Morgunblaðið - 14.02.1957, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 14.02.1957, Qupperneq 3
Fimmtudagur 14. febr. 1957 MORGVNBLAÐIÐ 3 Sfanwintpirinn við ilugmenn- ina felur í sér beinur kuup- hækkunir og iríðindi sem joingildu stórkostlegri kuuphækkun EINS OG SKÝRT var frá í blaðinu í gær, hafa nú tekizt samningar í flugmannadeilunni. Hafa flugmenn með hinum nýja samningi fengið beinar kauphækkanir og fríð- indi, sem í heild munu jafngilda um 30—40% kauphækkun. Helztu breytingar, sem urðu á kaupi og kjörum flug- manna eru þessar: X. Flugfélögin borga 10% gjald í Lífeyrissjóð í stað 5% áður. 2. Dagpeningar verða nú í hæsta launaflokki kr. 7000.00 á ári en fara lækkandi í samræmi við launaflokkana og eru kr. 3000.00 í þeim lægsta. Áður borguðu flugfélögin flugmönnunum aðeins lítils háttar gjald fyrir hverja flugferð, vegna uppihalds, en það gjald helzt til viðbótar við dagpeningana. Þeir, sem fljúga til útlanda fá nú 30% af brúttólaunum greitt í erlendum gjaldeyri en þessi gjaldeyrisfríðindi voru hjá flugmönnum áður mest 10—11% af brúttólaun- um. Þennan lið telja flugmenn jafngilda mjög verulegri kauphækkun. Flugstjóri í innanlandsflugi fær flugstundaþóknun sína hækkaða upp í það sama og flugstjórar í utanlandsflugi hafa eða úr 15 kr. í 19 kr. í grunnlaun á klukkustund. Þá er um nokkrar aðrar breytingar að ræða svo sem bættar tryggingar flugmanna og nýjar reglur um starfsaldur, sem binda flugfélögin meira en áður gagnvart einstökum flugmönnum. • I þessu sambandi er rétt að benda á, að samningarnir við flugmenn eru gerðir undir handarjaðri ríkisstjórnarinnar. Eins og kom fram í blöðum stjórnarflokkanna í gærmorgun, er reynt að leyna því að þeirra hálfu, að um svo sem nokkrar kauphækkanir hafi verið að ræða, en þegar litið er á samn- inginn sjálfan, er augljóst að þar er um beinar kauphækk- anir og ný fríðindi að ræða, sem í heild jafngilda stór- kostlegum kauphækkunum flugmönnum til handa, sem vafa- laust nema ekki minna en 30—40% samtals. 3. 4. Hryssan á Crímstungu- heiði gengur enn laus Hofi, Vatnsdal, 12. febrúar. IHAUST átti sér stað á Grímstunguheiði mikill eltingarleikur við hryssu og folald hennar, en hún var svo stygg, að slíkt hefur ekki þekkzt hér um slóðir áður. Var folaldið gripið höndum, þar sem það var gert uppgefið í síðustu leitinni að hryssunni, en hún slapp undan suður um heiðar. Var þá ákveðið að láta hryssuna eiga sig, unz hjarn væri komið. SÁST HVERGI Nú fyrir nokkrum-dögum fóru tveir menn að leita hryssunnar á nýjan leik, þeir bændurnir Lárus í Grímstungu og Grímur í Saur- bæ. Leituðu þeir Grímstungu- heiði og Haukagilsheiði, en hvergi var neitt spor sjáanlegt eftir hryssuna. Leitarskilyrði voru ágæt. Sjálfstæðisfélag GÓÐIR HAGAR Sögðu þeir góða haga fyrir hross á afréttinum svo líklegt er að hryssan líði ekki neyð. Er ekki hægt að segja um hvar hún heldur sig, því öræfi eru þarna víð og mikil. Ákveðið er að gera enn eina tilraun til að leita henn- ar. — Ágúst. Ófallnægjandi hwdaiboðnn ÁÐUR en gengið var til dag- skrár í Samein. þingi í fyrrad. kvaddi Skúli Guðmundsson sér hljóðs utan dagskrár.Sagði hann, að hann hefði hlustað á þingfréttir á laugardagskvöld ið, sem hefðu verið skilmerki- lega fluttar að vanda, en þar hefðu verið lesin upp nöfn 24 þingmanna, sem ekki hefðu mætt á fund á laugardaginn. Hann kvaðst hafa verið einn hinna tuttugu og fjögra, og ástæðan tií þess að hann hefði ekki mætt til þessa fundar væri sú, að hann hefði ekkert um hann vitað. Kvað hann þá fundarboðun, að bera fundar- boð heim til manna, ekki f'ull- nægjandi þegar um óvenju- legan fundartima væri að ræða. Taldi hann þurfa að vanda betur til fundarboðun- ar þegar svo stæði á. Kvaðst hann beina þeim tilmælum til forseta að hann sæi svo um að þetta yrði gert. Enn frem ur kvaðst hann hafa farið þess á leit við þingfréttaritara út- varpsins, að hann segði frá því í þingfréttum, að þing- menn hefði ekki mætt á þenn- an fund sökum ófullnægjandi fiundarboðunar. Forseti kvaðst mundi koma þessum tiimælum til réttra aðila. -Á Horthy, fyrrverandi einræð- isherra Ungverjalands, var graf- inn í brezkum grafreiti í Lissa- bon í dag. Þar hvílir hann, þang- að til hægt verður að flytja jarðneskar leifar hans til Ung- verjalands. Úr Herranótt Menntaskólans. Talið frá vinstri: Jón Ragnarsson sem Tobbi Trunt, Hólmfríður Gunnarsdóttir sem frú Hardcastle og Ólafur Mixa sem Hardcastle. rr Kállegar kvon- bænír” MENNTLINGAR frumsýndu í fyrrakvöld ,Kátlegar kvonbænir', eftir Oliver Goldsmith, sem er Menntaskólaleikurinn á þessu ári. Húsfyllir var og voru forseta- hjónin meðal gestanna. Var leikn um tekið mjög vel og leikend- urnir klappaðir fram hvað eftir annað. Vandað heiti af tímaritwu „Flug“ komið ut TÍMARITH) „FLUG“ 2.—3. hefti 7. árgangs er komið út. Er þetta heíti að nokkru leyti helgað 20 ára afmæli Flugmála- félags íslands. Heftið flytur margar ágætar greinar, það er vandað að frágangi og efnisvali og er útgefendum og aðstandendum blaðsins sómi sð hefti þessu. ÚR RITSTJÓRNARRABBI í ritstjórnarrabbi segir ritstjór- inn Vignir Guðmundsson svo m. a.: „Það er ósk þeirra, sem að út- gáfu ritsins standa, að það megi flytja sem mest og bezt efm, sem flugmál varða, og það eigi jafn- framt að vera öðrum ritum frem- ur söguleg heimild um flugið á íslandi. Að einum þræði er hefti þetta eins konar afmælisrit Flugmála- fél. íslands, sem í ár varð 20 ára. Segja bæði fyrsti formaður Kóp avogs Sjálfstseðis- Fráfarandi LOKIÐ er aðalfundi félags Kópavogs. etjórn félagsins baðst nú undan endurokosningu. Sveinn Einars- son verkfr. formaður fráfarandi stjórnar gerði grein fyrir störf- um stjórnarinnar og þeim mál- irni, er hún hefir unnið að. Vegna mikilla anna baðst Sveinn ein- dregið undan endurkjöri. Var þá önnur stjórn kosin í hennar stað, sem Hörður Þórhallsson, við- skiptafræðingur er form. fyrir, en auk hans eiga þar sæti: Gísli Þorkelsson, efnaverkfr., varafor- maður, Einar Jóhannsson, múr- arameistari, gjaldkeri, Ármann Sigurðsson, járnsmiður, ritari, Bjarni Jónsoon, verkstjóri, með- Stjórnandi, Þórir Guðmundsson, skrifstofustjóri er varamaður í stjórn, ásamt Birgi Kristjáns- syni, járnsmíðameistara. Endur- skoðendur eru þeir Jósafat Lín- dal og Johan Schröder. — „Ég ætla uð verða flugmaður“ fél. og núverandi formaður þess nokkuð frá starfseminni fyrr og nú. Ennfremur eru birtar tvær fyrstu fundargerðir félagsins, en þær gefa glögga hugmynd um framsýni þeirra mánna, sem voru brautryðjendur á sviði íslenzkra flugmála. í dag stöndum vér íslendingar á vegamótum í flugmálum okk- ar. Flugflotinn er gamall og úr sér genginn. Það verður að hefj- ast handa, ef við eigum ekki að dragast aftur úr og það svo að við getum ekki orðið á neinn hátt samkeppnisfærir á heims- mælikvarða. Hingað til höfum við sýnt mikinn dugnað og flug- vélar okkar hafa sezt á fjölda flugvalla um mikinn hluta heims- ins. Engum blandast hugur um að flugmenn okkar eru einhverj- ir hinir beztu í heimi. En hvað stoðar það ef tækin, sem þeir eiga að stjóma eru úr sér gengin og langt á eftir kröfum tímans? Þessar hugleiðingaar verða til á 20 ára afmæli Flugmálafélags ís- lands, félagsins sem er samtök allra þeirra, sem áhuga hafa á framgangi og eflingu flugsins.“ FJÖLBREYTT EFNI í heftinu er svo samtal við Agnar Kofoed Hansen, skrá um stofnfélaga Flugmálafélagsins, ávarp núverandi formanns félags ins, grein lun ,fyrsta flugmann- inn sem verður yfirmaður al- þjóðahers" — Norstad, samtal við yngsta starfsmann Flugfélags íslands, grein um flugskátasveit- ina, greinin „Vetrarnótt á Kefla- víkurflugvelli" brautryðjandinn Ellehammer, grein um nýja land- búnaðarflugvél, annáll Þyts, ann- áll Loftleiða, annáll Flugfél. ís- lands, nýyrði um frug, og frá- sögn af ferð Flugmálafél. til Shannon. — Margar og góðar myndir prýða heftið. (Ljósm. Ól. Thorarensen). Form. leiknefndar, Þórður Þorbjarnarson, bauð gesti vel- komna með nokkrum orðum, áð- ur en leikurinn hófst. Aðalleikendur eru: Ólafur Mixa, Hólmfríður Gunnarsdótt- ir, Brynja Benediktsdóttir, Ingi- gerður Konráðsdóttir, Jón Ragn- arsson, Guðmundur Ágústsson og Björn Ólafs. Árshátíð Árnesinga- féiagsins í Reykjavík Árnesingafélagið í Reykjavík hélt árshátíð sína s.l. laugardag í Sjálfstæðishúsinu. Var það mikill fagnaður og vel til hans vandað í hvívetna. Skemmtu gestir sér vel við hin ágætustu skemmtiatriði, ræðuhöld og söng. Formaður félagsins Hróbjart- ur Bjarnason, kaupmaður, setti hófið með snjöllum ávarpsorðum og bauð gesti velkomna. Sérstak- lega bauð hann velkomna heiðurs- gesti félagsins að þessu sinni, en þeir voru dr. Páll Isólfsson og Ágúst bóndi Sveinsson að Ásum í Gnúpverjahreppi. Tóku báðir heiðursgestirnir til máls og þökk- uðu þetta ágæta boð með ræðum. Þá flutti ræðu Ágúst Þorvalds- son, alþingism. Síðan var sezt að snæðingi. Á borðum var eingöngu íslenzkur matur, hangikjöt, svið og þess háttar. Voru kræsingar miklar og góðar og til óblandinn ar ánægju öllum góðum mat- mönnum. Meðan setið var að snæðingi var skemmt með söng. Guðmund- ur Ágústsson, söng einsöng með píanóundirleik, en síðan sungu þeir, hann og Ólafur frá Mosfelli tvísöng. Vakti söngur þeirra mikla hrifningu. Voru þeir kall- aðir fram hvað eftir annað og urðu að syngja mörg aukalög. Að lokum var dansað. Fór samkoman öll mjög ánægju lega og vel fram og var Árnesinga félaginu í Reykjavík til hins mesta sóma. Vaðlaheiði illfær HÚSAVÍK, 12. febrúar. — Færð hefur nú spillzt á leiðinni milli Húsavíkur og Akureyrar og á laugardaginn féll fyrsta áætlun- arferðin niður á þessum vetri en þessi leið er mjög sjaldan fær svo lengi vetrar. — f gær var bort- izt inn eftir og var jarðýta með bílunum á Vaðlaheiði. Bílarnir ■ fóru frá Húsavík kl. 7 í gærmorg. un og voru 10 tí'ma til Akureyrar. Sneru þeir svo strax til baka aft- ur og komu hingað kl. 7 í morg- un. Voru bílstjórarnir þá búnir að vera 24 tíma við akstur. Aðrir vegir í sýslunni eru færir og mjólkurflutningar eru eðlileg- ir til Húsavíkur. — Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.