Morgunblaðið - 07.03.1957, Síða 1
44. árgangur
55. tbl. — Fimmtudagur 7. marz 1957
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Egyptar loka Súez!
Ismailia við Súez-skurð, 6. marz — Frá Reuter.
WHGEL.ER yfirmaður ruðningssveita S. Þ. í Súez-skurði
beiddi egypzk yfirvöld í dag leyfis til að S. Þ. mættu
Ijúka hreinsun skurðarins með því að f jarlægja tvö skip sem
liggja sokkin skammt frá borginni Súez við suðurenda skurð-
arins.
Mahmoud Younis svaraði Wheeler seinna í dag og var
svarið þvert nei. Engin skýring fylgdi.
Wheeler hershöfðingi kvaðst hafa orðið fyrir miklum von-
brigðum af þessu svari. 0ann hefði búizt við, að nú þegar
ísraelsmenn flytja allt lið sitt brott frá Gaza og Akaba-flóa
fengist að halda áfram hreinsun skurðarins.
Stúdenfagarður umkringdur
og stúdentarnir handteknir
Lögiegluofsóknir í Ungverjalundi
Vínarborg, 6. marz.
• ★ HÓPXJR vopnaðra Avóa
og rússneskra hermanna sló
í gær hring um stúdentagarð
einn í Var, einu úthverfi höf-
uðborgarinnar Búdapest. — í
húsinu voru þá 25 stúdentar.
Misheppnaði utanríkisráðherrann
farinn að handjárna listamennina
Moskva, 6. marz. — Einkaskeyti frá Reuter.
CJNÖGGLEGT afturhvarf til stalimismans hefur nú orðið í rússneskum listum. — Tímaritið
„Kommunist“, sem er stjórnmálatímarit rússneska kommúnistaflokksins hirti um þessi
mánaðamót grein um list og listgagnrýni. Er þar komizt að þeirri niðurstöðu að viðhorf
Stalins til listarinnar hafi verið hin einu réttu. — Um sama leyti gerðist það að Dimitri
Shepilov, fyrrum utanríkisráðherra kom fram á rússneska listamannaþinginu og fordæmdi
óhlutræna myndlist. Hann sagði m. a., að listamönnum bæri skylda til að vinna að menntun
almennings og að framgangi marxismans.
FRJÁLSRÆÐIÐ úti
Af þessum atburðum og fleir-
um virðist það nú Ijóst að rúss-
neskir listamenn muni ekki fá að
njóta lengur hins aukna frjáls-
Úrslil ókomin
DUBLIN, 6. marz. — At-
kvæðatölur úr írsku þingkosn
ingunum í gær voru að koma
inn seinnl hluta dags, en eng-
in hcildarmynd var sýnileg
seint i kvöld. Kjörsókn var
mjög lítil.
Costello forsætisráðherra
hafði verið endurkjörinn í
suð-austur kjördæmi Dýfl-
innar. Flokkur De Valera,
Fiænna Fæll hafði unnið eitt
þingsæti frá Verkamanna-
flokknum og einn óháður
frambjóðandi hafði náð kjörl
á kostnað flokks Costellos
Fine Gael. — Reuter.
ræðis, sem þeim hefur veitzt
síðan Stalin féll frá.
í ræðu sem Shepilov flutti á
listamannaþinginu sagði hann
m. a.: — Ég minnist þess, er ég
heimsótti eitt sinn listsýningu í
Frakklandi með svonefndri nú-
tímalist. — Við gengum herbergi
úr herbergi og ó hundrað lérefts-
Voru þeir allir handteknir og
fluttir á brott í lögreglubílum.
Stúdentar sem síðar komu að
húsinu voru einnig handtekn-
ir og fluttir brott.
Hinir vopnuðu lögreglu-
menn og hermenn komu
skyndilega á nokkrum vöru-
bílum að stúdentagarðinum og
umkringdu hann. Síðan var
leitað í húsinu og komst eng-
inn undan. Lögreglan segir, að
Rskisstjórn Chana
Myndin t. v. sýnir fyrstu rík-
isstjórn svertingjaríkisins
Ghana. Nukrumah, forsætis-
ráðherra, situr í miðju.
í húsinu hafi fundizt allmarg-
ar handsp i-engjur. Það er hins
vegar almannarómur meðal
stúdenta í Búdapest, að lög-
reglan hafi látið koma hand-
sprengjum þessum fyrir tll
þess að hafa „sönnunargögn".
SÍFELLD
LÖGREGLUHERFERÐ
★ Þessi atburður er ekkl
einstæður nú í UngverjalandL
Stjórn Kadars virðist grripin
ofsahræðslu við :ið ný upp-
reisn kunni að brjótast út 15.
marz n.k., en þá er af-
mæli ungversku byltingarinn-
ar 1848. Berast fregnir úr öll-
um hlutum Ungverjalands um
„rassíur" og fjöldahandtökur.
Avóarnir hafa meira að segja
framkvæmt „rassíur“ á veit-
ingahúsum í Búdapest og jafn-
an handtekið einhverja menn.
1. mál á bingi Ghana:
Innilegt þakklæfi fil Brefa
Accra, 6. marz. — Einkaskeyti frá Reuter.
MIKIL hátíðahöld voru í dag á Gullströndinni í hinu nýstofn-
aða ríki Ghana. Hámafki náðu hátíðahöldin ,þegar brezki
fáninn var dreginn niður og í stað hans að húni hinn þríliti fáni
sjálfstæðs ríkis.
KVEÐJA DRÖTTNINGAR
Hertogaynjan af Kent, sem er
ekkja föðurbróður Elísabetar
drottningar, setti hið nýja þing
Ghana. Fyrst flutti hún persónu-
legan boðskap frá drottningu,
sem sagðist í huga og hjarta
dveljast með Gullstrandarmönn-
um á þessum hátíðisdegi þeirra.
Því næst flutti hertogaynjan há-
sætisræðu þá sem felur í sér
stefnuyfirlýsingu Ghana-stjórn-
ar. Fremst í stefnuyfirlýsingunni
var lýst yfir vilja til að ganga í
samtök SÞ og eiga vinsamleg við-
skipti við allar þjóðir, einkum þó
frændþjóðirnar í Afríku.
ÞAKKLÆTI TIL BRETA
Að þessu loknu fluttu þeir
Nukrumah, forsætisráðherra, og
Busia, foringi stjórnarandstöð-
unnar, þingsályktunartillögu, er
var fyrsta mál þingsins og hlaut
þegar samþykki. í henni sendir
fyrsta þjóðþing Ghana Breta-
drottningu og Bretastjórn innileg
asta þakklæti fyrir að hafa sýnt
skilning á högum þjóðarinnar og
veitt henni sjálfstæði.
flötum sáum við ekkert nema
óskiljanlega svarta, óhreina,
rotna bletti og samanrugling af
línum lóðréttum og láréttum,
ferhyrningum og hringum. Allt
sem þarna var virtist vera ávöxt-
ur geðveiki eða deliriums, — og
það fól í sér fyrirlitningu á mann-
legum tilfinningum og hugsun.
— Verkefni listamannanna,
sagði Shepilov, á að vera að
mennta milljónirnar í fagur-
fræði, og auðga líf almennings
um leið og þeir eiga að vera
verkfæri andlegs vaxtar og
menningarlegrar þróunar.
Sen Curion hiaut öruggt traust
Jerúsalem, 6. marz. Einkaskeyti frá Reuter.
ÞJÓÐÞING Israels felldi í dag þrjár vantrauststillögur á stjórn
Bcn-Gurions, sem stjórnarandstöðuflokkarnir höfðu lagt fram
vegna ákvörounarinnar um brottflutning ísraelsks herliðs frá Gaza-
ræmunni og Akaba-flóa.
Ben-Gurion forsætisráðherra lýsti því yfir að brottflutningur
israelska herliðsins myndi hefjast þegar í stað.
VANTRAUST FELLT
Umræðum á þingi ísraels um
brottfli-tning herliðsins lauk í
dag og hafa þær verið mjög
hávaðasamar og þingmenn stjórn
arandstöðunnar verið með há-
reysti og æsingar. Þrjár van-
trauststillögur voru bornar fram.
Vantrauststillaga frá hinni
íhaldssömu frelsishreyfingu var
felld með 81 atkv. gegn 25. Til-
laga frá kommúnistum var felld
með 104 atkv. gegn 6 og tillaga
frá trúarflokki zíonista var felld
með 85 atkv. gegn 25.
SIGUR FYRIR BEN-GURION
Atkvæðagreiðslur þessar voru
því hreinn sigur fyrir Ben-Guri-
on. Nokkrir þingm. stjórnarflokk
anna lýstu sig andvíga brottflutn-
ingi herliðsins, en eins og allar
aðstæður væru vildu þeir styðja
Ben-Gurion af öllum mætti.
Framhald. á bls. 2.
Dimitri Shepilov varð fyrir
nokkru að láta af embætti utan-
rikisráðherra Rússlands, talinn ó-
hæfur til að gegna starfinu. Nú
virðist hann talinn hæfur sem
svipa á rússneska listamenn.
— Við þurfum ekki forma-
lískar tilraunir né ófreskju
myndanir abstrakt-listamann-
anna. Það eina sem við þurf-
um er list sem er samkvæm
lifinu.
Síðan ræddi hann um þaS
að listamönnum bæri skylda
til að þjóna kommúnistaflokkn
um.
í greininni, sem birtist í tíma-
ritinu „Kommunist” segir að það
sé að vísu rétt að á valdaárum
Stalins hafi súmir listamenn ver-
ið gagnrýndir óþarflega hart, en
í heild var flokkslínan í málefn-
um listarinnar rétt á dögum hins
liðna foringja. Það er að listin á
hans dögum var sönn túlkun á
hugsjónum marxismans og lenin-
ismans. í sama streng tók Shepi-
lov og í ræðu sinni, Stalin hefði
haft rétt fyrir sér.