Morgunblaðið - 07.03.1957, Page 2
MORCUNBL ADIÐ
Fimmtudagur 7. marz 1957
Sturf Breiðfirðinga-
fólagsins með blóma
NÝLEGA hélt Breiðfirðinga- ®
félagið í Reykjavík aðalfund sinn
Er félagsstarfið nú í miklum
blóma. Margar félagssamkomur
voru halndar á s.l. starfsári, er
þar jafnan margt til skemmtunar
svo sem félagsvist spurningaþætt
ir mælskukeppni o. fl.
Til að sem flestir féélagsmenn
geti notið félagsstarfsins hefur
sá háttur verið á hafður að ýms-
ar deildir hafa’ verið stofnaðar
svo sem bridgedeild, tafldeild,
handavinnudeild o. fl. Þá hefur
verið ákveðið að halda mælsku-
námskeið og er það nú »um það
bil að hefjast. Verður þar veitt
tilsögn í mælskulist.
Félagið gefur út tímaritið
Breiðfirðing. Flytur ritið margs
konar efni, svo sem frásagn-
ir af merkum mönnum og atburð-
um við Breiðafjörð, minningar-
greinar ljóð og stökur. Er ritið
jafnan prýtt myndum heiman
úr héraðinu. Alls hafa komið út
15 hefti. Voru sum þeirra uppseld
en hafa nú verið endurprentuð
og mun því ritið fást frá upphafi.
Ritstjóri er sr. Árelíus Níelsson
og framkv.stjóri Jón Júlíus Sig-
urðsson bankagjaldkeri.
1 ráði er nú að hefja undirbún-
ing að útgáfu héraðssögu Dala-
sýslu.
Stjóm félag3ins skipa nú: Sr.
Árelíus Níelsson formaður, Jó-
hannes Ólafsson varaform. Alfons
Oddsson gjaldkeri, Ásvaldur
Magnússon ritari, Jón Júl. Sig-
urðsson, Þórarinn Sigurðsson,
Björgúlfur Sigurðsson, Sigvaldi
Þorsteinsson, Ólafur Jóhanneson,
meðstjómendur.
Kyndill og Litla-
fell í olíuflutn-
inguni
í GÆR veitti Sjómannaféíag
Reykjavíkur undanþágu til þess
að olíuskipið Kyndili færi til
Vestmannaeyja með fullfermi af
olíu. Þar voru allar olíubirgðir
á þrotum og skortur yfirvofandi.
Kyndill var væntanlegur í gær
úr ferð til Austfjarðahafna með
oliu á ýmsa staði, þar sem olíu-
laust var að verða. — Þá hefur
oliuskip SÍS, Litlafell, einnig
fengið undanþágu til að flytja
olíufarm út á land.
Dagskrá Alþingis
7. marz.
Efri deild:
1. Félagsheimili. Frh. 2. umr.
2. Eignamám nokkurra jarða í
Vestur-ísafjarðarsýslu.
2. umr.
3. Lækkun tekjuskatts af lág-
tekjum. 2. umr.
4. Réttindi og skyldur starfs-
manna ríkisins. 2. umr.
Neðri deiíd:
1. Sala og útflutningur sjávar-
afurða. Frh. 2. umr.
2. Skólakostnaður. — Ef deildin
leyfir.
3. Sveitastjómarlög. 1. umr.
4. Kirkjuþing og kirkjuráð. —
1. umr.
Sjómannadeilan
'SAMNINGAFUNDUR sá er hófst
síðdegis á þriðjudaginn stóð ó-
slitið til morguns og höfðu samn-
ingamenn engar fregnir að segja
af árangri þess fundar. f gær
klukkan 5 var svo tekið til ó-
spilltra málanna á ný. Stóð sá
fundur enn yfir er blaðið fór í
prentun og horfur taldar á því
að hann myndi standa fram á
nótt.
f gær var olíuskipinu Hamra-
felli lagt við festar inni á Hval-
firði, og komið þar fyrir í verk-
fallslegu. Voru margir hásetar
með skipinu til þess að ganga ör-
ugglega frá því á legu í hinum
djúpa, langa firði.
Beitilönd sauðfjár
verði rannsökuð
í jarðræktamefnd búnaðar-
þings var í gær gerð svofelld
ályktun:
Tilraunaráð búfjárræktar hef-
ur þegar hafið undirbúningsat-
huganir sdmkvæmt ályktun bún-
aðarþings 1956 varðandi beitilönd
sauðfjár. Væntir búnaðarþing
þess að tilraunaráðið haldi áfram
starfsemi sinni á þessu sviði og
felur stjórn Búnaðarfélags ís-
lands að senda tilraunaráðinu til
umsagnar erindi Ræktunarfélags
Norðurlands og Bændafélags
Þingeyinga, sem fjalla um sama
efni. Óskar búnaðarþing að álit
búnaðarráðs liggi fyrir næsta
búnaðarþingi.
GullstrÖndin
deilir um trímerki
NÝSTÁRLEG deila hefur komið
upp á Gullströndinni í hinu nýja
sjálfstæða ríki, sem þar verður
stofnað. Deilan er um útgáfu
nýrra frímerkja.
Til að minnast sjálfstæðis
landsins hefur stjórnin ákveðið
að gefa út frímerki, sem bera
mynd Afríku og hafarnar, en í
hægra homi frímerkisins verð-
ur mynd af núverandi forsætis-
ráðherra Kwame Nukrumah.
Forsætisráðherrann er al-
mennt viðurkenndur sem leið-
togi í sjálfstæðisbaráttunni. En
nú þegar sjálfstæði er fengið,
greinast flokkar í sundur eftir
skoðunum á innanlandsmálum
og þykir andstöðuflokkum
Nukrumahs, að myndskreyting
þessi sé óheiðarlegur pólitískur
áróður fyrir forsætisráðherrann.
Þeir benda á það, að ekki
tíðkist í neinu hinna brezku
samveldislanda að gefa út frí-
merki með starfandi stjómmála-
leiðtogum. Nukrumah hefur hins
vegar getað bent á eitt dæmi
þess. Það var að Ceylon gaf út
frímerki á 25 ára starfsafmæli
Sir John ICotelawala forsætisráð-
herra, en hann lét af embætti um
hálfum mánuði síðar.
Það er einkum Ashanti þjóð-
flokkurinn í norðurhluta Ghana,
sem mótmælir þessari „vald-
níðslu1'. Hóta forustumenn hans
að hætta alveg að kaupa frí-
merki, ef þau verið notuð til slíks
póiitísks áróðurs.
JVyff pípuorgol vícfi í
&utrelcsljar&arkirhfu
Gagngerðar breytingar og viðgerðir hafa
farið fram á kirkjunni
Patreksfirði, 6. marz.
NÝTT'pípuorgel hefur nú verið sett upp í Patreksfjarðarkirkju.
Orgelið var vígt s. 1. sunnudag 3. marz, að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Þrír prestar voru við athöfnina. Prófasturinn, séra Jón Kr.
ísfeld á Bíldudal lýsti vígslu orgelsins og prédikaði, en fyrir atlari
þjónuðu þeir séra Grímur Grímsson í Sauðlauksdal og sóknarprest-
urinn séra Tómas Guðmundsson, t sem einnig rakti sögu orgelkaup-
anna og flutti þakkir til safnaðarins. Orgelleikari kirkjunnar lék á
hið nýja orgel og kirkjukórinn söng.
VANDAÐ HLJÓÐFÆRI | inn við kórdyrnar og allt iag-
Orgelið er frá Walcker orgel-! fært og standsett sem þurfa
verksmiðj unni í Ludwigsburg í
Þýzkalandi af svokallaðri Posi-
tive-gerð. Orgel þetta er með
tveim hljómborðum og fótspili.
Hefur 9 registur og þrennar skipt-
ingar milli hljómborða. Sérfræð-
ingur frá orgelverksmiðjunni
setti orgelið upp og var Stein-
grímur Sigfússon orgelleikari á
Patreksfirði honum til aðstoðar.
Er orgelið mjög vandað að allri
gerð og hljómfagurt.
ALLT GREITT I R ORGEL-
SJÓÐI
Orgelið og allur kostnaður við
uppsetningu er greiddur með fé
úr orgelsjóði, sem myndaður hef-
ur verið með minningargjöfum
og frjálsum framlögum safnað-
arins. Orgelleikari kirkjunnar og
sóknarnefndin stóðu að útvegun
orgelsins. Ennfremur Páll Kr.
Pálsson organleikari í Hafnar-
firði er annaðist ýmsa fyrir-
greiðslu í sambandi við kaupin.
þótti.
ÞEIR ÖNNUÐUST
VIÐGERÐINA
Alla trésmíði og korklagningu
önnuðust þeir Kristján Guð-
brandsson og Ólafur Helgason
húsgagnameistari. Múrverk ann-
aðist Ólafur Árnason múrara-
meistari, raflögn Hafsteinn
Davíðsson, rafvirkjameistari og
! málningu Steingrímur Sigfússon
sem jafnframt er orgelleikari
kirkjunnar.
KIRK JU G ARÐ SGIRÐIN GUNNI
LOKIÐ
Sumarið 1956 var fullgerð girð-
ing í kringum kirkjugarðinn nýja
sem er utan við kaupstaðinn. Er
girðingin sem er steypt, múrhúð-
uð og máluð hvít. Er garðurinn
allur hinn snyrtilegasti.
SÓKNARNEFNDIN
í sóknarnefnd eiga sæti þessir
menn: Árni Magnússon formaður
Var þetta mikið starf og unnið 0g jafnframt meðhjálpari í kirkj-
S-Afríkumaður sýnir
málverk í húsi KFUM
II
— Ben Gurion
Framh. af bls 1
S. Þ. TAKA VID
UMDEILDU SVÆBUNUM
Fulltrúi lsraelsstjórnar
skýrði frá því að fyrstu her-
sveitir S.Þ. hefðu komið inn á
Gaza-svæðið í dag. Voru það
indverskir herflokkar. Munu
ísraelsmenn afhenda herstjóm
S. Þ. Gaza-ræmun?. eftir einn
sólarhring, en stöðvamar við
Akaba-flóa verða ekki afhent-
ar fyrr en á föstudag.
ÉR í Reykjavík eru nú staddir
tveir Suður-Afríkumenn, sem
komnir eru hingað í tvennum
tilgangi. í fyrsta lagi er annar
þeirra listmálari og verða myndir
hans sýndar um næstu helgi í
húsi KFUM. í öðru lagi hafa þeir
mikinn hug á því að efla kristi-
legt starf meðal hjúkrunarfólks
í sjúkrahúsum landsins.
f gær ræddu blaðamenn
nokkra stund við annan þessara
manna, Francis Grim að nafni, en
listmálarann, Johann Engela,
hittu menn ekki að máli. Hinn
fyrrnefndi hefur með höndum að
skipuleggja sýningu á málverk-
um Engela, sem haldið hefur mál-
verkasýningar í Skandinavíu og
V-Evrópulöndum. — Sagði Mr.
Grim að listmálarinn málaði
myndir sínar einkum í olíu- og
vatnslitum. Mest landslagsmynd-
ir og kyrrlífsmyndir og þannig
myndir sýnir listmálarann á sýn-
ingu sinni í húsi KFUM, sem hefst
á laugardaginn kemur og stendur
yfir þar til á mánudagskvöld. —
Þar verða einungis sýndar vatns-
litamyndir, 40—50 talsins.
Mr. F. Grim sagði að þeir fé-
lagar hefðu á ferðum sínum um
fjölmörg lönd heims jafnan haft
samband við þau félög sem vinna
að því að skapa trúarlegan áhuga
meðal hjúkrunarfólks í sjúkra-
húsum. Hér á landi starfar
Kristilegt félag hjúkrunarkvenna
og á þess vegum komu þeir Mr.
Grim, listmálarinn og norsk
hjúkrunarkona, Anna Kassin, for
maður kristilegs félags hjúkrun
arkvenna í Ósló, á mjög fjöl-
mennan fund hjúkrunarkvenna
og nema í Hjúkrunarkvennaskól-
anum í fyrrakvöld. Þar talaði
þetta fólk um nauðsyn þess fyrir
hjúkrunarfólk að það sé trúar-
lega og andlega sterkt í því
vandasama starfi sem hjúkrun
er. Á þessum fundi voru milli
80 og 90 hjúkrunarkonur. Þar var
leikið lag eftir listmálarann, Mr.
Engela, sem semur í frístundum
sínum létt klassísk lög. Einnig
er hann sagður söngmaður góð-
ur. f gærkvöldi héldu þeir félag-
ar fund með hjúkrunarfólki á
Elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund. Þá hafa þeir mikinn hug
á að bregða sér til Akureyrar og
hafa samkomu þar með hjúkrun-
arfólki á sjúkrahúsinu.
af stakri ósérplægni og dugnaði
af öllum aðilum sem eigi verður
fullþakkað. Auk þeirra gjafa sem
söfnuðurinn lagði fram hafa
opinberir aðilar veitt mikinn
stuðning og fyrirgreiðslu við
orgelkaupin.
50 ÁRA I VOR
Patreksf j arðarkirkj a var byggð
á árunum 1905—1906 og vígð 19.
maí 1907. Á hún því 50 ára vígslu
afmæli á komandi vori. Kirkjan
er steinsteypt, en veggir voru
óeinangraðir og upphitun ekki
góð. Var kirkjan því köld og
mikill raki í henni sem hindraði
að nokkru messugjörðir í henni
að vetrinum.
GAGNGERÐ VIÐGERÐ
Snemma árs 1956 ákvað sókn-
arnefndin að láta fara fram gagn-
gerða viðgerð á kirkjunni. Var
verkið hafið í lok júní-mánaðar.
Var kirkjan öll einangruð að
innan með 1% þuml. þykkum
korkplötum og síðan múrhúðuð
og máluð. Á gólfið var lagður
korkur og nýtt hitakerfi sett í
hana. Söngpallur var stækkaður
vegna hins nýja fyrirhugaða
orgels. í turni kirkjunnar bak við
söngpallinn var fullgert herbergi
til afnota fyrir söngfólkið og
geymslu á fermingarkyrtlum og
ýmsum öðrum munum kirkjunn-
ar. Nýtt skrúðhús var afþiljað
unni, Trausti Árnason, bókhald-
ari, ritari og Ólafur Helgason,
húsasmíðameistari, gjaldkeri. Eru .
þessir menn mikilla þakka verð-
ir fyrir dugnað sinn og framsýni
í þessum málum. —Karl.
I
Ný fiskverzlun opnuð
í dag við Barónsstíg
Frágangur verzlunarinnar sérlega smekklegur
DAG er opnuð að Barónsstíg 59 ný fiskbúð og veitir henni
forstöðu Valdimar Guðlaugsson, fisksah, sem hefur yfir 20 ár
Skóli við Hagatorg
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt, að
vestur við Hagatorg verði byggð-
ur skóli og á fundi sínum á þriðju
daginn var ákveðið að fram-
kvæmdir skyldu hafnar þá þeg-
ar og fengin eru nauðsynleg leyfi.
— Þessi skóli mun verða með
sama fyrirkomulagi og skóla-
bygging sú er Skarphéðinn Jó-
hannesson arkitekt teiknaði og
mynd birtist af hér í blaðinu
fyrir skömmu.
Óðinn
haft fiskverzlun að Bragagötu 22.
VERZLUNIN STÆKKUB
Að Barónsstíg 59 var áður fisk-
verzlun, sem ekki hefur verið
starfsrækt í eitt ár. Hafa þessi
húsakynni nú verið endurbætt
mikið, bætt við verzlunina frysti-
klefa, aðgerðarrúmi, snyrtiher-
bergi og fataherbergi.
ÞÆGILEG ADSTADA
Er verzlunin öll hin smekkleg-
asta. í afgreiðslunni eru stálborð
og stálföt, og veggir klæddir
plasti upp fyrir miðju. Er rúm-
gott þar og hreinlegt og aðstaða
öll hin þægilegasta.
Innrétting og breytingar fóru
fram undir umsjá Haraldar
Bjarnasonar húsasmíðameistara,
en teikningar gerði Aðalsteinn
Richter.
MÁLFUNDAFÉLAGH) Óðinn
heldur félagsfund í Valhöll i
kvöld kl. 8,30. Framsöguræður
flytja Bjöm Ólafsson alþing-
ismaður sem talar m. a. um
breytingar á innheimtu skatta
og G-unnar Helgason erind-
reki, sem ræðir um verkalýðs-
mál.
Shók-keppnin
2. DORD
Svart: Reykjavík
(Björn Jóhanness.-Sv. Kristinss.),
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvítt: Akureyri
(Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss.)
40. Bflxa6