Morgunblaðið - 17.01.1957, Blaðsíða 1
44. árgangur
13. tbl. — Fimmtudagur 17. janúar 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hœsta fjárlagaáœtlun Bandaríkjanna:
Útgjöld til hermála verulega
aukin og ný hergögn smíðuð
Eden fer fil Nýja-Sjálands
LONDON, 16. jan. — Sir Ant-
hony Eden og kona hans munu
leggja af stað til Nýja Sjálands
á hinu glæsilega og þægilega far-
þegaskipi Rangitan. Læknir Ed-
ens að nafni Horace Evan:. kom
í læknisvitjun til hans í dag að
Chequers. Hann sagði honum að
hann yrði að hafa algera hvíld,
skipsferðin væri góð til þess að
veita honum slíka hvíld og hress-
ingu. — Reuter.
Washington, 16. jan. Einkaskeyti frá Reuter.
riSENHOWER lagði fjárlagaáætlun næsta fjárlagaárs
fyrir Bandaríkjaþing í dag. Útgjöld eru áætluð 71,8
milljarð dollara, samanborið við 68,9 milljarð dollara sl.
ár. Eru hér um að ræða hæstu fjárlög Bandaríkjanna á
friðartímum.
MEST TIL HERMALA
Sakir þess að einstök sam-
bandríki sjá um verklegar fram-
kvæmdir innan sinna takmarka,
fer mjög mikill hluti af útgjöld-
um fjárlagaáætlunarinnar til
Adams lœknir hafði
áhuga á erfðaskrám
RéttarhÖld í Eastbourne haíin
London, 16. jan. Einkaskeyti frá Reuter.
►ÉTTARHÖLD hófust í dag í smábænum Eastbourne í máli
enska læknisins John Bodkins Adams, sem grunaður er um
að hafa valdið dauða fjölda eldri kvenna, er hann stundaði og
höfðu arfleitt hann að miklum fjármunum.
R‘
Réttarhöldin hófust í dag með
ræðu saksóknara. Hann sagði, að
ekkjan Edith Morrell hefði strik-
að lækninn út úr erfðaskrá sinni
tveimur mánuðum áður en hún
lézt. En Adams er sakaður um að
hafa byrlað henni inn eitur. —
Læknirinn er grunaður um að
hafa myrt fleiri konur, en til að
Óáran víða
um heim
LONDON, 16. jan. — Veður-
skeyti frá ýmsum hornum
heims segja að víðast ári illa.
I Evrópu og Norður-Ameríku
er nú kominn brunagaddur.
Hvarvetna í Frakklandi nema
á bláströndinni er frost. Kald-
ast í Júra-fjöllum 16 stiga
frost. Kaldur norðanvindur
næðir um alla austurströnd
Bandaríkjanna. Er frost jafn-
vel suður í Georgíu og Tenn-
essee. í New York var 48
stiga frost á Celsius og er
það met. í Japan hefur ekki
komið regndropi úr lofti í 33
daga og er það einnig met.
Svo mikill þurrkur hefur einn
ig verið í Ástralíu og sumar-
hitar, að stórir skógarcldar
loga. — Reuter.
byrja með er sakarefnið eingöngu
dauði frú Morrell.
Framh. á bls. 2.
varnar og öryggis Bandaríkjun
um eða 63% allra úcgjaldanna.
Forsetinn skýrði frá því að
á næsta ári verði lögð áherzla
á tilraunir og smíði fjar-
stýrðra flugskeyta og kafbáta
sem knúnir verði kjamorku.
Auk þess er ætlunin að smíða
citt risastórt flugmóðurskip,
sem knúið verði kjarnorku.
Ætlunin er að efnahagsað
stoð við vinveitt ríki aukist
um 250 milljón dollara á ár-
inu.
AUKNAR RÍKISTEKJUR
Þrátt fyrir aukningu útgjalda,
veiða enggr sérstakar ráðstafan-
ir gerðar til að auka ríkistekjurn-
ar, heldur er reiknað með því að
auknar þjóðartekjur og aukin
starfsemi atvinnufyrirtækja gefi
af sér talsvert meiri skattgreiðsl-
ur. —
Arturo Toscanini
Hinn heimsfrægi hljómsveitnr-
stjóri Toscnnini lótinn
TTINN heimsfrægi hljómsveitar-
stjóri Arturo Toscanini and-
aðist í gær í New York.
Samkvæmt frásögn sonar hans,
fékk hann slag á nýjársdag og
lifði með litlum kröftum þar til
í gær.
Ef verja á vesfræna menningu verða
Brefar og Bandaríkin að sfanda saman
Anfhony Nutting skrifar greinaflokk um
hina hœttulegu misklíð engilsaxnesku
þjóðanna
þANN 31. OKTÓBER sl. sagði Anthony Nutting af sér
embætti aðstoðar-utanríkisráðherra í brezku stjórninni,
vegna þess að hann var ósamþykkur stefnu Edens í Egypta-
lands-málinu.
Nutting hefur nú hafið birtingu greinarflokks í New York
Herald Tribune, þar sem hann ræðir einkum það ósam-
komulag sem er milli Breta og Bandaríkjamanna á mörgum
sviðum. Telur hann að þetta misklíð geti orðið vestrænni
menningu að falli.
Toscanini fæddist þann 25.
marz árið 1867 í Parma á Ítalíu
og var því tæplega 90 ára er
hann lézt. Hann gerðist ungur
hljómsveitarstjóri og hlaut á hin-
um langa ferli sínum æðstu virð-
ingar, sem hljómsveitarstjóri fær
hlotið. Kom það m ,a. fram í því,
að hann stjórnaði einhverntíma á
ævinni mörgum allra þekktustu
hljómsveitum veraldar og voru
allir hljómlistarmenn stoltir af
að hafa leikið undir stjórn hans.
Toscanini var konungur í tón-
listarheiminum, sem allir báru
lotningu fyrir.
Árið 1898 varð Toscanii.i aðal-
stjórnandi hinnar frægu Scala-
óperu í Mílanó og gegndi þvl
starfi þar til 1908, er hann réðist
til Metropolitan-óperunnar í New
York. f fyrri heimsstyrjöldinni
hvarf hann heim til Ítalíu og varð
aftur aðalstjórnandi Scala árið
1921. Á árunum 1926—1928 stjóm
aði hann New York sinfóníu-
hljómsveitinni, sem gestur, en frá
árinu 1928—1936 var hann aðal-
stjórnandi hennar og náði hljóm-
sveitin undir hans stjórn hinni
mestu fullkomnun. Árið 1931
flutti Toscanini búferlum frá
Ítalíu til Bandaríkjanna. Hafði
fasisti nokkur löðrungoð meistar-
ann vegna þess að hann vildi
Framh. á bls. 2
Anthony Nutting
, var ósammála Eden.
Indverskir stúdentar slíta snm
bnndi við rússnesk snmtök
Nýja Delhi, 16. jan. Einkaskeyti frá Reuter.
CTÚDENTABANDALAG INDLANDS skoraði í dag
^ á indverska stúdenta að taka ekki þátt í æsku-
lýðshátíð sem fram á að fara í Moskvu á næstunni.
Telur bandalagið þátttöku í mótinu ekki siðferðilega
hæfa vegna aðgerða Rússa í Ungverjalandi.
Stúdentabandalag Indlands skorar á indverskan
æskulýð að slíta allri samvinnu og samskiptum við
rússnesk æskulýðssamtök. — Reuter.
Nutting rekur það að ágrein-
ingurinn milli Bandaríkjamanna
og Breta hafi oft komið í ljós
og hann hafi alltaf verið til tjóns.
Skýrast hafi hann þó birzt í Súez-
málinu.
BREITT BIL
— Hér er, segir hann, um að
ræða vandamál, sem hefur verið
vanrækt of lengi. Það felst í því,
að þessar tvær þjóðir hafa fullt
og náið samstarf, aðeins á einu
svæði, það er í NATO. En ef á
að fara að ræða nálæg eða fjar-
læg Austurlönd, Kýpur og við-
horfin til nýlendustefnunnar,
hlutleysis, eða til þeirra þjóða í
Asíu og Afríku sem ekki hafa
skuldbundið sig, þá er hættulega
breitt bil milli stefnu okkar og
skoðana. Þetta kemur greinilega
í Ijós á fundum S.Þ.
Framtíð okkar, segir Nutting,
byggist á því að við getum unnið
vináttu þeirra þjóða, sem ekki
Framh. á bls. 2
Æsingar í Póllandi
fyrir kosningarnar
Varsjá, 16. jan.
Á SUNNUDAGINN verða
haldnar kosningar í Póllandi.
Mikil ólga og óánægja er
meðal almennings vegna þess
að kosningarnar verða eftir
rússneskri fyrirmynd, aðeins
með einum lista. Telja inenn
að með því hafi Gomulka
svikið megin-loforð sitt til
þjóðarinnar.
Um síðustu helgi kom utan-
ríkisráðherra Kína, Chou En-lai,
í heimsókn til Póllands. Flutti
hann ræður við opinber tækifæri
sem hafa verkað eins og 'olía á
eldinn. Hann lagði áherzlu á það,
að öll sósíalísku ríkin yrðu ó-
skorað að hlíta forystu Sovét-
Rússlands.
Slík uramæli féllu ekki í
góðan jarðveg meðal pólsku
þjóðarinnar, sem hefur ein-
mitt staðið sameinuð í því að
verja þjóðlegt sjálfstæði sitt
gegn ásælni Rússa En mestum
óróa veldur, að gestgjafi Chou
En-Iais, sjálfur Gomulka, var
að sjálfsögðu ekki í aðstöðu
til að andmæla gestinum og
Framh. á bls. 2