Morgunblaðið - 01.12.1956, Side 2

Morgunblaðið - 01.12.1956, Side 2
1 MOTtCr\Pr <PTfí Laugardagur 1. ctesember ’58 Tímabundið afnám aðflutningsgjalda af fiskflökunarvélum ÞEIR BJÖRN Ólafsson og Sigurður Ágústsson flytja í Neðri deild Alþingis frumvarp til laga um tímabundið afnám aðflutnings- gjalda af fiskflökunarvélum. Frumvarpið hljóðar svo: Á árunum 1956 og 1957 skal .'ella niður verðtoll, söluskatt og framleiðslusjóðsgjald af fiskflök unarvélum, sem fluttar eru inn at eigendum frystihúsa með að- stoð Framkvæmdabanka íslands. Lög þessi cðlast þegar gildi Greinargerð. Vegna sívaxandi samkeppni á erlendum mörkuðum um sölu á frystum fiski og ört hækkandi vinnslukostnaðar hér er mönnum nú orðið Ijóst, að örðugt verður að standast samkeppni annarra þjóða í þessari framleiðslugrein, nema frystihúsin geti tekið nýj- ustu vélatækni í sína þjónustu fjármagn af skornum skammti, til að gera eina aðalútflutningsfram- leiðslugrein landsins samkeppnis- hæfa, sýnist ekki eðlilegt, að rík- issjóður skattleggi slíka fram- kvæmd og sízt jafngífurlega og hér hefur verið sýnt. Slíkan toll á nauðsynlega vélvæðingu út- flutningsframleiðslunnar er ekki hægt að verja. kessi innflutningur er óvenju- legur, og rýrna þvi ekkert hinar venjulegu tolltekjur ríkissjóðs, þótt tollar af flökunarvélunum verði látnir falla niður. Flestum frystihúsunum mun verða nógu þungt í skauti að standa í skilum með kaupverð vélanna, þótt þau Þess vegna var í það ráðizt á Þurfi ekki að stofna skuldir til þessu ári af einstakl. og félögum, sem annast rekstur frystihúsa, að festa kaup á fiskflökunarvélum 1 Þýzkalandi fyrir milligöngu Fromkvæmdabanka íslands. Vél- ar þessar eru mjög stórvirkar og spara mikinn vinnslukostnað. Vél arnar eru af þremur gerðum, og er innkaupsverð hverrar vélar cif., sem hé segir: I............... kr. 728346.00 II.............. kr. 468323.00 III. ............ kr. 435739.00 Þetta eru afar dýr tæki, sem frystihúsin neyðast til að kaupa til að standast samkeppnina. Nú þegar hafa verið pantaðar 56 vél- ar, og má búast við, að með því sé þörfinni ekki fullnægt Kaup- endum hefur verið gert fært að kauga þessar vélar með því, að þeir fá á þeim gjaldfrest fyrir miHigöngu Framkvæmdabank- ans. En til viðbótar hinu háa verði vélanna verða frystihúsin að greiða gífurlega háa aðflutnir.gs- tolla, svo sem hér ssgir, á hverja vél: I.........'.... kr 251637.00 II............. kr. 161887.00 III............. kr 150555.00 Hér er ekki meðtalinn vöru- magnstollur Af þessu má sjá, að tollar af vélunum nema rúmlega þriðjungi vélaverðs hér á höfn (rif.). Andvirði þeirra véla, sem nú hafa verið pantaðar, er rúmlega 30 millj. kr., en tollar til ríkis- sjóðs nema til viðbótar 10% millj. kr. Þegar verið er með aðstoð hins opinbera að gera stórátak, með þess að greiða ríkissjóði stórfé fyrir að mega flytja þær inn. Þess vegna er lagt til með frv. þessu, að aðflutningsgjöldin verði felld niður. Eisenhower forseti afhentl nýlega nokkram flugköppum helðursverolaun fyrir unnin flugafrek. At- höfn þessi fór fram í Hvíta húsinu. Flughetjurnar voru: Jacqueline Auriol frá Frakklandi, John Cunningham frá Bretlandi og Charles Mills frá Bandarikjunum. Á myndinni sést, er forsetinn óskar frönsku stúlkunni til Jhamingju með verðlaunin. Til vinstri stendur Cunningliam, en til luegri Milis. Dularfullar ferðir a-þýzkra togara við Noregsstrendur Mkið særok 1 gær< dag í VESTAN-storminum í gær- kvöldi, er stórstreymt var, gerði hér í bænum „saltstorm", sjávar- seltu rigndi yfir bæinn allan, allt úr vestustu bæjarhverfunum til þeirra, sem lengst standa frá sjónum, inni í Sogamýri. Særokið var með allra mesta móti vegna þess hve stórstreymt var. Það má því öruggt telja að verði ekki að- eins annadagur við laugardags- hreingemingar heima, heldur líka á þvottastöðvunum í dag, er bílaeigendur koma með bíla sína til þvotta og á saltið dugar ekki neinn kattaþvottur! í gærkvöldi var fárviðsi i Vest- mannaeyjum með hafróti og gekk á með dimmum éljum. Veður- stofan sagði Mbl. í gærkvöldi, að þessu ofviðri myndi ekki slota fyrr en með morgni í dag. Hvað tekur við þá? Svarið var: Þykknar upr með suðaustan átt síðdegis! 0SLOARFHÉTTIR herma, að undanfarið hafi norski sjóherinn orðið var vIB grunsamlegar ferðir austur-þýzkra togara undan ströndum Noregs. Stjórnarvöldin hafa nú gefið út opinbera yfir- lýsingu um mál þetta — og segir þar, að hluti þeirra a-þýzku togara, sem verið hafi undan ströndinni upp á síðkastið, hafi verið í alit öðrum erindagjörðum en að fiska. Yfirstjórn sjóhersins upp- lýsir m. a., að fiskiskip, „Ro- bert Koch“ frá Rostock hafi varpað akkerum í Halvards- vik hinn 24. þ. m. Staður þessi mun vera undan Rogalandi. Sást til sex skipsmanna, er gengu á land og klifu Bokn- fjallið. Frá tindinum skiptust landgöngumennirnir og skips- menn á ljósmerkjum, en nokkra síðar hurfu mennirnir Meðferð mólsins oi hólfa ríkiss^árnarinnar mjðg göllnð Onnur umr. um festingu verðl. og kaupgjalds. GÆR fór fram í Neðri deild Alþingis 2. umræða um frum- varp ríkisstjórnarinnar um festingu verðlags og kaupgjalds. Urðu fremur litlar umræður um nefndarálit fjárhagsnefndar. I Floti víkingaskipa smíða&ur til kvik- myndunar Oslo, 30. nóv. SVO sem kunnugt er mun bandarískt kvikmyndafélag vera að undirbúa töku kvikmyndar, sem fjalla á um norræna víkinga. Mun taka myndarmnar fara fram í Noregi — og fer hinn þekkti leikaii, Kirk Douglas, með aðalhlutverkið. ★ ★ ★ * Einn af forráðamönnum kvik- myndafélagsins er nú kominn til Noregs — og það fyrsta, sem hann gerði var að tryggja kaup á flota víkingaskip>a. Munu bæði verða keypt skip í fullri stærð og eftirlíkingar. Bandaríkjamaðurinr. upplýsti norsku blöðin um það, að senni- lega mundi verða reynt að afla 3—5 vxkingaskipa í fullri stærð í líkingu við Gaukstaðaskipið, sem er um 23 m að lengd. Verð- ur útbúnaður þeirra allur fuli- kominn — og skortir þar hvorki Járnplöfur fuku HAFNARFIRÐI — í óveðrinu, sem geisaði í gær, losnuðu nokkr- ar járnplötur af byggingu þeirri, sem Sjúkrasamlagið er til húsa í. Ekki var vitað um að annað tjón hefði orðið af veðrinu, en það var á köflum svo vont, að fólk lcomst vart milli húsa. Sem dæmi um hinn mikla veð- urham, skal þess getið, að bílar, sem fóru um Strandgötu urðu fyrir svo miklu sjóregni, að bíl- stjóramir urðu að stöðva þá þeg- ar komið var út fyrir bæinn til þess að þurrka sjóseltuna af rúð- segl né annað. Eitt skip af ann- um þeirra. Gekk sjórinn látlaust arri gerð verður einnig keypt í I yfir kafla af Strandgötunni, fullri stæ-rð auk fjölda af minni j þannig að fólk komst leiðar sinn- skipum. i ar á þeim kafla. — G. E. Skúli Guðmundsson gerði stutta grein fyrir nefndarálitinu. Ólafur Björnsson lýsti í stuttu máli áliti hinna tveggja Sjálf- stæðismanna í nefndinni, sem hafði athugað málið og nefndar- nenn verið sammála um að mæla með því að frv. yrði samþykkt. Þeir Ólafur Björnsson og Jó- hann Hafstein tóku fram eftir- farandi í nefndarálitinu: VERÐFESTINGARÁKVÆBI ÓÞÖRF „Meginefni frv. þessa er ann- ars vegar ákvæði um almennt bann við verðhækkunum, hins vegar ákvæði um það, að eigi skuli greidd hærri dýrtiðarupp- bót á kaup en nemur 78% grunn- launa og verð landbúnaðarafurða ákveðið í samræmi við það. Ákvæði frv. um verðfestingu eru að því leyti óþörf, að full heimild er til slíkra ráðstafana í eldri lögum, sbr. 1. nr. 35 1950, um verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdóm. Megintilgangur frv. virðist því sá að koma í veg fyrir áframhaldandi verðhækkanir með því að ákveða með lögum, að greitt skuli lægra kaup en launþegum ber samkvæmt gild- andi samningum við atvinnurek- endur og lækka verð landbúnað- arvara í samræmi við það. Hér er vissulega um gagngera og örlagarika breytingu að ræða frá núverandi skipan þessara mála, sem grundvallast á frjáls- um samningsrétti launþegasam- takanna um kaup og kjör með- lima sinna. Við teljum varhuga- vert, að þeirri skipan verði breytt, nema alveg óvenjulegar kring- umstæður séu fyrir hendi. Að áliti ríkisstjórnarinnar eru ráðstafanir þessar óhjákvæmileg- ur undirbúningur síðari aðgerða til úrlausnar efnahagsvandamál- unum. Hvort svo sé, verður eigi um dæmt fyrr en vitað er, hverj- ar ráðstafanir eru fyrirhugaðar í því efni. En meðan eftir því er beðið, teljum við eftir atvikum rétt, að Alþingi staðfesti þessar bráða- birgðaráðstafanir, þótt við telj- um meðferð málsins af hálfu ríkis stjórnarinnar mjög gallaða. Það er og í fullu samræmi við fyrri afstöðu Sjálfstæðismanna, að unnið sé gegn verðbólgu með hverjum þeim úrræðum, sem til- tækileg eru“. aftur um borð — og báturinn lét í haf. dk dk dk. „Robert Koch“ virðist mjög nýlegt skip, á að gizka 1000 smálestir að stærð. Norskir sjómenn, sem skipið sáu, segja, að það sé allt of vel útlítamU til þess að hægt sé að ímynda sér, að það stundi veiðar. Norski sjóherinn npplýstt svo á þriðjudaginn, að austur- þýzkur togari hefði komið til Koparvíkur 25. þ. m. Hafi skipshöfnin stigið á land til þess að skoða sig um. Flestir höfðu Ijósmyndavélar meðíerð is og tóku mikiö af myndum. Er þeir voru í óða önn að ljósmynda höfnina og um- hverfi hennar, kom norska lögreglan á vettvang og vísaði Þjóðverjunum burt. Gegn vissum skilyrðum PARÍS, 30. nóv. — Það er haft eftir áreiðanlegum heimildum að Pinaeu og Lloyd muni gefa út sameiginlega yfirlýsingu í nafni brezku og frönsku stjórn arinnar eftir umræðurnar í London, sem lýkur sennilega á morgun. Er ætlað, að þar verði því lofað, að herir Breta og Frakka verði á brott úr Egyptalandi um miðjan des- embermánuð — gegn vissum skilyrðum. í ræðum Pineau og Lloyds undanfarna daga hefur það berlega komið fram, að þeir hyggjast ekki yfirgefa Súez-svæðið nema að tryggt sé, að alj jóðlegt eft.irlit verði framvegir með Súezskurðin- um, en það þýðir ekkert ann- að en það, að hersveitir S.Þ. ' verði þar áfram. Leikur því enginn vafi á því hver hin „vissu skilyrði“ eru. Eindregin stefna til varðveizlu friðarins WASHINGTON, 30. nóv. — Radford aðmíráll, forsetl herforlngja- ráðs Bandaríkjanna gerði í gærkvöldi grein fyrir meginstefnuatrið- um Bandaríkjanna — á meðan hættan á rússneskri ofbeldisárás er yfirvofandi: 1. „Vinna skal að því með ráðum og dáð að komast hjá hernað- arátökum og stuðlað að því að treysta friðargrundvöliinn". 2. „Sýna í verki kjark til þess að framkvæma það, sem réttast telst". 3. „Vera framvegis nægilega vopnum búinnM.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.