Morgunblaðið - 23.08.1957, Qupperneq 15
FBstudagur 23. ágúst 1957
MORGVTUIL 4 ÐIÐ
15
— Krishnamurti
Framh. af bls. 9
sjónum o. s. frv. í stað þessa
eigum við að efla efann. Þegar
við höfum gert út af við — sjálfs-
hyggjuna, getum við fyrst farið
að lifa í líðandi augnabliki, því
þá er eilífðin í augnablikinu.
Enga Ieiðtoga
Það voru að sjálfsögðu þessar
kenningar, sem knúðu Krishna-
murti til að leýsa upp „Stjörn-
una í austri“ 1929. Við það tseki-
færi sagði hann m.a.: „Þetta er
í engum skilningi aðdáunarverð
athöfn, því ég vil ekki eiga á-
hangendur. Ég tala .í fullri al-
vöru. Á þvi augnabliki, sem við
förum að fylgja leiðtoga, hætt-
um við að fylgja sannleikan-
um . . .“
Viðvörun
Það voru mikil vonbrigði fyrir
guðspekinga um víða veröld, þeg-
ar Krishnamurti lagði niður
Messíasar-tign sína, en það var
jafnframt viðvörun til trúar-
legra ofstækismanna um að
fara varlega í sakirnar við út-
nefningar Messíasa. En fyrir
Krishnamurti var það lausn úr
álögum. Hann hafði fundið sjálf-
an sig. Efalaust átti það sinn
stóra þátt í fráhvarfi hans, að
hann hafði á ferðum sínum um
heiminn hitt marga af mestu and
ans mönnum samtíðarinnar, lista
menn og hugsuði, og hafði rætt
við þá um lífið og kenningar
•inar.
Samtal við Stokowski
Eitt sinn hitti hann hinn fræga
hljómsveitastjóra Leopold Stoko-
wski, og þeir ræddu um vanda-
mál listarinnar og listamannsins.
Samtöl þeirra voru hraðrituð,
og hér er kafli úr einu þeirra:
Stokowski: „Ég hef alltaf haft
þá skoðun, að listaverk ættu ekki
að bera nafn höfundar síns. Ég
spyr sjálfan mig: Er Ijóð eða leik-
rit eða málverk eða hljómkviða
raunverulega tjáning mannsins,
sem samdi það, eða er hann tæk-
ið, sem hinn skapandi kraftur
streymir um? Kemur það nokk-
urn tíma fyrir, að yðar eigin
verk komi yður ókunnuglega fyr-
ir sjónir?"
Krishnamurti: „Já, það er á-
reiðanlegt“.
Stokowski: „Það kemur fyrir
mig. Ég vakna morguninn eftir
og segi: Samdi ég þetta raun-
verulega? Það minnir alls ekki
á mig“.
Krishnamurti: „Það er þetta
sem ég kalla innblástur: þegar
hugboðið, sem er æðsta stig vits-
munanna, blómstrar allt í einu
og ber ávöxt. Þetta er í mínum
augum þungamiðjan. Ef við kapp
kostum að halda huga, tilfinn-
ingum og líkama í jafnvægi,
hreinum og öflugum, þá mun
þetta æðsta stig vitsmunanna,
þegar hugboðið tekur til starfa“.
Stokowski: „ . . . alltaf vera
vakandi . . .“
Krishnamurti: „ . . . og full-
komiega meðvitað“.
Stokowski: „Og getum við lif-
að á þessu?“
Krishnamurti: „Auðvitað. Það
er einasta leiðarljós okkar. Tök-
um til dæmis ljóðaskáld, leik-
skáld, tónskáld, alla listamenn:
þeir ættu aldrei að skrifa undir
nafni, þeir ættu að vera frjáls-
ir undan öllu, sem þeir hafa
skapað Ég álít, að þetta séu hin
æðstu sannindi: að vera til, að
gefa og vera frjáls undan því,
sem maður gefur. Þér skiljið
hvað ég á við. — En flestir
listamenn vilja hafa nafn sitt á
málverkinu; þeir þrá aðdáun.
Þeir vilja gráður og titla“.
Sinnaskipti
Krishnamurti býr í Carmel, en
hann er stöðugt á ferðalögum um
Norður- og Suður-Ameríku,
Ástralíu og Asíu. Hann á enn
marga aðdáendur og áhangend-
ur meðal guðspekinga, en hann
neitar að mynda söfnuð eða sam-
tök. Hann lifir óbrotnu lífi, á
aðeins tvenn föt, nokkrar bækur
og aðra smáhluti, en enga pen-
inga. Hann er óhræddur við að
glíma við vandamálin, jafnvel
hin flóknu pólitísku vandamál
samtímans. Hann leggur eins og
alltaf höfuðáherzluna á hugarfar
hvers manns, hið innra líf: Ringl
aðir menn skapa rugluð þjóðfé-
lög; styrjaldir eru aðeins stækk-
uð mynd af daglegu lífi okkar.
Við verðum að taka sinnaskipt-
um.
Einn af mörgum vegvísum
Með öðrum orðum: Krishna-
murti er einn hinna mörgu veg-
vísa mannkynsins, sem benda
hverjum einstaklingi á mikilvægi
þess að rækta sinn innri mann.
Kristur sagði hið sama fyrir
2000 árum, Gandhi sagði það
fyrir 50 árum, Schweitzer er enn
að segja það. En það er eins og
það verði aldrei of oft sagt:
a. m. k. hafa fæst okkar skilið
boðskap þessara sjáenda.
s-a-m.
Albert fagnað
á Dalvik
DALVÍK, 22. ágúst. — 1 dag kl.
2,30 lagði hið nýja björgunar-
og strandvarnaskip Albert að
bryggju hér á Dalvík. Var við-
búnaður af hálfu Slysavarnar-
deildanna að fagna skipinu og
áhöfn þess. Skip í höfninni drógu
fána upp og einnig var hafnar-
garðurinn fánum skreyttur. Á
flestum húsum blakti íslenzki
fáninn.
Við komu skipsins fluttu eftir-
taldir menn ræður: Egill Júlíus-
son formaður Slysavarnafélags
Svarfdæla, Valdimar Óskarsson
sveitarstjóri, en þeir færðu öll-
um, sem unnið hafa að smiði
skipsins beztu þakkir, þó einkum
forustumönnum slysavarna og
ríkisstjórn. Árnuðu þeir skipi og
skipshöfn heilla og blessunar, nú
og í framtíðinni.
Þá fluttu þeir stutt ávörp af
skipsfjöl, Pétur Sigurðsson, for-
stjóri Landhelgisgæzlunnar og
Guðbj artur Ólaf sson, forseti
Slysavarnafélags íslands.
Lúðrasveit frá Akureyri lék
milli ræðuhaldanna undir stjórn
Jakobs Tryggvasonar.
Að lokum var almenningi gef-
inn kostur að skoða skipið og
kom öllum saaian um að Albert
væri hinn glæsilegasti farkostur
og íslenzkum iðnaði góður vitnis-
burður. — Sipjó.
Hressingar heiinilið SILKEBORG BAD
Nú er rétti tíminn til hvíldar og
hressingar fyrir veturinn.
Silkeborg líad — er á einum
fegursta stað Danmerkur —
langt frá hávaða umferðarinnar
— býður yður öll skilyrði.
Allar nýtízku aðgerðir í hjarta-, gigtar- og efnabreytingar-
sjúkdómum, ásamt sjúkrafæði — Stór garður — Uppihald
einnig án sjúkraaðgerða — Opið til 1. okt.
Fæðisverð: kr. 25—46 (herb. f. tvo 22—43).
Uppl. Silkeborg Bad, Silkeborg, sími 1013,
eða Nytorv 3, Köbenhavn K, simi C. 13.026.
Yfirlæknir: ARNE PORTMAN.
Þakkarorð
UNDANFARIN þrjú ár hefur
Rotaryklúbbur Akraness boðið
öldruðu fólki á Akranesi til
skemmtiferðar um héruð Borgar-
fjarðar en AkraneskaupStaður
séð um veitingar. Einstakir Rot-
aryfélagar hafa lánað bíla sína
og oftast ekið sjálfir.
Fimmtudaginn 21. ágúst sl. vor
um við enn boðin í slíka för. í
einmuna blíðu var ekið af stað
frá Akranesi í 11 bílum. Leiðin
lá um Borgarfjörð að Bifröst, þar
var snæddur ágætur hádegis-
verður í boði bæjarins. Síðan var
ekið um Reykholtsdal og niður
Bæjarsveit, um Geldingadraga
að Ferstiklu. Þar var drukkið
síðdegiskaffi. Því næst var skoð-
uð hin fagra Hallgrímskirkja í
Saurbæ. Prófasturinn, sr. Sigur-
jón Guðjónsson sagði frá gjöfum
til kirkjunnar og útskýrði dýr-
mæta gripi hennar. Að lokum
var sugninn sálmurinn Víst ertu
Jesús kóngur klár. Veðrið var dá-
samlegt og sveitin heillandi fög
ur. En hugulsemi og umhyggja
Rotaryfélaga í okkar garð ásamt
rausn og fórnfýsi bæjarfélagsins
tók þó öllu fram. Við flytjum því
þessum aðilum hjartans þakkir
og biðjum þeim velfarnaðar í
bráð og lengd. Guð blessi störf
þeirra. Dagurinn verður okkur
ógleymanlegur.
Aldraða fólkið
EGGEKT CLAESSEN og
GÚSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmenn.
Þórshamri við Templarasund.
Símavarxla
Stúlkur óskast nú þegar til að gegna símavörzlu
hjá félaginu. — Umsóknir er greini aldur, mennt-
un og fyrri störf skulu sendar skrifstofu félagsins
eigi síðar en 26. þ. m.
Fyrirspurnum verður ekki svarað í síma.
^lucj^élacf ^Qólandó kf.
Framreiðslustúlka
Ó S K A S T
Hressingarskálinn
Packard '49
model í mjög góðu lagi.
Keyrður aðeins 47 þúsund km.
Til sölu og sýnis í dag og næstu daga
Barbinn hf. Skúlagötu 40
Magnús Thorlacius
hæstaréltarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 9. — Sími 11875.
&
SMPAUTGCRB RIKISINS
SKJALDBREIÐ
vestur um land til Akureyrar,
hinn 28. þ.m. — Tekið á móti
flutningi til Tálknafjarðar, Súg-
andafjarðar, Húnaflóa, Skaga-
fjarðarhafna, Ólafsfjarðar og Dal
víkur, í dag. Farseðlar seldir á
þriðjudag.
BALDUR
fer til Gilsfjarðar- og Hvamms-
fjarðarhafna, á mánudag. Tekið
á móti flutningi í dag.
Félagslíf
Knattspyrnufélagið Valur
minnir Noregsfara sína í II. fl.
Og Norðurlandsfarana í III. fl., á
fundinn í félagsheimilinu að Hlíð
arenda í kvöld kl. 8,30. — Kaffi-
drykkja, frásagnir af ferðunum og
skuggamyndasýnit.g. — Fjölsækið
stundvíslega. — Stjómin.
Haustmót 2. fl.
föstudaginn 23. ágúst, á H..-
skólavellinum kl. 19,30. Þróttur—
K.R. — Mótanefndin.
Farfuglar -- Ferðamenn
Farið verðv.r í Þórisdal um helg
ina. Uppl. í skriist. félagsins að
Lindarg. 50 í kvöld kl. 8,30 til
10,00. —
Ármenningar
Sjálfboðavinna um helgina. —
Farið verður fi'á Iþróttahúsinu
kl. 3 á laugardag. Gunnlaugur
ætlar að lýsa dalinn. Mætið nú öll.
Skí vadeild Ármanns.
Hagavatnsferð
Laugardaginn 24. ágúst. Ekið
að Hagavatni. Sunnudag gengil
á Langjökul og ekið til Reykja-
VÍkur. — Ferðaskrifstofa Páls
Arasonar, Hafnarstræti 8. —
Sími 17641.
Vinna
Hreingerningar — gluggalireinsun '
Sími 1-78-97. — Þórður & Geir. *
Eiginkona mín og móðir okkar
GUÐNÝ GUNNARSDÓTTIR,
Höfðaborg 46,
andaðist 21. þ. m.
Guðjón Jónsson
og börn.
Móðir mín
INGIBJÖRG BACHMANN JÓNSDÓTTIR
andaðist aðfaranótt 22. þ. m. í Bæjarsjúkrahúsinu.
Karl Sigurðsson.
Alúðar þakkir færum vér öllum þeim fjölmörgu, fjær
og nær, er á einn eða annan hátt sýndu oss samúð við
andlát og jarðarför konu minnar, móður og tengdamóður.
GUNNLAUGAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
Jóhannes Jónasson,
Kristín Mikaelsdóttir, Kristján Mikaelsson,
Guðmundur Mikaelsson, Mikael Jóhannesson,
Hrönn Björnsdóttir, Inga Sigurðardóttir,
Ragnar Sigurðsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför sonar og bróður okkar
GEIRS MARINÓS VESTMANN
Guðríður og Daníel Vesttnann,
Lilja Vestmann.