Morgunblaðið - 22.03.1957, Page 11
Föstudagur 22. marz 1957
MORCVNBLAÐIÐ
11
FRÁ S.U.S. RITSTJÖRAR: GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON OG SVERRIR HERMANNSSON
Kosningarnar í Idju
mikUvægar fyrir
íslenzkan verkalýð
Rabbað við hinn nýkjörna
formann Iðju, Guðjón S. Sigurðsson
Bygging
raðhnso
EITT erfiðasta vandamál, sem
ungt fólk, scm er að byrja bú-
skap, á við að etja eru húsnæðis-
málin. I»ess eru fjölmörg dæmi,
að fólk hafi ekki getað byrjað
búskap árum saman vegna hús-
næðisleysis eða að öðrum kosti
hrakizt úr einu húsnæði í annað,
ófullkomnu og rándýru.
Á undanförnum árum hefir
þó miðað mjög vel í rétta átt í
þessum efnum. Undir forystu
Sjálfstæðismanna á framfara-
tímabilinu 1944—1956 má segja
að hrein bylting hafi átt sér stað
I húsnæðismálum þjóðarimiar og
•ru svo stórfeildra framfai-a
vafalaust fá dæmi meðal stærri
og voldugri þjóða.
Þær fjölmörgu ráðstafanir, sem
gerðar hafa verið til úrbóta í
þessum efnum verða ekki gerðar
að umtalsefni hér, heldur minnzt
lítillega á merkilegar bygginga-
framkvæmdir á vegum Reykja-
víkurbæjar en það eru hin svo-
nefndu raðhús. Bygging þessara
íbúðarhúsa er liður í áætlun
sem bæjarstjórn hefir sam-
samþykkt um byggingu íbúðar-
húsa til að útrýma herskálum
og öðru heilsuspillandi húsnæði.
Nú eru í smíðum 144 slík íbúð-
arhús og eru þau byggð við aust-
anverðan Bústaðaveg, nálægt
Réttarholti. Hverfið hefir verið
skipulagt sérstaklega fyrir slík-
ar byggingar og er svo ráð fyrir
gert að þar megi reisa 175 íbúð-
arhús. Kyndingarstöð -'yrir hverf
ið verður í sérstakri byggingu og
er því ekki gert ráð fyrir sér-
stökum kyndingartækjum í hús-
unutn. Gert er ráð fyrir að reist
verði sérstakt verzlunarhús í
hverfinu og barnaleikvöllur. —
Gatnaskipan er þan.-ig að sem
minnzt umferð verði um hverfið
•n að því liggja hins vegar greið-
ar götur á alla vegu. Lítil lóð
fylgir hverju húsl. Húsin eru
tvær hæðir og hver íbúð 443 ferm
og víðast hvar hálfur kjallari.
Ibúðir þessar eru seldar ein-
staklingum í fokheldu ástandi,
með tvöíöidu gleri í gluggum,
útihurðum og hitalögnum. Auk
þess eru húsin máluð að utan.
Að öðru leyti fullgera kaupendur
húsin.
Fyrir skömmu síðan úthlutaði
bæjarráð fyrstu íbúðunum. _____
Rcyndist verð þeirra vera ea
140 þús., og má telja það mjög
lágt verð, auk þess sem greiðslu-
skilmálar eru mjög hagstæðir.
Með byggingu þessara húsa hef
ir verið farið inn á nýja braut
sem ekki hefir verið reynd áð-
ur, en virðist ætla að gefa mjög
góða raun. Má geta þess í þessu
sambandi að Reykjavíkurbær
hefir látið gera uppdrátt að öðru
sliku hverfi raðhúsa og verða
þau staðsett i námunda við Elliða
árvog.
Þetta framtak bæjarins er
mjög lofsvert og sýnir ásanrt
öðru að forráðamenn bæjarins
hafa fullan hug á að bæta á hag-
kvæman hátt úr þeim húsnæð-
Isskorti, sem hér hefir ríkt.
Þessi gerð húsa er sérstaklega
athyglisverð fyrir ungt fólk, sem
er að byrja búskap.
Byggingarkostnaður hóflegur.
lbúðirnar þægilegar og hæfilega
stórar fyrir litla fjölskyldu. Kem
ur mjög til álita fyrir fólk að
stofna til félagsskapar um bygg-
ingu slíkra raðhúsa.
UM FÁA hluti hefur meira ver-
ið skjalað og skrafuð að und-
anförnu en fylgistap kommún-
ista í verkalýðsfélögunum.
Hafa nýafstaðnar kosningar í
Iðju, félagi verksmiðjufólks, vak-
ið alveg sérstaka athygli manna
og ber þar margt til. í fyrsta
lagi hrundi þar til grunna gam-
alt og gróið veldi kommúnista
og varð sigur lýðræðissinna mjög
glæsilegur. Þá var og býsna fróð-
legur hlutur ýmissa, sem hafa
viljaðhingaðtil kalla siglýðræðis
sinna, og studdu þó kommúnista
í kosningunum með ráðum og
dáð, enda hlutu þeir mikið lof
fyrir í Þjóðviljanum. Mesta at-
hygli hefur þó viðskilnaðuv
kommúnista við félagið vakið,
enda algert einsdæmi.
Fulltnii æskulýðssíðunnar hitti
nýlega að máli hin.i unga og
ötula, nýkjörna foriaann Iðju,
Guðjón Sverri Sigurðsson, starfs-
mann í Lakk- og málningarverk-
smiðjunni Hörpu.
Guðjón er 31 úrs að aldri,
fæddur í Keflavík. Árið 1932
fluttist hann til Reykjavíkur og
hér hefur hann átt heima síðan.
Þegar Guðjón var 11 ára gamall
fór hann að stunda sjó og var
þá fyrst á dragnctabát frá
Reykjavík.
Hann gekk á Gagnfræðaskóla
Reykvíkinga og um tveggja ára
skeið var hann forsetr skólafé-
lagsins. Að gagnfræðaprófi loknu
fór hann í Monntaskólenn í
Reykjavík og lauk stúdentsprófi
úr stærðfræðideild árið 1946. Á
sumrin stundaði Guðjón sjó og
vann á eyrinni eðá að öðrum al-
gengum störfum, enda kostaði
hann sig algerlega á eigin spýt-
ur á skóla.
Vetuvinn eftir stúdentspróf inn
ritaðist hann í læknadeild Há-
skóla íslands og sótti þá tíma
í efnafræði í þeirri deild, en jafn-
framt sótti hann tíma í verk-
fræðiteikningu í verkfræðideild,
og um vorið lauk hann prófi í
forspj alls vísindum.
Næsta ár tók Guðjón sig upp
og sigldi til Dublin og lagði
stund á efnafræði og eðlisfræði
við háskólann þar. Var hann þar
í þrjá vetur en kom jafnan heim
á sumrin og vann á togurum.
Þar á eftir vann hann hjá H.
Benediktssyni & Co., en síðan
hjá Atvinnudeild Háskóla íslands
við byggingarefnarannsóknir, en
jafnframt innritaðist hann í guð-
fræðideild Háskólans og stundar
þar nú nám jafnframt atvinnu
sinni, en hann er nú sem áður
er getið starfsmaður hjá Lakk-
og málningarverksmiðjunni
Hörpu, þar sem hann hefur eftir-
lit með málningu.
— Hvenær gekkst þú í Iðju,
GuAjon?
— Það var í júlí 1956.
—Hverja telur þú aðalástæff-
STEFNIR, FUS, Hafnarfirffi,
hefir haft meff höndum mjög
öfluga félagsstarfsemi í vetur. —
Hefur félagiff gengizt fyrir
stjórnmálanámskeiði, sem hefir
veriff mjög fjölsótt og vakiff
mikla athygli. Er námskeiffiff
meff málfundasniffi, þar sem
menn hafa kynnt sér ræffu-
mennsku og fundarhöld en einn-
ig hafa þessir menn flutt þar
erindi:
Ásgeir Pétursson, form. SUS,
um skipulag Sjálfstæðisflokksins,
Ingólfur Flygenring, fyrrverandi
una fyrir fylgishruni kommún-
ista í Iffju?
— Fólk sér nú betur nauðsyn
þess að skipta um forustu í þeim
félögum, sem kommúnistar hafa
ráðið lengi, enda er það að
glöggva sig enn betur á því,
hverjum íslenzkir kommúnistar
þjóna fyrst og fremst, sem sé
húsbændum sínum eystra og eig-
in hagsmunum hér heima, svo
sem eignakönnunin í Iðju er svo
nærtækt dæmi um. Ennfremur
það, að verkalýðsfélagi er aldrei
hægt að stjórna með hagsmuni
eins pólitísks flokks fyrir aug-
um.
— Hvaffa áhrif telur þú, aff
kosningarnar í Iffju hafi í fram-
tíffinni?
— Eg tel, að kosningar þessar
eigi eftir að verða mjög mikil-
vægar fyrir verkalýðinn á ís-
landi, þ. e. a. s. muni hafa þau
áhrif, að önnur félög fari að
dæmi Iðju og losi sig undan
áhrifum kommúnista, enda eiga
þeir ekkert erindi í íslenzkum
verkalýðsfélögum.
alþingismaffur, um sjávarútvegs-
mál, Stcfán Jónsson bæjarfull-
trúi um bæjarmál, Þór Yilhjálms
son stud. jur. um stjórnarskrá
íslands og Bjarni Benediktsson
alþingismaffur um utanríkismál.
Þóttu erindi þessara manna aff
vonum fróffleg og greinargóff. —
Kvikmyndir um ýmis efni hafa
og veriff sýndar á námskeiffinu.
Áhugi unga fólksins og undir-
tektir á námskeiffi þessu sýna,
Guðjón S. Sigurðssoa
Að endingu vil ég taka það
fram, að ég vonast til þess, aff
kjör iðnverkafólks batni og fé-
lagið eflist á allan hátt, félags-
mönnum og þjóðfélaginu öllu til
hagsbóta.
svo ekki verffur um villzt, aff
stefna Sjálfstæffisflokksins á hér
miklu og ört vaxandi fylgi að
fagna á meffal þess. Ber þar
margt til en einkum þó áhuga-
Ieysi vinstri samsuðunnar hér i
bæ gagnvart unga fólkinu og
áhugamálum þess, sem vakið hef-
ur almenna gremju. Hefur og
Stefnir eflzt mikið á undanförn-
um árum og má nú hiklaust
telja hann öflugastan liiuna póli-
tískú æskulýffsfélaga í Hufnar-
firffi.. Stjórnmálanámskeiff Stefn-
is er nú senn á enda og verður
seinasti fundur þess í kvöld. —
Þar verffur rætt um félagsstarfið
á sumri og hausti komanda. —
Síffan verffur kaffidrykkja og aff
því búnu sýnd stutt kvikmynd.
Gagnleg
afmælisgiöf
NÝLEGA afhenti Vörður
Heimdalli gjöf í tilefni 30 ára af-
mælisins. Voru það 20 manntöfl,
mjög vönduð.
Þorvaldur Ganðar Kristjáns-
son lögfræðingur, formaður Varð
ar afhenti gjöfina, en Pétur
Sæmundsen, formaður Heim-
dallar, veitti hinni höfðinglegu
gjöf viðtöku.
Það má með sanni segja, að
gjöfin kemur að góðu haldi fyrir
Heimdall, en undanfarið hefir
einn liðurinn í hinni fjölbreyttu
starfsemi félagsins verið skák-
kennsla, sem hinir færustu skák-
menn hafa annazt.
Kynninffarkvöid
á vcffum SUS
4 HVERJUM vetri dvelst hér í Reykjavík fjöldi ungra
Sjálfsiæffismanna og kvenna utan af landi, er ýmist
stundar hér skólanám effa önnur störf.
Mjög er æskilegt aff þetta unga Sjálfstæffisfólk stofni til
aukinna kynna sin í milli meff því aff koma saman öðru
iverju til þess aff ræða áhugamál sín. í því sambandi er í
athugun hjá stjórn SUS aff koma á fót föstum kynningar-
kvöldum fyrir unga Sjálfstæðismenn utan af landi er dvelj-
ast í höfuðborginni.
Er ráffgert aff halda fyrsta slíka kynningarkvöldiff í fé-
lagsheimili Sjálfstæffismanna, Valhöil viff Suffurgötu,
fimmtudaginn 28. marz n. k. kl. 8,30. Á dagskrá verffa stutt-
ir fræffslu- og skemmtiþættir og verffur þaff nánar aug-
lýst síffar.
Stjórn SUS vill hvetja unga Sjálfstæffismenn utan af
landi, er dveljast hér í bænum, til aff nota þetta tækifæri og
fjölmenna á þetta fyrsta kynningarkvöld.
(Frétt frá stjórn SUS).
Stefnir í Hafnarfirði
Stjórn Stefnis, félags ungra Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Sitj-
andi frá hægri: Sigurdór Hermundsson, Bjarni Þórffarson, Magnús
Sigurðsson, formaður og Valur Ásmundsson. Standandi frá hægri:
Ragnar Jónsson, Birgir Björnsson og Sigurður Stefánsson.