Morgunblaðið - 01.12.1956, Side 13
Laugardagur 1. desember ’56
MORGUNBLAÐIl
13
i\lemendatónleikar í Gamla bíói
ÞAÐ VAKTI að vonum athygli
og eftirvæntingu er það fréttist
að ítalski óperusöngvarinn Vin-
cenzo María Demetz, ætlaði að
tefla fram 7 söngvaraefnum á
nemendatónleikum í Gamla Bíói
23. þ.m. Demetz hefur dvalið hér,
sem söngkennari nokkuð á ann-
að ár.
Fólk lét það ekki hamla sér,
þó það yrði af kvöldverðinum
að þessu sinni. Húsið mátti heita
fullskipað.
Ég hefi áður heyrt þau: Eygló
Victorsdóttur, Sigurveigu Hjalte-
steð og Hjálmar Kjartansson
syngja. Ekki er um að villast, að
þau hafa tekið miklum framför-
um hvað raddbeitingu og radd-
fegurð snertir. Þau eiga það öil
sameiginlegt að röddin er orðin
mýkri og sveigjanlegri en áður,
liggur jafnara og framar. Jón
Sigurbjörnsson hefi ég einnig
heyrt syngja nokkrum sinnum.
Hann gat, því miður, ekki sung-
ið með þetta kvöld vegna veik-
inda, en hann sýndi það á Páska-
vöku Félags ísl. einsöngvara s.l.
vor, að hann er í örum vexti sem
söngvari. Þar var því skarð fyrir
skildi áð hann skyldi vanta.
Hljómleikarnir byrjuðu með
því að Hjálmar Kjartansson söng
3 lög. Hann hefur mjúkan og
allhljómmikinr, bassa, sem hann
beitti oft vel. Beztum tökum
náði hann á rödd sinni í seinni
hluta lagsins: Der Tod und das
Mádchen, eftir Schubert, sem
hann túlkaði einnig af smekk-
vísi.
Næst söng Sólveig Sveinsdótt-
ir 2 aríur. Hún hefur sópranrödd
með frekar ljósum blæ. Eitthvað
virtist hún miður sín í fyrri ar-
íunni, missti oft vald yfir rödd-
inni svo að hún féll aftur og varð
dálítið ójöfn. Þegar leið á seinni
aríuna, Selva opaca eftir Rossini,
lagaðist þetta mikið og söngur-
inn varð mýkri og fallegri á-
ferðar-
Ólafur Jónsson hefur bjartan
tenór. Hann söng aríuna úr Tosca
(E lucevan le stelle) létt og átaka
laust. Hæðin virtist ekki vera
honum neitt vandamál. Meðferð
hans á Musica proibita eftir
Castaldi, var hin snotrasta. Tæp-
lega var það til bóta að hann
breiddi út faðminn og hljóp til á
pallinum til áherzlu söng sínum.
Bezt er að láta þá um það, sem
hafa náð fullkomnu valdi yfir
rödd sinni og hreyfingum og
halda öllum listarinnar þráðum
örugglega í hendi sér. Annars er
framkoma Ólafs á söngpallinum
frjálsleg og drengileg. Leynir sér
ekki að hann er þegar nokkuð
sviðsvanur, enda hefur hann lok-
ið prófi við leikskóla Þjóðleikhúss
ins og leikið nokkur hlutverk á
sviði þess. Ég víl í þessu sam-
bandi minnast á þá staðreynd, að
hver sá, sem ætlar sér inn á svið
óperunnar og vill helga sig henni,
verður jafnframt söngnáminu að
tileinka sér leiklist, líkamsþjálf-
un, góða textameðferð og mála-
kunnáttu. Án slíkrar menntunar
verður flestum sú leið næsta tor-
sótt, jafnvel þó þeir hafi frábæra
rödd og mikla söngkunnáttu.
Sigurveig Hjaltesteð hefur messo
sópranrödd, er hefur vaxið í
seinni tíð, bæði að þrótti og blæ-
fegurð og stundum beitir hún
henni af talsverðri öryggi.
Sjálfsagt hefur það verið ó-
viljandi að hún felldi niður kafla
úr aríunni eftir Gluck: „Che faro
senza Evridice." En lofsvert var
að hún lét það hvergi fipa sig
og dr. Urbancic brást svo fimlega
við að varla varð annað greint
en það væri af ráðnum huga gert.
Röddin naut sín víða vel í arí-
unni, en þó mun betur í hinni
seinni: „O, mio Fernando", eftir
Donnisetti. Dúettinn úr: „II
Trovatore“, sungu þau Ólafur og
Sigurveig slétt og smekklega.
Eygló Victorsdóttir hefur létta
og þjala sópranrödd. Hún söng
fyrst aríuna: „Der Hölle Rache,“
úr Töfraflautunni eftir Mozart.
Var henni þar mikill vandi á
höndum, því hætta er á að arían
verði kátbrosleg í flutningi
þeirra, sem ekki hafa smekk og
raddþjálfun til að syngja hana.
En 'Eygló tók létt og fimlega á
viðfangsefninu og stýrði skemmti
lega fram hjá öllum hættulegum
skerjum. í coloratursöngnum
hlýddi röddin mjög vel.
Framkoma hennar á söngpall-
inum var frjálsleg viðfeldin og
tilgerðarlaus.
Hjálmtýr Hjálmtýsson hefur
ljósan tenór, sem liggur þegar
nokkuð vel. Hæðin virðist honum
hreinasti leikur og píanósöngur
hans hljómaði oft mjög þægilega.
Hljómleikarnir enduðu á dúett
úr óperunni Maddame Butterfly,
eftir Puccini.Eygló og Hjálmtýr
sungu hann á köflum mjög á-
heyrilega.
Yfirleitt báru þessir skemmti-
legu hljómleikar hinum ungu
söngvurum og meistara þeirra
gott vitni. Hann leiðir þá sýni-
lega með öryggi og varfærni,
leggur áherzlu á létta og óþving-
aða raddbeitingu. Var áberandi
hvað sumt af söngfólkinu var vel
á verði gegn því að ofbeita rödd-
inni. Það vill þó mjög brenna við
hjá lítt reyndum söngvurum þeg-
ar glímuskjálftinn grípur þá,
frammi fyrir áheyrendum.
Full ástæða er til að óska
Demetz og nemendum hans til
hamingju með fyrsta áfangann á
sönglistarinnar löngu torsóttu og
villugjörnu leið.
Undirleikur dr. Urbancic hafði
á sér öll einkenni hins góða og
hlédræga listamanns.
Söngvurum, undirleikara og
söngkennara var mjög fagnað af
áheyrendum. — Vikar.
Oss vantar stúlkur
vanar saumaskap. Uppl. gefur
Björn Guðmundsson,
Andersen & Lauth
Vesturgötu 17
Huiniírðmgar!
Stúlka óskast nú þegar til jóla og unglingsstúlka
eða eldri kona óskast til að gæta barns síðari hluta
dags.
Upplýsingar í síma 9971.
AR1Ð 1895
byrjuðu íslendingar að kaupa jólagjafir sínar í Edinborg — ogþað
gera þeir enn þann dag í dag — vegna þess að þar eru vörurnar
vandaðar og við allra hæfi.
Betri meðmæli getur engin verzlun óskað sér.
Aldrei hefur úrval jólagjafanna verið fjölbreyttara en í ár — þar
er eitthvað fyrir alla.
<
Vefnaðarvörudeild
Kjólaefni, í fjölbreyttu úrvall.
Spegilflauel — svart og mislitt.
Vönduð gardínúefni, s
ótal tegundir. J
Stores-efni. ^
Náttkjólar, náttjakkar, )
Undirkjólar og buxur, s
úr nælon og prjónasilki. j
Hanzkar — SlæAur og nælonsokkar. i
Kvensloppar, vatteraðir, i
Kven- og barna frotte-sloppar. s
— Og svo ótal margt annað — sem ^
of langt yrði upp að telja.
S
s
s
i
i
í
Búsáhaldadeild
Smekkleg matar- og kaffistell.
Fallegar kristalvörur,
skálar — vasar — kökudiskar.
Postulínsmunir, 50 tegundir,
„Kunst“-gler,
Ölsett — Vínsett — Ávaxtasett
Handmálaðir bollabakkar,
Plastikvörur í miklu úrvali.
Oskubakkar og sígarettubakkar,
Ávaxta, og kökuhnífar.
Tertuspaðar — Pipar og saltglös,
Stundaglös. Kökudiskar. Skálar, gler,
Skrautdósir, Borðbúnaður o. fl.
Með öðrum orðum allt það, sem góð
húsmóðir óskar sér í jólagjöf.
JÖLABAZARINN
opnar í dag
Krakkar mínir
Fetið í fótspor foreldra ykkar, óskið ykkur
leikfanga úr Edinborg.
Það gerðu þau og voru ánægð.
Sjén er sögu ríkari
Kontið sjálf og sjáiö
^ólaóueinn