Morgunblaðið - 23.08.1957, Page 2
2
MORGUNTtT. 4 Ð IÐ
Fostudagur 23. Sgðst 195?
Stjómarblöðin þegja alger-
lega um ástandið í gjaldeyr-
ismálunum
lb\F) vekur athygli að ekkert
af stjórnarblöðunum minnist
í gær einu orði á þær upplýs-
ingar, sem Morgunblaðið birti
í fyrradag um hið geigvæn-
lega ástand í gjaldeyrismál-
unum. Ber þessi þögn vott um
það að Morgunblaðið hefur í
einu og öílu farið rétt með
staðreyndir og er ennfremur
nýtt dæmi þess, að ríkis-
stjórnin og blöð hennar þegja
jafnan um það, sem á ein-
hvern hátt er óþægilegt.
Morgunblaðið upplýsti að í lok
júlímánaðar hafi nettóskuld
bankanna við útlönd verið um
75 milljónir króna á móti , 36
milljónum króna á sama tíma í
fyrra. Aðrar skuldbindingar
bankanna gagnvart útlöndum
munu vera um 5 milljónum kr.
hærri nú en á sama tíma í fyrra
og óinnheimtar kröfur erlendis
eru um 9 millj. kr. lægri en þá.
Að þessu leyti hefur því aðstað-
an versnað um 53 milljónir kr.
miðað við það sem var fyrir ári
síðan. Þegar tekið er tillit til er-
lendrar lántöku, sem fór fram í
lok s.l. árs, og notuð var til að
lækka greiðsluhalla bankanna
við útlönd, þá er þar um að ræða
65 milljónir kr., sem bæta verður
við halla bankanna ef yfirlit á
að fást til samanburðar við það,
sem var í fyrra. Þá er þess að
geta, að útflutningsbirgðir voru
í júlílok um 110 milljón kr. lægri
en á sama tíma í fyrra.
Sést því að þessir 3 liðir bera
með sér, að aðstaðan er tæpum
230 millj. kr. lakari en fyrir ári
síðan, og er þá ekki tekið tillit
til mikils samdráttar á erlendum
vörubirgðum í landinu á sama
tíma.
Stjórnarblöðunum finnst ekki
ástæða til að upplýsa landsfólkið
um, hvernig hag okkar er kom-
ið að þessu leyti, og má þá nærri
geta, að ekki er heldur haft fyrir
því að skýra frá tii hvaða ráða
eigi að grípa tii að bæta úr þess-
um stórkostlega vanda.
í þessu sambandi er rétt að
benda >á að viðskiptamál okkar
eru komin í algert öngþveiti. Má
nefna mörg dæmi í því sambandi,
og eitt af þeim er að fjármála-
ráðherrann leggur nú mesta á-
herzlu á að flutt verði inn nógu
mikið af miður þörfum hátolla-
varningi til þess að fylla soltna
sjóði, en innflutningur þarfari
vara dregst saman.
Eitt af dæmunum um það hvert
stefnir eru viðbrögð Þjóðviljans,
blaðs viðskiptaráðherrans, í for-
ystugrein í gær. Þar segir:
„Viðskipti okkar við Bretland
og Bandaríki» eru einnig slík, að
þau eiga að nægja til að bæta
upp það, sem enn kann að vera
áfátt um vöruframboð í sósíalist-
ísku löndunum."
Samkvæmt þessu eiga viðskipti
Islands og járntjaidslanda að
vera aðalregla en viðskipti við
Bretland og Bandaríkin, sem
lengi hafa verið í röð mestu við-
skiptalanda okkar, eiga aðeins að
vera til vara og sést þá glöggt
hvað verða vill í þessum málum.
Niðurjöfnun ekki endanlega
lokið fyrr en allar kærur
hafa verið afgreiddar
Því ótímabœrt að rœða kœru kommúnistans
A BÆJARSTJÓRNARFUNDI í
gær vakti bæjarfulltrúi kommún-
ista Ingi R. Helgason enn máls á
kæru sinni til félagsmálaráðu-
neytisins um að jafnað hefði ver-
ið niður í Reykjavík útsvörum,
sem væru 7 millj. kr. hærri en
heimilt væri.
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri benti á, að enn væri alls
ekki tímabært að ræða þetta mál,
þar sem Niðurjöfnunarnefnd
teldi sig enn ekki hafa lokið nið-
urjöfnun. Nefndin þyrfti nú að
taka til meðferðar fjölda af út-
svarskærum, og hefði það sýnt
sig á undanförnum árum, að
heildarupphæðin hefði lækkað
verulega í samræmi við kærur.
T. d. væri þar um að ræða kær-
ur manna, sem ekki hefðu talið
fram og væri venja að lagfæra
útsvarsálagningu á þeim, þegar
nánari upplýsingar fengjust.
Annars var mál þetta afgreitt
frá bæjarráði þann 26. júlí s.l.
með svohljóðandi samþykkt:
„Þar sem upplýst er, að niður-
jöfnunarnefnd hefur hagað út-
svarsálagningu að þessu sinni
með sama hætti og að undan-
förnu og öruggt má telja, að með
breytingum og leiðréttingum á
framlagðri útsvarsskrá verði út-
svörin ákveðin innan þeirra
marka, sem lög heimila, vísar
bæjarráð tillögu Inga R. Helga-
sonar frá, enda gæti samþykki
slíkrar tillögu valdið því að áætl-
unarfjárhæð útsvara fengist ekki
innheimt, með vandræðum, sem
af því leiddu.“
Fleiri fulltrúar minnihluta-
flokkanna 1 Bæjarstjórn tóku til
máls í gær, svo sem Þórður
Björnsson, fulltrúi Framsóknar-
flokksins, sem staðfesti m. a. það,
að útsvarskærur heyrðu ekki
undir Félagsmálaráðuneytið, held
ur undir dómstólana, svo að litla
þýðingu hefði að hlaupa með
málið til ráðuneytisins.
Þá talaði Magnús Astmarsson
bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins. —
Hann kvaðst ekki geta tekið þátt
í lögfræðilegum rökræðum um
það, hvort niðurjöfnun útsvara
væri lokið með framlagningu út-
svarsskrár, en benti á það að í
bréfi því, þar sem Félagsmála-
ráðuneytið heimilaði 199 milljón
króna útsvarsálagningu í Reykja-
vík, væri notað orðalagið „að
útsvörin mættu verða“, svo að
vel mætti vera að þetta orðalag
réttlætti að jafnað væri niður
hærri upphæð í byrjun, ef aðeins
lokaupphæð útsvara eftir að
kærur eru teknar til greina færu
ekki fram úr hinni heimiluðu
upphæð.
Alfred Gíslason vildi að niður-
jöfnunarnefnd endurskoðaði nú
þegar öll útsvör í bænum, þannig
að þau lækkuðu um 3,7%.
Að lokum bar Ingi R. Helga-
son fram tillögu um að bæjar-
stjórn fæli niðurjöfnunarnefnd
að endurskoða útsvörin. Tillögu
þessari var frestað þar til fram
kæmi umsögn niðurjöfnunar-
nefndar með 8 atkvæðum gegn 5.
PATREKSFIRÐI, 22. ágúst. —
Patreksfjarðartogararnir Gylfi og
Ólafur Jóhannesson, eru báðir
búnir að landa hér talsverðu fisk-
magni til vinnslu í frystihúsin og
eru nú báðir komnir á veiðar
aftur. — ICarl. i
Loftbelgurinn og alúmínhylkið, sem Simons fór í upp í háloftin.
i'M Mgg M ^ jj ' 0- S'■;
jt íÍKM| 'v
újl *' -í
j. .,íy. 5
Simons var lengur í háloft-
unum en gert var ráð fyrir
Washington, 22. ágúst.
EINS og skýrt hefur verið frá í fréttum, fór bandarískur læknir og
háloftssérfiræðingur, David Simons að nafni, upp í 40 þúsund metra
hæð í sérstaklega gerðri alúmínkúlu, sem fest var við loftbelg. —
Eríndi læknisins var einkum það, að gera athuganir á því, hvernig
mannslíkaminn þolir dvöl í háloftunum. Aldrei hefur neinn maður
farið hærra í loftbelg. Mesta hæð áður var undir 31 þús. metrum.
Aftur á móti hefur flugvél komizt upp í 40 þús. metra hæð.
Þegar Simons skýrði frá því,
að hann væri kominn upp í 40
þús. metra hæð, var hann mjög
hugfanginn af því, sem hann sá:
„Ég hef skyggnzt inn í himin-
inn,“ sagði hann, „og það er ekki
hægt að lýsa því, sem ég sé.“
Hann bætti því við, að honum
liði vel í alúmínhylkinu, sem er
aðeins einn metri á breidd og
tveir á hæð og er fyllt með
heliums- og súrefnisblöndu. —
Ferðir loftbelgsins voru komnar
undir veðrum og var Simons mun
lengur uppi í háloftunum en ráð
var fyrir gert. Hann kom aftur
til jarðar á þriðjudagskvöld. —
Þess má geta, að hann er kvænt-
ur maður, fjögurra barna faðir.
ísland vann Pólland
og Svíþjóð á Evrópu-
meistaramótinu í bridge
t ANNARRI umferð Evrópumeistaramótsins í bridge kepptu Is-
lendingar við Pólverja. ísland vann þá keppni með 55:38. í.þriðju
umferð kepptu íslendingar við Svía og einnig þá keppni unnu þeir
með 66:50. í fjórðu umferð sitja íslendingar hjá.
2. umferð
Úrslit annarrar umferðar urðu
þessi:
fsland — Pólland........ 55:38
Belgía — Spánn.......... 69:59
Danmörk — Þýzkaland .. 76:48
England — Írland ....... 59:38
Austurríki — Lebanon .. 79:30
Noregur — Frakkland . .. 69:40
í þessari umferð gerðu jafn-
tefli Finnland og Holland (51:48).
Sviss og Svíþjóð (59:57). (Það
telst jafntefli ef minna en 6 punkt
ar skilja sveitirnar að).
3. umferð
Úrslit þriðju umferðar urðu
þessi:
ísland — Svíþjóð........ 66:50
Noregur — Sviss......... 63:26
Frakkland — Lebanon .. 67:42
Austurríki — írland .... 74:43
Holland — Danmörk .... 42:36
Þýzkaland -— Spánn .... 66:56
Ítalía — Belgía......... 66:59
Jafntefli gerðu England og
Finnland (52:52). — Vilhjálmur.
★
úr frá því sem upphaflega var
sagt.
50.000 mál til
bræðslu eystra
SEYÐISFIRÐI, 22. ágúst. — Þá
er síldarbræðslu lokið hér á Seyð
isfirði. Verksmiðjan fékk sem
kunnugt er allmikið af síld síðari
hluta vertíðarinnar og sagði for-
stjórinn mér í dag að alls hefði
verið unnið úr 50.000 málum. Hér
var líka nokkurt magn saltað og
munu uppsaltaðar tunnur vera
í um 7000. — B.
— G.E.
Akranesbátar með
240 tunnur síldar
REKNETJABÁTARNIR komu í
dag með alls um 240 tunnur síld-
ar. Aflahæstur var Böðvar með
88 tunnur, Skipaskagi 45, Ás-
Þátttökuþjóðirnar í þessari Ev-
rópukeppni eru 17, en ekki 18, mundur með 40 og aðrir með nið
eins og sagt var í blaðinu í gær. ur í 33 tunnur. Síldin er jöfnum
Það eru Egyptar sem fallið hafa, höndum söltuð og fryst. — Oddur
Þrumuveður
yfir Reykjavík
LAUST fyrir klukkan 5 í gær
skall á mikið þrumuveður hér
yfir Reykjavík. Á suðurloftinu
voru grásvört þrumuský og sáust
þar mikil leiftur. Logn hafði
verið, en um leið og þrumuveðrið
skall á, það stóð aðeins skamma
stund, snarhvessti. Að svo sem
þrem mínútum liðnum skall á
stórfelld rigning, ósvikið skýfall,
svo göturnar hér í Miðbænum
tæmdust að mestu af fólki, sem
leitaði þegar skjóls 1 anddyri
verzlunarhúsa, Pósthúsinu og
víðar. Rigningin stóð aðeins yfir
í nokkrar mínútur.
Reknetjasíld norðan-
lands 12 þús. tunnur
SIGLUFIRÐI, 22. ág. — Allgóð
veiði var í gær í reknet og voru
saltaðar hér 1402 tunnur. Alls
var búið að salta af reknetjasíld
hér norðanlands í gær 12,470
tunnur. Hæstu söltunarstaðir
reknetjasíldar eru: Siglufjörður
5186 tunnur, Skagaströnd 4021
tunna, Djúpavik 1691 tunna,
Ólafsfjörður 742 tunnur og Hólma
vík 264 tunnur.
í dag var tregari veiði, logn
var og dreif illa. — Guðjón
Söltunarhæf síld hér
í Flóanum
HAFNARFIRÐI. — Nú eru allir
snurpubátarnir komnir að norð-
an nema Fagriklettur og Fróða-
klettur, en sá fyrrnefndi varð
fyrir bilun út af Patreksfirði,
þegar hann var á leið heim, og
kom Fróðaklettur honum til að-
stoðar. — Hafnfirðingur og
Fiskaklettur eru á reknetjum fyr
ir norðan og hafa aflað sæmi-
lega. — Þrír bátar, Reykjanes,
Guðbjörg og örn Arnarson, eru
byrjaðir reknetjaveiðar hér J
Bugtinni. Komu tveir þeirra inn
í gær, annar með 70 tunnur en
hinn 50 af stórri og feitri síld,
sem var söltuð. Virðist síldin nú
vera komin hér inn í Flóann og
vera orðin vel söltunarhæf.
Togararnir hafa verið á karfa-
veiðum undanfarið og aflað vel.
Kom Ágúst í sl. viku með full-
fermi, Júní var hér í byrjun vik-
unnar og Bjarni riddari í gær.
Að öllum líkindum munu flestir
’nafnfirzku togaranna veiða fyrir
Þýzkalands-markað á næstunni.
Hinn ii/i sendihena Sviss á
fslandi, Seifert, afhenti forseta
fslands embættisskilriki sín i
fyrradag og var mynd þessi
tekin viS þaS tækifæri af for-
setanum og sendiherranum.
Sendiherrann hefur aðsetur í
Osló.