Morgunblaðið - 01.12.1956, Side 4

Morgunblaðið - 01.12.1956, Side 4
4 M OnaVTVfíT. AÐÍÐ Laugardagur 1. desember ’56 í dag er 338. dagur ársins. Laugardagur 1. desember. 6. vika vetrar. Árdegisflæði kl. 4.34. Síðdegisflæði kl. 16.46. Slysu varðstofa Reykjavíkur í Heilsuvemdarstoðinni er opin all- an sólarhringinn. Læknavörður L. R. (fyrir vitjanir), er á sama stað kl. 18—8. — Sími 5030. NæturvörSur er í Lyfjabúðinni Iðunni, sími 7911. — Ennfremur eru Holts-apótek, apótek Austur- bæjar og Vesturbæjar-apótek opin daglega til kl. 8, nema á laugar- dögum til kl. 4. Holts-apótek er opið á sunnudögum milli kL 1—4. Carðu-apótek Hólmgarði 34, er opið daglega kl. 9—20, nema á laugardögum 9—16 og á sunnu- dögum 13—16. — Sími 82006. Hafnarfjarðar- o* Keflavíkur- apótek eru opin alla virka dago frá kl. 9—19, laugardaga frá kl. 9—16 og helga daga frá kl. 13—16 Hafnarfjörður: — Nseturlæknir er Sigursteinn Guðmundsson. — Sími 9734. Akureyri: — Næturvörður er í Akureyrar-apóteki, sími 1032. — Næturlæknir er Stefán tíuðnaaon. □ MIMIR 59561237 — 1. [3 Helgafell 59561130 kl. 6 — IV/V. — H. & V. • Veðrið • I gær var vestan stormur um allt land og éljagangur vest- anlands. Bjartviðri var aust- anlands. I Reykjavík var 0 stiga hiti kl. 14 í gærdag, 1 stigs hiti á Akureyri, 1 stigs frost & Galtarvita og 4 stiga niti á Dalatanga. Mestur hiti mældist hév á landi í gær á Dalatanga 1 stig en minnstur hiti á Miiðrudal þriggja stiga frost. I London var hiti ó hádegi í gær 3 stig, í París 4 stig, í Berlín 2 stig, í Ósló 17 3tiga frost, í Stokkhólmi 8 stiga frost, í Kaupmannahöfn 3ja stiga frost, í Þórshöfn í Fær- eyjum 8 stiga hiti og I New York 2ja stiga frost. □--------------------n Messur Háieigssókn. — Messað í hátíðasal Sjc íannaskólans kl. 2 e.h. Séra Lárus Halldórsson predikar. Barnasamkoma kl. 10,30 f.h. Sr. Jón Þorvarðsson. Hullgríinvkirkju: — Messað kl. 11 f.h. Séra Sigurjón Árnason. Bama guðsþjónusta kl. 1,30 e.h. Séra Sigurjón Árnason. Síðdegisguðs- þjónusta kl. 5 e.h. Séra Jako'o Jónsson. Ræðuefni: Kristindómur og heimspólitík. Selfosskirkja: — Hátíðamessa á morgun kl. 10 f.h. Prestur séra Sigurður Pálsson. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Guðmundar Gilssonar. Mosfellspreslakull: — Messað að Brautarholti kl. 2. Séra Bjarni Sigurðsson. Laugurneskirkja: —— Messa kl. 2 e.h. Séra Garðar Svavarsson. — Bamaguðsþjónusta kl. 10.15 *f.h. Séra Garðar Svavarsson. Bústaðaprestakall. —— Messað í Kópavogsskóla kl. 2. Bamasam- koma kl. 10,30 árdegis á sama stað. Séra Gunnar Ámason. FERDINAMD ór*; Dagbók ElliheimiliS: — Guðsþjónusta kl. 2. Séra Jósep Jónsson, fyrrverandi prófastur. Aðgætið breyttan messutíma. — Heimilisprestur. Dómkirkjan: — Messa kl. 11 f.h. — Séra Óskar J. Þorláksson. Kl. 5. Aðalsafnaðarfundur. Kl. 8,30 jólatónleikar í kirkjunni. Langholtsprestakall: — Messað í Laugarneskirkju kl. 5. Séra Árel- íus Níelsson. Nesprestakall: — Messað í Kap- ellu Háskólans kl. 2. Séra Jón Thorarensen. Grindavíkurkirkja: — Guðsþjón- usta kl. 2 e.h. Safnaðarfundur að guðsþjónustunni lokinni. Sóknar- prestur. Fríkirkjan ! Reykjavik: — Mess- að kl. 5. Séra Þorsteinn Bjömss. Mosfellsprestakall: — Messað að Brautarholti kl. 2. Séra Bjarni Sigurðsson. Keflavíkurkirkja: --- Messað kl. 2 e.h. Séra Guðmundur Guðmunds- son. ítskálaprestakall: — Messað að trtskálum kl. 5 e.h. Safnaðarfund- ur á eftir. Sóknarprestur. Óhúði söfnuðurinn: Messa í Að- ventkirkjunni kl. 2 síðdegis. Sr. Emil Björnsson. • Brúðkaup • í dag verða gefin saman í hjónaband ungfrú Elsa Einars- dóttir (Eyjólfssonar, kaupmanns) og Einar Viðar, lögfræðingur, (Gunnars bankastjóra). Heimili þeirra er að Týsgötu 1. í dag, 1. des., verða gefin sam an í hjónaband af séra Emil Björnssyni ungfrú Anna Áslaug Guðmundsdóttir og Ámi Guð- mUndsson, múrarameistari. Heim- ili ungu hjónanna sr að Barma- hlíð 41, Reykjavík. 1 dag verða gefin saman í hjóna band af séra Þorsteini Bjömssyni Brynhildur Daisy Eggertsdóttir frá Akureyri og Valdimar Sigurðs son, lögregíuþjónn. Heimili þeirra verður að Efstasundi 54, Reykja-, vík. Gefin verða saman í hjónaband í dag af séra Jóni Auðuns, ungfrú Arnþóra Sigurðardóttir og Bjarni Bjamason, klæðskeri. Heimili þeirra verður að Granaskjóli 4. Gefin verða saman í hjónaband í dag af séra Jóni Auðuns, ungfrú Svala Guðmundsdóttir frá Akur- eyri og Gunnar Baldursson, vél virki, Skálholtsstíg 7. Heimiii þeirra verður að Engihlíð 7. Fimmtudaginn 29. nóv. voru gefin saman í hjónaband ungfrú Guðrún Geirs Ámadóttir og Einar Sædal Svavarsson, Lauf- ási, Ytri-Njarðvrk. — Heimili þeirra er Holt, Ytri-Njarðvík. f dag verða gefin saman í hjóna band Aðalbjörg Guðmundsdóttir, Heiðarbraut 14, Akranesi og Ás- geir Ásgeirsson. Hjónaefni Fimmtudaginn 29. nóv. opin- beruðu trúlofun sína ungfrú Unnur Svavarsdóttir Laufási, Ytri-Njarðvík og Hermann Þor- steinsson bifreiðarstjóri hjá Kjartani og Ingimar, Keflavíkur- flugvellL • Skipafréttir * Eimskipafélag Islands h.f.: Brúarfoss fer frá Rvík í kvöld til Sauðárkróks og þaðan norður um land til Vestmannaeyja og Rostock. Dettifoss fer í dag frá Rvík til Siglufjarðar, Akureyrar og ísafjarðar. Fjallfoss fer frá Rotterdam 4.12. til Antwerpen og Rvíkur. Goðafoss fór frá Rvík 27. 11. til Rotterdam, Riga og Ham- borgar. Gullfoss fór frá Thors- havn 29.11. til Leith, Hamborgar og Kaupmannahafnar. Lagarfoss fer frá Rvík í kvöld til New York. Reykjafoss fór frá Súgandafirði 29.11. Væntanlegur til Akureyrar um kl. 13.30 í gær. Fer þaðan til Ölafsfjarðar, Húsavíkur og Siglu- fjarðar. Tröllafoss fer frá New York 3.-—4. 12. til Reykjavílcur. Tungufoss fór frá Lysekil 29. 11. til Kaupmannahafnar, Hull og R- víkur. Drangajökull lestar í Ham- borg í byrjun desember til Rvíkur. Eimskipafélag Reykjavikur hf.: Katla kom til Ventspils 29. þ.m. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er væntanleg til Akur- eyrar árdegis í dag á austurleið. Herðubreið er á leið frá Aust- fjörðum til Rvíkur. Þyrill var á Sauðárkróki í gærkvö'.di á leið til Rvíkur. Oddur átti að fara frá Rvík í gærkvöldi til Húnaflóa, Skagafjarðar og Eyjafjarðar. Baldur fór frá Rvík í gæikvöldi til Snæfellsness og Hvammsfjarð ar. Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell er í Reykjavík. Arn- arfell fór 24. þ.m. frá Eskifirði á- leiðis til Patras og Piraeus. Jök- ulfell fór í gær frá Gautaborg til Leningrad og Kotka. Dísarfell kom til Óskarshafnar 29. f.m., fer þaðan væntanlega á þriðjudag til Stettin og Rostock. Litlafell fór 28. f.m. frá Skerjafirði til Vestur- og Norðurlandshafna. Helgafell fór 29. f.m. frá Stettin áleiðis til Reyðarfjarðar og Akureyrar. Hamrafell fór hjá Krít í gær á leið til Reykjavíkur. • Flugíerðir • Flugfélag íslands h.f.: Gullfaxi fer til Kaupmannahafn ar og Hamborgar kl. 8,30 í dag. Væntanlegur aftur til Rvíkur kl. 16,45 á morgun. 1 dag er áætlað að fljúga til Ak- ureyrar (2 ferðir), Blönduóss, Eg- ilsstaða, Isafjarðar, Sauðárkróks, Vestmannaeyja og Þórshafnar. Á morgun er áætlað að fljúga til Ak ureyrar og Vestmannaeyja. Loftlelðir h.f.: Saga er væntanleg milli kl. 5-—7 frá New York fer kl. 9 áleiðis til Gautaborgar, Kaupmannahafnar og Hamborgar. Leiguflugvél Loft- leiða er væntanleg í kvöld f rá ÓiJ.ó Stafangri og Glasgow, fer eftir skamma viðdvöl áleiðis til N. York Áfengisnautnin er eldur í þjóð- lífinu. — Hjálpið til að slökkva þann eld. — L’mdæunsstúkan. Kristileg't stúdentafélag Samkoma á morgun 1. des. kl. 8,30 í húsi KFUM og K. Ræðu- menn Ástráður Sigursteindórsson skólastjóri og Ingþór Indriðason stud. theoL Hringurinn Bamahappdrætti Hringsins. Ósóttir vinningar sækist til Andr. Andréssonar, Laugaveg 3. Núm- erin eru 240, 4522 og 216. Orð lífsins: — En sá, sem held- ur oss ásamt yður fast við Krist og smurði oss, er Guð, sem og hefur innsiglað oss og gefið oss pant Andans í hjörtu vor. — 11. Kor. 1, 21—22. Kristilegt stúdentablað verður selt á götum bæjarins í dag. Börn geta vitjað þess í hús KFUM og K. Amtmannsstíg 2B og við Kirkjuteig. Berklavörn, Reykjavík Spiluð félagsvist í kvöld kl. 9 í Skátaheimilinu. Frá Mjólkursamsölunni Mjólkurbúðum er lokað kl. 12 á hádegi í dag. Kvenstúdentafélag íslands heldur jólavinnufund í Tjai-n- arcafé, uppi, n.k. þriðjudag kl. 8,30 e.h. Elsa Guðjónsson leið- beinir. Hafið með ykkur áhöhl. Til föðurlausu barnanna við Suðurlandsbraut Konan við Suðurlandsbrautina, sem missti mann sinn frá fjórurn ungum börnum í haust lifir við mikla örbirgð. Bíllinn, sem ekið var yfir manninn, hefur ekki fundizt, svo að enginn ber ábyrgð á slysinu. Húsakynnin, sem þau búa í þurfa aðgerð, sem gera þau íbúðarhæf. Tvö af börnunum hafa verið veik og eru enn lasin. Elzta bamið er aðeins 5 ára. Vildu nú ekki einhverjir gleðja þessa mun- aðarleysingja fyrir jólin. Það mundi auka eigin jólagleði, þótt ekki væri annað en það, að börn- in fengju föt til að klæðast gegn kuldanum í kotinu sínu. Árelíus Níelsson. Kvenfélag Háteigssóknar heldur fund þriðjudaginn 4. dea. í Sjómannaskólanum kl. 8,30. Hafnarfjörður Bólusetning gegn mænuveiki fer fram alla miðvikudaga kl. 5—fi síðd. í bamaskóla Hafnarf jarðar. Ólafur Einarsson. Læknar f jarverandi Bjami Jónsson, óákveðinn tímn. Staðgengill: Stefán Björnsson. Elías Eyvindsson læknir er hættur störfum fyrir Sjúkrasam- lagið. — Víkingur Amórsson gegn ir sjúklingum hans til áramóta. Ezra Pétursson óákveðinn tíma. Staðgengill: Jón Hjaltalín Gunn- laugsson. Hjalti Þórarinsson verður fjar- verandi til nóvemberloka. Stað- gengill: Ólafur Jónsson, Háteigs- vegi 1. Heimasími 82708, stofu- sími 80380. Karl S. Jónasson fjarverandi frá 1.—10. desember. Staðgengill: Ólafur Helgason. Kristbjörn Tryggvason frá 1L október til 11. desember. — Stað- gengill: Árni Bjömsson, Brött - götu 3A. Sími 82824. Viðtalstími kl. 5,30—6,30, laugard. kl. 3—4. Ófeigur Ófeigsson verður fjar- verandi í 3 daga. • Söfnin • Listasafn ríkisins er til húsa I Þjóðminjasafninu. Þjóðminjasafn ið: Opið á sunnudögum kl. 13—16 og á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum kl. 13—15. Náttúrgripasafnið: * Opið á sunnudögum kl. 13,30—15, þriðju dögum og fimmtudögum kl. 14—■ 15. nwtyimkaffmii PH ttsr----- — Sjáðu manima, stóri dreng- urinn hefur lika fengið bíl. ★ Danskur embættismaður gerði það að gamni sínu að safna bréfum, eins og margir gera. — Einn dag komst hann að þeirri niðurstöðu, að það yrði illmögu- Háa-C legt að geyma öll bréfin, svo mörg voru þau orðin og rúm- frek. Hann skrifaði því upp nokkrar línur úr hverju bréfL til þess að geyma í fersku minni „karakter“ hvers og eins bréf- ritara, en fleygði þeim síðan. Hér eru nokkur sýnishom af því sem hann skráði: .... Hans sonur minn er nú dáinn. Það krafðist náttúrlega aukinna útgjalda fyrir hann, og þar að auki var hann búinn að vera veikur í mánuð .... .... Jarðarför mágs míns var ákaflega kostnaðarsöm. Mér fannst nú satt að segja óþarfi að hafa einsöngvara .... .... Konan hans vissi ekkert um hann, eftir hjónaskilnaðinn, annað en það, að hann sökk alltaf dýpra og dýpra og drukknaði síð- ast í Árósum undir nafninu Anderson .... .... Það var mjög hugguleg jarðarför, með fjórum kórstúlk- um og fiðluleikara .... .... Ég get ekki lifað hjálp- arlaust lengur, því allir mínir peningar fara í útgjöld og vasa- peninga .... .... Ég er að verða alveg upp- gefinn á þessu. Nú er ég búin að ganga frá Evrópu til Pílatusar 14 sinnum .... .... Ég ligg núna og hefi verið undir prófessor Wimmer í þrjá mánuði, og búin að fá gigt og æðabólgu til viðbótar lungna- bólgunni, gefin í rannsóknum. — Þar að auki skulda ég 200 krón- ur fyrir hest sem er á hlaupa- víxli í bankanum ....

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.