Morgunblaðið - 10.08.1957, Side 3
Laugardagur10.ágúst1957
MORCVNBLAÐ1Ð
3
Bóluefni
v/ð Asiu-inflúensu
framleitt oð Keldum
LJOSMYNDARI Mbl. skrapp í
vikunni að Keldum, tilrauna-
stöð Háskólans í meinafræði. —
Erindið var einkum fólgið í því
að taka myndir af framleiðslu
bóluefnis við Asíu-inflúensunni
svonefndu. Blaðið hafði í leiðinni
tal af dr. Birni Sigurðssyni, for-
stöðumanni tilraunastöðvarinnar,
og Júlíusi Sigurjónssyni, próí ,
sem hafa umsjón með þessari
bóluefnisframleiðslu.
Þeir sögðu, að ekki yrðu tök á
að framleiða nema lítið magn að
þessu sinni, enda ekki ástæða til
að ráðgera almenna bólusetningu
í haust, þar eð veikin hefur alis
staðar verið væg, þar sem hún
hefur herjað. f nágrannalöndum
okkar er líka gert ráð fyrir því,
að framleiða aðeins bóluefni
handa ákveðnum starfsstéttum
(s.s. hjúkrunarliði), ef inflúens-
an stingur þar upp kollinum.
Hins vegar sögðu þeir, að heil-
brigðisyfirvöldin hér vildu iáta
gera þessa tilraun með fram-
leiðslu bóluefnis við inflúensu
Tilraunastöðin að Kelduir
og væri þá hægt að byggja á
þeirri reynslu, ef nauðsyn krefði
síðar. í neyðartilfellum getur
orðið erfitt fyrir okkur að fá
inflúensubóluefni keypt í ná-
grannalöndunum, og er þá gott
að geta byggt á eigin reynslu 1
framleiðslu þess. Læknarnir
skæðari, þegar frá líður. En eins
og fyrr segir, er engin ástæða til
þess ennþá að ætla, að svo verði.
Allur er þó varinn góður, og því
er nú lögð áherzla á að fram-
leiða bóluefni, ef nauðsyn krefur
síðar.
Eins og kunnugt er, valda
veirur inflúensu. Þær er ekki
hægt að rækta nema í lifandi vef,
og þess vegna er bóluefnið fram-
leitt á þann hátt, að veiru er.
dælt í unguð hænuegg og ræktuð
þar, eggjavökvinn er síðan hirtur
og hreinsaður, veirurnar drepnar
og vökvinn síðan notaður sem
hráefni í bóluefni. Allt er þetta
flóknara en svo, að farið verðí
út í það nákvæmar í stuttri
blaðagrein. Þess má þó geta, að
misjafnlega mikið magn af bólu-
efni fæst úr hverju eggi — eða
frá Vz skammti allt upp í 3 og
fer það auðvitað eftir styrkleika
veirugróðursins. Asíu-veiran var
send hingað alla leið frá Singa-
pore í sérstökum hylkjum og er
hún geymd við mátulegt hita
stig, þangað til henni er dælt
inn í eggin í gengum lítið gat,
sem síðar er lokað með vaxi.
Vökvinn er tekinn úr eggjunum
í sérstöku herbergi með hreinu
andrúmslofti. í lofti þess er
bakteríudrepandi fjólublátt ljós
STAKSTtllMAR
MeS rafknúinni sög er gert op á eggin með veirunni í. Siðan má sjúga vökvann úr eggjunum,
eins og sést á myndinni að neðan.
Einn af aðstoðarmönnunum með grímu og hvítan hjalm til að
verjast útfjólublárri geislun. Vökvinn með veirunni er hirtur
úr eggjunum og sogaður í dauðhreinsaðar flöskur. Andrúms-
loftið í herberginu er dauðhreinsað.
bentu á, að nokkrir erfiðleikar
væru á framleiðslu bóluefnisins,
hér væri um að ræða nýjan og
áður óþekktan veirustofn, sem
hegðar sér á annan veg en þeir
stofnar, sem þekktir eru, og af
þeim sökum þurfa vísindamenn
að þreifa sig áfram og finna
heppilegar aðferðir við fram-
leiðslu þessa nýja bóluefnis.
Eins og fyrr er sagt, verður
ekki hægt að framleiða fyrir
haustið nema takmarkað magn
af bóluefni og ekki verður það
tekið í notkun nema inflúensan
berist til landsins. Ólíklegt er, að
það verði fyrr en í haust, þá
hefst inflúensutíminn, ef svo
mætti segja. Asíuinflúensan hef-
ur stungið sér niðri á stöku stað
í Evrópu og Ameríku í sumat, en
hvergi breiðzt verulega út. Sér-
fræðingar gera þó ráð fyrir því,
að hún láti að sér kveða í þess-
um löndum með haustinu.
Þá bentu læknarnir á, að Asíu-
inflúensan hefði verið væg
hingað til og ekki ólík þeim far-
öldrum, sem áður hafa gengið
hér, t.d. 1951, þegar hér gekk
inflúensufaraldur, sem fór all-
geyst. Annars má geta þess, að
inflúensa hefur ekki náð mikilli
útbreiðslu hér síðustu árin. Það
hefur sýnt sig, að margir hafa
fengið Asíuveikina, þar sem hún
hefur geisað, en fáir látizt úr
henni. Ástæðan til þess, hve
mjög Asíuinflúensan hefur verið
til umræðu, er sú, að hér er um
að ræða nýja veiru; af þeim sök-
um hafa margar spurningar
vaknað hjá vísindamönnum og
óttast sumir þeirra, að veikin
geti færzt í aukana og orðið
er dauðhreinsar* andrúmsloftið í
herberginu. — Vísindamennirnir
eru vel útbúnir, þegar þeir
dveljast í herbergi þessu, hafa
hvítan hjálm á höfði til þess að
varast fjólubláu geislana og
grímu fyrir andlitinu af öryggis-
ástæðum. Það hefur komið fyrir,
að vísindamenn, sem vinna að
framleiðslu bóluefnis,
veirum, sem berast út í
loftið, en allt er gert til þess a’ð
koma í veg fyrir það. Við höfum
því ekki leyfi til að koma inn í
þetta dularfulla herbergi, en
Ijósmyndarinn tekur mynd sína
leiftursnöggt í dyragættinni. —
Auk þeirra dr. Björns og Júlíus-
ar prófessors vinna að fram-
leiðslu bóluefnisins Halldór
Grímsson efnaverkfræðingur og
nokkrir aðstoðarmenn. — Það
má með sanni segja, að merki-
legt starf sé unnið að KeLdum
og nú hefur framleiðsla þessa
bóluefnis bætzt við. Áður hefur
lítið bóluefni verið framleitt
fyrir menn hér á landi, þó dá'.it-
ið við taugaveiki.
Rokk-œðS í Höfn
KAUPMANNAHÖFN, 8. ágúst.
— Rokk-faraldur gengur í Kaup-
mannahöfn og eru sumir rokk-
piltarnir svo ófyrirleitnir að þeir
hafa ráðizt á saklausa vegfarend-
ur á „Strauinu“ og veitt peim
harðar byltur. Lögreglan hefur
nú skorizt í leikinn og handtekið
29 rokk-„gæja“. Dönsku blöðin
hafa birt áskoranir til lögreglunn
ar um að dreifa hinu rokkóða
fólki við kvikmyndahúsin
brunaslöngum.
Uppprentun úr Alþýðu-
blaðinu
Hinn 8. janúar sl. birti Alþýðu-
blaðið forsíðugrein, sem hét:
„Lygar Þjóðviljans hraktar.
Kröfur farmanna afhentar 2.
jan.“
Grein þessi er svar við ásök-
unum Þjóðviljans um linkind
Sjómannafélagsstjórnarinnar í
kröfugerð fyrir hönd farmanna.
Segir þar m.a. á þessa leið:
„Af framansögðu er ljóst, að
ekki hefur staðið á Sjómannafé-
laginu. Farmenn hafa sjálfir
mótað kröfur sínar og stjórn
Sjómannafélagsins komið þeim
áleiðis. Hefur í engu verið þar
farið að ráðum kommúnista,
enda ólíklegt, að nokkru sinni
hefði komið til samningsupp-
sagnar, ef þeir hefðu einhverju
um ráðið“.
Þessi kafli greinarinnar óg
nokkuð til viðbótar var síðan
prentað upp í Morgunblaðinu 10.
jan. í Staksteinum, og þess vitan-
lega getið, að um uppprentun úr
Alþýðublaðinu væri að ræða.
Um málið segir Morgunblaðið
svo:
„Vonandi er,--------að ekk-
ert verði úr verkfalli farmanna
vegna þess að samningar náist
áður“.
Af hálfu Morgunblaðsins var
þess vegna síður en svo hvatt
til verkfalls, heldur þvert á
móti látin uppi von um, að því
yrði afstýrt.
Ferföld ósannindi
Þessi tilvitnun í grein Alþýðu-
blaðsins hefur orðið til þess, að
mörgum mánuðum seinna, þeg-
ar ætla mátti að atvik væru
gleymd, tekur Tíminn sig til og
segir Bjarna Benediktsson höf-
und þeirra orða, sem Morgun-
blaðið prentaði orðrétt eftir AI-
þýðublaðinu. Um þá tilvitnana-
fölsun skal að þessu sinni aðeins
nefnt eitt dæmi úr Tímanum og
eru þau þó fleiri, og verður
e.t.v. síðar vikið að þeim.
Hinn 30. júlí segir Tíminn til
sönnunar falsákæru sinni um
sök Sjálfstæðismanna á yfir-
manna-verkfallinu:
„Öll þessi vinnubrögð eru í
fullu samræmi við kenningu
varaformanns Sjálfstæðisflokks-
ins, er hann birtir í Morgunblað
inu í janúar sl. Þá hélt hann því
fram, að aldrei mundi hafa kom-
_ ið til uppsagna hjá farmönnum
sýkist af j ef stjórnarliðar hefðu haft meiri
andrúms j ráð í stéttarfélögum þeirra. Til
ófriðar hefði þurft aðra menn og
önnur ráð“.
í þessari stuttu málsgrein
felast fern ósannindi:
1) „Varaformanni Sjálfstæðis-
flokksins" eru kennd ummæli
Alþýðublaðsins.
2) í umræddri grein Alþýðu-
blaðsins var hælzt um yfir áhrifa
leysi kommúnista en eltki „stjórn
arliða“. Enda hafa Alþýðuflokks
menn eins og kunnugt er meiri
hluta i stjórn Sjómannafélags
Reykjavíkur.
3) Sú vinnudeila, sem Alþýðu-
blaðið þarna ræðir um, er ekki
yfirmannadeilan hcldur sjó-
mannadeilan frá í vetur.
4) Það voru ekki „aðrir
menn“ en „stjórnarliðarnir“ í
Sjómannafélaginu, sem stóðu
fyrir sjómannaverkfallinu í vet-
ur. Enda tók sjálfur utanríkis-
ráðherrann, Guðmundur f. Guð-
mundsson að sér vörn fyrir þá
í eldhúsumræðunum í vor. llann
vissi ofur vel um þátt flokks-
bræðra sinna í þeirri deilu.
Ekki tekur því að hafa stór orð
um þá fölsun sem Tíminn hefur
hér reynzt sannur að sök um.
Þeir menn, sem slíkt tíðka, eru
með i brjóstumkennanlcgir, þvi ;rð þeir
Jsvíkja bæði sjálfa sig og aöra.