Morgunblaðið - 11.09.1957, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.09.1957, Qupperneq 1
„Ofbeldi Rússa í Ungverjalandi er einn mesti harmleikur vorra tíma44 í Sveinsbakaríi við Vesturgötuna byrjuðu bakararnir klukkan 6 í gærmorgun. Hans Eyjólfsson bakarameistari (með brauð- bakkann) sagði að þar hefðu verið bökuð á annað þúsund brauð, en þau hurfu eins og dögg fyrir sól og sömu sögu var að segja í öllum brauðgerðunum I gær, á fyrsta „brauð-deginum“ eftir verkfallið. (I.jósm. Mbl. Gunnar Rúnar). Bakarasveinar fengu verulega kauphækkun Hefur ríkisstjórnin einhvern tímabundinn leynisamning um brauðverðið? U ngverjalandsskýrslan rœdd í Allsherjarþinginu NEW YORK, 10. sept. —----------------------& Öll Norðurlöndin víta Rússa OSLÓ 10. sept. — NTB — Utan- ríkisráðherrar Norðurlandanna sitja nú fund í Osló og er aðal- lega rætt um starf Sameinuðu þjóðanna og samræmingu á af- stöðu landanna til hinna ýmsu mála á þeim vettvangi. í fundar- lok var gefin út sameiginleg yfir lýsing þar sem lok afvopnunar- viðræðanna í London voru hörmuð. „Verdens Gang“ skýr- ir svo frá í dag, að Norðurlöndin fimm muni öll greiða atkvæði með samþ. Ungverjalandsskýrsl- unnar á fundi Alisherjarþingsins. Segir og, að af Norðurlöndiunum hafi aðeins ísland og Noregur verið meðal hinna 36 ríkja, sem bera nú fram tillögu á Ailsherj- arþinginu um vítur á Ráðstjórn- ina fyrir vopnaða íhiutun í mál- efni Ungverjalands. Hins vegar munu hin Norðurlöndin styðja tillöguna þegar til atkvæða- greiðslunnar kemur . Ný lög fyrir Alsír PARÍS 10. sept. — Franska þingið hefur verið kvatt sam an 24. september eða viku fyrr en áætlað hafði verið áður. Verkefni þingsins verð- ur að ræða tillögu um nýja stjórnarlöggjöf fyrir Aisír, sem stjórnin hefur að undan- förnu undirbúið. Ekkert er vitað með vissu um eðii tillög- unnar, en vitað er, að gengið er langt til móts við Afríku- rnenn hvað kasningarétti við- kemur. ALLSHER J ARÞIN G Sam- einuðu þjóðanna kom saman til fundar í dag til þess að ræða um skýrslu hinnar sér- legu nefndar Sameinuðu þjóð anna um uppreisnina í Ung- verjalandi. 36 ríki hafa sam- eiginlega borið fram tillögu Ástralía, Danmörk, Ceylon, Túnis og Uruguay áttu fulltrúa í nefndinni, er rannsakaði Ung- verjalandsmálin og samdi síðan skýrslu um rannsóknina. Ástr- alski fulltrúinn hafði í dag fram- sögu af hálfu nefndarinnar. — Kvað hann nefndarmenn hafa unnið að rannsókn þessa máls af einlægni og réttsýni og niður- staða þeirra væri einróma. — Ásakanir á hendur nefndinni um að hún hefði verið á máia ákveð- inna afla væri móðgun, skýrsla nefndarinnar stæðist alla gagn- rýni. Kvað hann skýrsluna vera byggða á framburði fjölmargra vitna. Þeirra á meðal hefðu ver- ið margir flóttamenn, erlendir sendimenn í Ungverjalandi, svo og hefði verið stuðzt við frásagn- ir blaða og útvarps í Ungverja- landi. og um þær aðferðir, er Rúss- ar beittu til þess að brjóta hana á bak aftur með her- valdi. Jaínframt er skorað á Rússa og leppstjórn þeirra í Ungverjalandi, að hætta að kúga ungversku þjóðina og veita henni sjálfstæði á ný. Þá var einnig í tillögunni skorað á forseta Allsherjar- þingsins, Wang prins frá Thai- Vék hann því næst að þeirri ásökun Ráðstjórnarinnar, að nefndin hefði enga samvinnu haft við leppstjórnina í Ungverja landi né Ráðstjórnina. Nefndar- formaðurinn sagði þetta ofur eðlilegt. Stjórnirnar hefðu hafnað allri samvinnu við nefndina og starf hennar hefði verið kommúnist- um þyrnir í auga. Rússar vissu upp á sig sökina. Þeir hefðu bar- ið frelsisuppreisn ungversku þjóðarinnar niður með vopna- valdi. Léttvægi rök væru það hjá Rússum, að þeir hefðu beitt vopnavaldi til þess að hindra það, að hinir gömlu landeig- endur fengju aftur jarðir sínar. — Ungverjar hefðu lýst því yfir, að þeir hyggðust ekki að endur- Framh. á bls. 2 um að þingið samþykki skýrslu nefndarinnar um upp-1 landi, að beita sér fyrir því reisn ungversku þjóðarinnar I að markmiði S. Þ. verði náð. Rússar hafa þverbrotið sáttmála S.Þ. Ætlar Starcke að selja British Museum íslenzku handritin í Arnasafni ? EFTIR sumarlangt brauðleysi í Reykjavík, var mikið að gera í brauðgerðarhúsunum í gær og voru brauð með öllu ófáanleg skömmu eftir nónbil. Brauðin voru seld með sama verði og fyrir verkfall og kváðust bakarar ekki vita, hvort þau myndu hækka í verði, eða hvort brauðverðinu yrði haldið óbreyttu með ein- hverjum ráðstöfunum hins opinbera, þetta myndi ekki Iiggja fyrir fyrr en eftir nokkra daga. «---------------------------- Veruleg kauphækkun Verkfall þetta varð hið lengsta, sem um getur hér á landi, stóð það í nær 3)4 mánuð. Með sam- komulaginu milli bakarameistara og bakarasveina, fá sveinarnir hækkun á fastakaupi úr kr. 593,54 í kr. 623,00 á viku. Einnig fá þeir 33% álag á kaup milli klukkan 6 og 7 árdegis. Gerð var breyting á vinnutíma bakara- sveinanna, en það hefur ekki í för með sér neina breytingu á lokunartima bakaríanna frá því sem verið hefur. Leynilegur samningur Allir hljóta að fagna því að hinu langa verkfalli er lokið. Það hefur valdið almenningi í Reykja vík geysilegu óhagræði og auka- kostnaði. En það er mjög víta- vert, að ríkisstjórnin, sem tafið hefur lausn vinnudeilunnar viku eftir viku skuli halda leyndum samningi, sem allt bendir til þess að hún hafi gert við bakara um brauðverðið. Sú spurning hlýtur þess vegna að rísa meðal almenn- ings, hvort það sé rétt, að þessi leynd sé á höfð vegna þess, að fyrir dyrum stendur ákvörðun um verð landbúnað arafurða eftir nokkra daga. Væri það mjög í samræmi við aðra framkomu ríkisstjórnarinn- ar. En reynslan mun að sjálf- sögðu skera úr um það. LONDON, 10. september. — Chaplin sýndi kvikmyndagagn- rýnendum í London í dag hina nýju kvikmynd sína „Konungur í New York“. Var myndinni tek- ið fálega og sögðu gagnrýnend- ur, að hún væri of pólitískt lituð DANSKI stjórnmálamaðurinn Viggo Starcke, leiðtogi Réttar- sambandsins og ráðherra í stjórn H.C. Hansens, hefur ritað grein um handritamálið í Dagens Ny- heder. Eins og kunnugt er, var Starcke í dönsku handritanefnd- inni á sínum tíma og lagðist gegn því, að íslendingum yrðu afhent handritin. f upphafi greinar sinnar segir hann, að hin miklu og glæsilegu bókmenntaafrek íslendinga á miðöldum hafi vakið aðdáun alls heimsins og ekki sé nema eðli- legt, að íslendingar vilji fá hand- ritin, sem liggja í dönskum söfn- um. En slík ósk sé ekki hið ssma og skýlaus réttur. Að vísu sé höfðinglegt að gefa gjafir, en menn geti ekki gefið gjafir sem þeir eigi ekki. Ráðherrann minn- ist á sambandslagasamninginn 1918 og segir, að eðlilegt hefði ver ið, að íslendingar hefðu þá gert kröfu til handritanna, en það hafi þeir ekki gert. Þá segir hann, að auðvitað eigi íslendingar að fá öll þau handrit, sem þeir eigi rétt á, og þau hafi þeir líka fengið 1927, þegar þeim var skilað 4 handritum og 700 skjölum, sem Árnasafninu hefði verið lánað. urstöðu málsins, og HafnarhásKÓl inn hafi afhent þessa muni með því skilyrði, að málið væri útrætt, íslendingar gerðu ekki tilkall til fleiri handrita. Síðan segir ráðherrann, að af- hending handritanna gefi hættu- legt fordæmi og afleiðingarnar geti orðið örlagaríkar. Hann bendir í því sambandi á, að fs- Washington, 10. sept. BANDARÍSKI dómsmálaráðherr ann, Herbert Brownell, sendi fylkisdómstólnum í Little Rock í Arkansas tilmæli þess efnis að Faubus fylkisstjóri verði svipt- ur yfirráðum yfir þjóðvarnarlið- inu, en fylkisstjórinn hefur að undanförnu notað það til þess að hindra skólagöngu svartra mið- skólanema í skóla hinna hvítu á þeim forsendum, að hann væri að forða átökum. Yfirdómarinn í fylkisdómstólnum í Little Rock hefur nú tilkynnt, að réttarhöld lendingar hafi aðeins gert tilkall til íslenzkra handrita í dönskum söfnum en ekki sænskum, þó að vitað sé, að Svíar hafi komizt yfir mörg íslenzk handrit. Þá ræðir ráðherrann um erfða- skrá Árna Magnússonar og segir m.a., að Kaupmannahafnariiá- skóla beri að varðveita handritin, Framh. á bls. 2 hefjist hinn 20. þessa mánaðar i máli Faubusar. Fyrir réttinn verða og dregnir foringi þjóð- varnarliðsins í Little Rock og vaktstjóri þjóðvarnarliða þeirra, sem staðið hafa vörð við miðskóla hús bæjarins. Til smáóeirða kom í dag í Birmingham í Alabama og Little Rock vegna skólagöngu svert- ingjabarna. í Nashville hafa fimm menn verið handteknir vegna sprengingar í skólahúsi. Mörg hvít börn neita að sækja skóla þá, er svört börn mega nú einnig sækja. Lögregla þurfti að beita táragasi í dag í Nashville til þess að kom í veg fyrir árekstur hvítra og svartra. til þess að hægt væri að njóta ' Hann segir einnig, að íslendingar her.nar. I hafi verið ánægðir með þessa nið- Faubus verður dreginn fyrir rétt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.