Morgunblaðið - 13.12.1956, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 13. des. 1956
MORC, UlXBLAÐll
rr
Aðalfundur Byggingar-
félags verkamanna
Auknar framkvæmdir fyrirhugaðar
AÐALFUNDUR Byggingai-félags verkamanna í Reykjavík
var haldinn í Iðnó 10. þ. m. — Stjórn félagsins gaf skýrslu um
störf þess á s. 1. ári. Nú eru í byggingu hjá félaginu 32 íbúðir,
en leyfi er fengið og byrjað á framkvæmdurn 32 íbúða að auki,
og verður það 9. byggingarflokkur félagsins. Þegar þessum fram-
kvæmdum er lokið, hefur félagið byggt 326 íbúðir alls, auk skrif-
stofu- og verzlunarhúss.
STJÓRNARKJÖR
, Ur stjórninni gekk eftir eigin
ósk Grímur Bjarnason, er annazt
hefur gjaldkerastörf fyrir félagið
Konungur land-
nemanna -
SAGAN um Davy Crockett er
komin út. Er hún gerð eftir sam-
nefndri kvikmynd, sem sýnd var
hérna fyrir nokkru og hlaut mikl-
ar vinsældir — sérstaklega
drengja. Heitir hún Konungur
landnemanna og segir frá ævin-
týrum Davy Crocketts, landnem-
ans hjartakuflsklædda með bjór-
skottshúfuna.
Davy var sem kunnugt er einn
af landnemunum í Ameríku og
lenti í hinum stórkostlegustu
ævintýrum.
I bókinni er fjöldi mynda úr
kvikmyndinni, en hún er þýdd
af Guðmundi M. Þorlákssyni.
Útgefandi er Litbrá.
frá stofnun þess. Þökkuðu fund-
armenn honum góð og mikil störf
í þágu félagsins. í stað Gríms
|Bjarnasonar var kosinn Jóhann
Eiríksson. Aðrir í stjórn eru
Bjarni Stefánsson, Magnús Þor-
steinsson og Alfreð Guðmunds-
son, en stjórnskipaður formaður
félagsins er Tómas Vigfússon.
AUKNAR FRAMKVÆMDIR
Svohljóðandi tillaga kom fram
og var hún samþykkt samhljóða:
„Aðalfundur Byggingarfélags
verkamanna haldinn 10. des. 1956
beinir þeim tilmælum til stjórn-
ar Byggingarsjóðs verkamanna
að lán til íbúöa byggðra af Bygg-
ingarfélögum verkamanna verði
veitt samkvæmt anda laga um
verkamannabústaði, en 'ekki eins
og nú tíðkast aðeins fast lán á
hverja íbúð, þar sem sú upphæð
nemur um % af byggingarkostn-
aði.“
Á fundinum ríkti ánægja með
framkvæmdir félagsins og kom
fram mikill áhugi á að hægt
væri að auka byggingarfram-
kvæmdir þess.
liagnýtar jólagfafir
Glæsilegar vetrarkápur — peysufatafrakkar
í úrvali. — Verð frá 795 kr.
•
Fallegar kvcnpeysur í úrvali,
einnig kvenpils.
Mikið úrval af hálsklútum
og slæðum.
Kápu- og domubúðin
LAUGAVEGI 15.
Parker ‘51’
Gjöf, sem frægir menn fúsEega Jiiggja
• • • •
Parker ‘51’ het'ur alltaf
verið langt á uridan öðr-
um pennum. Ei nú með
sínu sérstæða Aerometric
blekkerf- og hmum raf-
fægða platínuoödi, sem
einnig er alltaf í fram-
för
Með Parker ”51 “
hafa þeir ráðið örlög yoar.
Flestir af þekktustu ráðamönnum
hermsins — svo og þeir sem þér
hafið mest dálæti á — eru stoltir
af að eiga Parker ”51 og muna
ávallt þann sem færði peim hann
að gjöf.Með honum hafa þeir fram-
kvæmt úrbæíur fyrir veiferð yðar.
Mundi það ekki vera dásamlegt
ef einhver vildi heiðra yður með
gjöf sem þessari?
Parker ’5I'
Eftirsóttasti penni heims, gefinn
og notaður af fræg’u tolki.
Verð: Parker ‘51’ með gullhettu kr. 560.00
Parker ‘51’ með lustraloy hettu kr. 480.00
Parker Vacumatic kr. 228.00.
Einkaumboðsmaður Sigurður H. Egilsson, P. O. Box 283, Reykjavík.
Viðgerðir annasc: Gleraugnaverzlun Ingólfs Gíslasonar, Skólavórðustíg 5, Reykjavík.
2401E
M anchettskyrtur
hvítar, mislitar, röndóttar með einföldum
og tvöföldum líningum
HÁLSBINDI mjög skrautlegt
úrval
SLAUFUR
NÁTTFÖT
NÆRFÖT
SOKKAR
HERRASLOPPAR
RAKSETTA KASSAR
SPORTSKYRTUR
GABERDINE SKYRTUR
POPLÍNFRAKKAR
GABERDINEFRAKKAR
PLASTKÁPUR
GÚMMÍKÁPUR
LOÐSKINNSHANZKAR
KULDAÚLPUR fóðraðar
m/gæruskinni
KULDAJAKKAR alls konar
KULDAHÚFUR á börn og
fullorðna
Vandabar vörur
Smekklegar vörur
Gjörið svo vel og skoðið í gluggana.
Ceysír hí.
FATADEILDIN — Aðalstræti 2
Verzlið í Toledo Fischersundi