Morgunblaðið - 13.12.1956, Síða 24
r
Yeðrið
Vaxandi norðanátt. Skýjað, en
víðast úrkomulaust.
297. tbl. — Fimmtudagur 13. desember 1956
dagar
til JÓLA
5.Í.5. CRÆDIR -
ALMENNINCUR
BORGAR
Stærsta okurmálib, sem enn hefur
komið upp
ÞAÐ er nú komið í ljós, að ríkisstjórnin hefur „samið við“
S.Í.S. og Olíufélagið h.f. um að greitt verði 160 shill-
inga farmgjald fyrir hverja smálest olíu, sem flutt er með
„Hamrafellinu" enda þótt upplýst sé að rekstrarkostnaður-
inn svari aðeins til 60—70 sh. Er eigendum skipsins þarna
opnuð leið til stórgróða á kostnað neytenda.
„Tíminn“ í gær telur að Sjálfstæðismenn hafi komið í veg
fyrir að olíuskip yrði fýrr kéypt til landsins og segir að
öðru leiti rangt frá og er rétt að leiðrétta þar einstök atriði.
Fyrir fjórum árum höfðu „Shell“, Olíuverzlun íslands og
Olíufélagið h.f. komið sér saman um að kaupa olíuskip
sameiginlega. Þegar allt virtist undirhúið strandaði málið
á því að S.f.S. vildi sjá um allan rekstur skipsins, hafa
skipið undir fána Sambandsins og ráða því að öllu leyti.
Ef S.f.S. hefði ekki tekið þessa afstöðu hefðu olíufélögin
eignazt olíuflutningaskip fyrir fjórum árum síðan.
1953 sækir Olíufélagið um leyfi til þess að leigja skip
og nota hagnaðinn, sem kýnni að verða af leigunni til þess
að verða eigandi að skipi. Beiðni þessi var samþykkt í
Fjárhagsráði og stóðu Sjálfstæðismenn þar ekki á móti.
1954 er flutt stjórnarfrumvarp á Alþingi um heimild fyrir
ríkisstjórnina til þess að ábyrgjast lán til kaupa á tveimur
olíuflutningaskipum. Fjárhagsnefnd Nd. fékk þetta mál til
athugunar. Jón Pálmason Jlutti tillögu í nefndinni um það,
að farmgjöld með skipunum skyldu aldrei verða hærri en
gerðist í alþjóðaflutningum. Jóhann Hafstein og Gylfi Þ.
Gíslason tjáðu sig samþykka tillögunni, en Skúli Guðmunds-
son og Páll Þorsteinsson töldu sig ekki reiðubúna til að
taka afstöðu til málsins. Þegar séð var að meirihluti Al-
þingis vildi hafa þennan fyrirvara fyrir ríkisábyrgðinni
misstu Framsóknarmenn allan áhuga á málinu og var
það ekki útrætt á Alþingi.
1955, 25. okt. sækir S.Í.S. og Olíufélagið svo um inn-
flutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir olíuskipi. Var það fyrsta
og eina formlega umsóknin, sem borizt hefur um kaup á
slíku skipi frá S.Í.S. og Olíufélaginu. Leyfið var veitt 6.
des. 1955, eða rúmum mánuði eftir að leyfisbeiðnin kom.
Þeir, sem kynnu að rengja þetta geta leitað upplýsinga hjá
Innflutningsskrifstofunni um málið.
Það er mikill ódrengskapur þegar Tíminn og Framsókn-
armenn eru að reyna að bera sök á hendur Ingóifi Jónssyni
og öðrum Sjálfstæðismönnum fyrir það að hafa tafið fyrir
’því að olíuskip væri keypt. Það þarf ekki að taka fram,
að án samþykkis Sjálfstæðismanna var ekki mögulegt að
kaupa olíuskip. An margs konar fyrirgreiðslu Sjálfstæðis-
manna á annan hátt var ókleift fyrir S.f.S. og Olíufélagið
að ráðast í skipakaupin. Landsbanki fslands gekk í ábyrgð
fyrir annars veðréttar láni vegna skipakaupanna, að öðrum
kosti hefði S.Í.S. og Olíufélagið ekki fengið nægilegt lán
til skipakaupanna. Landsbanki fslands gaf yfirlýsingu um
að bankinn ábyrgðist yfirfærzlu á vöxtum og afborgunum af
láninu á hverjum tíma. Að öðrum kosti var lánið ófáanlegt.
Tímamenn viðurkenna, að allt sé rétt, sem Ingólfur Jóns-
son sagði í grein sinni. Þeir játa á sig glæpinn kinnroða-
laust, en skrökva því að lesendum blaðsins, að Sjálfstæðis-
menn hafi tafið fyrir því að íslendingar gætu eignazt olíuskip.
S.Í.S. GRÆBIR — ALMENNINGUR BORGAR
Stjórnarblöðin hafa upplýst að Hamrafellið fær 160 shill-
inga í flutningsgjald fyrir hverja smálest, enda þótt rekstr-
arkostnaðurinn svari aðeins til 60—70 sh. Ríkisstjórnin
hefur ekki notað heimild í lögum til þess að ákveða flutn-
ingsgjald Olíufélagsins í samræmi við nauðsynlegan kostnað
eins og gert er við Eimskipafélag íslands. Ríkisstjórnin
afliendir þannig Olíufélaginu og S.Í.S. tugmilljónir króna
að óþörfu og lætur almenning greiða með hækkuðum skött-
um, sem nú mun vera fyrirhugað að færa almenningi í jóla-
gjöf. Bændur, verkamenn og aðrir landsmenn, sem hafa
tekjur aðeins til nauðþurfta verða þannig að greiða fyrir
hvert olíutonn, sem notað er, hátt á þriðja hundrað kr. vegna
olíugróðans, sem S.f.S. og Olíufélaginu er gefinn á þennan
hátt.
Sjálfstæðismenn fagna því að skipastóll landsmanna eykst.
Sjálfstæðismenn ætlast til að þjóðin öll njóti góðs af því eins
og verið hefur með eflingu Eimskipafélagsins. Sjálfstæðis-
menn ætlast til að í landinu gildi ein lög. Almenningur í
landinu hefur fylgzt mcð því sem gerzt hefur og fordæmir
þetta stærsta okur- og hneykslismál, sem fram hefur komið
á fslandi til þessa og ríkisstjórn fslands stendur að.
f kvöld:
Körfuknattleiks-
mótið
KÖRFUKNATTLEIKSMÓT fs-
lands stendur yfir þessa dagana
og er þriðja leikkvöldið í kvöld
að Hálogalandi. Leika þá ÍR og
Stúdentar; Gosi og IKF; Ármann
og KR.
Fyrst var leikið á sunnudags-
kvöld og vann þá ÍR Ármann
með 48:40. IKF vann KR með
40:24 og Stúdentar unnu Gosa
með 31:1
Annað leikkvöldið var á þriðju-
dagskvöld. Þá vann IKF Stúdenta
með 42:22, Gosi vann Ánnann
með 39:26 og ÍR vann KR með
54:34.
Leikirnir hafa verið skemmti-
legir og allmargir áhoffendur
verið bæði kvöldin, en nú fer
spenningurinn vaxandi.
Kertasníkir, hinn fljúgandi jóla-
sveinn Flugfélags fslands, sem
undanfarna vetur hefur verið á
ferð og flugi, í fyrravetur á Ak-
ureyri, hyggst nú bregða sér í
loftið og lieimsækja Vestmanna-
eyjabörn á sunnudaginn kemur.
Að sjálfsögðu fer þetta allt eftir
flugveðri. — Mjög hefur verið
stormasamt að undanförnu og
hafa þá Vestmannaeyingar fengið
að finna fyrir því hversu einangr
aðir þeir eru. En nú vonar maður
að flugveður verði á sunnudag-
inn, svo Kertasníkir geti glatt
Vestmannaeyjabörn litla stund.
en hann mun ekki gleyma því að
hafa þá pokann sinn með sér. —
Vetrarhjálpin í Hafnar-
firði tekin til starfa
¥^ETRARHJÁLPIN í Hafnarfirði hefur hafið starf sitt og starfar
* eins og undanfarin ár. — í fyrra safnaðist meðal bæjarbúa
alls kr. 26.300,00, auk nokkurs af fatnaði, en bærinn lagði fram
kr. 15.000,00. Alls var þá úthlutað til 139 heimila og einstaklinga
kr. 39.300,00 auk fatnaðar.
Það er álit stjórnar vetrarhjálp
arinnar, að nú sé sízt minni þörf,
en undanfarin ár, fyrir starfsemi
vetrarhjálparinnar. Er því heitið
á bæjarbúa alla að styðja þessa
starfsemi ríflega nú, eins og jafn-
an óður, svo að unnt verði að
veita öllum þeim, sem við skarð-
an hlut búa, dálitla hjálp og
gleði á jólunum.
Skátar munu fara um bæinn í
þessari viku, væntanlega fimmtu-
dags- og föstudagskvöld, og heim-
sækja yður, góðir bæjarbúar. —
Takið vel á móti þeim og gerið
för þeirra sem bezta.
Stjórn vetrarhjálparinnar tek-
ur einnig á móti gjöfum, en hana
skipa: Garðar Þorsteinsson, pró-
fastur, Kristinn Stefánsson, frí-
kirkjuprestur, Guðjón Gunnars-
son, framfærslufulltrúi, Ólafur
H. Jónsson, kaupm., og Guðjón
Magnússon, skósmiður.
Forðumst slysin í jóla-
ösinni. Hliðrum til
fyrir börnunum
NÚ ER JÓLASVIPUR að færast yfir höfuðborgina. Það er jafnvel
búið að kveikja á stórum jólatrjám. Miðbærinn er orðinn eitt
haf jólaljósa. Klukkur og stjörnur skreyta borgina. Umferðin eykst
og fólksmergðin margfaldast á götunum. Búðirnar standa fullar af
fólki og börnin hópast fyrir framan mörgu skemmtilega skreyttu
jólagluggana.
FULLORÐNIR VERÐA AÐ
HAFA VIT FYRIR BÖRNUNUM
En það er margs að gæta í þess
ari miklu ös. Sérstaklega skal at-
hygli vakin á börnunum. Menn
mega ekki gleyma því að þetta
er fyrst og fremst hátíð barn-
anna. Það er ástæða til þess að
vekja sérstaka athygli á aðvör-
unum lögreglustjóra í sambandi
við hina miklu umferð. En það
eru ekki aðeins bílarnir, sem
verða að gæta varúðar. Bílstjór-
arnir verða þó að vera á stöðugu
varðbergi þar sem börnin eru á
ferð og þau munu áreiðanlega
eiga margar férðirnar ofan í bæ-
inn fyrir jólin. Og börunum er
nú einu sinni ekki gefið að kunna
að fara varlega. Þess vegna verð-
ur fullorðna fólkið að hafa vit
fyrir þeim.
HLIÐRIÐ TIL FYRIR
BÖRNUNUM
En það er ekki aðeins í um-
ferðinni, sem hliðra verður til
fyrir börnunum. Það hefur marg-
oft skeð að þessum litlu skinnum
er ýtt til og stjakað frá í búðun-
um, þegar ös er mikil. Hinir full-
orðnu verða að vera þess minn-
ugir að litla hnokkana langar
líka til þess að kaupa jólagjöf
handa mömmu, pabba, bróður eða
systur. Auk þess að gefa gjöfina
er það ef til vill þeirra mesta
ánægja að fá að kaupa hana sjálf.
Gerið því ykkar til að þau fái líka
að komast að afgreiðsluborðinu.
HÁTÍÐ GLEÐI OG GÖFGI
Verum þess minnug að jólin
eru hátíð gleði og göfgi. Forð-
umst því að skyggja á jólagleði
nokkurs manns. Komi slys fyrir
vitum við ekki hve jólagleðin er
eyðilögð fyrir mörgum. Látum
ekki kaupæðið hlaupa með okk-
ur í gönur.
Hliðrum til fyrir þeim, sem eru
minni máttar. Forðumst slysin í
jólaösinni.
Síðustu to£?ara-
c
laudanir
Undanfarna daga hafa fjórir ís.
lenzkir togarar landað í útlönd-
um og í dag landar togarinn Þor-
steinn Ingólfsson í Grimsby. Á
mánudaginn landaði Gylfi í Cux.
haven alls 201 smálest og var
verðið 92.200 mörk. Harðbakur
landaði i gær 2883 kittum í Ab-
erdeen og var verðið 7.955 sterl-
ingspund. Skúli Magnússon land-
aði í Hamborg 192 lestum fyrir
97.532 mörk, og Röðull landaði
243 lestum í Hamborg fyrir 121.
146 mörk.
Skók-keppnin
1. BORÐ
Svart: Akureyri
(Júlíus Bogas. - Jón Ingimarss.)
ABCDEFGH
Hvítt: Reykjavík
(Ingi R. Jóhannsson)
5. Rgl—f3
2. BORÐ
Svart: Reykjavík
(Björn Jóhanness,- Sv. Kristinss.)
ABCDEFGH
Hvítt: Akureyri
(Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss.)
4..........e7—e5