Morgunblaðið - 11.09.1957, Side 16

Morgunblaðið - 11.09.1957, Side 16
VEÐRIÐ Austan gola. Sumsstaðar dálítil rigning. 204. tbl-Miðvikudagur 11. september 1957. Noregsbréf Sjá bls. 9. Morðmálið í Hveragerði fyrir rétti á Selfossi Sigurbjöm Ingi hvorki fáviti né geðveill í venjulegum skilningi, — segir dr. Helgi Tómasson. Norsko síldveiðiskipið Fröyma sökk í gær út of Austijörðum Áhöfninni bjargað um borð í annað norskf skip Á MÁNUDAGINN var tekið fyr- ir í sakadómi Árnessýslu mál Sigurbjörns Inga Þorvaldssonar 26 ára, er myrti Concordíu Jón- atansdóttur 19 ára, í eldhúsi garð yrkjuskólans að Reykjum í Hvera gerði, sunnudaginn 6. janúar sl. Sakborningur hefir verið í gæzlu undanfarið í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg, en verður brátt fluttur að Litla Hrauni. Sækjandi í málinu af hálfu ókæruvaldsins er Logi Einarsson fulltrúi í dóms málráðuneytinu en verjandi Egill Sigurgeirsson hrl. Á mánudaginn voru yfirheyrð 14 vitni, en málið er mjög um- fangsmikið og eru málsskjölin á annað hundrað vélritaðar síður. ANNAÐ KVÖLD klukkan 7 efnir Heimtíallur, F. U. S. til æskulýðstónleika í Austur- bæjarbíói. Hinn kunni þýzki barytonsöngvari, Hermann Prey mun þar syngja einsöng og flautu leikarinn Ernst Schönfelder leik- ur verk eftir Bach og Hindemith. Undirleik annast Guðrún Krist- insdóttir frá Akureyri. Aðgöngu- miðar kosta kr. 20 og verða seld- ir í Bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar og skrifstofu Heim- dallar í dag og á morgun, svo og í Austurbæjarbíói frá kl. 2 báða dagana. A undanförnum árum hefur Heimdallur öðru hverju gengizt fyrir æskulýðstónleikum í Aust- urbæjarbíói. Hefur aðsókn ætíð verið mjög góð, enda hefur ávallt verið til tónleikanna vandað. Hingað til lands er nú kominn einn bezti óperusöngvari Þjóð- verja, Hermann Prey, en hanr, hefur m. a. sungið í Carnegie Hall í New York, svo og í Eng- landi, Danmörku og víðar. Hann er starfandi söngvari við óper- urnar í Hamborg, Berlín og Vín og talinn skæður keppinautur Dietrich Fisher-Diskaus. Tvö undanfarin kvöld hefur hann sungið á tónleikum Tónlistarfé- lagsins hinn fræga ljóðaflokk „Die Schöne Múllerin“ eftir Wilhelm Múller við lög eftir Schubert og vakið fádæma hrifn- ingu áheyrenda. Ný efnisskrá Á æskulýðstónleikunum annað ÚTGERÐ reknetjabáta á Akra- nesi er nú stórlega lömuð og veld- ur því mikil landvinna þar í bæn um. Nú þegar síldveiðin virðist vera að glæðast vestur í svo- nefndu Skerjadjúpi, þá kemst ekki nema helmingur Akranesbát anna á sjó, vegna manneklu. í reknetjaflota Akurnesinga hafa verið 20 bátar. Þeim hefur stöðugt farið fækkandi, því Rannsóknardómari í málinu er Snorri Árnason fulltrúi sýslu- mannsins á Selfossi. Rannsókn í málinu hélt áfram í gær. Sigurbjörn Þorvaldsson var í 7 mánuði í geðrannsókn hjá dr. Helga Tómassyni yfirlækni Kleppsspítalans. Hefir dr. Helgi ritað ýtarlega skýrslu um niður- stöður rannsóknar sinnar á Sig- urbirni. Segir þar: „Álit mitt á Sigurbirni Inga Þorvaldssyni er þetta: Hann er hvorki fáviti né geðveill í venju- legum skilningi en haldinn tíma- bundinni drykkjusýki (dipso- mani). Hann hefir vefræna tauga sjúkdóma". Dóms er að vænta í máli þessu á næstunni. kvöld mun Hermann Prey aftur á móti syngja verk eftir Beet- hoven, Schubert, Schumann, Brahms, Wolf og Strauss. Hermann Prey Ennfremur mun Ernst Schön- felder, sem er kunnur þýzkur hljómlistarmaður leika einleik á flautu og mun hann leika stutt verk eftir Bach og Hindemith. Undirleik annast Guðrún Kristinsdóttir frá Akureyri, en hún er mjög þekktur píanóleik- ari hér á landi. Þessir æskulýðstónleikar eru einu opinberu tónleikarnir, sem þetta ágæta listafólk heldur og má því búast við mikilli aðsókn og öruggara að tryggja sér miða í tíma. skipsmenn hafa gengið í land vegna hins mikla framboðs á vinnu t.d. við Sementsverksmiðj- una og eins við hafnarfram- kvæmdirnar. í Akraneshöfn liggja nú 10 bátar sem ekki komast til veiða vegna manneklu og er það hið alvarlegasta mál fyrir útgerð þessa forna útvegsbæjar hve hún á í harðri og ójafnri samkeppni við aðra vinnu þar í bænum. Hæstu viiming- arnir á YA miða í GÆR var dregið í 9. fl. í háskólahappdrættinu, en í þess- um flokki eru vinningar 787 tals- ins og alls er dregið um 995 þús. krónur. Komu báðir hæstu vinn- ingarnir 100 þús. kr. og 50 þús. kr. á fjórðungsmiða. Komu 100 þús. kr. á miða 9074. Eru þrír í umboði á Akureyri og einn í umboði Arndísar Þorvaldsdóttur hér í Reykjavík. — 50 þús. kr. vinningurinn kom á miða nr. 18855. Tveir miðanna eru í um- boði H. Sivertsen í Vesturveri, einn hjá Jóni Arnórssyni & Guð- rúnu Ólafsdóttur og fjórði hjá Frímanni Frímannssyni Hafnar- húsinu. 10.000 kr. vinningar komu á miða 19058 — 24106 — 33506 — 38446. — 5.000 kr. vinningarnir komu á miða 5733 — 9348 — 30544 — 35883. Saltað á Akranesi AKRANESI, 10. sept. — Átta reknetjabátar héðan voru úti á veiðum í nótt. Eftir nokkuð langt veiðihlé. Hafa sumir aflað ágæt- lega í dag, Skipaskagi 168 tunn- ur, Sigurvon 143 tunnur og Svan- ur hátt á annað hundrað tunn- ur. Þeir þrír sem síðast komu inn náðu ekki lögn aftur. Margir bátar bættust í hópinn og fóru 12 bátar út í dag. Síldin er ekki sérlega stór en vel feit og öll söltuð. Hingað kom í kvöld togarinn Bjarni Ólafs- son af veiðum við Vestur-Græn- land með 300 lestir af karfa. — Oddur. Ræða Jónasar Rafnar. Jónas Rafnar talaði fyrstur. — Ræddi hann fyrst hina miklu uppbyggingu á síðari árum undir forystu Sjálfstæðismanna. Þá minntist hann á hina ranglátu kjördæmaskipun, sem brýna nauðsyn bæri til þess að endur- bæta. Síðan ræddi hann misnotkun kommúnista á verkalýðsfélögun- um og vakti athygli á því, að í nálægum löndum þekktist það naumast að slíkum samtökum væri beitt pólitískt gegn stjórn- um landanna. Þá minntist Jónas Rafnar á þann sið, að stjórnmálaflokkar á íslandi gæfu yfirlýsingar og lof orð fyrir kosningar, sem þeir síðan hirtu ekkert um að standa við. Nefndi hann sem dæmi um það yfirlýsiúgar núverandi stjórn arflokka um varnarmálin, efna- hagsmálin og afstöðuna til komm únista. Ræðumaður kvað nú dimmt út lit í íslenzkum efnahagsmálum Engu að síður yrðu menn að vona að þjóðin bæri gæfu til þess að sigrast á erfiðleikunum með samtökum allra þjóðhollra manna. Ræða Gunnars Thoroddsen Gunnar Thoroddsen talaði næstur. Minntist hann fyrst á sögu héraðsins, sem alið hefði Skúla Magnússon landfógeta, er oft hefði verið nefndur faðir Reykjavíkur. Hann hefði verið fæddur og uppalinn í Þingeyjar- sýslu. SEYÐISFIRÐI, 10. september. — í gærdag kom óstöðvandi leki að norska síldveiðiskipinu Fröyma frá Haugasundi, þar sem það var statt 200 sjómílur norð-austur af Dalatanga. Annað norskt skip sem statt var á sömu slóðum bjargaði áhöfninni 11 manns. En skipið sökk skömmu síðar. Neyðarkall Skipið Fröyma sendi út neyðar kall um miðjan dag í gær. Var þá veður hið versta og stórsjór út. Norskt skip, Nibok, einnig frá Haugasundi var statt nálægt Fröyma, brá þegar við og bjarg- aði áhöfninni og gekk björgunin vel. Skipið sökk skömmu eftir að Því næst ræddi hann nauðsyn samstarfs og skilnings milli íbúa höfuðborgarinnar og annarra landsmanna. Jafnvægi í byggð landsins væri ekki aðeins hags- munamál sveitanna heldur einn- ig höfuðborgarinnar og annarrá kaupstaða. Gunnar Thoroddsen minntist síðan á ranglæti kjördæmaskip- unarinnar og það, hversu hörmulega hefði til tekizt um framkvæmd á því aðalfyrirheiti vinstri stjórnarinnar að halda vinnufriði í landinu. Ennfremur ræddi hann reynsluna af hinum „varanlegu úrræðum", sem stjórn in hefði lofað í efnahagsmálum. Þá gerði hann hinar nýju álög- ur að umtalsefni. Ræddi síðan um skattamál og fjármál sveitar- félaga. Loks ræddi hann verzlunar- málin og samvinnuhreyfinguna, en í Þingeyjarsýslu er nú starf andi elzta kaupfélag landsins. Að lokum gerði hann svikum ríkisstjórnarinnar í öryggismál- unum nokkur skil. Ræðum þeirra Jónasar Rafnar og Gunnars Thoroddsen var mjög vel tekið af áheyrendum. Skemmtiatriði. Að lokum var fluttur gaman- söngleikurinn Ást og andstreymi við ágætar undirtektir. Var leikurinn fluttur af söngvurunum Þuríði Pálsdóttur, Guðmundu Elíasdóttur og Guðmundi Jóns- syni við undirleik Magnúsar Bl. Jóhannssonar. Síðan var dansað. mennirnir voru komnir um borð í Nibok. Fluttir til Seyðisfjarðar Norska eftirlitsskipið Draug lá hér i höfninni þegar hjálpar- beiðnin barst frá hinu nauðstadda skipi. Brá það þegar við og hélt á slysstaðinn. Voru mennirnir all ir komnir um borð í Nibok, þegar Draug kom á staðinn, en hið síðar nefnda flutti skipshöfn Fröyma til Seyðisfjarðar. Voru allir skip- brotsmennirnir við góða heilsu. Bíða flugveðurs Áhöfn Fröyma mun fara flug- leiðis til Reykjavíkur og bíður hún nú flugveðurs frá Egilstöð- um. Fara þeir með fyrstu ferð suður. — B. Inni á Skarðsvíkinni hefur bát. urihn haft dufl um 35 faðma frá landi. Hann hefur svo kastað frá duflinu á sama hátt og tíðkast við botnvörpu og dragnótaveiðar. Nótin er hins vegar ekki dregin af bátnum á siglingu, heldur er bátnum lagt við duflið og nótin síðan dregin að bátnum með tog- vindunni og aflinn síðan innbyrt- ur með venjulegum hætti. Magnús skipstjóri á Sæborg tel ur þessa veiðiaðferð vera með sama hætti og hann hafi fengið uppl. um að tíðkazt hafi í gamla daga um ádrátt og verið þannig stundaður við Eyjafjörð. Þar voru að vísu notaðir tveir bátar við ádráttinn og var annar með togvindu. Var sá bátur bund inn fastur við staur sem rekinn var niður í sandinn uppi við fjöruborðið. Frá hinum bátnum var nótinni kastað en síðan farið með dráttartaug nótarinnar í bát- inn með togvindunni og þar var aflinn tekinn úr nótinni, en ekki uppi í fjöru. Nót sú er Magnús Grímsson skipstjóri, hefur notað á Skr.rðs- vík mun ekki í sjálfu sér vera frábrugðin gömlu ádráttarnótun- um, né heldur önnur veiðarfæri, utan þess sem af því leiðir að orðið hafa tæknilegar framfarir, togvindur ganga nú fyrir kraft- meiri vélum. Þegar Magnús hóf að stunda ádrátt í Skarðsvík 1956, var vind an fyrst í stað höfð í landí, þó aflinn væri"tekinn úr nótinni í bát. Magnús hefur skýrt frá þvi fyr ir rétti að ákæruvaldið í landinu og Landhelgisgæzlan hafi haft fulla vitneskju um þessar veiðar allan tímann. Telur Magnús skip- stjóri ekki öruggt að veiðar þess- ar séu ólöglegar og kveðst hafa fullan hug á að fá úrskurð dómstólanna um lögmæti veið- anna. Æskulýðstónleikar Heimdallar annað kvöld Þýzki óperusöngvarinn Hermann Prey syngur og flautuleikarinn Ernst Schönfelder leikur Helmingur flotans kemst nú ekki til síldveiða Ágœtt héraðsmót Siálf- stœðismanna á Húsavík HERAÐSMÓT Sjálfstæffismanna á Húsavík var haldiff sl. laugar dagskvöld. Var þaff haldið í samkomuhúsi kaupstaffarins og var þar húsfyllir. — Þórhallur Snædal, formaffur Sjálfstæffisfélags Rúsavíkur, setti mótið og stjórnaði því. Fór þaff hiff bezta fram. Annor skipstjóri kærður fyrir drognótaveiðor við Snæfellsnes Segir veiðarnar ádrátt og hafi ákæruvaid- inu verið um þær kunnugt. HÉR í bænum, hjá sakadómaraembættinu, stendur nú yfir rann- sókn á landshelgisbrotamáli. Skipstjóri á vélbátnum Sæborg héðan úr Reykjavík hefur verið kærður fyrir að stunda dragnótaveiðar hér í Faxaflóa. Skipstjórinn Magnús Grímsson Ferjuvogi 21, segir að Landhelgisgæzlunni og ákæruvaldinu hafi verið kunnugt um þessar veiðar, sem hann hafi ekki dregið neina dul á. Veiðar þessar hefur vélbátur- eiganda. Varðbáturinn Rán lét inn Sæborg stundað á Skarðs- til skarar skríða gegn bátnum vík á Snæfellsnesi í rúrnt ár og fyrir nokkrum dögum, er hann haft til þess fullt samþykki land- var að veiðum á Skarðsvík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.