Morgunblaðið - 14.02.1957, Síða 15
Fimmtudaeur 14. febr. 1957
MORGVIV BLAÐIÐ
15
Frjálsa verzlunarsvæðið
PARÍS, 13. febr.: — Það var á-
kveðið á ráðherrafundi í OEEC
— Husmæðro-
kennoraskólinn
Framh. af bls. 6
mæðrakennaraskóli íslands ver-
ir fyrirhuguð byggingalóð í
nánd við hina nýju byggingu
Kennaraskóla íslands, þar sem
Handíðakennaraskólinn verður í
framtíðinni einnig til húsa. Er
sú ráðstöfun í fullu samræmi við
þá samstöðu skólanna, sem gert
er ráð fyrir í gildandi lögum um
menntun kennara.
Teljum við, að hér hafi verið
stefnt í rétta átt og unnið að var-
anlegri lausn þessa máls. Þegar
velja skal skóla sem þessum stað,
þarf að taka tillit til margs. Höf-
uðsjónarmiðið hlýtur þó ávallt
að vera, að starfsskilyrðum skól-
ans og vaxtarþörfum sé full-
nægt, en átthagasjónarmið og
stundarspranaður ekki látinn
sníða honum of þröngan stakk.
En á því er einmitt hætta, ef
skólanum verður bægt frá því
samstarfi við hliðstæða skóla,
sem stefnt hefur verið að og
lög gera ráð fyrir.
Anna Gísladóttir,
Bryndís Steinþórsdóttir,
Guðný Halldórsdóttir,
Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir,
Sigrún Árnadóttir.
að láta til skara skríða um stofn-
un verzlunarfrjálsræðis ýmissa
Evrópuþjóða við þau sex ríki sem
nú stefna að því að koma á hjá
sér sameiginlegum markaði.
Peter Thorneycroft fjármála-
ráðherra Breta var kjörinn til að
leita álits hjá nokkrum Evrópu-
ríkjum um fyrirkomulag þessa
frjálsa verzlunarsvæðis og gera
eftir það tillögur um myndun
þess.
Einkum eru það tvö atriði, sem
menn hafa nokkrar áhyggjur af
hvort takist að leysa. Hið fyrra er
að ósamkomulag er um, hvort
hægt sé að koma á frjálsri verzl-
un með landbúnaðarafurði. Hitt
er sérstaða nokkurra rikja s.s.
Grikklands, Tyrklands og Portu-
gal, þar sem þau eru aðeins
skammt á veg komin í iðnvæð-
ingu.
VORDINGBORC
Husmoderskole
Ca. l>/2 stunda ferð frá Kaup-
mannahöfn. Nýtt námskeið byrjar
4. maí. Sér deild fyrir barnaupp-
eldi. Kjólasaumur, vefnaður og
handavinna. Skólaskrá send. Tlf.
275. — Valborg Olsen.
I. O. G. T.
St. Frón nr. 227
Fundur í kvöld kl. 8,30. Venju-
leg fundarstörf. Eftir fund: Fé-
lagsvist. — Kaffi. — Æ.t.
Topað — Fundið
tjlpa í óskilum
Sá sem tók úlpuna í misgripum
s.l. mánudag í biðstofu Snorra
Hallgrímssonar læknis, er beðinn
að hringja f síma 81486.
Vinna
Danskur sjómaður
óskar eftir atvinnu á Islandi, á
sjó eða landi. Hefir annast mat-
reiðslu. Venjuleg laun plúss fría
ferð. Kresten Pedersea, Slakroge
Danmark.
Félagslíf
Fram — Knattspyrnumenn!
Fundir fyrir knattspymumenn
verða sem hér segir í Félagsheim-
ilinu: — Meistara-, I., II. og III.
flokkur fimmtud. kl. 8,30. — IV.
flokkur föstud. kl. 7,30. — Sýnd
ar nýjar knattspymumyndir og
rætt um vetrarstarfið.
— Nefndin.
Frá Guðspekifélaginu
Dögun heldur aðalfund sinn
annað kvöld, föstudag kl. 8 í Guð-
spekifélagshúsinu, Ingólfsstræti
22. Aðalfundarstörfum verður lok
ið kl. 8,30 og þá verður fluttur
þáttur um kenningu Búdda. Sig-
valdi Hjábnarsaon flytur erindi:
Sagnir um dulræn máttarverk í
Tíbet. Kvikmynd. Kaffiveitingar.
Utanfélagsfólk velkomið.
St. Andvari nr. 265
Fundur í kvöld kl. 8,30.
— Æ.t.
Z I O N
Alm. samkoma f kvöld kL 8,30.
Allir velkomnir.
Heimatrúboð leikmanna.
Samkomur
K. F. U. K-Ud.
Fundur í kvöld kl. 8,30. Kristi-
leg skólasamtök annast fundinn.
Sveitastjórarnir.
K. F. U. M_____Ad.
Fundur í kvöld kl. 8,30. Séra
Sigurjón Ámason talar. — Allir
karlmenn velkomnir.
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 8,30. Sig-
ný Eriksson o. fl. tala. — Allir
velkomnir.
BræSraborgarstig 34
Samkoma í kvöld kl. 8,30. Sig-
urður Þórðarson talar. — Allir
velkomnir.
HjálpræSisherinn
1 kvöld kl. 8,30: Almenn sam-
koma. Guðlaugur Sigurðsson tal-
ar. — Velkomin.
Mínar innilegustu hjartans þakkir flyt ég öllum, sem
glöddu mig með heimsóknum, skeytum, blómum ög gjöf-
um á 75 ára afmæli mínu. — Guð blessi ykkur öll.
María Ólafsdóttir, Lambastöðum.
Vestmannaeyingar í Reykjavík og nágrenni!
ÁRSHÁTÍÐ
Kvenfélagsins „Heimaey**
verður haldin í Silfurtunglinu, föstudaginn
15. þ. m. og hefst klukkan 8,30 e. h.
Skemmtiatriði:
Danssýning: Koek ’n‘ RoII.
Gamanþættir: Guðmundur Ágústsson.
Dans.
Fjölmennið og mætið stundvíslega!
Aðgöngumiðar við innganginn.
Nefndin.
ODHNER
Samlagnlngavélar :
Nýkomnar handknúnar og rafknúnar
samlagningavélar.
Rafknúnu samlagningavélamar eru
með endurbættri margföldun og
hraðvirkari.
Garðar Gís/ason h.f.
Sími 1506 — Reykjavík
Ungling
irantar til blaðburðar í
Nesvegur
Rafvirkjameistarar
30 ára afmælis félagsins verður minnst með hófi
í Þjóðleikhúskjallaranum laugardaginn 2. marz n.k.
Miðapantanir í skrifstofu félagsins Hverfisgötu 12,
sími 6694.
Stjórn F. L. R. R.
Starfsmannafélag Reykjavíkurbæjar
Aðalfundur
félagsins verður haldinn sunnudaginn 17. febr. kl. 13,30
í Tjannarcafé niðrL
Dagskrá: Samkvæmt 11. gr. félagslaga.
Félagar fjölmennið og mætið réttstundis.
Stjórnin.
Félag Árneshreppsbúa
í Reykjavík. — Skemmtifundur í Tjamarcafé (uppi)
laugardaginn 16. febrúar klukkan 9 síðdegis.
Einsöngur
Spurningaþáttur
Bögglauppboð
Dans til kl. 2 eftir miðnætti.
STJÓRNIN.
Orator, félag laganema Háskóla íslands
Lögíræðingar — laganemar!
Hátíðisdagur Orators 1957 verður haldinn hátíðlegur
laugardaginn 16. febr. í veitingahúsinu Silfurtunglinu.
Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 19 e.h. Tíu ára afmæli
Úlfljóts verður haldið hátíðlegt. Aðgöngumiðar verða
séldir af meðlimum stjórnarinnar og í anddyri Háskólans
fimmtudag, föstudag og laugardag kL 10—12 f.h.
STJÓRNIN.
Aðalfundur
Breiðfirðingaheimilisins h.f. verður haldinn í
Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 21. marz 1957
og hefst kl. 8,30 síðdegis.
Dagskrá samkvæmt féiagslögum.
Stjórnin
Móðir okkar
SÓLVEIG SNORRADÓTTIR
andaðist að heimili sínu Snorrabraut 36, 12. þ. mán.
Fyrir mína hönd og systkina minna
Guðjóu Vigfússon.
Elsku litla dóttir okkar, sem andaðist 8. febrúar, vferð-
ur jörðuð frá Dómkirkjunni föstudag 15. febr. kl. H f.h.
Magnea Halldórsdóttir og Björgvin Friðsteinsson
Útför móður minnar
ELÍNAR THOMSEN
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. febrúar
klukkan 1,30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent
á líknarstofnanir.
Fyrir hönd aðstandenda,
Pétur Thomsen.
Þökkum aðsýnda hluttekningu við andlát og jarðarför
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
ARA STEFÁNSSONAR
frá Stóra-Langadal.
Aðstandendur.