Morgunblaðið - 25.10.1956, Page 11
Fimmtudagur 25. okt. 1956
MORGUNBLAÐIÐ
11
Oddur í Presthúsum sjötugur
HINN 25. október, árið 1886
fæddist austur að Keldunúpi ó
Síðu fyrsta barn hjónanna Guð-
rúnar Ólafsdóttur og Jóns Jónas-
sonar. Þetta var sveinbarn. —
Sveinninn var vatni ausinn og
nefndur Oddur. Smám saman
bættust við 15 systkini í hópinn.
Oddur Jónsson er því elztur
barna þessara hjóna. Sjö af þess-
um stóra systkinahópi eru nú
Oddur Jónsson
horfín yfir landamæri lífs og
dauða, en níu eru enn á lífi. —
Aldursforseti þeirra, Oddur Jóns-
son, er sjötdgur í dag.
Hann ólst upp með foreldrum
sínum og systkinum í hinni fögru
fæðingarsveit sinni og hverfur
þaðan eigi fyrr en hann er kom-
inn hátt á þrítugsaldur. Hinn 1.
nóvember 1914 kvænist hann
ágætri konu, Krístínu Hreiðars-
dóttur, ættaðri úr Landbroti í
Skaftafellssýslu. Hefur hún
staðið við hlið manns síns, trygg
og traust, bjartsýn, glöð og æðru-
laus, æ síðan.
Árið 1914 flytjast þau hjónin,
Oddur og Kristín, til Hafnar-
fjarðar og dveljast þar eitt ár.
Síðan flytjast þau suður í Garð
og hafa búið þar í rösk 40 ár,
fyrst að Móhúsum, en lengst af
í Presthúsum, og við þann bæ er
Oddur ætíð kenndur.
Presthús er svo lítil jörð, að
fjölskyldu verður eigi framfleytt
þar á búskap eingöngu. Því var
það, að Oddur hóf sjósókn jafn-
framt búskapnum, fyrst sem há-
seti, en síðar og lengstum for-
maður á eigin útgerð. — Nú er
Oddur hættur að stunda sjóinn en
hefur nú um nokkur ár rekið
fiskkaup og fiskverkun og farizt
það ágætlega, eins og allt, sem
hann hefur á hendur tekizt.
Þau Presthúsahjón hafa eign-
azt fjögur mannvænleg börn:
Júlíus, trésmið að Sóltúni í Garði,
Sigrúnu, húsfreyju að Nýjalandi
í Garði, Sóley, húsfre"'” bú-
setta í Keflavík, og Ingimar, tré-
smið, nú búsettan í Svíþjóð.
Þetta eru þá, í stuttu máli,
æviatriði Odds í Presthúsum, og
má segja, að þau séu lítt frá-
brugðin því, sem algengt er um
íslenzkt alþýðufólk. Hitt skiptir
aftur á móti meginmáli, hvernig
maðurinn er. — Oddur í Prest-
húsum er ekki mikill fyrir mann
að sjá og lætur lítt yfir sér. En
ekki þarf maður að vera lengi
samvistum við hann til þess að
komast að raun um, að þar fer
óvenjulegur maður um marga
hluti. Samfara ágætri greind ber
mest á einstakri prúðmennsku og
hjartahlýju og góðlátlegri kímni,
sem hann getur stundum brugð-
ið fyrir sig. f návist hans finnur
maður ósjálfrátt, að hér er heið-
ursmaður, maður, sem óhætt er
að treysta í hvívetna.
Þessum' fátæklegu orðum
vil ég ljúka með einlægri
ósk til þeirra Presthúsahjóna um
að hamingjan fylgi þeimhér eftir
sem hingað til og alla leið til
þeirra endadægurs. Jafnframt
vildi ég mega biðja þess þjóð
okkar til handa, að hún ætti
ævinlega sem flesta slíka.
Sv. H.
AKRANESI, 23. október — Guð-
mundur Þorláksson fór einn skipa
héðan út í nótt. Fékk hann 80
tunnur af síld. Allir reknetjabát-
arnir fóru út á veiðar í dag.
■—Oddur.
..AMERICAIM
FEL1“ PILS
Þurfa allar þær að
eignast, sem
fylgjast með tízkunni.
Fjölbreytt úrval, mörg snið
litir, bæði skreytt pils
(applikeruð) og einlit.
Verzlunin GUÐRÚN
Rauðarárstíg 1
HANDHÆCU BLAU
DOSUNUM.
HEIMSþEKKT GÆÐAVARA WM
Heklu
kuldaúlpur
NýkomlS mikið úrval af Heklu-kulda-
Úlpum á börn og unglinga.
Allar stœrðir
Athugið verð og gæði, áður en þér
kaupið úlpu annars staðar.
JUISTURSTRÆTI
Amenskir
nælonbarnagallar
Hafnarstræti 4 — sími 3350.
TILBOÐ
óskast í skálasamstæðu þá, er Fæðiskaupendafélag Reykja
víkur hefur haft afnot af að undanförnu í Camp Knox
svo og tæki þau, er bæjarsjóður'á og fylgja húsnæðinu.
Skálasamstæðan verður seld til niðurrifs og brottflutn-
ings nú þegar, ef viðunanleg boð fást.
Nánari upplýsingar verða gefnar í skrifstofunni, Ing-
ólfsstræti 5.
Tilboð óskast send fyrir 1. nóv. nk. og verða opnuð
þann dag kl. 10 árdegis að viðstöddum bjóðendum.
Skrifstofa bæjarvcrkfræðings.
Fyrsta flokks vara af hinni heimsþekktu
Saxon sokkaframleiðslu
STRETCH kvensokkar
Þeir falla frábærlega vel að fæti.
Kvensokkar vorir eru gerðir úr fínasta þræði.
51 gg, 54gg, 57 gg, 99 gg, 60 gg og 75 gg
og njóta vinsælda og álits um allan heim.
Vinsamlegast hafið samband við umboðsmenn
vora
Edda hf.
Pósthólf 906 — Reykjavík, ísland.
JTSCHER INNEN- UND AUSSENHANDEL
Þýzka
alþýðu-
lýðveldið
TEXTIL
BERLIN W 8 - BEHRENSTRASSE Símnefni: DIATEX