Morgunblaðið - 22.03.1957, Blaðsíða 16
r
fflnðtntMðfrtík
s. u. s.
Sjá bls. 11.
68. tbl. — Föstudagur 22. mara 1957
Listkynning Morgunblabsins
Þessi mynd er af einu málverka Sigurðar Sigurðssonar listmálara,
sem eru til sýnis í glugga Morgunblaðsins þessa viku. Heitir hún
„Stúlkumynd“ og er máluð árið 1954. — Nokkur af þessum málverk-
um Sigurðar Sigurðssonar hafa verið seld.
Tveir togarar fá tundur-
dufl í botnvörpur sínar
T FYRRAKVÖLD og í gærmorgun fengu 2 íslenzkir togarar tund-
urdufl í vörpur sínar, en ekki hlauzt af neitt tjón.
Hafnarfjarðartogarinn Bjarni
riddari, sem var að veiðum út af
Malarrifi eldsnemma í gærmorg-
un, fékk dufl í vörpuna. Vissu
skipverjar ekki fyrri til en duflið
valt ofan í fiskkösina á þilfarinu.
Togarinn hélt þegar áleiðis til
lands, en varðskip fór til móts
við ha:m. Var með því Har-
aldur Guðjónsson, sem er sér-
fræðingur strandgæzlunnar í
tundurduflum. Utan við Akranes
mætti varðskipið togaranum. —
Duflið á þilfari hans reyndist
vera þýzkt og gerði Haraldur það
óvirkt.
Þetta er í annað skiptið sem
tundurdufl kemur í vörpuna hjá
Bjarna riddara.
í fyrrakvöld er Norðfjarðar-
togarinn Gerpir var að veiðum
út af Norð-Vesturlandi, kom dufl
í vörpuna hjá honum. Togarinn
hélt þegar til Akureyrar, Héðan
frá Reykjavík átti að senda í gær
Harald Guðjónsson til þess að
gera duflið óvirkt ef með þyrfti,
en þar eð ólendandi var á Akur-
eyri gat ekki af því orðið. Maður
einn þar í bænum gaf sig þá fram,
en hann hafði áður fengizt við að
gera tundurdufl óvirk. •— Fór
hann um borð í Gerpi og gerði
duflið óvirkt.
Ekið á bifreið við
Landspífalann
SL. þriðjudag um kl. 7 e.h. var
ekið á bifreiðina R-7992, sem er
Opel-Caravan. Bíllinn stóð þá á
Landsspítalalóðinni á móts við
dyrnar að röntgendeildinni. Ef
einhver getur gefið upplýsingar
i sambandi við árekstur þennan,
er hann vinsamlega beðinn um
að hafa samband við rannsóknar-
lögregluna.
Frá sfjórnmála-
námskeiði Stefnis
SÍÐASTI fundur námskeiðsins
verður í kvöld kl. 8,30 e. h. Rætt
verður um félagsstarfið. Siðan
verður kaffidrykkja og að lokum
sýnd stutt kvikmynd.
PATREKSFIRÐI, 21. marz. —
Togarinn Ólafur Jóhannesson
landaði hér í fyrradag 150 lest-
um af fiski eftir 10 daga útivist.
Fór nokkuð af aflanum í herzlu
en nokkuð til vinnslu í frystihús
in. Gylfi er ennþá í viðgerð í
Grimsby, en er væntanlegur til
landsins upp úr miðjum apríl.
— Karl.
Messudagur fyrir
ungf félk
AKUREYRI, 21. marz. — Nokkr-
ir prestar Norðanlands hafa 3
undanfarin ár haft sameiginleg-
an messudag fyrir ungt fólk, og
hefir það reynzt mjög vel. Hafa
forráðamenn skólanna þá oft
komið með nemendur í fylking-
Þessi messudagur verður n.k.
sunnudag. Hér á Akureyri mun
sr. Sigurður Stefánsson prédika,
en sóknarprestarnir þjóna fyrir
altari. — Messur fyrir ungt fólk
verða haldnar víðar á Norður-
landi þennan dag og einnig aust-
anlands.
Atvinnu- og
verkolýðsmól
Næsti fundur á stjórnmála-
námskeiðinu um atvinnu- og
verkalýðsmál verður í Valhöll í
kvöld kl. 8,30.
Fylgiskföl 20 ára
tímabils voru eyðilögð
ENDA þótt menn hafi lengi grunað, að ekki væri allt með
felidu í verkalýðsfélögum þar sem kommúnistar stjórna,
verður að segja að flestir urðu undrandi, er kunnugt varð
um hið blygðunarlausa fjármálabrask þeirra í Iðju. Er full
ástæða fyrir almenning til að gefa þessu alvarlega máli góðan
gaum, því að enn ráða kommúnistar ýmsum mikilvægum
samtökum. Er það t. d. fróðlegt og aðkallandi viðfangsefni
að knýja fram tæmandi reikningsskil í Dagsbrún og þótt
kommúnistar hafi lengi talið sig þar örugga, má geta þess
að það töldu þeir sig líka til skamms tíma í Iðju. Annars
hefði stjórnin naumast lánað sjálfri sér, svo eitthvað sé nefnt,
kr. 96 þúsund í desember s. I.
Eitt er sérstaklega vert að hafa í huga varðandi peninga-
óreiðuna hjá fyrrverandi stjórn Iðju. ÖLL SKJÖL UM FJÁR-
REIÐUR IÐJU UM 20 ÁRA SKEIÐ HAFA VERIÐ EYÐI-
LÖGÐ. Það hneyksli sem nú hefur verið upplýst, virðist því
aðeins smábrot af þeirri heilsteyptu óreiðu, sem þrifizt hef-
ur undir stjórn „heiðursfélaga“ Björns Bjarnasonar. Má það
teljast myndarleg viðbót við linnulausa pólitíska misnotkun
kommúnista á Iðju og er von, að þeir eigi nú um sárt að
binda.
íbúðarhús fjós og hlaða ú Hval-
nesi í Skefilstaðahreppi brunnu
Húsmóðirin bjargaðist nauðuglega með þrjú
smábörn úr eldinum
Sauðárkróki, 21. marz.
SÁ hörmulegi atburður gerðist hér s. 1. miðvikudagskvöld að Hval-
nesi í Skefilstaðahreppi, að ung hjón sem þar búa misstu allar
sínar eigur er íbúðarhúsið þar brann til kaldra kola á taépum 40
mínútum. Var konan ein heima með þrjú ung börn þeirra hjóna og
bjargaðist hún nauðuglega úr eldinum með börnin. Af innbúinu
bjargaðist aðeins ein yfirsæng og í henni var yngsta barnið, hvít-
voðungur, borið til næsta bæjar.
ELDI SLÓ NIÐUR í OLÍUVÉL
Á Hvalnesi bjuggu hjónin
Gyða Guðvarðardóttir og Búi
Vilhjálmsson. Hófu þau búskap
á jörðinni s. 1. vor. Á átt-
unda tímanum um kvöldið var
Gyða stödd í eldhúsinu ásamt
börnum sínum en þau eru á
fyrsta, öðru og sjötta ári. Yngsta
barnið aðeins þriggja mánaða. f
eldhúsinu logaði á olíuvél.
Skyndilega sló eldinum niður í
vélina með þeim afleiðingum að
geymirinn sprakk. Skipti þá eng-
um togum að olían flóði logandi
um allt eldhúsið.sem varð alelda
á svipstundu.
BRANN Á 40 MÍNÚTUM
Gat konan með naumindum
komizt út úr eldinum með börn-
in, til þess að gera bónda sínum,
sem var við gegningar, aðvart.
Greip hún með sér yfirsæng um
leið og hún hljóp út úr brenn-
andi húsinu og var það það eina
sem bjargaðist af innbúinu. Var
síðan hlúð að hvítvoðungnum
með þessari sæng. Fólk af næstu
bæjum kom fljótlega til hjálpar
en ekkert var hægt að aðhafast
svo ört breiddist eldurinn út. —
Brann íbúðarhúsið sem var tví-
lyft múrhúðað timburhús, til
ösku á tæpum 40 mínútum.
FJÓSIÐ OG HLAÐAN
BRUNNU EINNIG
Áfast við íbúðarhúsið var fjós
og hlaða. Ekki var hægt að verja
þessi hús fyrir eldinum en all
hvöss austanátt var á. Lánaðist
þó að bjarga gripunum úr fjós-
inu en húsin brunnu.
EIGURNAR ÓVÁTRYGGÐAR
Fjölskyldan frá Hvalnesi hafð-
ist við á Lágmúla s. 1. nótt, en
það er næsti bær. Allt innbú
þeirra hjónanna var óvátryggt og
er tjón þeirra því mjög tilfinn-
anlegt. Ekki er vitað hvað þau
hyggjast fyrir í framtíðinni.
—Guðjón.
Lúðvíks-verðiS á olíunni
Húsakyndingarolia hefir hækkað
um 20 — 54 prósent
ÞANN 27. febrúar var ákveðið verð á olíum til húsakynd-
inga sem hér segir:
Gasolía, (hráolía) hækkaði úr 89 aurum lítrinn í kr. 1,07 eða
um 18 aura lítrinn. Er þar um rúmlega 20% hækkun að
ræða.
Fuclolía hækkaði úr 742 kr. smá1., (70 aura lítrinn) í
kr. 1146,00 (1,08 lítrinn) eða um 404 kr. smálestin, sem
er 54,3% hækkun.
Verðlagsstjóri vildi ckki auglýsa verðið á fueloliunni. en
slíkt er alger undantekning, því verðbreytingar eru ætíð
auglýstar.
Þjóðviljinn reynir í gær að hjálpa olíumálaráðherranum
með því að þegja alveg um hækkunina á fueloliunni og láta
sem hún sé ekki til!
Kuatdar úr Túlknafirði
flutlir til Kaliforníu
Milljónamæringur þar ætlar að hreinrækta
íslenzka hundakynið
Patreksfirði, 21. marz.
ISÍÐUSTU áætlunarflugferc, sem farin var héðan voru rneðal far-
þeganna tveir hundar, sem eru að flytjast búferlum til
Kaliforníu. Voru þetta tvær tíkur, báðar hálfs annars árs gamlar,
ættaðar úr Tálknafirði.
ÆTLAR AÐ HREINRÆKTA
ÍSL. KYNIÐ
Milljónamæringur nokkur í
Kaliforníu festi kaup á hundun-
um og ætlar hann að hreinrækta
hið gamla íslenzka hundakyn.
Komst hann að þeirri niðurstöðu
á ferðalagi um landið í fyrra, að
vestfirzku hundarnir væru
minnst kynblandaðir af öllum
hundum hér á landi.
TÓK Á MÓTI „FÓSTUR-
DÆTRUNUM"
Eigandi tíkanna, Kristján
Hannesson á Lambeyri í Tálkna-
firði fylgdi þeim til Reykjavíkur
en þar var hinn nýi eigandi,
milljónamæringurinn frá Kali-
forníu kominn, til þess að taka
við i,fósturdætrunum“. •—Karl.
„Húnavakan"
HOFI, Vatnsdal, 17. marz. -—
Verði tíðarfar gott og vegir færir
bílum, verður hin árlega
skemmtivaka Húnvetninga
„Húnavakan“, haldin í þessum
mánuði. Verða þar að venju
margs konar skemmtanir, sem
eru héraðsbúum tilbreyting frá
hinum daglegu önnum í fámenn-
inu. — Ágúst.
K
V
Ö
L
D
V
A
K
A
HEIMDALLUR, F.U.S., efnir til
Kvöldvöku í Sjálfstæðishúsinu á
sunnudaginn n.k. <24/3) kl. 8,30
e.h. Fjölbreytt dagskrá. Nánar
auglýst síðar.
Aðgöngumiðapantanir i sima
7103.