Morgunblaðið - 14.02.1957, Side 16

Morgunblaðið - 14.02.1957, Side 16
Veðrið NA-goIa, léttskýjað. Dálítið frost. Leikskóli Þjóðleikhússins. Grein á bls. 9. 37. tbl. — Fimmtudagur 14. febrúar 1957. Býlið Aíýhöfn á Melrakkasléttu brann til kaldra kola í fyrrakvöld Raufarhöfn, 13. febrúar. T GÆRKVÖLDI kom upp eldur í bænum Nýhöfn á Melrakka- sléttu og brann hann til grunna á skömmum tíma, ásamt smíðaverkstæði og vélahúsi rafstöðvarinnar fyrir bæinn. Það var um klukkan 11 í gær- kvöldi, er bóndinn í Nýhöfn, Kristinn Kristjánsson, kona hans, Sesselja Benediktsdóttir, og Jó- hann, vélsmiður, sonur þeirra, sátu heima í stofu á bænum, á- samt gamalli konu, sem hjá þeim er, að Ijós slokknuðu skyndilega. Jóhann brá sér þegar út í véla- húsið, þar sem rafstöðin fyrir bæinn var, en vélahúsið var áfast við bæjarhúsið. Er hann kom þangað stóð vélahúsið í björtu báli. Ný- hafnarfólkið hringdi í skyndi til næstu bæja og sagði tíð- indin og koma nágrannar fljótt til hjálpar. Fólkið fékk ekkert við eldinn ráðið, sem læsti sig þegar um hið gamla bæjar- hús. Var reynt að bjarga öllu fémætu út úr brunanum og i mun hafa tekizt að forða nokkru af innanstokksmunum, fatnaði og öðru, en sumt var þó skemmt orðið. Eldurinn læsti sig einnig í gamalt verk- stæði, sem Kristján átti í mik- ið af dýrum verkfærum til járnsmíða. Fjós og hlaða voru áföst við bæinn, en það tókst að verja þessi hús, enda steinsteypt. Nýhafnarbærinn var upphaf- lega byggður árið 1919. — Var hann stórt hús úr timbri, sem árið 1924 var endurbyggt og enn stækkað að miklum mun. Hef- ur húsinu verið vel við haldið. Slys á fólki urðu ekki við slökkvistörfin. Hjónin frá Ný- höfn hafa nú flutt til barna sinna að Sandvík og Miðtúni, sem eru næstu bæir. — E. FriÖrik Ólafssyni barst í gœr boðiÖ frá Argentínu í GÆR var borin til baka frétt, sem Mbl. hafði tekið upp úr dönsku blaði um að Friðrik Ólafs syni hefði borizt boð um að taka þátt í alþjóðlegu skákmóti, sem Jialdið yrði í Argentínu. En í gærdag barst bréf frá skáksambandi Argentínu til Skák sambands íslands, þar sem því er boðið að senda fulltrúa til skák- móts, sem hefjast á í borginni Mar la Plata í Argentínu 12. marz n.k. Er þar síðan sagt í bréf- ínu, að þess sé vænzt að fulltrúi íslenzka sambandsins verði Frið- rik Ólafsson. Þetta mót í Argentínu er hald- ið nú eins og um nokkoir undan- farin ár á sama tíma. Hefur ætíð verið boðið nokkrum skákmeist- urum frá Evrópu. Meðal þeirra, sem nú eru boðnir, eru auk Frið- riks, Bent Larsen o. fl. En boiðð er ekki eins glæsilegt og talið var að það yrði. Ferða- kostnaður er t. d. ekki innfalinn í boðinu, og þó æskilegt væri, að Friðrik ætti þess kost að fara þangað suður og tefla við ýmsa aí sterkustu mönnum heims, þá er ekki víst að af því geti orðið. En skákunnendur bíða og athuga Aðalfundur í Öku- kennarafélagi NÝLEGA er afstaðinn aðalfund- ur Ökukennarafélags Reykjavík- ur, þar sem eftirfarandi tillögur voru samþykktar: Aðalfundur Ökukennarafélags Reykjavíkur harmar þann drátt sem orðið hefur á bifreiðalögun- um, og skorar á ríkisstjórn og Alþingi að afgreiða þau á þessu þingi. Aðalfundurinn beinir þeim til. mælum til bifreiðastjóra, að þeir sýni tilhliðrunarsemi og kurteisi er þeir aka fram úr eða fyrir kennslubifreiðir. í stjórn voru kosnir: formaður Guðmundur G. Pétursson, full- trúi; gjaldkeri Ragnar Þorgríms- son, birgðavörður; ritari Guðm. Höskuldsson, bifreiðastjóri, og meðstjórnendur þeir Finnbogi Sigurðsson, lögregluþjónn, og Guðjón Hansson, bifreiðastjóri. hvort ekki sé hægt að finna lausn á þessu máli, svo að Friðrik geti átt þess kost að þiggja boðið. Um klukkan 3 í gær héldu veg- farendur á Miklubraut, að hið gamla timburhús að Klömbrum, sem er í miðju Klambratúni, myndi fuðra upp á skömmum tíma. Feiknareyk lagði upp frá húsinu eða einhverjum hinna mörgu kofa, sem kringum það standa. Slökkviliðsmenn komu nokkru síðar á vettvang. — Það var ekki eldur í húsinu sjálfu, heldur einum kofanna, og slökkvi liðsmenn voru fljótir að ráða nið- urlögum eldsins, sem var í rusli inni í kofanum. Þessi mynd var tekin er slökkviliðsmenn voru að koma. — Þeir héldu að um mik- inn eldsvoða væri að ræða, er þeir sáu reykinn frá húsinu til- sýndar. (Ljósm. Benedikt Sveins- son). Kveikfu í rusli AKRANESI, 13. febrúar. — Um kl. 9 á mánudagskvöldið var lög- reglunni hér gert vari við að eld- ur logaði rétt hjá olíutanki Esso sem stendur neðst á Bræðraparts- túni, en þar er fáförult. Voru tveir menn sendir þangað á brunabíl og tókst þeim fljótlega að slökkva eldinn, en krakkar höfðu kveikt þar í rusli. - Oddur. Lífill afli AKRANESI, 13. febr. — I dag voru 22 bátar héðan á sjó. Hjú þeim sem komnir eru að er afli 3—4 lestir. í gær var heildar- aflinn 92 V2 lest og sami báta- fjöldi á sjó. Hæstir voru Skipa- skagi með 9 lestir, Sigurvon með 7 og Bjarni Jóhannesson með 6Vz lest. Talsvert frost var í gær og í dag og hefur lagt glugga. — O. Samkeppni í vor um lýð- veldismerki hér í hæ? H Þjóðhátíðarnefnd vill reisa það 1959 ORFUR ERU Á því að með vori komist skriður á það mál, víkur. — Minnismerki verði reist hér í bænum um stofnun lýð- veldisins. 1 Mál þetta bar á góma á síðasta fundi bæjarráðs. Kom þangað for- maður nefndarinnar, Þór Sand- holt, skólastjóri Iðnskólans, til skrafs og ráðagerða við bæjar- ráðsmenn. Þjóðhátíðarnefnd hefur nú handbært nokkurt fé er hún hef- ur m. a. aflað, með merkjasölu um nokkurt árabil á þjóðhátíð inni. Á 15 ÁRA AFMÆLINU Þjóðhátíðarnefnd vill að sjálf- sögðu hafa nána samvinnu við bæjaryfirvöldin um framkvæmd þessa. Það var hugmynd nefndar- innar að minnismerkið yrði reist og afhjúpað þá er hér verður minnzt 15 ára afmælis lýðveldis- stofnunarinnar árið 1959. HVERNIG? HVAR? í stuttu samtali við Þór Sand- holt skólastjóra í gær, sagði hann að sennilega yrði undirbúningi það langt komið í vor að hægt yrði í samráði við bæjaryfirvöld- in að efna til samkeppni meðal listamanna um minnismerkið og staðsetningu þess hér í höfuð- borginni, þar sem það ætti að vera. 1959 EÐA SÍÐAR Það fer eftir því hver úrslitin í hugmyndasamkeppninni verða, hvort mögulegt verður að afhjúpa minnismerkið á 15 ára afmælinu. Aðrir segja, að ekki megi hér rasa um ráð fram og eigi ástæða til að binda minnismerkið við þetta 15 ára afmæli, sagði Þór Sandholt að lokum. í bæjarráði var samþykkt að leita álits listaverkanefndar bæj- arins um málið. Skúlo iógeta verðar reist minnis merki ó iæðingorstnð hans Frá aðalfundi Félags Þingeyinga í Reykjavík AÐALFUNDUR Félags Þingey- eyinga í Reykjavík var haldinn 22. jan. sl. Fráfarandi formaður, Tómas Tryggvason, jarðfræðing- ur, skýrði frá störfum stjórnar- innar á síðasta ári. Félagið hefur ýmis verkefni með höndum, svo sem útgáfu Ritsafns Þingeyinga, sem út eru komin af þrjú bindi, örnefnasöfnun í heimahéraði, skógrækt í Heiðmörk, skemmti- starfsemi fyrir félagsmenn o. fl. Þá er félagið nú í samráði við Keldhverfinga að reisa Skúla fógeta minnismerki á fæðingar- stað hans. Sæmundur Friðriksson skýrði frá störfum sögunefndar, Krist- ján Jakobsson frá störfum skóg- ræktarnefndar og Árni Óla frá störfum Skúlanefndar. Formaður félagsins næsta ár var kjörinn Barði Friðriksson, lögfræðingur, en aðrir í stjórn, Indriði Indriðason, Valdimar Helgason, Jónína Guðmundsdótt- i rog Andrés Kristjánsson. Ákveðið er, að árshátíð fðlags- Siglingar togaranna með afla hafa ekki aukizt EITT dagblaðanna í gær skýrir frá því að á aðalfundi Verka- mannafélagsins Dagsbrúnar hafi verið samþykkt svohljóðandi til- laga: „Eftir að löndunardeilan við Breta leystist á sl. hausti hefur það aukizt stórlega, að togararn- ir sigldu með afla sinn á erlend- an markað. Af þeim sökum hefur hráefnaskortur verið í frystihús- unum undanfarna mánuði og at- vinna verkafólks þar því verið mjög stopul. Aðalfundur Dagsbrúnar hald- inn 11. febrúar 1957, varar mjög eindregið við þeirri þróun, að togáraflotinn landi stórum hluta af afla sínum erlendis eins og var áður en löndunardeilan við Breta hófst. Hvetur fundurinn því til mikilla takmarkana á aflasölum togara á erlendan markað“. í þessu sambandi er rétt að geta þess, að hér er um misskilning að ræða þegar talað er um aukn- ingu á siglingum togaranna eftir að löndunardeilan við Breta leystist. Fyrsti íslenzki togarinn landaði í Bretlandi 28. nóvember sl. Landanir erlendis voru: í október 26 - nóvember 24 - desember 22 - janúar 22 - febrúar um 10 og í marz verða sennilega um 5 landanir erlendis. Ástæðan fyrir hráefnaskorti hjá frystihúsunum er hins vegar sú, að stöðug ótíð undanfarið hef- ur orsakað alveg sérstakt afla- ieysi hjá togurunum. Meðalafli í janúar mun hafa verið um 1—200 tonn á skip, en meðalafli ársins 1956 5—600 tonn á mánuði, eða um 400 tonnum meiri á skip í hverjum mánuði. Um 20 togarar stunduðu veiðar fyrir heimamarkað í mánuðinum og hefur veðráttan þannig haft af fiskvinnslustöðvunum um 8000 tonn hráefnis. Afleiðing þessa aflaleysis á rekstur togaranna er hins vegar sú, að tekjur hvers skips minnka um ca. kr. 400.000.00 á mánuði eða kr. 13.000.00 á dag. — Getur hver maður séð hvaða afleiðingu það hefur fyrir útgerð, sem var fjárhagslega illa stödd fyrir. ins verði 8. marz nk. í Þjóðleik- hússkjallaranum. Þá eru og á- kveðin tvö skemmtikvöld síðar í vetur. Á öðru þeirra verður sýnd kvikmynd frá heimsókn for- setahjónanna í Þingeyjarsýslu og skýrir Júlíus Havsteen, fyrrver- andi sýslumaður, myndina, en á hinu skemmtikvöldinu segir Tómas Tryggvason, jarðfræðing- ur, ferðasögu frá Mexícó og sýnir myndir þaðan. Afli að glæðasl í Grmdavíkursjó KEFLAVÍK, 13. febrúar. — Enn er sama deyfðin yfir veiðunum. Var aflinn í dag frá 3—6% lest. Var það Kristján sem var með mestan afla. Sjómenn segja að sama sé hvar leitað sé, hvergi sé neitt að haía. Þó 'bárust þær fréttir að í Grindavíkursjó væri nú eitthvað líflegra. Hafði einn bátur fengið um 10 lestir þar. Má því búast við að flotinn verði þar í nótt. Fiskurinn sem veiðist í djúpinu er yfirleitt smærri en á grunninu. — Djúpfiskurinn er göngufiskur og er von manna að þar sé um að ræða útverði göng- unnar. — Ingvara. Snjóflóð grandar 6 STOKKHÓLMUR, 13. febr. — Sex menn fórust í morgun í snjó- flóði við Storlien rétt við landa- mæri Noregs. Hópur 22 skiða- manna þar þar á ferð, allir í einni röð. Allt í einu hrundi snjó- flóð úr hárri hlíð yfir hópinn og tók með sér nokkra þeirra sem miðsvæðis gengu. Strax var haf- in leit að þeim og hjálparstarf. Tókst að finna fimm og grafa upp úr snjónum, en þeir voru liðin lík. Sjötti maðurinn sem hvarf hefur enn ekki fundizt. Minna um ref en áður RAUÐASANDSHREPPI 13. febr. — Óvenjulítið hefur verið um tófu hér í hreppnum í vetur. Frá því í haust, hingað til, er búið að skjóta um 20 tófur, en um sama leyti í fyrravetur var búið að skjóta yfir 30. Fjórir menn stunda aðallega refaveiðarnar, en þó eru þær hafðar í hjáverkum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.