Morgunblaðið - 02.06.1957, Blaðsíða 12
Veðrið
NA kaldi. — Skýjað.
íiixmwlí>fatiííí>
122. tbl. — Sunnudagur 2. júní 1957.
Reykjavíkurbréf
er á blaðsíðu 7
íslenzka landsliðið við brottför.
Kunnui brezkur skurðlæknir
tulur í Húskólunum
HINGAÐ er kominn í boði Há-
skóla íslands og British Conuncil
hinn kunni brezki skurðlæknir
R. H. Franklin, og mun hann
dveljast hér ásamt konu sinni til
10. júní.
Laugardaginn 1. júní flutti
Franklin læknir fyrirlestur fyr-
ir lækna Landsspítalans, en í Há-
skólanum flytur hann tvo fyrir-
lestra fyrir lækna og læknanema.
Fyrri fyrirlesturinn verður hald-
inn miðvikudaginn 5. júní og
verður um skurðaðgerðir á vél-
inda, en sá síðari föstudaginn 7.
júní og fjallar hann um maga-
sár. Báðir fyrirlestrarnir verða
fluttir í I. kennslustofu Háskól-
ans og hefjast kl. 8.30 e.h.
Aðalfundur Eimskipafé-
lagsins haldinn í gœr
Landsleikur islands og Frakklands í dag
Forsala aðgöngumiða fyrir
8 millj. franka
Leiknum útvurpuð um ullur
frunskur stöðvur
Idag ganga ísl. knattspyrnumenn til landsleiks við Frakkland
og fer leikuirnn fram í Nantes. Hefst hann kl. 3 eftir frönsk-
um tíma. ísl. knattspyrnumennirnir eru komnir til Nantes og
líður vel. Þetta er 16. landsleikur fslands í knattspyrnu, og er
liður í heimsmeistarakeppninni sem kunnugt er.
Blaðinu barst í gær svohljóð-
andi skeyti frá Jóni Magnússyni
gjaldkera KSÍ, sem er í farar-
stjórn flokksins.
„Frakkar uppgötva ísland"
segir France Soir á íþróttasiðu
sinni í dag. Rekur blaðið síðan
almennan fróðleik um ísland
og ísl. þjóðina, uppruna henn-
ar og sögu, ræðir um dimmar
miðaldir eftir glæsilega sögu-
öld, rekur sjálfstæðisbarátt-
una síðustu öldina og stofnun
lýðveldis.
Vikið er sérstaklega í grein-
inni að Albert Guðmundssyni
og rætt um þátt hans í ísl.
knattspyrnulifi, en Albert lék
m.a. með franska landsliðinu
sem var lið atvinnumanna.
Er rætt um það sérstaklega
hve leikinn hann var, drepið á
glæsileik hans á velli og dreng
skap. „Við væntum á sunnu-
daginn“, segir franska blaðið,
„góðra kynni af löndum hans“.
Forsala aðgöngumiða geng-
Stækkun fæðlnga-
delldar
lil athugunar
BÆJARYFIRVÖLDIN hafa sam-
þykkt með samhljóða atkvæðum
að veita Guðrúnu Halldórsdótt-
ur, 125 þús. kr. lán til stækkun-
ará fæðingaheimili því að Rauð-
arárstíg 40, sem hún starfrækir.
Samþykkti bæjarráð þetta á
fundi á föstudaginn og fól borgar-
stjóra að ganga frá lánaskilmál-
um. Eins veitti bæjarráð borgar-
stjóra heimild til að veita fæð-
ingaheimili Guðrúnar Halldórs-
dóttur bæjarábyrgð á 100 þús. kr.
láni hjá tryggingastofnuninni.
í fæðingaheimilinu sem Guð-
rún hefur starfrækt um 3 ára
skeið, hafa alls fæðzt milli 500
og 600 börn. Þar er rúm fyrir
4 sængurkonur í senn, en með
stækkuninni vonast hún til að
geta tekið á móti 8 konum.
ur betur en bjartsýnustu menn
vonuðu. Selt er þegar fyrir 8
„Ég vildi mjög gjarnan að ég
hefði getað gefið Danska listiðnað
arsambandinu dýrgrip nokkurn á
þessu afmæli þess, t.d. eitt af hin-
um gömlu handritum okkar ís-
lendinga, sem eru ekki aðeins frá
bær andans verk heldur og nukil
listaverk að ölium ytra búningi.
En það get ég því miður ekki.
Ástæðan er í fyrsta lagi sú að
þessir dýrgripir vorir eru enn
þótt vonandi verði það ekki lengi,
hafðir í haldi að baki járntjaldi
danskra safna.
í öðru lagi getum við íslending-
ar ekki, jafnvel þótt við kynnum
að óska þess, gefið handritin.
Þau segja frá sögu feðra vorra,
milljón franka meira en mest
var vonazt eftir. Þessi sala
þýðir að um 20 þús. aðgöngu-
miðar hafa selzt og er sá áhorf
endaskari um fimm þúsund
manns meira en mest var á
einum leik í frönsku meistara-
keppninni í ár en það var leik-
ur Angers og Racing Club
de Paris.
Leikur Frakka og íslendinga
hefst kl. 3 eftir staðartíma.
Leiknum verður útvarpað um
allar franskar stöðvar. Dórn-
ari er brezkur. Góðviðri er nú
daginn fyrir leikinn og öllum
líður vel. — Jón Magnússon.
lífi þeirra og lifnaðarháttum, trú
þeirra og baróttu, sigrum og
ósigrum. fslenzkir menn hafa
samið þau og skrifað á íslandi.
Engin gersemi er þessum
handritum dýrari í augum
hvers einasta íslendings. Ekk-
ert getur komið í stað þessara
skinnblaða, sem rituð eru með
hjartablóði okkar. Þau cru
kjarni lífs okkar, sál þjóðar
okkar. Og við viljum hvorki
né getum afsalað okkur sál
okkar, gefið hana eða selí.“
Að þessum orðum mæltum gat
Lúðvík þess að þess í stað íærði
hann Danska listiðnaðarsamband-
inu að gjöf frá íslenzku listiðnað-
arsamtökunum ljósprentun af
Prentarar fá styttingu
vinnutíma
PAMKOMUIAG náðist í gær fyrir milligöngu sáttasemjara ríkis-
ins í kaupdeilu prentara. Varð niðurstaðan sú, að vinnutími
á laugardögum í marz-mánuði var styttur um 4 stundir. Er þá
vinnuvikan í þeim mánuði orðin 44 klst. í stað 48 klst. á dag. Er
hér um kauphækkun að ræða, því þrátt fyrir styttingu vinnutímans
helzt kaup óbreytt.
Nokkrar truflanir urðu á störfum prentara i fyrradag og í gær,
sem hefur í för með sér, hvað Mbl. viðvíkur, að það er aðeins
12 síður í dag.
Handritin:
Sál Islands bak við
danskra safna
Rœða Lúðvíks Cuðmundssonar Ú afmœli
Danska lisfiðnaðarsambandsins
ÞANN 25. maí átti Danska listiðnaðarsambandið 50 ára afmæli.
í tilefni þess flutti Lúðvík Guðmundson skólastjóri
Handíðaskólans ræðu í afmælishófinu. Var þar viðstaddur H. C.
Hansen forsætisráðherra og margt annað stórmenni. Ræða Lúð-
víks var skelegg með afbrigðum og fer hér á eftir kafli úr henni:
Á LAUGARDAGINN var haldinn
aðalfundur Eimskipafélagsins 'h.f.
Var fundurinn haldinn að venju
í kaupþingssainum í Eimskipa-
Sáttafundur
stóð enn yfir
1 FYRRINÓTT kl. 2, lauk sótta
fundi í deilu Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur og atvinnuveit-
enda. Að þeim fundi loknum hafði
lítt þokast til samkomulags í deilu
þessari. Þegar blaðið var búið til
prentunar síðdegis í gær, stóð
sáttafundur yfir.
Verzlunarmannafélagið hefur
boðað til vinnustöðvunar, sem
koma á í framkvæmd á mánudags-
morgun, hafi samningar ekki tek-
izt innan þess tíma.
járntjald
Guðbrandsbiblíu sem prentuð
var á Hólum 1584.
Fyrstu
félagshúsinu og var búizt við að
hann myndu sækja á annaö
hundrað fulltrúar. Verður nánar
greint frá fundinum í þriðjudags
blaðinu og þá sagt frá skýrslu
stjórnarinnar um efnahag og
rekstur félagsins á árinu.
Á aðalfundinum var skýrsla
stjórnar flutt og ný stjórn kosin
svo sem venja er. Tveir fulltrúar
voru mættir frá Vesturheimi, sem
báðir eiga sæti í stjórn félagsins,
þeir bræðurnir Árni G. Eggerts-
son og Grettir Eggertsson.
Cóð byrjuh-
arveiðií
Laxá í Þing.
HÚSAVlK 1. júní: — 1 dag er
fyrsti dagurinn á þessu sumri sem
laxveiði er leyfð í Laxá í Þingeyj-
arsýslu og eru aðeing 2 stengur á
dag. Veiðimenn í ánni f dag eru
bræðurnir Benedikt og Snorri
Jónssynir.
Um hádegi í dag höfðu þeir veitt
5 laxa, alla í Kistuhvísl. Frekar
er óvenjulegt £.ð svona góð veiði sé
fyrst í stað. — Sig.
laxarnir
Fyrsti laxveiðidagurinn í Elliðaánum byrjaði vel. KI. 11 í gær-
morgun voru komnir 5 laxar á land og var þyngsti laxinn 13 punda
hængur, hinir vógu 7—8 pund hver. — Þrír laxanna fengust í
Fossinum. — Flugvatn er nú í ánni og talsvert af fiski sést úU
fyrir ármynninu.