahúsum, og að það sé eigin- maður hennar sem sér um allar ráðningar. Næsti áfangastaður þeirra hjóna er Svíþjóð, en síðan halda þau til Bandaríkjanna. ITMDÆMISSTÚKA Suður- J lands fór útbreíðsluför til Ólafsvíkur um sl. helgi. Á laug- ardagskvöldið var samkoma í hinu myndarlega félagsheimili þeirra Ólafsvíkinga. Ávörp og ræður fluttu: Þórður Steindórs- son, umdæmiskanslari, Þorsteinn J. Sigurðsson, umdæmistemplar, Sigurður Guðmundsson, fyrrver- andi umdæmistemplar og Frey- móður Jóhannsson, listmálari. Af heimamönnum töluðu sókn arpresturim^, séra Magnús Guð- mundsson og hinn áhugasami og ötuli æðstitemplar stúkunnar, Jökulblómið, Ásgeir Jóhannsson. Með í förinni var 11 Sra Reyk- víkingur, Emil Th. Guðjónsson, «r vakti hrifningu með harm- ónikuleik sínum. Ýmislegt fleira var þar til skemmtunar, s.s. get- raun, er ungir Ólafsvíkingar tóku þátt í og stóðu sig prýðilega, en Þórður Steindórsson stjórnaði. Á eftir var dansað til kl. 2 um nótt- ina og var þar samankomið margt prúðbúið myndarfólk úr Ólafs- vík. Skemmtun þessi fór mjög vel fram. Á sunnudaginn hlýddu menn árdegismessu í Ólafsvikurkirkju, en sóknarpresturinn, séra Magn- ús Guðmundsson, prédikaði og minntist hins göfuga þjóðheilla- starfs, er Góðtemplarareglan helgar krafta sína. Kl. 2 síðd. á sunnud. var haldinn fundur í stúkunni Jökulblómið og gengu við það tækifæri sex ungmenni í stúkuna. Gestir og heimamenn kvöddust að fundi loknum, við kaffiborð í félagsheimilinu, og ríkti þar gleði og ánægja yfir heimsókninni. Maríus Ólafsson, umdæmisritari og skáld og Þor- grímur Einarsson leikari lásu kvæði og mörg ávörp voru flutt og árnaðaróskir. Til Reykjavíkur Höggmynd þessi er af konu a skautbúningi, metershá, gerð í gips. Hana gerði Einar í Kaup- mannahöfn skömmu fyrir alda- mótin, þá nýkominn úr danska listháskólanum. Er hún dökk með gullna ennisspöng og linda. Þarna er og málverk af Hestfjalli eftir Ásgrím, sem hefur verið um ára- bil í eigu íslendings í Indónesíu, en er nú komið heim. MYNDIR MUGGS Þar eru allmargar myndir eftir Kjarval, m. a. Seglaskógur, rauð krítarmynd frá 1917, sem Kjarval gerði í Kaupmannahöfn. Fimm myndir eru eftir Mugg, m. a. Þrjú tröll, sem eru sem nýstokkin út úr þjóðsögunum að sjá. Kristín Jónsdóttir, Jón Stefáns- son, Þorvaldur Skúlason, Vetur- liði Gunnarsson og allmargir aðrir málarar eiga og þarna myndir. var svo haldið um kvöldið og nóttina. í heimsókn þessari kom glöggt fram í ræðum manna, hvílik nauðsyn það er, að Góðtemplara- reglan beiti sér með auknum krafti gegn því þjóðhættulega ó- fremdarástandi, er ríkir í áfengis málum þjóðarinnar og leggur æ fleiri efnilega menn og konur og heimili þeirra að velli. Stúkan í Ólafsvík virðist eiga bjarta framtíð í vændum, enda hefur hún ágætum starfskröft- um á að skipa. Og líkleg er hún til þess að láta ekki sinn hlut eftir liggja í sókn þeirri, er vænta má, að standi fyrir dyrum. Höggmynd Einars Jónssonar Fuilfrúar S. V. F. í. ferðast uaii landið ÞEIR Guðmundur G. Þórðarson, fulltrúi og Ásgrímur Björnsson, erindreki Slysavarnarfélags ís- lands eru nýkomnir úr ferðalagi um og Norður- og Austurland, þar sem þeir heimsóttu slysa- varnadeildar, sýndu fræðslu- og skemmtimyndir, kenndu hjólp í viðlögum og meðferð björgunar- tækja. Þá stofnuðu þeir slysa- varnadeild í Borgarfirði eystra. Stjóm deildarinnar skipa þéir: Þórður Jónsson, form., Sigurður Pálsson, Helgi Guðfinnsson, Ingvar Ingvarsson og Ingi Jóns- son. í heimsókn sinni til slysa- varnadeildarinnar Gró, Egils- stöðum, afhentu þeir deildinni nýja tegund af sjúkrabörum, en áður hafði deildin keypt súr- efnistæki, sem geymd eru í sjúkrahúsinu á Egilsstöðum. Á heimleiðinni komu þeir félagar við á Elliheimilinu í Skjaldarvík og sýndu þar skemmtimyndir fyrir gamla fólkið. ER VIÐ Dalamenn horfum aftur til síðasta sumars sjáum við að baki eitt hagstæðasta heyskapar- sumar, sem elztu menn muna, enda mun heyfengur hér meiri og betri en nokkru sinni áður. BYGGINGAFRAMKVÆMDIR Allmikið hefur verið unnið að byggingaframkvæmdum og mun það ekki hafa verið á öðrum tím- um meira. Hefur í sumar verið hafin bygging a. m. k. fjögurra íbúðarhúsa í sýslunni. Svo er og hafin bygging barnaskóla að Sæl- ingsdalslaug í Hvammssveit, á það að vera tveggja hæða hús og er um 170 ferm. að flatarmáli. Eru framkvæmdir miðaðar við að hægt verða að taka eitthvað af húsinu í notkun næsta haust. Raddir hafa verið uppi um það að byggja bæri heimavistarskóla fyrir suðurhreppi sýslunnar að Sælingsdalslaug. En það má heita eini staðurinn í Dölum þar sem jarðhiti er að ráði. Um þetta hef- ur þó ekki náðzt samkomulag enn þá, og byggir því Hvammshrepp- ur einn skólahús fyrir sig. MIKLAR JARÐABÆTUR Mikið hefur verið unnið að jarðabótum. Hafa dráttarvélar ræktunarsambandanna farið milli bæja, plægt og herfað og verður því haldið áfram svo lengi sem tíð leyfir. Skurðgröftur hefir verið hér mikill í sumar, fyrst í Haukadal og síðan í Laxárdal. Mun vera búið að grafa með henni rúmlega 100,000 teningsm. Á TÍUNDA ÞÚSUND LÍFLÖMB Fjárflutningum er nýlega lok- ið. Munu alls hafa komið á tí- unda þús. lömb af Vestfjörðum í Laxárdal og Hvammssveit. Er þetta eins og vænta mátti mis- jafnt fé, enda lentu mörg lömbin í hrakningum aðallega þau sem flutt voru á sjó. Veður var mjög óhagstætt um það leyti, sem á flutningum stóð. í Laxárdal var skipt um 6000 lömbum. Flest lömb á einstakan bæ fóru að Hjarðarholti. Voru þau tæplega 700. — E. G. Þ. NIÐURSUÐUVÖHUR frá Tékkóslóvakíu EINKAUMBOÐ: KRISTJÁN G. GÍSLASON H.F. Ungling vantar til blaðburðar Mesvegur Sími 1600 IMýkominn frostlögur frá General Motors BILABUÐ S. 1. S. Hringbraut 119 Ánægiulegur fagnaður bindindismanna í Ólafsv.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.