Morgunblaðið - 30.06.1957, Qupperneq 15
UORCVNBIAÐID
Ruimudagur SO. Jfinf
is
Reykjavíkurblöðum sýndur
fjandskapur og óvirðing
fsf. blaðaljósmyndurum meinað það
sem sænskum er leyft
*
I *^t|¥
m
iilÍ-iO;™ . ...
......... ___ í...
Ungfrú Rúna Brynjólfsdóttir tók af hálfn íslands þátt i fegur#-
arsamkeppninni um titilinn „Ungfrú Evrópa“, sem fram fór í Baden-
Baden í Þýzkalandi 25. og 25. júnL — Rúna komst í úrslit, varð sú
6. en hollenzk stúlka varð „Ungfrú Evrópa“. Rúna starfar nú sem
tízkusýningarstúlka í Frakklandi. Myndin er af opnu í sýningar-
skránni. Rúna kom 9. fram á sviðið og Ungfrú Italía 19.
SÆKSKU blaðamennimir sem
skrifa um konungsheimsókn-
ina fengu hlut sinn réttan ár-
degis í gær. Ágreiningsefnið jafn-
aði Bjarni Guðmundsson blaða-
fulttrúi: Ljósmyndarar þeirra
fengu að taka myndir á Hótel
Borg í gærkvöldi og eins í Þjóð-
leikhúsinu í kvöld. Hinir sænsku
blaðamenn voru eðlilega ánægðir
með þessi málalok. íslenzkir
blaðamenn töldu þá fullvíst að
úr því hinir sænsku „kollegar"
fengu leiðréttingu mála sinna, þá
kæmi ekki tii mála að útiloka
hinn fámenna hóp blaðaljós-
myndara við dagblöðin í
bænum. En það var nú öðru nær,
eins og kom á daginn.
Hátíðndagsfcró
UMFÍ í dag
AÐALHLUTI íþróttakeppni lands
móts UMFÍ að Þingvöllum átti að
fara fram í gær, en frásögn af
henni verður að bíða næsta blaös.
í gærkvöldi var svo skemmtun
þar austur frá.
í dag er hátíðadagskráin með
ræðuhöldum, íþróttasýningum og
keppni í nokkrum greinum. Dag-
skráin í dag hefst kl. 9 árdegis.
í kvöld lýkur þessu 10. landsmóti
UMFL
— Gestir á IJMFÍ
Framh. af bls. 8
meat fólgið í umræðum um ýmis
aðkallandi þjóðmál. Má þar nefna
fánamálið, aukna notkun þjóð-
búninga og færeyska málið. ís-
lendingar eru ekki einir um að
hafa varðveitt hið foma mál. —
Páll hefir oft komið til íslands.
Hann stundaði nám í Mennta-
skólanum í Reykjavík í tvo vet-
ur og til gamans má geta þess,
aS hann er fermdur á íslandi.
Bonum þykir mikil breyting orð-
in hér í ýmsum efnum og fram-
farir örar. Færeyingar óska eftir
*em allra nánustu samstarfi við
Islendinga. Margir Færeyingar
koma til tslands og fylgjast með
ísíenzkum málum. En þeim þyk-
ir of lítið af heimsóknum íslend-
inga til Færeyja. Þess vegna
flytur hann boð frá Færeyjum
*ð koma á skiptiferðum íslenzkra
•g færeyskra skólabarna, svo sem
áður var nokkuð um fyrir stríð.
Fulltrúi Noregs er Einar
Straume frá Norges Bygdeung-
domslag, sem er ungmennasam-
band sveitaæskunnar. Sú hreyf-
ing er ung að árum, stofnuð árið
1947. Starfar hún í nánú sam-
bandi við bændasamtök Noregs
og leitast við að þjálfa æskufolk
til starfa í sveit. Leggja þeir höf-
uð áherzlu á starfsíþróttir og hafa
haldið fjölmenn mót í þeim. —
Rinnig reka þeir víðtæka upp-
lýsingastarfsemi fyrir æskufólk
sveitanna og taka til umræðu
ýmis þau vandamál, sem hæst
ber hverju sinni. Þetta er í fyrsta
•kipti, sem Straume fer til fram-
andi lands og lýsti hann ánægju
•áuii yfir því að fyrsta ferð sín
skyldi vera til tslands, sem í huga
flestra Norðmanna hefir yfir sér
•inhvem ævintýrablæ. I Noregi
«r nú vaxandi áhugi á íslandi og
íslenzkum málum. Er mikið skrif-
»ð um ísland í norsk blöð. Norð-
menn óska aukinnar samvinnu
véð tslendinga í sem flestum
greinum. Lýsti hann löngun sinni
til að kynnast sem bezt íslandi,
og ekki sízt Islenzkum sveitum.
Þakkaði hann sérstaklega góðar
eg vinsamlegar móttökur.
Hinn fulltrúi Norðmanna er
Ivar Orgland frá Ungmennafél.
Moregs.
Fulltrúar frá Danmörku og Sví
þjóð gátu því miður ekki komið
Wí við að þiggja boð um þátt-
tðku í hátíðahöldum UMFÍ.
Dagblöðin í Reykjavík voru ÖU
mjög síðbúin í gær. — Undir
venjulegum kringumstæðum yf-
ir sumarmánuðina, eru þau tilbú-
in til prentunar um kl. 4 á laug-
ardögum. Til þess að geta gert
heimsókn sænsku konungshjón-
anna sem bezt skil fóru blöðin
ekki í prentun fyrr en mjög seint
í gærkv. Þetta var hægt vegna
þess að prenturum og blaðamönn
um var Ijóst að hér var um að
ræða hvort íslendingar sýndu hin
um tignu gestum fulla virðingu
eða ekki. Allir lögðu fram starfs-
krafta sína til þess að blöðin
mættu verða sem bezt úr garði
gerð.
f gærkvöldi um klukkan 6 er
ritstjórn Mbl. átti síðast tal við
Bjama Guðmundsson blaðafull-
Á MORGUN, mánudaginn 1. júlí
á Matthías Þórðarson, rithöf-
undur og fyrrverandi ritstjóri frá
Móum, 85 ára afmæli.
Matthías er þjóðkunnur maður
fyrir margþætt og merkilegt lífs-
starf. Á ungan aldri var hann
skipstjóri á skútum og hafði aflað
sér til þess ágætrar menntunar í
siglingafræðum. í áratug var
hann einnig leiðsögumaður
dönsku strandgæzluskipanna
við ísland.
Avann hann sér mikla hylli
allra þeirra er hann starfaði með
og var jafnan talinn farsæll og
dugandi sjómaður.
Síðan hóf hann útgerð og fisk-
verzlun. Var hann um skeið
meðal stærri útgerðarmanna í
Keflavík.
Þá gerðist hann brautryðjandi
útgerðar í Sandgerði, ásamt J.
Lauritzen ræðismanni í Kaup-
mannahöfn. Var það stórfyrir-
tæki á sínum tíma.
Matthías Þórðarson hóf
snemma afskipti af félagsmálum
sjávarútvegsins. Hann átti veru-
legan þátt í stofnun Fiskifélags
íslands og stofnaði sjálfur fisk-
veiðiritið „Ægi“ árið 1905. Var
hann ritstjóri þess í nokkur ár.
Hann fór ýmsar ferðir til útlanda,
bæði á vegum hins opinbera og
að eigin frumkvæði, til þess að
kynna sér fiskverzlun og fisk-
veiðar.
í þágu Slysavarnafélags íslands
hefur hann unnið mikið og gott
starf. Hefur hann verið fulltrúi
þess í Kaupmannahöfn allt frá
stofnun þess, en þar hefur hann
verið búsettur siðan 1914.
trúa, um lausn Ijósmyndara-
málsins gagnvart Svíum, sagði
hann, að Reykjavíkurblöðin
fengju ekki sömu aðstöðu og
Svíarnir. Um þetta væri tómt mál
frekar að tala og engu við að
bæta. Blátt bann var lagt við
því að ljósmyndarar. Reykjavík-
urblaðanna fengju að koma inn
fyrir dyr á Hótel Borg. Sérstak-
ur ljósmyndari sem væri á veg-
um hins opinbera, Pétur Thom-
sen, myndi síðar um kvöldið
hafa til þær myndir er blöðin
gætu fengið til birtingar. Málið
var að öðru leyti útrætt af hans
hálfu.
íslenzkir blaðamenn geta ekki
hjá því komizt að mótmæla og
átelja harðlega ástæðulausa mis-
1 munun á starfskilyrðum sín-
Hin síðari ár hefur Matthías
fyrst og fremst stundað ritstörf.
Hefur hann ritað bækur og fjölda
tímaritsgreina í innlend og er-
lend tímarit. Útgerð og fiskveið-
ar er það efni, sem hann hefur
ritað mest um. En á því sviði mun
hann nú einna fjölfróðastur allra
íslendinga.
Matthías Þórðarson ber aldur
sinn veL Hann er beinn í baki
og glaður og reifur í tali. Enn
sem fyrr er hann fullur áhuga
fyrir eflingu íslenzkra atvinnu-
vega, og þá fyrst og fremst út-
vegsins. Yfir framkomu hans
aliri hvílir hinn látlausi höfð-
ingsblær, sem er aðalsmerki
sannrar lífsvizku og þekkingar.
Kona Matthíasar Þórðarsonar
var Sigríður Guðmundsdóttir frá
Lambhúsum á Akranesi. Áttu
þau 8 börn og eru 6 þeirra á lífi.
Matthías er nú staddur hér í
Reykjavík. Kemur hann hingað
heim í boði útgerðarmanna í
Sandgerði í tilefni af 50 ára af-
mæli útgerðar þar. Dvelur hann
þessa dagana á Hagamel 14 hér
í bænum.
Vinir þessa háaldraða sæmdar-
manns, sem unnið hefur þjóð
sinni vel og lengi, heima og er-
lendis, hylla hann nú hálfníræð-
an, um leið og þeir þakka honum
liðinn tíma.
S. Bj.
Vinna
STÚLKA
frá Nýja Sjálandi (Oxford-stú-
dent) óskar eftir sumarvinnu á
íslandi; helzt Norðurlandi. Hjúkr
un, húshjálp o. fl. Skrifið: Miss
C. Y. Shortt, 135 Audley Road,
London, N.W. 4.
Félagslíf
Frá Sundfélagi Hafnarf jarðar
Á kveðið er að fara í skemmti-
ferð að Gullfossi og Geysi, sunnu-
daginn 7. júlí. Þáttíakendur skrái
nöfn sín í. lista, sem liggur
frammi í Sundhöll Hafnarfjarðar
fyrir fimmtudaginn 4. júlí, n.k.
— Stjómin.
Reykjavíkurmót 3. fl. A
sunnudaginn 30. júní á Háskóla-
vellinum. KL 9,30 Fram—Víking-
. ur. — Kl. 10,30 KR—Þróttur.
I Mótanefndia.
um og sænskra starfsbræðra.
Hver eða hverjir sem bera ábyrgð
á þessu, verða að gera sér ljóst
að dagblöðunum hefur með þessu
verið sýndur fullur fjandskapur
og óvirðing að ástæðulausu og
Isennilega ekki af öðru en ein-
hverri fáfengilegri yfirborðs-
mennsku, sem á engan rétt á sér.
Hefði þó mátt við öðru búast,
þar sem dagblöðin í Reykjavík
eiga sízt af öllu slika meðferð
skilið.
Samkomur
Bræðraborgarstígur 34.
Alm. samkoma í kvöld kl. 8,30.
Arthur Gook „g David Prostor trú
boðar talar. — Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Samkoma kl. 11 og 8,30. Major
Gulbrandsen stjórnar. Útisam-
koma kl. 4. — Velkomin.
Eg þakka öllum innilega sem glöddu mig á 75 ára af-
mæiinu með heimsóknum, gjöfum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Kristbjörg Pétursdóttir, BlönduósL
Öllum þeim mörgu, sem glöddu mig á 80 ára afmæl-
inu með heimsóknum, gjöfum og skeytum og gerðu mér
daginn ógleymanlegan, þakka ég af alhug.
Megi Guðs forsjá fylgja ykkur.
Sigríður Gttðmunclsdóttír,
Bjargi, Selfossi.
Af alhug þakka ég aUa vinsemd, sem mér var auðsýnd
sjötíu og fimm ára.
Móðtr okkar
RÓSA KRISTJÁNSDÓTTIR
Stórholti 20, andaðist að heimih sínu, fimmtudaginn 27.
þ. m. — Jarðarförin auglýst síðar.
Böm hinnar látnu.
Dóttir mín
JOHANNA,
andaðist 28. júní.
Skúli Kolbeinssou,
Blönduhlíð.
Móðir min
HELGA JÓNSDÓTTIR,
Rauðarárstíg 17, andaðist í sjúkrahúsinu Sótheimar, 29.
þessa mánaðar.
Fyrir hönd okkar systranna og annarra vandamano.
Ingibjörg Hallgrímsdóttir.
Útför mannsins mins
ÞÓRAKINS AUBUNSSONAR
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 2. júlí, kl. 2.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elin G. Sveinsdóttir.
85 ára á morgun:
Matthías Þórðarson
fyrrverandi rifstjóri