Morgunblaðið - 14.02.1957, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 14.02.1957, Qupperneq 12
12 MORGVNBLAÐ1Ð Fimmludagur 14. febr. 1957 GULA [|||J herbergiS eftir MARY ROBERTS RINEHART Framhaldssagan 52 um hitt, að gamli maðurinn föln- aði enn meir, og leit út eins og maður, sem hefur orðið fyrir svip legu áfalli. Hann meira að segja þagnaði alveg í bili. Loks sagði hann: — Fyrirgefið þér, ég er víst orðinn of gamall fyrir slíkt sem þetta. En þetta líður frá eftir andartak. Dane hélt nú í hann báðum höndum. Hann fann hve maður- inn var smávaxinn innan i stóra frakkanum. Dane reyndi að þreifa á slagæðinni og fann, að hún var máttlítil. — Ég ætti heldur að fara með yður heim, sagði hann, — eða ef þér viljið setjast hér niður, gæti ég náð í einhvem til að fylgja yður heim. En Ward lyfti hendi í mótmæla skyni. — Við megum ekki hræða konuna mína. Þetta lagast allt saman. Ég ætla að setjast niður, ef þér viljið hjálpa mér. Plöntuskeiðin lá þarna enn á jörðinni. Dane kom gamla mann- inum fyrir og tók hana síðian upp. Nokkuð af skaftinu var atað auri og hann bölvaði með sjálfum sér. Samt sem áður vafði hann umbúðunum utan um hana. Ward virtist ekki gefa því neinn gaum. Hann sat með lokuð augu, en liturinn var farinn að fær- ast yfir andlit hans aftur. — Ég bið yður mikið að afsaka, sagði hann. — Ég fer nú ekki oft út fyrir morgunverð, en þegar ég heyrði um hana Elinor, hugs- aði ég mér, að ég skyldi ganga UTVARPIÐ Fimmtudagur 14. febrúar: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50—14,00 „Á frívaktinni", sjó mannaþáttur (Guðrún Erlends- dóttir). 8,30 Framburðarþáttur í dönsku, ensku og esperanto. — 19,00 Harmonikulög. 19,10 Þing- fréttir. — Tónleika. 20,30 fslenzk ar hafrannsóknir; V. erindi: Lin- dýrin (Ingimar Óskarsson grasa fræðingur). 20,55 íslenzk tónlist- arkynning: Verk eftir Árna Björnsson. 21,25 Útvarpssagan: „Gerpla" eftir Halldór Kiljan Laxness; XXV. (Höfundur les). 22,00 Fréttir og veðurfregnir. — Kvæði kvöldsins. 22,10 Sinfón- iskir tónleikar (plötur). 23,15 Dagskrárlok. Föstudagur 15. febrúar: Fastir liðir eins og venjulega. 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 18,30 Framburðarkennsla í frönsku. 18,50 Létt lög. 19,10 Þingfréttir. — Tónleikar. 20,30 Daglegt mál (Amór Sigurjóns- son ritstjóri). 20,35 Kvöldvaka: a) Guðrún Heigadóttir flytur er- indi: Fjallkonan í íslenzkum bók- menntiun. b) íslenzk tónlist: Lög eftir Sigurð Þórðarson (pl.). c) Magnús Finnbogason frá Reynis- dal flytur gamlan ferðaþátt: „Þorradægrin þykja löng“. d) Broddi Jóhannesson flytur þátt um forustufé eftir Gunnlaug Gunn arsson bónda í Kasthvammi í Lax- árdal. 22,00 Fréttir og veðurfregn ir. — Kvæði kvöldsins. 22,10 Upp- lestur með inngangsorðum: Tóm- as frá Kempén og bók hans „Breytni eftir Kristi" (Haraldur Hannesson hagfræðingur). 22,25 „Harmonikan". — Umsjónarmað- ur þáttarins: Karl Jónatansson. 23.15 Dagskrárlok. hingað og vita, hvort ég gæti nokkuð hjálpað. Þetta gat meir en verið satt. Gamli maðurinn var á stígnum, sem lá milli húsanna. En Dane hafði nú samt grun um, að Ward gamli hefði orðið svona hrædd- ur af að sjá hann, enda þótt kastið sem hann fékk gæti svo sem alveg verið uppgerðarlaust. — Fáið þér þessi köst oft? spurði hann. — Það kemur yfir mig svimi öðru hverju. Það er þó ekki af því, að hjartað sé neitt bilað. líklega eitthvað í eyrnagangin- um. Ward var nú orðinn míklu hressari. Hann dró upp hreinan vasaklút og þurrkaði ennið. — Látið mig ekki tefja yður sagði hann. Ég ætla að sitja hérna stundarkorn. Ég er alveg að verða góður. Dane gekk nú til Crestview. Ennþá hafði hann nokkrar grun- semdir, þótt hann vissi varla hvers vegna og á miðri leið, sneri hann sér og leit aftur. Ward gamli var að taka eitthvað upp úr aumum við fætur sér. Jafnvel í þessari fjarlægð sást blika á það og Dane þóttist viss um, að það væi-i skot- hylkið úr byssunni, sem Elinor hafði verið skotin með. Hann hikaði. Átti hann að snúa við og heimta að sjá það? En þá myndi Ward gamli auðvitað þver- neita, að hann hefði það, eða hann gat gengið áfram eins og hann sæi Dane alls ekki. Hann ákvað að halda heldur áfram. 17. Morgunverðurinn var tilbúinn, þegar hann kom heim aftur. Þeg- ar Alex bar hann inn, varð hann hissa að sjá húsbónda sinn vera að skoða plöntuskeiðina. — Hvað er nú þetta? — Ég býst við að það hafi ver- ið notað til þess að grafa upp föt in þarna uppi £ brekkunni. Heyrðu mig, Alex. Hvað þekkir þú til Ward-hjónanna? . . Og það vildi ég, að guð gæfi, að þú gætir lært að búa til kaffí! — Ég er enginn kokkur, herra minn, og hef aldrei þótzt vera það. Ef yður líkar ekki þjónusta mín.... — Allt í lagi. En hvað veiztu um Ward-hjónin? Alex klóraði sér í höfðinu. — Ja, ég veit ekki annað en þau séu í miklu áliti hér. Mjög rík, en fólk- ið hérna kann vel við þau samt. Þau gefa til kirkjunnar og spítal- ans og þess háttar. Sonur þeirra féll í síðasta ófriði. Og svo eiga þau sonarson í núverandi styrjöld. Þau hafa verið hér á sumrin síð- ustu fjörutíu árin. — Hefur sonarsonurinn verið heima nýlega? — Þau bjuggust við honum, en hann kom ekki. Dane hringdi í spitalann eftir morgunverð. Elinor Hilliard var skárri og hafði meðvitund. Greg var þarna ennþá, en Carol hafði farið heim, og Dane fór áleiðis tíl Crestview, að samtalinu loknu. Hann bjóst við, að hún yrði sögð ókomin á fætur, en hitti hana i bókastofunni við arininn. Hún virtist vera alveg uppgefin, og hendurnar lágu máttlausar í kjöltu hennar, og augun voru dauf leg. Samt brosti hún til hans. — Ég hef verið í símarifrikii við mömmu, sagði hún. — Maður gæti haldið, að ég hefði skotið á Elinor. Annað hvort verð ég að fara heim, eða hún kemur hingað. — Og því eruð þér ekkert hrif- in af, eða hvað? — Hún getur ekkert gagn gert hér og hún skilur ekki neitt, svar- aði Carol þreytulega. — Hún er vön því, að hér séu sex til átta vinnukindur í húsinu. Og svo er allt eins og það er. .. Howard kemur líka, en hann getur vitan- lega verið í hótelinu. — Svo að þér hafið náð sam- bandi við hr. Hilliard? — Ekki enn. Það er sunnudag- ur og skrifstofan hans lokuð. — Hann getur verið næstum hvar sem er yfir helgina. Mamma vissi ekki hvar. Hann gaf henni vindling og kveikti sér í öðrum og settist nið- ur. — Mætti ég tala dálítið við yð- ur um fjölskylduna? sagði hann. — O, ég er svo vön slíku. Hvað viljið þér vita? — Um systur -yðar. Eru þau maðurinn hennar hamingjusöm í hjónabandinu? Hún hugsaði sig um, eins og hún væri í óvissu. — Það fer nú náttúrlega eftir því, hvað þér kallið hamingju. Þau eru að mörgu leyti lík. Hafa gaman af þvi sama, skiljið þér, veizluhöldum og bridge og peninga eyðslu. Og hann er feikna stoltur af henni. . . Þér haldið þó ekki, að Howard hafi skotið hana, eða hvað? Það .... það væri óhugs- andi og beinlínis hlægilegt. — Gott og vel, þá strikum við Howard út. Hvers vegna klæddi hún sig og fór út í nótt? Það var rigning, eins og þér vitið. Hún leit á hann þessu hrein- skilninslega augnaráði, sem snerti hann jafnan svo einkennilega. — Ætli hún hafi ekki verið að leita að fötunum? Hrædd er ég um það, þó að ég auðvitað viti ekkert með vissu......Mér finnst ég ekki geta skilið þetta, bætti hún við og Ný sending kvöldkjölar samkvæmiskjólar QJtfo* Aðalstræti Til sölu er mjög vönduð tveggja herbergja herraíbúð, ásamt baði. — Upplýsingar gefa Lögmenn GEIR HALLGRÍMSSON EYJÓLFUR KONRÁÐ JÓNSSON Tjarnargötu 16 — sími 1164 Raimótorar GANGSETJARAR, Stjörnuþríh. og automatiskir flestar stærðir Vatns- og rykþéttir LUDVIG STORR & CO. IJTSALA I dag nýjar vörur Barnahútur Kvenhútur Vettlingar Handtöskur Ciuffffinn Laugaveg 30 M ARKÚS Eftir Ed Dodd 1) — Það er bezt fyrir okkur að gleyma sleðakeppninni. Það tekur okkur viku að ganga heim í þessum djúpa snjó. 2) — Og keppnin er eftir tvo daga. — Heyrðu, áttu ekki gamla tunnu? Ef þú átt hana, þá skal ég sýna þér svolítið. 3) — Meðan þú skerð skinnið í strimla, þá ætla ég að svíða göt á tunnustafina. 4) — Við skulum komast heim tímanlega og vinna þessi 3000 dollara verðlaun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.