Morgunblaðið - 02.06.1957, Síða 8
«
1UORGUNBL 4Ð1Ð
Sunnudagur 2. júní1957
!A
ustan
Edens
eftir
John
Steinbeck
49 i
leðursvuntu til hlífðar. Skyrtu-
ermarnar voru brotnar upp fyrir
olnboga og hinir vöðvastæltu
handleggir voru einnig hreinir.
Aðeins hendurnar voru blakkar af
sóti. En starsýnast varð Adam þó
á augu Samúels, er voru ljósblá,
athugul og leiftrandi af æsku-
f jöri.
„Louis“, .sagði hann. „Það var
gaman að sjá þig. Jafnvel í al-
sælu þessarar litlu paradísar okk-
ar er gaman að hitta góða vini“.
Hann leit brosandi á Adam og
Louis sagði: „Ég kom með hr.
Adam Trask í heimsókn. Hann er
nýkominn að austan og ætlar að
setjast hér að“.
„Það gleö ir migr“, sagði Samúel.
„Við tökumst í hendur seinna. Ég
vil ómögulega óhreinka höndina á
yður með sótugum krumlunum".
„Ég kom hérna með nokkur
gjarðajárn, hr. Hamilton. —
D-
—□
Þýðing
Sverrir Haraldsson
□---------------------□
Kannske gætuð þér smíðað fyrir
mig fáein kverkjárn. Kornhlaðan
mín er nefnilega alveg að hrynja
niður“.
„O, það verða einhver ráð til
þess, Louis. Blessaðir, komið þið
niður úr vagninum. Við skulum
fara með hestana í forsælu".
„Það er svolítill kjötbiti þarna
fyrir aftan og svo kom hr. Trask
með eitthvað hjartastyrkjandi".
Samúel leit sem snöggvast heim
að húsinu. „Ætli við ættum ekki
að iáta það óhreyft þangað til
vagninn er kominn bak við skýlið.
Louis, viljið þér nú ekki leysa hest
Buick 1953
vel með farinn Buick ’53 nýkominn til landsins til
sölu. Bifreiðin verður til sýnis á Bifreiðasölunni,
Garðastræti 6, mánudaginn 3. þ.m. kl. 1—7 e.h.
Bifreiðasalan
Garðastræti 6
Saumastúlkur
helzt vanar óskast. — Upplýsingar
1 verksmiðjunni Brautarholti 22.
Dúkur hf.
ana frá? Ég skal fara með kjötið
inn. Liza verður áreiðanlega glöð.
Henni þykir s*eikt kjöt svo gott“.
„Er nokkuð af börnunum
heirna?"
„Nei, ekki þessa stundina. Ge-
orge og Will komu heim um helg-
ina og svo fóru þau öll í gærkvöld
á dansleik í skólahúsinu við Peach
Tree. Þau koma sennilega heim
aftur seint í kvöld. Þess vegna
vantar okkur svo bagalega einn
legubekk. En ég skal segja ykkur
nánar frá því seinna — Liza verð
ur víst ekki neitt sérlega mjúk á
manninn, þegar þau koma. — Það
var Tom sem gerði það. Ég segi
ykkur það seinna". Hann hló og
gekk heim að liúsinu með lærið í
hendinni. — „Ef þið farið með
þetta „hjartastyrkjandi" inn í
smiðjuna, þá gætið þess að láta
það ekki þar sem sólin skín á það.
Þeir heyrðu að hann kallaði,
þegar hann nálgaðist húsið: „Liza,
viltu bara vita! Louis Lippo kom
með kjötstykki sem er stærra en
þú“. —
Louis ók vagninum bak við skýl
ið og Adam hjálpaði honum við að
leysa hestana frá og tjóðra þá í
skugganum. „Hann meinti þetta
sem hann sagði um flöskuna, að
sólin mætti ekki skína á hana“,
sagði Louis.
„Hún hlýtur að vera hræðilegur
vargur!“
„Ekki stærri en fugl, en hún hef
ur bein í nefi, konan sú“.
Samuel kom að vörmu spori
aftur inn í smiðjuna: „Lizu myndi
þykja vænt um það, ef þið biðuð
eftir miðdegisverði", sagði hann.
„Við aukum henni bara erfiði",
andmælti Adam.
„Uss, hvaða vitleysa. Hún ætl-
ar að steikja kjötið og búa til
eplabúðing. Okkur er bara ánægja
að komu ykkar. Louis, nú er bezt
að við lítum á garðajárnin og
lcomum okur saman um hvernig
bezt er að hafa þau“.
Hann kastaði nokkrum hefil-
spónum á sótugan afl smiðjunn-
ar og kveikti í þeim, svo togaði
hann nokkrum sinnum í físibelg-
inn, sáldraði blautu koksi á glóð
ina og brátt skíðlogaði á aflinum.
„Jæja, Louis", sagði hann. „Nú
verðið þér að halda lífi í eldinum.
Hægt maður! Hægt og jafnt!"
Hann lagði gjarðajárnin á sindr-
andi koksglóðina. „Nei, hr. Trask.
ódv
y nr
stuttjakkar
(poplin)
Stærðir: 3ja til 9 ára.
Verð kr.: 98.00.
Austurstræti 12.
Handlampar
Handlampar, með og án snúru, ávallt
fyrirliggjandi.
Guðm. Guðmundsson & Co.
Hafnarscræti 19 — sunar 4430, 6900.
Dragtir
Fallegar cocktail-dragtir
svartar og ljósar.
Ennfremur mjög ódýrar dragtir
með tveim pilsum.
Dömubúbin Laufiö
Aðalstræti 18
Garðaplöntur
Stjúpmæður, Bellis, Stúdentanellikur og margar fleiri
tegundir af sumarblómum. Fjölærar plöntur háar og lág_
ar. Sérlega hentugar í steinbeð.
Liljur, bóndarósir. Sendum um land allt. Sjálfsafgreiðsla.
Gróðrastöðin SÓLVANGUR
Húsgagnasmiðir
verkstjóra vantar í trésmíðaverkstæði, einnig
vanan vélamann.
Upplýsingar í síma 5307 á sunnudag
eða 3356 á mánudag.
Höfum opnað
raftækjavinnustofu
á Hverfisgötu 50. — Sími 4781.
Sveinn Qlafsson og Reimar Sfefánsson
Reknetakork
fyrirliggjandi
ORiRlnsðw
Hamarshúsinu — sími 7385
Liza er vön að elda mat í níu,
hungraða krakka. Hún kallar nú
ekki allt ömmu sína“. Hann brá
töng á járnin og sneri þeim í eld-
inum. Svo nló hann: Annars er
vissast að halda sig í hæfilegri
fjarlægð frá konunni minni í dag
og ég ráðlegg ykkur báðum að
nefna ekki orðið „legubekkur", svo
að hún heyri. Það er orð reiði og
sorgar fyrir Lizu“.
„Já, þér minntuzt eitthvað á
legubekk áðan“, sagði Adam.
„Ef þér þekktuð Tom, son
minn, hr. Trask, þá mynduð þér
skilja þetta betur. Louis þekkir
hann“
„Já, það skyldi maður nú
halda“, sagði Louis.
Samúel hélt áfram: „Tom minn
er dálítið öfgafullur í skapi. Tek-
ur alltaf meira á diskinn sinn, en
hann getur borðað. Sáir alltaf
meiru en hann kemst yfir að
skera upp. Skemmtir sér of mikið
og syrgir of mikið. Sumir menn
eru þanig gerðir. Liza heldur að
ég sé svona. Ég veit ekki hvað úr
Tom kann að verða. Kannske
verður hann mikill maður, —
kannske endar hann líf sitt í gálg
anum. — O, jaeja Hamiltonar
hafa þá fyrr verið hengdir. En ég
skal segja ykkur nánar frá því
seinna“
aBlltvarpiö
Sunnudagur 2. júní:
Fastir liðir eim og venjulega.
11,00 Messa í hátíðasal í Sjó-
mannaskólans (Prestur: Séra Jón
Þorvarðsson. Organleikari: Gunn
ar Sigurgeirsson). 14,00 Hátíða-
höld sjómannadagsins í Laugar-
ási í Reykjavík: a) Minnzt drukkn
aðra sjómanna (Vígslubiskup,
séra Bjarni Jónsson, talar, Guð-
mundur Jó.isson syngur). b) Opn-
un dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna: Ávörp (Forseti Islands,
herra Ásgeir Ásgeirsson, Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri og Henry
Hálfdánarson formaður fulltrúa-
ráðs sjómannadagsins). c) Sjó-
mannadagsávörp (Lúðvík Jósefs-
son sjávarútvegsmálaráðherra, —
Ólafur Thors fulltrúi útgerðar-
manna og Ríkharður Jónsson full-
trúi sjómanna). d) Afhending
verðlauna og heiðursmerkja
(Henry Hálfdánarson). — Lúðra-
sveit Reykjavíkur leikur. 16,45 Mií
degistónleikar (plötur). — 16,30
Veðurfregnir. — Færeysk guðs-
þjónusta (Hljóðrituð í Þórsh 'fn).
17,30 Hljómplötuklúbburinn. —
Gunnar Guðmundsson við grammó
fóninn. 18,30 Barnatími (Baldur
Pálmason). 19,30 Einleikur: Jósé
Iturbi leikur á píanó (plötur). —
20,20 Erindi: Á eldflaug til ann-
arra hnatta; V. (Gísli Halldórsson
verkfræðingur). 20,35 Sjómanna-
vaka. 21,20 „A ferð og flugi“. —
Stjórnandi þáttarins: Gunnar G.
Schram. 22,05 Danslög, þ. á. m.
leikur danshljómsveit Bjöms R.
Einarssonar. Söngkona: Sigríður
Hannesdóttir. — Guðrún Erlends-
dóttir stjórnar danslagaflutningn-
um. 01,00 Dagskrárlok.
Mánudagur 3. júní:
Fastir liðir eins og venjulega.
19,00 Þingfréttir. 19,30 Lög úr
kvikmyndum (plötur). 20,30 Ut-
varpshljómsveitin; Þórarinn Guð-
mundsson stjórnar. 20,50 Um dag-
inn og veginn (Auðunn B ragi
Sveinsson kennari f Haganesvík).
21,10 Einsöngur: Hjálmar Kjart-
ansson syngur; Fritz Weisshappel
leikur undir. 21,30 Útvarpssaganí
„Syr.ir trúboðanna" eftir Pearl S.
Buck; XXII. (Séra Sveinn Víking
ur). 22,10 Búnaðarþáttur: Sitt af
hverju (Gísli Kristjánsson rit-
stjóri). 22,25 Nútímatónlist (plöt-
ur). 23,00 Dagskrárlok.
EGGEKT CLAESSEN og
GÚSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmenn.
Þórshamri við Templarasund.
4 Síófcon & — (
)__ gullsmiðii
-^NIétsgðlu 48 - Stml 81536