Morgunblaðið - 18.10.1956, Qupperneq 16
Málverkasýning fil heiðurs
Þorvaldi Skúlasyni lislm.
FÉLAG ísl. myndlistarmanna hefur ákveðið að heiðra einn félaga
sinn, Þorvald Skúlason, sem varð fimmtugur á síðastl. vori.
Mun félagið í tilefni af því efna til málverkasýningar á verkum
hans í Listamannaskálanum og verður sýningin opnuð á laugar-
daginn kemur kl. 2. síðd.
Aldursforseti Jóhann Þ. Jósefsson (t. v., snýr baki að ljósm.) óskar hinum nýkjörna forseta Sam-
einaðs þings, Emil Jónssyni, til hamingju með embættið um leið og hann tekur við fundarstjórn.
— Ljósm. MbL Ól. K. M.
Xjörnir forsetar Sameinaðs þings
IGÆR fór fram kosning forseta í Sameinuðu þingi, svo og 1. og 2.
varaforseta Sam. þings, ennfremur skrifara og Kjörbréfa-
nefndar.
í gær hitti tíðindamaður Mbl.
listamanninn sem snöggvast á
götu í Miðbænum. Var Þorvald-
ur þá á leið niður í Listamanna-
skála.
— Hvernig verður þessi sýn-
ing?
— Það er víst rétt að nefna
hana nokkurs konar yfirlitssýn-
ingu á verkum mínum, sagði Þor-
valdur. — Ég mun sjálfur velja
þær myndir, sem sýndar verða.
Einnig mun ég sjálfur ráða því
hvernig þeim verður komið fyr-
ir í Listamannaskálanum. Ann-
ars er ég ekki reiðubúinn til að
ræða um sýninguna, eins og hún
á að vera, því að ekki er nærri
búið að koma henni fyrir í saln-
um.
— Hvað eru þá elztu og yngstu
myndirnar gamlar?
— Þær eru frá óslóarárum mín
um þær elztu, 1928, en þær
yngstu eru myndir sem ég hef
rétt nýlokið við, sagði Þorvaldur.
Þetta samtal varð ekki öllu
lengra. En þegar Þorvaldur talar
um Óslóarár, þá á hann við það,
að á árunum 1927—31 var hann
við nám við Óslóar listaakademí-
una. Hann var þá farinn að mála
fyrir alllöngu, þó að hann sýni
ekki myndir sínar frá þeim ár-
i
Kunnugir telja fullvíst að þessi
sýning á verkum Þorvaldar verði
mjög merkileg.
Aðgöngu-
miöarnir voru
rifnir út
2 aukasýningar
Á ÖRSKÖMMUM tíma í gær
seldust upp aðgöngumiðar að
sýningu Blaðamannakabarettsins
kl. 7. En eins og tilkynnt hafði
verið voru þaö síðustu sýning
arnar sem ákveðnar voru.
Fjöllistamennimir áttu að
fljúga utan í morgun, en vegna
fjölda áskorana urðu þeir við
þeirri málaleitan að fresta för-
inni til laugardagsmorguns og
hafa tvær sýningar til viðbótar.
Sú fyrri þeirra verður í kvöld
kl 9. Húsið var upptekið vegna
Tónlistarfélagsins kl. 7, og sýn-
ingin verður því að vera kl. 9 e.h.
Síðari sýningin verður á föstu-
dagskvöld. Miða á þessar sýning-
ai er hægt að fá í Austurbæjar-
bíói í dag eftir kl. 2.
UTANRÍKISRÁÐHERRA
BOÐINN VELKOMINN
í upphafi þingfundar bauð ald-
ursforseti, Jóhann Þ. Jósefsson,
utanríkisráðherra, Guðmund í.
Guðmundsson, velkominn til
þings, en hann hefur sem kunn-
ugt er legið veikur nú um all-
langt skeið.
EMIL JÓNSSON
KJÖRINN FORSETI
SAMEIN. ÞINGS.
Hófst síðan kosning forseta.
Var Emil Jónsson þingm. Hafn-
firðinga kförinn með 31 atkvæði.
Jón Pálmason þingm. Austur-
Húnvetninga fékk 18 atkv. 1.
varaforseti var kjörinn Gunnar
Jóhannsson frá Siglufirði með 29
atkv., Bernharð Stefánsson fékk
1 atkvæði, en 20 seðlar voru auð-
ir. 2. varaforseti var kjörinn Karl
Kristjánsson þingm. Suður-Þing-
eyinga. Auðir seðlar voru 19.
HLUTFALLSKOSNING
SKRIFARA OG
KJÖRBRÉFANEFNDAR
Skrifarar voru kjörnir með
hlutfallskosningu og komu fram
2 listar, A-listi skipaður Skúla
Guðmimdssyni þingm. Vestur-
Hunvetninga og B-listi skipaður
Friðjóni Þórðarsyni 11. lands-
kjörnum. Þar sem ekki komu
fram aðrir listar voru þessir
menn réttkjömir skrifarar í Sam-
einuðu þingi.
Við kosningu kjörbréfanefndar
komu einnig fram tveir listar,
A-listi . skipaður Gísla Guð-
mundssyni, Áka Jakobssyni og
Alfreð Gíslasyni og B-listi skip-
aður Bjarna Benediktssyni og
Friðjóni Þórðarsyni. Komu ekki
] fram aðrir listar og voru þessir
menn því rétt kjörnir í kjör-
bréfanefnd. Næst lá fyrir að
kjósa þingmenn til Efri deildar,
en þá frestaði forseti fundi.
Fóoetagerð en
ekkiinnbrot
í TILEFNI af frétt um meint inn-
brot í húsið Kárastíg 11 hér í
bæ í blaðinu í gær hefir fulltrúi
borgarfógeta tjáð blaðinu að hér
hafi verið um löglega vörzlu-
sviptingu muna að ræða. Hafði
leigjandi íbúðarinnar verið tvisv-
ar varaður við að svo kynni að
fara bæði munnlega og skriflega
og veittur frestur til þess að
ganga frá skuldbindingum sínum.
Var því hér að öllu farið að
lögum, og aðeins um eðlilega
fógetagerð að ræðá.
Listamanna
Bíll með tveim mönnum
í mölbrotnar á Hringbraut
Harður árekslur - Menn sluppu ómeiddir
SNEMMA í gærmorgun molbrotnaði gamall hálfkassabíll suður
á Hringbrautinni. Varð bíll þessi valdur að mjög hörðum
árekstri. Voru í honum tveir menn. — Liggur við borð að krafta-
verk hafi gerzt því báðir sluppu þeir svo til ómeiddir með öllu.
Þeir eru komnir ■ stólana
Þessi gamla bíldrusla, R-1806,
var á leið vestur Hringbrautina.
Mennirnir tveir, sem í bílnum
voru, voru á leið til vinnu sinn-
ar. Maðurinn, sem ók hafði ekki
veitt því eftirtekt, að hann sjálf-
ur sagði frá, að á hægri kanti
hafði Dodge-leigubíll, R-641,
rúmlega ársgamall, stanzað til
þess að taka upp farþega.
ÁREKSTURINN
Það skipti engum togum að
gamla „druslan" rakst af þvílíku
afli aftan á leigubílinn, að hann
kastaðist nokkra meira ó 'rarn. —
Garmurinn braut undan sér bæði
framhjólin við áreksturinn, tókst
á loft og kom á hvolfi niður
á malbikaða götuna. Spítnabrak
og alls konar drasl úr þessum
gamla bíl, þeyttist í allar áttir og
yfirbyggingin mölbrotnaði, svo
hann eyðilagðist gersamlega.
FUNDU ANNAN STRAX
NSerstaddir menn úr leigubiln-
um þustu þegar að. Þeij fundu
strax annan manninn, þar sem
hann lá á grúfu á götunni, og
lágu fæturnir undir braki úr bíln-
um. Mennirnir óttuðust að hann
myndi mikið meiddur, en svo var
ekki, hann hafði sloppið ómeidd-
ur að heita má. Hinn manninn
sáu þeir ekki.
Kölluðu þeir nú til hans inn í
bílaflakið. Þaðan kom svar. Mað-
urinn var þá fas.u ■ undir hinum
mölbrotna bíl. Mennirnir lyftu
brakinu upp og gat maðurinn þá
komizt undan því hjálparlaust.
Hann hafði líka sloppið ómeidd-
ur úr slysi þessu og ætluðu þeir
sem hjálpuðu honum vart að
trúa sínum eigin augum, að báð-
ir mennirnir skyldu sleppa ó-
meiddir. Slíkt hafði þeim virzt
með öllu óhugsandi.
Það er af leigubílnum að
segja, að hann stórskemmdist við
þennan árekstur, yfirbyggingin
fór mjög illa og grindin í bíln-
um gekk öll til og skekktist
ÞEIR eru nú komnir í stóla sína
í Innflutningsskrifstofunni, krat-
inn og kommúnistinn, sem nýja
stjórnin útvegaði þar einn bitl-
inginn: Pétur Pétursson, fyrrum
verðlagsstjóri, sá sem hlaut frægð
fyrir afskipti sín af máli Olíu-
félagsins og Guðmundur Hjartar-
son, sem Alþbl. hefur lýst sem
einum harðasta húsa- og lóða-
braskara fyrr og síðar.
Það er- ekki vitað af hverju
ekki hefur verið send um þetta
fréttatilk. frá stjórnarráðinu, því
Menn minntust þess varla að hafa séð bíl jafn illa útleikinn eftir
árekstur og þennan. — Bílstjórinn skreið undan flakinu svo til
ómeiddur er því hafði verið lyft upp. — Bíllinn er hreinn ösku-
haugamatur, sagði maður nokkur er hann gekk þar hjá og skoð-
aði flakið. (Ljósm. Ragnar Vignir)J
hér í blaðinu í dag er tilk. um
skipan tveggja nýrra nefnda, en
þessir tveir menn í Innflutnings-
skrifstofunni eru teknir til starfa
þar fyrir nokkru, en um það hef-
ur engin tilk. verið gefin út.
Fyrsto *
skemmtun Heim-
dallor í haust
HEIMDALLUR, félag ungra Sjálf
stæðismanna, efnir til kvöldvöku
í Sjálfstæðishúsinu annað kvöld
og hefst hún kl. 8,30.
Skemmtiatriði á þessari fyrstu
kvöldvöku félagsins á þessu
hausti er Reykjavíkurrevýan
„Svartur á nýjan leik“. Síðan
verður dansað til kl. 1.
Búizt er við mikilli aðsókn á
skemmtun þessa, og er félögum
í Heimdalli ráðlagt að panta miða
þegar í dag, en það má gera í
síma 7103 frá kl. 1—5.
Tvcir scldu í «ær
TVEIR togarar seldu í gær í
Þýzkalandi. Var annar þeirra
Jón forseti, sem seldi fyrir 97,210
þýzk mörk, en hinn Fylkir. —
Náði hann mun hagstæðari sölu
á afla sínum og fékk fyrir hann
114,280 mörk.
launanefnef
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
tilk. í gær að nýlega hefði það
falið eftirtöldum mönnum að gera
tillögur til ráðuneytisins um,
hvernig veiting listamannalauna
verði felld í fastara form en nú
á sér stað og betur að skapi
þeirra, er launanna njóta:
Guðmundi G. Hagalín, rithöf-
undi, Gunnlaugi Scheving, list-
málara, Helga Sæmundssyni, rit-
stjóra, Jóni Leifs, formanni
Bandalags íslenzkra listamanna,
dr. Páll ísólfssyni, tónskáldi,
Snorra Hjartarsyni, skáldi, dr.
Steingrími J. Þorsteinssyni, pró-
fessor, Þorsteini Hannessyni,
óperusöngvara og Ævari R. Kvar-
an, leikara. Helgi Sæmundsson
er formaður nefndarinnar.
Námsstyrkja-
0« námsláiianefnd
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur falið eftirtöldum mönnum
að gera tillögur til róðuneytisins
um fyrirkomulag á veiting náms-
styrkja og námslána, bæði • til
þeirra er nám stunda hér á landi
og eflendis, svo og yfirfærslu
námskostnaðar til þeirra, er
stunda nám erlendis:
Dr. Þorkeli Jóhannessyni, há-
skólarektor, Pálma Hannessyni,
rektor, dr. Leifi Ásgeirssyni, pró-
fessor, Ólafi Hanssyni, mennta-
skólakennara og Björgvini Guð-
mundssyni, formanni Stúdenta-
ráðs háskólans. Leifur Ásgeirs-
son er formaður nefndarinnar.