Morgunblaðið - 23.08.1957, Side 16

Morgunblaðið - 23.08.1957, Side 16
188. tbl. — Föstudagur 23. ágúst 1957, 2-24-80 2-24-80 Inni við Höfðaborg, við svokallaða Fúlutjörn, er nú farið að streyma úr borholu 87 stiga heitt vatn. Er það árangur borananna, sem hófust þar í janúarmánuði síðastl. I fyrradag kom borinn loks niður á heitt vatn. Var dýpi holunnar þá orðið 283 metrar. Vatnsmagnið reyndist vera 3 sek.-lítrar. Borunin hefur gengið vel eftir aðstæðum, en hún er seinunnin á blágrýtisjarðlag- Tvö héraðsmót Sjálf- stœðismanna um helgina á Patreksfirði og að Ölver UM NÆSTU helgi efnir Sjálfstæðisflokkurinn enn til tveggja hér- aðsmóta. í þetta sinn er um að ræða héraðsmót í Borgarfjarðar- sýslu og Barðastrandarsýslu. Patreksfjörður Mótið í Barðastrandarsýslu verður haldið á Patreksfirði, sunnudaginn 25. ágúst og hefst kl. 4 síðdegis. Ræður á mótinu flytja þeir Friðjón Þórðarson, alþingismað- ur, Birgir Kjaran, hagfræðingur, og Ari Kristinsson, sýslumaður. Fluttur verður gamansöngleik- urinn „Ást og andstreymi" eftir Offenbach. Leikendur og söngv- arar eru óperusöngvararnir Guð- munda Elíasdóttir, Guðmundur Jónsson og Þuríður Pálsdóttir, en undirleikari er Fritz Weisshappel. Hljómsveit leikur fyrir dansi bæði á laugardags- og sunnudags- kvöld. ölver Mótið í Borgarfirði verður að venju að ölver, hinum fagra sumarskemmtistað Sjálfstæðis- félaganna í Borgarfirði. Hefst mótið kl. 4 síðdegis, sunnudaginn 25. ógúst. Ræður og ávörp flytja þeir Pétur Ottesen, alþingismaður, Sigurður Helgason, lögfræðingur, og Jósep Þorgeirsson, stúdent. Leikararnir Hjálmar Gíslason, Steinunn Bjarnadóttir, Sigríður Hannesdóttir og Haraldur Adolfs son, skemmta með gamanvísum og leikþætti. Dansleikir verða bæði á laugardagskvöld og sunnudags- kvöld. Hljómsveit leikur. Enginn vnr sngðnr veikur n rússneskn skipinn er þnð kom inu, sem þarna er undir. Myndin er tekin við borholuna í gærdag. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M. Friðarmótsfarar tóku veikina í Moskvu Búizt var við alvarlegum átökum i nótt við Efra-Sog 100 Þrótfarmenn á leiðinni austur Hugðust ryðjast gegnum vegartálmanir í NÓTT þegar blaðið fór í prentun, höfðu því borizt fregnir austan trá Efra-Sogi, sem bentu til þess að til stórra tíðinda og alvarlegra átaka myndi draga í deilunni milli vörubílstjórafélaganna Þróttar . Reykjavík og Mjölnis á Selfossi. 13 vörubílar frá Þrótti voru þá stöðvaðir við brúna á Efra-Sogi með vegartálmun Mjölnismanna. En eitthvað um 100 Þróttarmenn voru á leiðinni austur í náttmyrkrinu ákveðnir í því að ryðja veg- inn og flytja bílhlössin á ákvörðunarstað. hafast neitt hé halda uppi lögum og reglu á þjóðvegunum. — Þeir hefðu einnig kært þessa alvar- legu vegartálmun fyrir dóms- málaráðuneytinu, en það virtist heldur ekki hafa neinn áhuga á að viðhalda lögum og reglu. Því ættu Þróttarmenn einskis annars úrkosti en að reyna sjálfir að vernda rétt sinn gagnvart ólög- mætum árásum. Fréttaritari Mbl. sem staddur var austur við Efra-Sog um mið- nætti í nótt skýrði svo frá, að á vegarspottanum fró þjóðveginum að hinni nýju brú á Efra-Sogi stæðu 13 vörubílar frá Reykja- vík, hlaðnir flutningi til virkjun- arframkvæmda. — Bílar þessir voru þá mannlausir. En þar voru þá fyrir 20 Mjöln- isbílar og lokuðu þeir veginum tveir og tveir saman. Þar að auki höfðu Mjölnismenn lagt 9 tonna jarðýtu á miðja brúna. Þá voru staddir þarna um 30 vörubíl- stjórar af Selfossi og kvað Björg- vin Sigurðsson ritari vörubíl- stjórafélagsins Mjölnis liðsauka vera á leiðinni frá Selfossi. Björgvin skýrði frá því á mið- iætti að hann byggist við að fjöl- mennur flokkur vörubílstjóra úr Reykjavík myndi koma austur eftir hálftíma til klukkutíma. — Myndu þeir ætla að brjótast í gegnum vegartálmanirnar með valdi, en þeim yrði ekki kápan úr því klæðinu. Mjölnismenn hefðu búið svo sterklega um sig, að heita mætti óvinnandi virki. Björgvin skýrði frá því að Skákin í Hafnar- firði FJÓRÐA umferð skákmótsins í Hafnarfirði var tefld í gær. Úr- slit urðu þau að Jón Kristjóns- son vann Jón Pálsson, Ingi R. Jóhannsson vann Stig Herlufsen, en hinum skákunum varð ekki lokið. Mjölnismenn hefðu gert Þróttar- mönnum það boð að félögin skiptu flutningum til Efra-Sogs milli sín að hálfu. Þetta hefðu Þróttarmenn ekki viljað. Fyrir nokkrum dögum hefðu Mjölnis- menn vísað málinu til stjórnar Alþýðusambandsins, sem enga ákvörðun hefði viljað taka í mál- inu og þá hefðu þeir nú síðast óskað þess að þing Landssam- bands vörubílstjóra yrði kallað saman til að skera úr þessari alvarlegu deiiu, en óvíst væri hvort nokkuð yrði úr því. Hefur undanfarið borið á at- vinnuleysi meðal vörubílstjóra á Selfossi. ★ Fréttamenn Mbl. í Reykjavík urðu einrug varir við það í nótt að miklir hópar vörubílstjóra voru að leggja af stað úr bænum austur að Efra-Sogi. Munu þeir hafa verið saman komnit yfir 100 og kváðust þeir ákveðnir í að ryðja sér leið í gegnum allar vegartálmanir. Töldu Þróttar- menn aðgerðir Mjölnismanna al- gera lögleysu. Þeir stæðu í verk- falli við verktakana við Efra- Sog, en það verkfall kæmi Þrótt- armönnum ekkert við. Hér væri því ekki um neina deilu að ræða milli Þróttar og Mjölnis. — Þróttur væri enn þrátt fyrir verkfall Mjölnismanna skuldbundinn með samningum að skila vörunni á ákvörðunar- stað. Þróttarmenn kváðust hafa kært atferli Mjölnismanna fyrir sýslumanni á Seifossi, en hann hefði ekki treyst sér til að að- Siðustu fréttir Um kl. 1 í nótt barst Mbl. hraðskeyti frá Efra-Sogi, þar sem greint var frá því að hátt á annað hundrað Þróttar- menn væru komnir þangað austur með stóran kranabíl og væru þeir búnir að ryðja öllum vörubílum Mjölnis- manna út af veginum. Þrótt- armenn voru komnir að brúnni, þar sem hin þunga jarðýta teppti leiðina. Óvíst var talið að þeir myndu einn- ig sigra þann farartálma. Mjölnismenn höfðu enn ekki veitt neina mótspyrnu, þegar síðast fréttist, heldur stóðu aðgerðarlausir hjá, enda höfðu Þróttarmenn ofurefli liðs. PATREKSFIRÐI, 22. ágúst. — Nýlega voru hér á ferð tveir full- trúar frá Landssambandi ís- lenzkra útvegsmanna. Yoru þeir að endurreisa LÍÚ hér Var nú Bogi Þórðarson kosinn formaður og meðstjórnendur Albert Guð- mundsson og Kristinn Jónsson. Fulltrúarnir héldu síðan ferð sinni áfram í önnur kauptún á Vestfjörðum allt til ísafjarðar í sömu erindagjörðum. — Karl. ÞEGAR borgarlæknir dr. Jón Sigurðsson og aðstoðarlæknir hans Haraldur Guðjónsson stigu á skipsfjöl á Gullfossi í gær- morgun hér úti á ytri höfn, kom í ljós að farþegar töldu sig allir vera við góða heilsu. Moskvu- fararnir fimm, sem veiktust, lögðust 18. þ. m. Einn skipverj- anna hafði veikzt eins og skýrt hefur verið frá. Þegar borgar- læknir hafði fengið þessar uppl. stigu tollverðir og starfsmenn út- lendingaeftirlitsins á skipsfjöl einnig, en þeir höfðu beðið átekta niðri í tollbátnum við skipshlið. Um klukkan 9,30 kom svo rúss- neska skipið og fór borgarlæknir einnig fyrstur manna um borð I það. Þar voru allir sagðir frísk- ir orðnir. Rúmlega 40 höfðu veikzt á skipinu. — En að auki höfðu ýmsir Moskvufarar veikzt austur í Moskvu af Asíu-inflú- enzunni. Var það ekki vitað áð- ur, því sérlegur fréttaritari komm únistablaðsins í förinni, hafði ekki á þetta minnzt í vináttu- og friðarfréttum sínum af þessari stórkostlegu áróðurshátíð Moskvu manna. ★ Auk rúmlega 120 Islendinga komu hingað með skipinu Spán- verji og Þjóðverji, sem ætla heim til sín um fsland. Verður keypt flugvél til að dreifa áburði og trjáfræi? ÞEGAR þess var minnzt hér í blaðinu að liðin var hálf öld síðan flugvélarnar komu fyrst til sögunnar, ritaði Agnar Kofoed Hansen flugmálastjóri, grein i Morgunblaðið. Einn kafli þeirrar greinar hét: Flugvélar klæða landið. — Eftir því sem blaðið hefur fregnað bendir margt til þess að reynt verði að fara inn á þá braut hér, að fá flugvél i þessu skyni. í grein flugmálastjóra um þennan þátt flugsins segir hann frá fordæmi í þessu efni, sem Ný-Sjálendingar hafa gefið. Þar kemst hann m. a. svo að orði: „Fyrir 5 árum hóf Nýja-Sjá- land tilraunir í því skyni að dreifa tilbúnum áburði og fræi í stórum stíl úr flugvélum með þeim árangri, að í dag vinna 160 flugvélar stöðugt að því að klæða landið að nýju á þennan hátt. Ár- ið 1950 var 500* tonnum af tii- búnum áburði dreift úr flugvél- um með svo glæsilegum árangri að magnið var aukið upp í 144.000 tonn þetta ár....“ Ef við getum notfært okkur reynslu Nýja-Sjálands dg margra annarra þjóða i þessum efnum, sem ég tel mjög líklegt, er aug- ljóst að hér er um að ræða mál, sem verðskuldar fyllstu at- hygli....“ Flugmálastjóri lauk grein sinni með þessum orðum: „Á þessum merkisdegi flugsins á ég tvær óskir. Hin fyrri að því megi auðnast að færa þjóðir heimsins nær hver annarri í friðsamlegu samstarfi, hin síðari að því megi takast að klæða að nýju vort hrjóstuga en undur- fagra fósturland“. Eftir því sem blaðið hefur fregnað er mikill áhugi á þessu máli vaknaður nú og sennilegt að því verði hrundið í framkvæmd og keypt flugvél í þessu skyni. Bretar framleiða flugvélar sem leyst gætu þetta verk af hendi. Fjöldi Rússa á göfum í Reykjavík RÚSSNESKU mátti víða heyra talaða á götum bæjarins í gær. Voru Rússarnir af skipinu Koop- eratzia. Voru þeir með böggla undir hendinni, notuðu land- gönguleyfið til vörukaupa. Virt- ist mönnum að í hverjum hópi væri einn „aðalgjaldkeri", sem hélt bókahald á miða, skrifaði hvað hver í hópnum fékk mikið fé til ráðstöfunar. Komu Rúss- arnir í margar vefnaðarvörubúð- ir og keyptu skyrtur og annan fatnað. Virtust peningaráðin hjá þeim vera í knappara lagi. I gærdag var ákveðið að skipið léti úr höfn í gærkvöldi klukkan 8, en svo var brottförinni frestað þar til í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.