Morgunblaðið - 14.02.1957, Side 11
Fimmtudagur 14. febr. 1957
MORGUNBLAÐIÐ
11
1--------------
HUSNÆÐI TIL LEIGU
ísland í heimsmeisfarakeppni í knattspyrnu:
ísland leikur við Frakkland
2. júní og 5. júní v/ð Belgíu
Leikirnir fara fram í
Frakklandi og Belgíu
JjUNS OG KUNNUGT er kom upp nokkur vandi á milli Frakka
og Belgíumanna annars vegar og íslendinga hins vegar um
niðurröðun landsleika þeirra í knattspyrnu sem þessi lönd eiga
að leika á þessu ári í sambandi við undanrásir heimsmeistara-
keppninnar. Alþjóðaknattspyrnusambandið fékk málið til úrskurð-
ar og úrskurður þess varðandi leikina er þannig:
Frakkland — ísland 2. jóni í Frakklandi,
Belgía — ísland 5. júní í Belgíu
ísland — Frakkland fyrrihluta september i Reykjavík.
ísland — Belgía fyrrihluta september í Reykjavik.
KSÍ hefur varðandi leikina hér heima stungið upp á að fyrr-
nefndi leikurinn verði 1. sept. og hinn siðari 8. sept.
•k Djarflega teflt
Björgvin Schram form. KSÍ
hafði orð fyrir stjórn sambands-
ins er hún ræddi við blaðamenn í
gær. Rakti hann aðdragandann að
því að íslendingar tóku ákvörð-
un um að vera með í heimsmeist-
arakeppninni að þessu sinni. Var
slík þátttaka samþykkt á ársþingi
KSÍ 1955.
„Mörgum finnst hér vera djarf-
lega teflt“, sagði Björgvin „og
ísl. knattspyrnumenn færast mik-
ið í fang. En stjórn KSÍ er þeirrar
skoðunar að „innilokunarstefnan"
svonefnda sé neikvæð og skaðleg.
Við teljum að setja verði markið
hátt og sjá knattspyrnumönnum
fyrir stórum viðfangsefnum. Ef
svo er gert má vænta framfara
og aukins áhuga almennings á
íþróttinni. Það eru í ár 10 ár frá
stofnun Knattspyrnusambandsins
og um svipað leyti var fyrsti
landsleikurinn leikinn. Fer vel
á því að þessa afmælis sé minnzt
með stórum verkefnum.
Það er töggur í ísl. knatt-
spyrnumönnum, hélt Björgvin
áfram, þegar þeim eru fengin
stór verkefni. Það hafa þeir
margoft sýnt. Og stjórn Knatt-
spyrnusambandsins vonar, að
þeir bregðist ekki nú því
trausti sem þeim er sýnt.
Frakkland á sterkt landslið
og Belgíumenn líka, þó það
sé ekki eins sterkt. Liðsmenn
Frakka eru atvinnumenn. Leik
irnir við þessi lönd eru því mik
H prófraun fyrir ísl. knatt-
spyrnumenn. Þeir eru próf-
raun á það, hvort við getum
og eigum að mæta hinum sterk
ustu liðum á erlendri grund,
eða hvort við eigum að draga
saman seglin á næstu árum
og keppa aðallega á heima-
veUi“.
Ar Undirbúningur hafinn
Björgvin kvað undirbúning að
þessum leikum vera hafinn. KSÍ
hefði skrifað öllum sambandsað-
ilum sínum um málið og skorað
á alla að sjá svo um að knatt-
spyrnumenn komist fljótt i æf-
ingu, því leikirnir ytra eru fyrr
á árainu en tíðkazt hefur áður.
Landsliðsn. sér um þjálfun alla
og hvetur hún alla þá menn sem
hafa verið í landsliðinu eða við
það, að byggja nú vel upp æfing-
ar sínar og koma vel æfðir til
vorleika. Efnt verður í vor til
ýmissa meiri háttar leika t. d.
pressuleiks.
Stjórn KSÍ hyggst halda fundi
með aðiljum sínum tii þess að
hvetja og brýna menn til áfram-
halds við æfingar.
Stjórnin leggur á það áherzlu,
að mikið sé nú í húfi að knatt-
spyrnumenn bregðist ekki og
standi sig vel. Það er skorað á
alla að æfa vel svo sterkt og gott
landslið gangi til leiks við Frakka
og Belgíumenn í júnímánuði.
★ 8 landsleikir í ár
Björgvin Schram sagði að lands
leikirnir í sumar yrðu alls 6 sam-
kvæmt leikatöflu KSÍ. Það eru
þessir fjórir sem nefndir hafa ver-
ið og svo í júnímánuði landsleik-
ir við Dani og Norðmenn. Út
af frétt í Mbl. um að Norðmenn
teldu leik sinn hér í júní ekki
landsleik, sagði Björgvin að það
kæmi mjög flatt upp á KSÍ. Það
hefði alla tíð verið ætlunin að
hafa hér þriggja landa keppni.
Danir hefðu formlega samþykkt
Björgvin Schram sagði, að
stjórn KSÍ hefði lagt áætlun
um landsleiki nokkuð fram í
tímann. 1958 er ákveðið að ír-
land komi hingað með sitt
landslið og það boð er gagn-
kvæmt svo að íslendingar
munu og fara utan. 1959 koma
Finnar hingað og Þjóðverjar
hafa lýst sig fúsa til að koma
hingað til landsins 1960, en um
það hefur ekki verið samið
endanlega ennþá. Þá eiga ísl.
knattspyrnumenn boð inni hjá
Englendingum, sem hingað
komu í fyrra. Vegna hinna
mörgu landsleika verður
Skíðoferð í
Homrahlíð í dog
SKÍÐAFÉLÖGIN í Reykjavík
hafa að undanförnu gengizt fyrir
skíðaferðum upp í Hamrahlíð.
Hefur þangað verið farið þar
sem Hellisheiðarvegurinn er lok-
aður. Enn ein ferð verður farin
£ Hamrahlíð á morgun kl. 1 og
verður farið frá BSR.
í Hamrahlíð er nægur snjór og
ágætar brekkur.
Sex sinnum mun fyrirliði ísl.
landsliðsins í sumar heilsa fyrir-
liða erlends landsliðs. — Mynd
þessi er frá síðastliðnu sumri er
Valur og Akranes mættust. Rík-
harður heilsar Guðjóni dómara,
en Einar Halldórsson horfir á.
Þessir tveir leikmenn hafa á und-
anförnum árum verið styrkustu
stoðir ísl. landsliðsins.
að mæta íslandi í landsleik hér
og sömuleiðis Norðmönnum. Ef
Norðmenn treystust ekki til lands
leiks, þá myndi stjórn KSÍ ekki
bjóða þeim hingað heldur fá
eitthvert annað land, sem leika
vill opinberan landsleik.
★ Vallarvandamálið
Afmælisleikirnir verða þann
ig: 8. júlí ísland — Danmörk.
10. júlí ísland — Noregur og
12. júlí Noregur — Danmörk.
Vonazt er til að leikirnir geti
farið fram á hinum nýja Laug-
ardalsvelli. Það er hægt ef
samstillt átök stuðla að því,
og annað er ekki sæmandi
fyrir oss íslendinga en að geta
boðið erlendum gestum upp á
sómasamlegan völl — en ekki
malarvöll sem allir hræðast.
ekki hægt að taka því boði
í ár, en sennilegt er að það
verði þegið næsta ár, 1958.
Hundknattleiks-
mót Í.F.R.N.
hefst á morgun (föstudag) kl. 2,
og verður háð í KR-heimilinu.
Fimmtán skólar taka þátt í mót-
inu. Menntaskólinn sér um mótið.
í dag keppa:
4. fl. karla: Gagnfræðask. Aust-
urbæjar : Réttarholtsskóli.
4. fl. karla: Lindargötuskóli :
Gagnfræðaskóli Vesturb.
4. fl. karla: Laugarnesskóli :
Flensborg.
3. fl. karla: Landspróf A-lið :
Gagnfræðask. Austurbæjar.
3. fl. karla: Flensborg : Lands
próf B-lið.
3. fl. karla: Gagnfræðaskóli
Vesturb. : Verzlunarskólinn.
3. fl. karla: Menntaskólinn í
Reykjavík : Gagnfræðask. Verk-
námsins.
2. fl. karla: Menntaskólinn í
Rvík : Verzlunarskólinn.
Mótið heldur áfram á mánudag
klukkan 2.
Keppendur eru beðnir að mæta
stundvíslega.
Landsleikir nœstu árin
neðst við Laugaveginn. Hentugt fyrir verzlun, skrifstofu
eða heildverzlun eða annan líkan rekstur. Ennfremur
er lagerpláss fyrir hendi í sama húsi. Tilboð sendist til
blaðsins fyrir föstudagskvöld, merkt ,,7745“.
HafnfirðSngar
Tilbúin karlmannaföt, dökk og mislit.
Klceðskeraverkstœðið
*
Austurgötu 28 — Sími 9954.
Laus staða
Löglærðan fulltrúa eða vanan bókhaldara, vantar við
sýslumannsembættið í Stykkishólmi. Laun samkv. launa-
lögum. Nánari upplýsingar gefur undirritaður.
Stykkishólmi, 12. janúar 1957.
Sýslumaðurinn í Snæfells- og Hnappadalssýslu.
Skrifsfofuhúsnœði
Stór hæð, 463 fermetrar, í glæsilegu húsi
tíl leigu, sem skrifstofuhúsnæði.
Upplýsingar gefur
Sigurgeir Sigurjónsson hrl.
Aðalstræti 8 — Sími 1043
FlugfreyjustÖrf
Nokkrar stúlkur óskast til flugfreyjustarfa í vor.
Aldurstakmörk 21—30 ár. Nauðsynlegt að um-
sækjendur tali ensku og eitt Norðurlandatungu-
málanna.
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofum okkar við
Lækjargötu 2 eða Reykjanessbraut 6.
Umsóknir þurfa að berast félaginu fyrir 5. marz
n.k.
Loftleiðir hJ.
Allsherjar
atkvæðagreiðsla
um stjórn og trúnaðarráð Félags járniðnaðarmanna
fyrir næsta starfsár, hefur verið ákveðin laugard.
16. þ.m. frá kl. 12 á hádegi til kl. 8 e.h. og sunnud.
17. þ.m. frá kl. 10 f.h. til 6 e.h. í skrifstofu félagsins
Kirkjuhvoli. Kjörskrá liggur frammi -á sama stað
föstud. 15. þ.m. kl. 4.30 til kl. 6 e.h. og laugardaginn
16. þ.m. kl. 10—12 f.h. Skuldugir félagar geta greitt
sig inn á kjöi'skrá þar til kosning hefst.
Kjörstjórnin