Morgunblaðið - 14.02.1957, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.02.1957, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 14. febr. 1957 Hvar á Húsmæðrakennaraskóli Islands að starfa ? Frá Nemendasambandi Hús- mæðrakennaraskóla fslands. EFTIRFARANDI athugasemdir eru niðurstöður nefndar, sem kosin var á fundi í Nemenda- sambandi Húsmæðrakennara- skóla íslands 11. febr. 1957. Var nefndinni falið að bera fram á- litsgerð frá sambandinu um staðsetningu Húsmæðrakennara- skóla íslands vegna frumvarps þess, sem fram er komið á Al- þingi um það mál. Nefndin álít- nr, að Húsmæðrakennaraskjóla fslands verði bezt séð fyrir æski- legum starfsskilyrðum með því móti að hann starfi í Reykjavík í sem nánustum tengslum við Kennaraskóla íslands. Byggir nefndin skoðun sína einkum á eftirfarandi atriðum: Reglugerð um Húsmæðrakenn- araskóla íslands er frá árinu 1942, en lög um menntun kenn- ara frá 1947, og er reglugerðin því byggð á öðrum lögum en þeim, sem nú gilda, enda tölu- vert ósamræmi milli laga þess- ara og reglugerðar skólans bæði varðandi staðsetningu, inntöku- skilyrði o.fl. Þegar lög um menntun kenn- ara eru lesin í heild, einkum 1., 5., 6. og 7. kafli, verður ekki ann- að séð en Húsmæðrakennara- skóli íslands sé beint framhald Kennaraskóla íslands og eigi margt sameiginlegt með Hand- íðakennaraskóla fslands (handa- vinnudeild kennaraskólans). Það virðist því liggja beinast við, að þessir þrír skólar séu á sama stað og í nánum tengslum hver við annan. Það, sem einkum mælir með þessu, eru ýmsar sameiginlegar, bóklegar kennslugreinar og hí- býlafræði Húsmæðrakennara-| skólans og Handíðakennaraskól- ans. Þar sem skólar þessir eru báð- ir fámennir, má gera ráð fyrir að sameina mætti kennslu þeirra í þessum greinum. Mundi sú til- högun spara nokkurt fé og stuðla jafnframt að því, að nemendur beggja skólanna nytu færustu kennslukrafta t.d. í uppeldis- og sálarfræði. Er löngu viðurkennd nauðsyn þess, að kennarar í verk legum greinum fái einnig stað- góða þekkingu á þessu sviði. í húsmæðraskólunum starfa kenn- arar frá þessum tveim skólum saman, og yrði verkaskipting þar auðveldari, ef menntun þeirra væri hin sama í almennum grein- um. Veigamikill þáttur í starfsemi Húsmæðrakennaraskólans er æf- ingakennsla. Samkv. reglugerð skólans skal hver nemandi í hús mæðrakennaradeild hljóta 12 stunda æfingakennslu á viku á þriðja námstímabili og nemandi í skólaeldhúskennaradeild 26 stunda verklegt nám og æfinga- kennslu á viku. Að undanförnu hefur æfingakennslan farið fram í þrem gagnfræðaskólum bæjar- ins í einu og jafnframt á nám- skeiðum, sem haldin hafa verið í húsakynnum Húsmæðrakenn- araskólans. Miklu skiptir, að æf- ingakennslan í gagnfræðaskólun- um geti farið fram á sem skemmstum tíma til þess að hún raski fastri kennslu skólans sem minnst. Yrði skólanum fundinn stað- ur í öðru langtum minna byggð- arlagi, gæti æfingakennslan ekki farið fram á svo mörgum stöð- um í einu og hlyti því að taka lengri tíma og raska annarri kennslu skólans. Á Akureyri er t. d. aðeins starfsrækt eitt skóla hús. Ennfremur yrði því meiri erf iðleikum bundið að afla nemenda á námskeið skólans, sem hann starfaði í fámennari bæ. Það er einróma álit meðlima Nemendasambands Húsmæðra- kennaraskóla íslands að æfinga- kennslan sé sá þáttur kennslunn- ar, er einna notadrýgstur reyn- ist nemendum skólans í starfi þeirra síðar meir. Eftir því sem ákvæði laga um kennslu í matreiðslu og þjónustu brögðum á gagnfræðastigi og í verknámdeildum koma til fram- kvæmda, hlýtur tala þeirra kenn ara, sem þessar námsgreinar kenna, að fara ört vaxandi og nauðsyn þess að verða æ meiri, að skólinn sé starfræktur í fjöl- býlinu, þar sem aðstaða til æf- ingakennslu er bezt. Eins og kunnugt er, hefur Hús Frh. á bls. 15. In memoriam : Kjartan Jónsson frkvstj. VEÐUR var stillt og bjart þriðju- daginn 12. þessa mánaðar. Sólin stafaði mildum, hlýjum geislum á bleika grundina í Fossvogs- kirkjugarði, — úti við sjónrönd blikaði á Snæfellsjökul, — bláan flóann, fpnnhvít fjöll. Það var birta yfir hinztu för Kjartans Jónssonar, og það er bjart yfir minningunni um hann. ★ Kjartan Jónsson var fæddur hinn 1. maí árið 1899 að Munað- arhóli á Snæfellsnesi, sonur Jó- hönnu Jóhannsdóttur og Jóns Jónssonar hreppstjóra þar. — Fimmtán ára gamall fór hann til Reykjavíkur til náms, enda gott mannsefni og prýðilega gefinn. Síðan stundaði hann verzl- unarstörf hjá hinum kunnu Proppé-bræðrum á Þingeyri. — Verzlunarstjóri þeirra var hann á Sandi um skeið, en síðan vann hann á Seyðisfirði við verzlun Stefáns Th. Jónssonar. Árið 1931 fluttist hann til Reykjavíkur, réðist til dagblaðs- ins Vísis og starfaði þar til dauða- dags. Hann andaðist sunnudaginn 3. þ. m., en hafði kennt hjarta- sjúkdóms áður. ★ Gamalt latneskt spakmæli seg- ir: De mortuis nil nisi bene, en með því er átt við, að jafnan sé borið lof á þá, sem látnir eru, — stundum á þá, sem ekki eiga það skilið. Á Kjartan Jónsson verður ekki oflof borið, það vita þeir, sem þekktu hann. Það er mikil blessun að kynn- ast góðu fólki á lífsleiðinni. Á göngu okkar kynnumst við ýmsu fólki. Sumir skilja lítið eftir, aðr. ir verða manni ógleymanlegir. Kjartan var einn þeirra, sem verður minnisstæður. Ég átti því láni að fagna að vera samstarfsmaður Kjartans heitins um nær tíu ára skeið og ég tel mér mikla sæmd í því og happ að hafa mátt teljast í hópi vina hans. Hann var afburðamað- ur í starfi, nákvæmur, útsjónar- samur og úrræðagóður, ráðhollur og góðviljaður. Hann var gæddur þeim dásamlegu eiginleikum að geta ávallt glatt aðra, varpað birtu á veg samferðamanna sinna. Hann var farsæll maður. í vinahópi var hann glaður og reifur, hafði jafnan hnyttin til- svör á hraðbergi, klmnigáfa hans var næm og hann var hverjum manni skemmtilegri í viðræðum. Hann var fróður vel um bók- menntir, skáldin voru góðvinir hans og sjálfur var hann smekk- maður á mál og stíl. Hann var prýðilega skáldmæltur og ótaldir eru botnar þeir og fyrripartar, sem hann mælti af munni fram á góðum stundum þegar svo bar undir. Við vinir hans eigum erfitt með að sætta okkur við, að nú sé hann horfinn sjónum, en sárastur harmur er þó kveðinn að fjöl- skyldu hans. En minningin um svo góðan dreng hlýtur að verða henni nokkur harmléttir. Kjartan Jónsson var kvæntur ágætiskonu, Ingibjörgu Jónsdótt- ur Hall. Eignuðust þau tvö börn, Sólrúnu og Kormák, gáfuð og gerfileg eins og þau eiga ætt til. Frú Ingibjörg bjó manni sínum indælt heimili, mótað myndar. skap og smekkvísi. Kjartan var fyrirmyndar heimilisfaðir, og voru þau hjónin samrýmd um gestrisni og höfðingsskap. ★ Kjartan Jónsson var jarðsung. inn frá Fossvogskirkju að við- stöddu miklu fjölmenni. Síra Jón Auðuns dómprófastur jarðsöng. Það voru þung spor að fylgja Kjartani Jónssyni til grafar. Það er erfitt að sætta sig við fráfall hans. En hugur okkar fylgir hon- um í áttina til strandarinnar ó- kunnu, þangað, sem við förum öll þegar kallið kemur. Með Kjartani Jónssyni er til moldar genginn drengur góður. Það er heiðríkt yfir minningu hans. Thorolf Smith. Gísli Halldórsson fimmtugur GÍSLI HALLDÓRSSON verk- fræðingur, sem á fimmtugs- afmæli í dag, hefur um áratugi verið þjóðkunnur maður. Gísli er athafnamaður mikill, hefur víða verið og í mörgu brotizt. Hér í Reykjavík hefur hann stundað verkfræðistörf og verzl- un, á Siglufirði stjórnaði hann um hríð Síldarverksmiðjum rík- isins, seinna stýrði hann stórri niðursuðuverksmiðju í Esbjerg og nokkur seinni árin var hann ráðunautur mikils verkfræði- firma í Baltemore í Bandaríkjun- um, unz hann hvarf heim aftur á síðastliðnu ári. í Bandaríkjun- um voru mikil mannvirki reist samkvæmt teikningum Gísla, m. a. stærstu fiskimjölsþurrkar- ar, sem sögur fara af. Birtust frá- sagnir og myndir af mannvirkj- um þessum í mörgum verkfræð- , ingatímaritum vestra og hafði Gísli unnið sér mikið álit hjá þeim, er skyn bera á slíkar fram- kvæmdir. Faðir Gísla, Halldór Guð- mundsson r^fmagnsfræðingur, var brautryðjandi í upphafi raf- væðingar íslands, en dó alltof ungur. Frá honum tók Gísli við hugsjónaarfi, sem hann hefur ekki svikizt um að ávaxta. Gísli er þannig skapi farinn, að hann lætur sér enga torfæru í augum vaxa. Hugkvæmni hans er ótrú- lega mikil. Ef ekki verður kom- izt að markinu eftir troðnum leiðum, er hann manna vísastur til þess að finna aðrar, sem engir höfðu séð áður. Sama máli gegn- ir um erlendar nýjungar, er hér geta komið að haldi. Sem dæmi má nefna það, að Gísli sá um fyrstu færiböndin, sem sett voru í íslenzkt frystihús, en siðan var sú nýjung tekin upp í hverju frystihúsi og þykir nú sjálfsagð- ur vinnusparnaður. Einnig átti Gísli frumkvæðið að því, að hrað- gengisvélar voru reyndar í ís- lenzkum fiskibátum, og hafa þær reynzt mjög vel, þótt margur spekingurinn hristi höfuðið yfir þeim í upphafi. Mætti margt fleira nefna, þótt hér verði stað- ar numið. Gísli er vel máli farinn og rit- fær. Mörg útvarpserindi hans hafa hlotið miklar vinsældir og eins greinar þær, sem hann hef- ur birt. Er hann jafnvígur á hvorttveggja, að rita glöggt um hagnýt málefni og að gefa ímynd- unaraflinu lausan tauminn. Gísli er víðförull maður og skemmti- legur ferðafélagi, hvort sem mað- ur heldur sér við jörðina eða skreppur með honum í smá- héimsókn til næsta sólkerfis. Ég tel það íslandi mikið happ, að Gísla leiddist vestra og ílent- ist þar ekki, þótt honum stæðu þar allar brautir opnar. Það var minni vandi fyrir hann að finna þar næg verkefni við sitt hæfi heldur en hér heima á Fróni. En við megum ekki við því að missa svo hressilega drengskaparmenn úr landi. P. B. shrifar úr daglega lifinu EKKI virðast allir sammála því að flytja_ beri Húsmæðra- kennaraskóla íslands í Húsmæðra skólann á Akureyri sem nú stendur auður, en Húsmæðra- kennaraskólinn starfar ekki í vet ur vegna húsnæðisskorts. Hvar á Húsmæðra- kennaraskólinn að vera? TIL mín hringdi kona ein ný- lega og sagðist alveg vera á annarri skoðun. Sagði hún að Húsmæðrakennaraskólanum bæri að vera í Reykjavík. Hér væri hans aðsetur sérstaklega með það fyrir augum að í framtíðinni yrði Húsmæðrakennaraskólinn gerður að háskóla og þá fengju ekki aðr- ar stúlkur inngöngu í hann en þær sem hefðu stúdentspróf. — Eðlilegt væri að slík háskólastofn un væri í Reykjavík þegar til þessarar nýju þróunar skólans kæmi. Engin vandræði þyrftu að gerast varðandi hús Húsmæðra- skólans á Akureyri. Þar mætti auðveldlega stofna annan kvenna skóla, auk þess sem starfar í Reykjavík, svo stúlkur utan af landi þyrftu ekki að sækja hing- að suður í kvennaskóla. Ágætt menntasetur á Akureyri EN það eru fleiri sem hafa vilj- að leggja orð í belg. Hér birt- ist bréf frá „Akureyringi" sem skrifaði dálkunum ftir að pist- illinn um skólann kom á sunnu- daginn hér í blaðinu. Akureyr- ingur segir: Kæri Velvakandi! Okkur Akureyringum er það gleðiefni að upp skuli hafa verið tekið að nýju á Alþingi mál Hús- mæðrakennaraskóla íslands og þar með endurvakin hugmynd Jónasar G. Rafnars, fyrrv. al- þingismanns okkar, um að flytja skólann í hið ágæta húsnæði, sem stendur lítt notað hér fyrir norð- an. Ummæli húsmæðrakennara, sem fram komu í dálkum þínum fyrir skömmu, eru skynsamleg og ber að taka fullt tillit til þeirra. Þau eru auðsjáanlega rituð af þeim sem bæði hefur kunnug- leika og þekkingu á málinu. Við Akureyringar höfum aldrei fengið að heyra nein frambæri- leg rök fyrir þvi að mál Jónasar Rafnars dagaði uppi í Alþingi á sínum tíma. Öll skilyrði eru fyrir hendi hér á Akureyri til þess að reka megi hér fyrsta flokks hús- mæðrakennaraskóla. Hér er fyrir menntasetur Norðlendinga og gnægð færustu kennara. Land- rými er gott á lóð kvennaskólans svo að þar eru engin vandkvæði á því að stunda garðrækt, bæði til kennslu og nytja fyrir skólann og fyrirmyndarbú eru hér víðs vegar um Eyjafjörð, ef þörf er á að kynna húsmæðrakennurum rekstur og starfsemi þeirra. Ég mun ekki einn Akureyringa um það að vænta þess að þessi góða og mjög sjálfsagða hug- mynd nái nú fram að ganga. Akureyringur. Vaxandi æskulýðsstarf ÞAÐ hefur vakið nokkra athygli að þessa mánuðina virðist svo sem nokkur skriður sé að komast á tómstundastarfsemi æskulýðsins hér í bænum. Æsku- lýðsráð Reykjavíkur, sem borgar- stjóri skipaði á sínum tíma, hef- ur ráðið vildarprest sem þjónað hefur lútersku söfnuðunum vest- an hafs, sr. Braga Friðriksson frá Siglufirði, til þess að hafa fram- kvæmdastjórn á hendi um æsku- lýðsmál Reykjavíkuræskunnar. Hér á séra Bragi mikið verkefni fyrir höndum en verðugt. Þegar hefur hann komið af stað æsku- lýðsstarfsemi svo sem tómstunda- störfum í úthverfum, í þeim fé- lagsheimilum sem þar er að finna. Þá hefur og verið efnt til góðra æskulýðstónleika. Í/V X /'XL^A Þetta er allt í áttina og vel tU fundið, en starfið er mikið og vandasamt. Höfuðatriðið er þó að hér hefur ísinn verið brotinn af hálfu hins opinbera. Reykjavík er orðin það stór borg að hætt er við að svalllífið dragi um of til sín unglingana ef ekki er mikið að gert og fer vel að Reykjavík- urbær skuli með skátum, bind- indisfélögum og íþróttafélögum, svo aðeins nokkuð sé nefnt, hefj. ast handa nú í vetur. Og vonandi verður þróunin sú að öllum fávíslegum draumum um risavaxna æskulýðshöll verði kastað á haug, en litlum, notaleg- um æskulýðsheimilum sem víð- ast komið upp í bæjarhverfun- um, þar sem unglingarnir geta unað við starf og leik og hollar skemmtanir við sitt hæfi, í mílu- fjarlægð frá sjoppusetum og ís- baratölti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.