Morgunblaðið - 23.08.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.08.1957, Blaðsíða 1
Magnús Á. Árnason er fæddur 1894 í Narfakoti i Njarðvíkum, sonur Árna Pálsson ar bónda og barnakennara og Sigríðar Magnúsdóttur, - næst yngstur af börnum þeirra, sem komust á legg. Bræður hans eru þeir Ársæll bóksali og Þórhaliur ceiloisti. Sautján ára gamall sigldi hann á togara með Eldeyjar-Hjaita til Énglands og síðan til Danmerkur og hóf þar listnám. 1914 var hann að undirbúa sig að fara til Frakklands, en þá brauzt fyrri heimsstyrjöldin út. Skömmu fyr- ir lok stríðsins fór hann til Ameríku og dvaldi þar í 12 ár. 1918—1922 gekk hann á Cali- fornia School of Fine Arts í San Francisco og lagði þar stund á málaralist og höggmyndagerð jöfnum höndum; kennarar: mál- ararnir Randolph Lee og Spencer Mackey og myndhöggvarinn Ralph Stackpole. 1924—’26 stund aði hann nám í tónfræði á Arr- inaga Musical College í San Francisco. Aðalkennari hans þar var tónskládið George Edwards. Kom heim 1930. Hefur sýnt í Kaliforníu, Dan- mörku og á vegum Norræna list- bandalagsins á Norðurlöndum öll um og í Róm. Á siðasta ári í Búkarcst. í Reykjavík margoft, á Akureyri fimm sinnum, á Siglu firði, i Vestmannaeyjum, Kefla- vík, Haganesvik, Djúpavík, Grímsey og Djúpavogi. Magnús hefur einnig fengizt nokkuð við ritstörf. Þýddi á unga aldri tvær bækur eftir indverska skáldið Rabidranath Tagore, nokkur frumsamin ljóð hafa birzt í blöðum og tímaritum og gert hefur hann þýðingar á ís- lenzkum Ijóðum á ensku, sem birzt hafa í Icelandic Lyrics, Twentieth Century Scandinavian Poetry og víðar. Þá hefur hann samið urmul af lögum, en aðeins 20 þeirra komið út á prenti. Magnús er giftur listakonunni Barböru Árnason, og eiga þau einn son barna, Vífil að nafni, sem nú stundar nám í Mennta- skólanum. Málverkin, sem sýnd eru nú í sýningarglugga blaðsins, eru öli nýmáluð og til sölu. ,World Splendour' GÍBRALTAR, 22. ágúst. — Til- kynnt hefur verið, að fimm sjómenn hafi farizt, þegar risa- olíuskipið „World Splendour1' sökk fyrir utan Gíbraltar í gær- kvöldi. Þeir, sem komust af voru teknir upp í skip, sem kom til aðstoðar, þegar slysið varð Öryggisráð Bandaríkjanna ræðir atburðina í SýrlandiV, ,, -, ' t œkka i her WASHINGTON, 22. ágúst. — Eisenhower Bandaríkjaforseti ræddi atburðina í Sýrlandi á fundi Öryggisráðs Bandaríkj- anna, sem haldinn var í dag. — Fundurinn var haldinn í Hvíta húsinu fyrir luktum dyrum. í Öryggisráðinu eiga sæti auk forsetans og utan- ríkisráðherrans yfirmenn hers ins. Engin tilkynning var gef- in út að fundinum loknum. Hussein og Feisal i Tyrklandi Hussein Jórdaníukonungur kom í dag til Tyrklands og hyggst ræða við tyrknesku stjórnina um valdarán kommúnista í Sýrlandi. Viðræðufundirnir verða í Mikla- garði. Hussein mun einnig ræða við Feisal Irakskonung um komm únistahættuna í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs, en Feisal er staddur í Miklagarði um þess- ar mundir. Pólverjar biðja um hæli KAUPMANNAHÖFN, 22. ágúst. — Fréttamenn segja, að all- margir Pólverjar, sem eru með pólska skemmtiferðaskipinu Bat- ory, sem nú er í Kaupmanna- höfn, hafí snúið sér til yfirvald- anna og beðið um landvistarleyfi sem pólitískir flóttamenn. Ekki vildi lögreglan gefa upplýsingar um mál þetta fyrr en skipið hef- ur lagt úr höfn. Það fer á mið- nætti í nótt. Síðustu fregnir herma, að 16 manns af skipinu hafi beðið um landvistarleyfi. Fá að fara fil Kína WASHINGTON, 22. ágúst. — Bandaríkjastjórn hefir ákveðið að heimila 24 bandarískum blaða mönnum að fara til lCína. Áður hafði stjórnin neitað þeim um vegabréf til þessarar ferðar. Tals maður stjórnarinnar sagði í kvöld, að ýmislegt hefði breytt afstöðu stjórnarinnar, en minnt- ist ekki sérstaklega á neitt atriði. sinum Sænskir skátar leggjast í inflúensu Karlskróna, 22. ágúst. SENNILEGT þykir, að 5 sænskir skátadrengir, sem sóttu Jamboree í Birmingham í sumar, hafi fengið Asíuinflúensu. Skátarnir hafa verið lagðir inn í sjúkrahús í Karlskrona og samkvæmt frásögnum lækna benda öll einkenni sjúkdómsins til Asíuveiki. Ekki verður þó hægt að ganga úr skugga um það fyrr en eftir rúma viku, því að sérfræðingar verða að rannsaka veirurnar áður. Foreldrar og bróðir eins drengjanna hafa einnig verið lögð inn í sjúkrahús með sömu veiki. Allir hafa sjúklingarnir hita, en að öðru leyti líður þeim bærilega. Sænsk heilbrigðisyfirvöld segja^------------------------- að alls hafi um 70 sænskir skátar, sem sóttu skátamótið í Birming- ham fengið þennan sama sjúk- dóm, en mjög vægan. Þá herma fréttir frá Svíþjóð einnig, að sænskir þátttakendur í æskulýðsmótinu í Moskvu hafi verið lasnir, þegar heim kom og er gert ráð fyrir, að einnig sé um Asíuinflúensu að ræða. Veikin er komin tiI Nígeríu Frá Pretoríu í Suður-Afríku berast þær fregnir, að sendiherra Vestur-Þýzkalands þar í landi, Gustav Strohm, hafi látizt úr hjartaslagi eftir að hann hafði fengið Asíuinflúensu. Veikin fer nú eins og eldur í sinu um landið og er nú einnig komin til Nígeríu. Svo til öll opinber starf- semi liggur þar niðri og verzlanir hafa neyðzt til að loka vegna far- aldursins. I höfuðborginni er nú vitað um 2000 tilfelli. BRIDGEMÓTIÐ ÓSLO, 22. ágúst (NTB). — f dag var spiluð fjórða umferð á Evrópumeistaramótinu í bridge. Austurríki vann Noreg (100:24). Sinasta sveit Norðurlanda sem vann í fjórðu umferð var 'innska sveitin. Finnarnir unnu >jóðverja (105:40). — Austur- íki er nú í fyrsta sæti með 4 inninga, ftalía númer tvö með ,-rjá vinninga. Friður á Kýpur Sir John Harding, landstjóri Breta á Kýpur, skýrði frá því í kvöld, að ekki hefði verið framið neitt pólitískt morð á Kýpur undanfarna 5 mánuði. Ekki hefði heldur komið til neinna átaka á eyjunni, eng- um sprengjum hefði verið kastað á almannafæri og yfir- leitt hefði lífið gengið sinn vanagang þar á eyjunni á þessu tímabili. LUNDÚNUM — Brezka her- málaráðuneytið hefur tilkynnt, að fækkað hafi verið í brezka hernum um 60 þús. manns á tímabilinu 1. júlí 1956 til jafn- lengdar 1957. Nú eru í hernum 702.100 óbreyttir hermenn og liðsforingjar. Landherinn er fjöl- mennastur með um 360 þúsund menn, síðan kemur flugherinn með um 210 þúsund menn og loks eru í flotanum um 110 þús- und sjóliðar og foringjar. Duncan Sandys landvarnaráð herra Breta, sagði í Canberra í fyrradag, að herir Rússa og Kín verja væru svo öflugir, að Vest urveldin mundu mega sín lítils, ef þau gætu ekki treyst á kjarn- orku- og vetnisvopn. Því mundu Bretar leggja áherzlu á að búa her sinn eins vel út af þessum vopnura og unnt væri. Sú stað- reynd, að Bretum hefur tekizt að framleiða öflugar vetnissprengj- ur, hefur minnkað ófriðarhætt- una til muna, sagði ráðherrann. Arás fyrir dóm- stól í Haag WASHINGTON, 22. ágúst. — Bandaríkin hafa í hyggju að leggja fyrir Alþjóðadómstólinn í Haag deilu sína við Ráðstjórn- ina út af bandarískri flugvél, sem Rússar skutu niður fyrir utan Síberíuströnd í september 1954. Flugvélin hrapaði í hafið eftir að hún hafði orðið fyrir árás rússneskrar orrustuflugvél- ar. Áhöfninni var bjargað um borð í bandaríska björgunarvél að undanskildum einum manni, sem fórst. Bandaríkjastjórn hef- ir krafið Rússa um $ 1.3 millj. í skaðabætur. Rússar hafa neit- að að greiða þær og halda því fram, að flugvélin hafi verið innan rússneskrar landhelgi. Bandaríkjamenn fullyrða, að flug vélin hafi verið 35 sjómílur utan landhelginnar. Hefur Kuutly sugt uf sér? BEIRUT, 22. ágúst. — Blað eitt í Líbanon E1 Hayat skýrir frá því að Sýrland sé nú stjórnlaust land, þar sem Kuatly forseti sé enn í Egyptalandi og forseti þings ins, sem gegnt hefir störfum for- seta, dr. Nazem el Kodzi, kominn til Libanons. Kodzi tók við for- setaembættinu á sunnudag, þegar Kuatly flaug til Egyptalands. — Þá segir blaðið einnig, að Kuatly hafi skrifað undir yfirlýsingu þess efnis, að hann hafi látið af embætti, skömmu áður en hann fór til Egyptalands, en hinir Sovétsinnuðu hershöfðingjar landsins hafi lagt við því blátt bann, að yfirlýsingin yrði birt á þessu stigi málsins. Annað blað í Libanon, A1 Siassa, sem er vinstrisinnað, skýrir frá því, að yfirmaður rússnesku ör- yggislögreglunnar, Ivan Serov hershöfðingi, hafi verið í Sýr- landi frá 18. júlí til 5. ágúst og skipulagt valdatöku 5. herdeild- arinnar í Sýrlandi. Blaðið heldur því einnig fram, að Serov hafi farið frá Sýrlandi til Egypta- lands. Athafnir, en ekki orð ACCRA, 22. ágúst. — Lögreglan varð að grípa í taumana gegn ó- aldarlýð sem ætlaði að gera að- súg að Nkrumah forsætisráð- herra, þegar hann kom til þing- hússins í gær. Varð lögreglan að beita kylfum gegn mönnum þess- um. Fyrr um daginn höfðu þeir kastað steinum að þingmönnum, þegar þeir fóru inn í þinghúsið. Stjórnin er nú að koma nýju frumvarpi í gegn um þingið um löggæzlu og átthagafjötra og hef- ir forsætisráðherrann sagt í því sambandi, að nauðsynlegt sé að frumvarp þetta nái fram að ganga, ef unnt á að vera að halda uppi lögum og reglu í landinu, eins og öðrum menningarríkjum. Á kröfuspj öldum sem óspektar menn voru með fyrir framan þinghúsið stóðu vígorð sem þessi: „Við viljum athafnir, en ekki orð“. Sökk á Gibraltarsurdi er mynd ai ohuskipiiiu „World Splendour" setn sö'- k á Gibraltarsundi í fyrrakvöld eftir að í þvi hafði orðið sprenging. Mikill eldur kom upn í skiy’ u og magnaðist hann fljótt. Skipið, sem var eign gríska útgerðarmannsins NGrchos frá'K-'-vms, var nýtt, var ekki afhent eigendunum . . ‘i’ en í sutnar. Það var 40, ... to...:, sntíöúð í Máímey.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.