Morgunblaðið - 23.08.1957, Síða 9

Morgunblaðið - 23.08.1957, Síða 9
Föstudagur 23. Sgúst 1957 MORCVNBl4Ð1Ð 9 Krishnamurfi: Maðurinn er iagði niður guðdóminn ÁRXN eftir fyrri heimsstyrjöldi voru blómaskeið alls konar trú- arvingls og „andlegra vakninga". Styrjöldin hafði svipt menn barnalegri bjartsýninni á fram- tíðina og sýnt manninn í sinni réttu mynd: villidýr gætt tals- verðri skynsemi. Mörgum fór svo, að þeir gátu ekki horfzt í augu við sína sönnu mynd og leit- uðu á vit andlegra leiðtoga til að fá huggun og ef hægt væri staðfesting þess, að maðurinn væri æðri vera, sem hefði vits- muni og fagrar hugsjónir í há- vegum. Síðari heimstyrjöld átti eftir að leggja trú þessara manna í rúst. Einn þeirra manna, sem komu fram með nýjan boðskap upp úr fyrri heimsstyrjöld, var Indverj- inn Krishnamurti. Hann var þá ungur, forkunnarfríður og brenn- andi í áhuganum á að bæta mann kynið. Hann hafði mikið töfra- magn í persónuleika sínum, og menn flykktust um hann, hvar sem hann fór — og hann fór víða. Hann ferðaðist um mestall- an heiminn, prédikaði og hugg- aði. Milljónir manna trúðu því, að hann væri Kristur endur- holdgaður, og tilbáðu hann. Hann hafði fært þeim tilgang og lífs- stefnu. Blöðin skrifuðu mikið um hann, því hann var jú tízku- fyrirbæri, og blöðin fylgja tízk- unni. Það voru víst fáir, sem vissu, að Krishnamurti var ekki líkt því jafnöruggur um hlutverk sitt og áhangendur hans. Hann tók að efast um réttmæti þess að láta tilbiðja sig þannig. Og einn góðan veðurdag gerði hann upp sakirnar við sjálfan sig og um- heiminn, hætti heimsflakki sínu og settist að í litla bænum Carm- el í Kaliforníu. Áhangendur hans gleymdu honum brátt: hann var ekki lengur hinn útvaldi, sem flutti milljónum lausnina á lífs- gátunni. En lífsskoðun hans lifir enn með mörgum þeim, sem sáu hann í réttu ljósi án skínandi klæða spámannsins. Krishna- murti hefur ekki setzt í helgan stein; hann boðar enn skoðanir sínar, ekki sem yfirburðavera, heldur sem maður. Brahmin-ættar Krishnamurti er einn þeirra fáu „spámanna“, sem þolir það, að á hann sé litið í mannlegu ljósi — án hins spámannlega helgiljóma. Hann var ekki lodd- ari, heldur einlægur andans mað- ur, eins og þeir gerast beztir í Indlandi. Hann fæddist 25. maí 1896 í Suður-Indlandi, var átt- unda barn foreldra sinna, sem voru úr æðstu „stétt“ Indverja, brahmin-stéttinni. Ættarnafnið Jiddu, sem er sett fyrir framan skírnarnafnið samkvæmt ind- verskri venju, er dregið af nafni þorpsins, þar sem fjölskyldan bjó. Nafnið Krishnamurti þýðir hins vegar „sá sem er vígður Shri Krishna", en Shri Krishna er einn af helztu guðum brahmin- stéttarinnar. „Ný holtekja Krists“ Krishnamurti missti móður sína meðan hann var á barnsaldri, og hafði það óbein áhrif á alla framtíð hans, því faðir hans, sem var sannfærður guðspekingur, fluttist eftir dauða konu sinnar til aðalstöðva Guðspekifélagsins við Adyar-fljótið nálægt Madras. Þar var drengurinn Krishna- murti „uppgötvaður" af brezku kvenréttindakonunni og rithöf- undinum Annie Besant, sem var formaður Guðspekifélagsins. Hún og nánasti samstarfsmaður henn- ar, Charles Leadbeater, fengu föður drengsins til að fela hann og yngri bróður hans í umsjá þeirra. Hún kvaðst hafa fengið vissu fyrir því, að Krishnamurti ætti fyrir höndum mjög óvenju- legt lífshlutverk. Hún og Lead- beater hefðu fengið opinberun og séð „æðsta leiðtoga jarðneskrar þróunar“, og svo hafði Leadbeat- er staðið augliti til auglitis við sjálfan Logos (persónugerða al- vizkuna). „Leadbeater er heil- agur maður á leið til guðdóm- leikans", skrifaði Annie Besant einu sinni um hann. Hins vegar vekur það óþægilegar efasemd- ir, þegar maður kemst að því, að þessi sami maður var ákærður fyrir tilraunir til saurlífis við nokkra unga drengi, sem honum hafði verið trúað fyrir, og með- al þessara drengja var Krishna- murti. Þrátt fyrir það fengu Annie Besant og Leadbeater op- inberun nokkrum árum síðar, þar sem þau sáu „mestu úthelling heilags anda síðan hvítasunnu- undrið gerðist", og héldu þau því blákalt fram, að þau hefðu „með l opinberunum mahatmanna (and i anna miklu) og með skyggnum j rannsóknum á drengnum Krishna ] murti, sem hafði þá ekki enn j náð 16 ára aldri, sannfærzt um I það, að líkami drengsins mundi verða aðsetur nýrrar holdtekju Krists". „Stjarnan í austri“ En nú fannst föður drengsins nóg komið. Við hin frægu Alcy- one-réttarhöld, sem vöktu mikið hneyksli, mótmælti hann því, að í sonur hans, Krishnamurti, væri i tilbeðinn sem guðleg vera. í í þessum réttarhöldum var Lead- ; beater dæmdur óhæfur til að i ieiðbeina ungum mönnum. En Annie Besant lét ekki hugfallast. Eftir hneykslið og óróann, sem Leadbeater hafði valdið, var (henni nauðsynlegt að styrkja að- stöðu hans innan guðspekihreyf- ingarinnar með einhverju móti. Og í þessu sambandi voru opin- beranir öruggasta leiðin. Annie Besant ferðaðist til London og flutti þar fjölmarga fyrirlestra, þar sem hún bjó menn undir Krishnamurti á leiðinni til New York fyrir rúmum 30 árum, þegar hann var enn hinn nýi Messías, sem ferðaðist land úr landi. „Andleg móðir“ Krishnamurtis, brezka kvenréttindakonan Annie Besant, þegar hún lagði hornsteininn að hinum nýju aðalstöðvum Guðspekisamtakanna á sínum tíma. komu hins nýja Messíasar. Einn viðburður rak annan. Mynduð var ný guðspekileg heimsregla, „Stjarnan í austri“, og þrátt fyrir mótþróa föðursins var drengur- inn Krishnamurti gerður að leið- toga hennar. Heimsflakk — sumarbúðir „Stjarnan í austri" hafði aðal- stöðvar sínar í Ojaj í Kaliforníu, en Krishnamurti var sendur til Evrópu til að kynna sér vestræna menningu. í fyrri heimsstyrjöld tók hann virkan þátt í starfi Rauða krossins bæði í París og London. Skömmu eftir að friður hafði verið saminn, ákvað Annie Besant, að tími væri til þess kominn að senda skjólstæðing- inn út um heim með hinn nýja boðskap. Næstu árin fór Krishna murti land úr landi og talaði fyrir fullum samkomusölum, hvar sem hann kom. Meðal margra verkefna hans var það að stjórna hinum stóru „stjörnubúð- um“, en það voru geysifjölmenn þing guðspekinga, sem haldin voru á hverju sumri í nokkur ár í Ommen í Hollandi. Til þessa litla bæjar gengu þúsundir af áhangendum Krishnamurtis sín- ar pílagrímsgöngur ár eftir ár til að heyra hann tala við bálin í þessum stóru sumarbúðum. Sagt er, að alls konar fáránlegir atburðir hafi gerzt þarna undir berum himni, þar sem þúsundir eldheitra trúmanna biðu þess, að nýir tímar rynnu upp, eins og „Stjarnan í austri“ hafði boðað. Ný öld á íslandi fsland fór ekki varhluta af þessum andlegu hræringum. Hér á landi var líka „Stjarnan í austri“, og menn töluðu um nýja öld •— öld guðspekinnar. Aðal- björg Sigurðardóttir mun hafa verið helzti leiðtogi hreyfingar- innar hér, en þetta barst inn í prestastéttina engu síður en ófögn uður spíritismans og liggur víst í landi ennþá. Líklega var það um þetta sama leyti, sem sann- trúaðir marxistar eins og Þór- bergur og séðar aurasálir eins og Sigurður Jónasson gerðust and- lega þenkjandi, tóku að nema austræn fræði, yoga og dulspeki. og hrærðu þessu öllu í einn hressi legan graut. Allir þráðu hina nýju öld. Hinn útvaldi þreyttist En hún rann ekki upp. Hins vegar þreyttist Krishnamurti á þessum skollaleik, og árið 1929 hélt hann minnisstæða ræðu á einu mótinu í Ommen, þar sem hann lýsti því yfir umbúðalaust, að Stjörnureglan væri úr sög- unni og hann segði sig úr lög- um við áhangendur sína. Hann hafði þá verið leiðtogi reglunn- ar tæp tíu ár, en verið „útval- inn“ frá því hann var.tæpra 16 ára. Vildi þurrka út „ég“-villuna Boðskapur Krishnamurtis þessi tíu ár áður en hann sagði skil- ið við „andlega móður sína“, Annie Besant, var ekki bein- línis nýr af nálinni, en hann virðist hafa verið fluttur af því- líkum sannfæringarkrafti og mannskilningi, að menn vökn- uðu til nýrrar meðvitundar um sannindi, sem þeir höfðu raunar alltaf haft grun um. í rauninni prédikaði Krishnamurti ekki ann að en hinn forna boðskap Ind- verja, að guð sé sjálft lífið og birtist í öllu, sem til er á jarð- ríki. Til að gera þennan sann- leik að veruleik, verðum við að losna undan „ég“-þrælkuninni, þeirri tilfinningu að einstakling- urinn sé heimur út af fyrir stg, sem hafi ekki annað hlutverk en að sinna eigin áhugamálum, þeirri firru að líf okkar hvers og eins sé svo mikilvægt, að v>ð verðum að halda því áfram hand arx grafarinnar sem einstaklingar. Það er þessi skbrangur á mann lífinu, sem leiðir af sér styrj- aldir og alls ko>iai böl. Ef við hins vegar lítum á lífið og allt lifandi sem eina mikla heild, sem hefur verið frá upphafi vega og heldur áfram að vera, þá týna dauðinn, græðgin og metorða- girndin merkingu sinni, því þá hverfur allt öryggisleysi. En til að ná þessu marki verðum við að gera hreint fyrir okkar dyr- um, segir Krishnamurti, losna undan öllu: lærdómum, kennisetn ingum, helgisiðum, kirkjum, guð fræði, heimspekiskóium, hug- Praxnh. a bls 15.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.