Morgunblaðið - 15.09.1957, Síða 2
Mopnrnvnr jptÐ
Sunnudagur 15. sept. 1957
Ályktanir Stéttarsam-
bands bænda 1957
E IN S og fyrr er sagt, gerði aðalfundur Séttarsambandsins, sem
haldinn var í Hlégarði 12. og 13. september, margar ályktanir. —
Flestar fjölluðu þær, sem eðlilegt er, um framleiðslu og verðlags-
mál og önnur hagsmunamál bændastéttarinnar. Ennfremur gerði
fundurinn ályktun í handritamálinu og samþykkti 50 þús. kr. fjár-
veitingu til byggingar yfir handritin. Var sú tillaga birt í blaðinu
í gær. Hér fara á eftir allar helztu ályktanir fundarins:
Bankaútibú á Héraði
Sögulegasta atkv. greiðslan
í bæjarsfjórn um langf árabil
Fulltrúar allra flokka veittust að Hannibal
ATKVÆÐAGREIÐSLiAN um tillögu þá er borgarstjóri bar fram á
aukafundi bæjarstjórnar í fyrrakvöld út af útsvasmáli bæjarins, er
r.ieð sögulegri atkvæðagreiðslum, sem fram hafa farið í bæjarstjórn
um langt árabil. Bæjarfulltrúar meirihlutans, og minnihlutans
einnig, veittust eftirminnilega að Hannibal Valdimarssyni, fyrir
hans einstæða frumhlaup, sem honum hefur nú orðið á með lög-
lausum árásum sínum á Reykjavíkurbæ. Við atkvæðagreiðslu þessa
kom berlega í ljós hvílíkt upplausnarástand ríkir í herbúðum
stjórnarsinna.
Jónas Pétursson á Skriðu-
klaustri bar fram svofellda til-
lögu:
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1957 mælir eindregið með
því að Búnaðarbanki íslands
verði við óskum bænda á Austur-
-landi um stofnun útibús á Fljóts
dalshéraði“.
Endurskoðun
framleiðsluráðslaganna
Jónas Pétursson bar ennfremur
fram þessa tillögu:
„Fundurinn samþykkir að
kjósa þriggja manna nefnd til að
endurskoða lög um framleiðslu-
ráð landbúnaðarins, verðmiðlun
og sölu á landbúnaðarvörum o.
fl. og skili hún áliti fyrir næsta
aðalfund".
í nefnd þessa voru kosnir þeir
Gunnar Guðbjartsson, Hjarðar-
felli, Jónas Pétursson, Skriðu-
klaustri og Vilhjálmur Hjálm-
arsson, Brekku.
Iðnstöðvar I sveitum
„Út af erindi kjörmannafundar
V.-Barðastrandarsýslu um vinnu
stöðvar í sveitum beinir aðal-
fundur Stéttarsambands bænda
1957 þeirri áskorun til stjórnar
sambandsins, að hún vinni að
því, að fé sem á fjárlögum er
varið til atvinnujöfnunar í land-
inu verði að einhverjum hluta
varið til að koma upp iðnstöðv-
um í sveitum".
Kornmölun
„Út af erindi Benedikts Krist-
jánssonar á Þverá um korninn-
flutning beinir aðalfundur þeirri
áskorun til stjórnar Stéttarsam-
bandsins að hún athugi hvort
hagkvæmt muni og framkvæman
legt að flytja ómalað korn til
landsins og að koma upp mölun-
arvélum til að mala það jafnóð-
um og notað er.
Niðurstöður þessara athugana
liggi fyrir næsta aðalfundi“.
Kornrækt
„Út af tillögu Páls Diðriksson-
ar um kornrækt, beinir aðal-
fundur Stéttarsambandsins því
til stjórnar sambandsins, að hún
beiti sér fyrir að frumvarp um
kornrækt, sem samið var að til-
hlutan framleiðsluráðs verði
endurflutt á Alþingi".
Efling bjargráffasjóðs
„Út af framkominni tillögu frá
kjörmannafundi Strandamanna,
ítrekar aðalfundur Stéttarsam-
bandsins fyrri samþykktir sínar
um nauðsyn þess að Bjargráða-
sjóður verði efldur jafnframt
því sem hann þakkar eflingu
sjóðsins á síðasta Alþingi“.
Verffjöfnun á áburffi
„Vegna framkominnar tillögu
frá kjörmannafundi V.-Skaftfell-
inga um að tilbúinn áburður verði
seldur safna verði á öll-
um verzlunarstöðum á land-
inu vill fundurinn fela stjórn
sambandsins að leita eftir leið-
um til að bæta aðstöðu þeirra
bænda sem hafa lengsta flutn-
inga á landi og erfiðust hafnar-
skilyrði“.
Innflutningur dráttarvéla,
varahluta og verkfæra
„Út af erindi Búnaðarsambands
Kjalamesþings um innflutning
dráttarvéla beinir aðalfundur
Stéttarsambands bænda 1957
þeirri áskorun til stjórnar sam-
bandsins, að hún vinni að því:
1. Að ekki verði krafizt fyrir-
framgreiðslu á andvirði þeirra
búvéla, sem fluttar verða til
landsins hér eftir.
2. Að gengið verði ríkt eftir
því, að nægar varahlutabirgðir
séu fyrir hendi hjá þeim fyrir-
tækjum, sem flytja inn jarð-
vinnsluvélar og önnur tæki til
landbúnaðar.
Ennfremur felur aðalfundurinn
stjórn Stéttarsambandsins að
beita sér fyrir því:
1. Að innflutningur dráttar-
véla hvert ár verði ráðinn það
snemma að bændur geti fengið
vélar til nota þegar er vorstörf
hefjast.
2. Að leyfður verði innflutn-
ingur þeirra vinnutækja sem
nauðsynleg eru til þess að heim-
ilisdráttarvélar komi að fullum
notum“.
Skipulagning eggjasölunnar
„Fundurinn skorar á stjórn
Stéttarsambandsins og fram-
leiðsluráð að styðja Samband
eggjaframleiðenda til þess að
koma á skipulagsbundinni sölu
eggja um allt land. Komi til
skattlagningar á innfluttar fóð-
urvörur gangi sá hluti skattsins
er greiddur verður af alifugla-
fóðri til uppbyggingar þeirrar
starfsemi og verðmiðlunar
eggja“.
Verðgrundvöllurinn
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1957 telur að nokkrar leið
réttingar hafi fengizt á verð-
lagsgrundvelli landbúnaðarvara
við endurskoðun hans nú með
hækkun ýmissa kostnaðarliða.
Þó telur fundurinn að enn skorti
mjög mikið á að þessi mál séu
komin í viðunandi horf.
Fundurinn telur að vanda
þurfi enn meira til þeirra heim-
ilda, sem verðlagsgrundvöllur
landbúnaðarvara er byggður á,
og felur stjórn sambandsins að
vinna að úrbótum í þessu efni.“
Ákvörffun um uppsögn á
verðlagsgrundvellinum
Að tilhlutan stjórnar Stéttar-
sambands bænda flytur verðlags
nefnd eftirfarandi tillögur:
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1957 ákveður að kjósa 12
menn til ráðuneytis við stjórn
Stéttarsambandsins um ákvörð-
un um það hvort segja skuli upp
gildandi verðlagsgrundvelli fyr
ir febrúarlok n.á. og séu 3 menn
úr hverjum landsfjórðungi eftir
tilnefningu fulltrúa hvers fjórð-
ungs“.
Trygging fyrir aff hið skráða verff
fáist að fullu
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1957 leggur á það alveg
sérstaka áherzlu að við verðlagn
ingu landbúnaðarvara, nú og
framvegis, sé þess stranglega
gætt að kostnaðarliðir við vöru
meðferðina séu áætlaðir nógu
hátt til þess að verð til framleið-
enda verði af þeim sökum ekki
lægra en verðlagsgrundvöllurinn
gerir ráð fyrir.“
J afnframt ítrekar f undurinn
samþykkt síðasta aðalfundar svo
hljóðandi:
„Aðalfundurinn gerir þá kröfu
til ríkisvaldsins, að það verð-
bæti allar útfluttar landbúnaðar
vörur, svo að bændur fái fyrir
þær það verð, er þeim ber sam-
kvæmt verðgrundvellinum".
Verff á mjóikurafurffum
og sauðfjárafurffum
„Þar sem fram hafa komið á-
kveðnar raddir úr flestum sauð-
fjárræktarhéruðum landsins, í þá
átt að verðlag á sauðfjárafurðum
sé bændum óhagstæðara en
mjólkurverðið, þá láti fram-
leiðsluráð fara fram athuganir
á því, hvort þessar kvartanir séu
á rökum reistar og leiðrétti síðan
misræmi, ef um það er að ræða“.
Má á það benda, að nú er hag
kvæmari útflutningur sauðfjár-
afurða en mjólkurvara.
Verffmifflun
landbúnaffarvara
„Vegna radda er fram hafa
komið um að skattleggja inn-
fluttar fóðurvörur, gerir fundur-
inn þá ófrávíkjanlegu kröfu, að
ef til þess kynni að koma, verði
þeim skatti einvörðungu varið til
verðmiðlunar landbúnaðarvara
innanlands.
Kynning skákmanna:
Guðm. Pólmuson
ÞRIÐJA umferð stórmóts Tafl-
félagsins verður tefld í Lista-
mannaskálanum kl. 7.30 í kvöld
Þá mætast m. a. Stálberg og
Friðrik. Stahlberg hefur hvítt.
Pilnik hefur hvítt gegn Ingv-
ari, Benkö hvítt gegn Guðmundi
Ágústssyni, Björn hvítt gegn
Inga R., Guðm. Pálmason hvítt
gegn Arinbirni og Gunnar hvítt
gegn Guðm. S.
Við höldum svo áfram með
kynningu þátttakenda:
Guðmundur Pálmason er fædd
ur 1928. Guðmundur vann sig
upp í meistaraflokk árið 1946, og
hefur síðan teflt á mörgum skák-
mótum innan lands og utan, yf-
irleitt með góðum árangri. Meðal
annars varð Guðmundur annar í
landsliðskeppninni 1948 og ann-
ar til þriðji á „Euwe“-mótinu i
Reykjavík 1948, svo og í „Pilnk“-
mótinu 1955. Guðmundur hefur
fyrir Islands hönd teflt á fimm
alþjólegum stúdentamótum, jafn-
an með góðum árangri. Þar af
mun hann hafa náð einna beztum
árangri á stúdentaskákmótinu i
Lyon 1955, en þar vann hann m.
a. hinn heimsfræga júgóslav-
neska skákmeistara Fuderer og
gerði jafntefli við Taimanov. —
Guðmundur er verkfræðingur að
menntun.
Sýuinj* Júlíönu
Sveinsdóttur
opnuð í gær
KL. 2 e.h. í gær var málverka-
sýning Júlíönu Sveinsdóttur opn-
uð í Listasafni ríkisins. Forseta-
hjónin voru viðstödd auk mikils
fjölda gesta. Menntmálaráðherra,
Gylfi Þ. Gíslason opnaði sýning-
una með stuttri ræðu og komst
hann m.a. svo að orði, að íslend-
ingar stæðu í mikilli þakkarskuld
við Júlíönu Sveinsdóttur. Með
stafi sínu hefði hún auðgað ís-
lenzka menningu. Að lokinni
ræðu menntamálaráðherra skoð-
uðu gestir sýninguna. Á sýning-
unni eru 159 listaverk, 118 olíu-
málverk og 17 teppi. Verður sýn-
ingin opin daglega frá kL 1—10
e.h., en henni lýlcur hinn b. októ-
ber.
1 dag tekur Mbl. upp aftur til-
lögu borgarstjóra og rekur síðan
lið fyrir lið atkvæðagreiðsluna
1. Bæjarstjórnin mótmælir
harðlega úrskurði félagsmála-
ráðherra og þeirri freklegu árás
á sjálfstæði bæjarfélagsins, sem
felst í aðgerðum hans.
Viff atkvæffagreiðslu um þenn-
an liff, sem samþykktur var meff
8 atkv. gegn 5, sátu þeir hjá
Bárffur Daníelsson og Magnús
Ástmarsson.
2. Bæjarstjórnin bendir á, að
niðurjöfnunarnefnd hafði óve-
fengjanlega heimild til þess að
jafna niður 199,4 millj. kr. í út-
svör, en þegar nefndin gekk end-
anlega frá niðurjöfnun, var upp
hæðin 198,1 millj , eða 1,3 millj.
lægri en ráðuneytið sjálft telur
heimilt, og fær því sú óg.Jdingar
astæða ekki staðizt, að útsvars-
upphæðin sé hærri en löglegt er.
Þessi liffur var samþykktur
meff 8 atkv. gegn 5 og enn sátu
þeir hjá Bárður og Magnús.
3. Bæjarstjórniti bendir á, að
jafnað er niður eftir „efnum og
óstæðum", þótt notaður sé út-
svarsstigi ,sem er stighækkandi
eftir tekjum og eignum og tekur
ríflegt tillit til fjölskylduá-
stæðna.
Þegar hér var komiff fór sam-
heldni minnihlutaflokkanna, sem
reyndar var lítill fyrir algjör-
Iega út um þúfur. Einungis þrir
kommúnistar greiddu atkvæði
gegn liðnum. Verður naumast séð
hvernig rökstyðja eigi þá af-
stöðu.
4. Bæjarstjórnin telur það
fjarri lagi og spor aftur á bak, ef
banna á bæjar- og sveitarfélög-
um að nota nýtízku skýrsluvélar
við niðurjöfnun útsvara.
Nú virtust minnihlutafulltrú-
arnir vera alveg úti á þekju.
Áhugi þeirra á sparnaði við
„skrifstofubáknið" var fokinn út
í veffur og vind. Verður t.d. fróð-
legt aff vita hvort vélabókhald
muni nú verffa sérstakt kosninga-
númer kommúnista við næstu
bæjarstjórnarkosningar.
5. Bæjarstjórnin telur, að
hvort sem farin yrði sú leið að
gera nýja útsvarsskrá eða leita
úrskurðar dómstóla um málið,
Sljórn Sléltasam-
bands bænda
STJÓRN Stéttarsambands bænda
var endurkjörin á fundinum í
Hlégarði. Skipa hana Sverrir
Gíslason, Hvammi, Jón Sigurðs-
son, Reynistað, Einar Ólafsson,
Lækjahvammi, Páll Methúsalems
son, Refstað og Bjarni Bjarna-
son, Laugavatni.
Varastjórn var ennfremur end-
urkjörin, þeir Ólafur Bjarnason,
Brautarholti, Jón Jónsson, Hofi,
Sigurður Snorrason, Gilsbakka,
Sveinn Einarsson, Reyni og Jó-
hannes Davíðsson, Hjarðardal.
BREIÐDALSVÍK, 14. sept. —
Undanfarið hefur verið hér norð
austan átt með snjókomu til
fjalla. Breiðdalsheiði er nú orð-
in illfær minni bílum. —
Slátrun mun hefjast hér seint í
september. — Páll.
myndu af hljótast verulegar taf-
ir á innheimtu útsvara, en það
þýðir tafir á verklegum fram-
kvæmdum bæjarins, svo sem
byggingu íbúða til útrýmingar
herskálum og öðru heilsuspill-
andi húsnæði, byggingu skóla,
bæjarsjúkrahúss, sorpeyðingar-
stöðvar, undirbúningi lóða og
lagningu hitaveitu í ný hverfi, og
lýsir ábyrgð á hendur félags-
málaráðherra af þeim sökum.
Ekki fengust affrir til þess aff
firra félagsmálaráðherrann
þeirri ábyrgff en kommúnistar og
ástvinur ráðherrans Alfreff lækn-
ir Gíslason. Var þessi liður samþ.
með 8 atkv. gegn 4 og 3 sátu
hjá.
6. Þar sem dómstólaleiðin
myndi taka marga mánuði og
valda óbætanlegum truflunum á
útsvarsinnheimtu, telur bæjar-
stjórnin rétt að velja þá leið, sem
veldur minni töfum fyrir verk-
legar framkvæmdir og minni
baga fyrir borgarana, og er því
samþykk þeirri ályktun, sem
niðurjöfnunarnefnd hefir gert í
dag og er svohljóðandi:
„Niðurjöfnunarnefnd hefur
notað sömu starfsaðferðir við á-
lagningu útsvara í ár og undan-
farin ár, án þess að félagsmála-
ráðuneytið eða aðrir hafi vefengt
lögmæti þeirra starfsaðferða. Þó
að nefndin telji eftir atvikum
ekki ástæðu til að hverfa frá
fyrri vinnubrögðum, telur hún
rétt, þar sem viss formsatriði
hafa verið vefengd, að gera skrá
yfir útsvör gjaldenda í bænum,
samkv. IV. kafla útsvarslaga, og
auglýsa kærufrest að nýju“.
Þessi liffur var samþ. meff 8
samhljóða atkvæffum. Varff eng-
inn til þess aff taka upp till.
fulltrúa kommúnista í niðurjöfn
unarnefnd, sem þar bafffi veriff
flutt til þess að þóknast Hanni-
bal Valdimarssynl. Ekkl eina
sinni ástvinurinn!
7. Bæjarstjórnin bendir á, aff
í ár er notaður sami útsvarsstigi
og sl. ár, að öðru leyti en því, að
fjölskyldufrádráttur er verulega
aukinn, og er útsvarsstiginn því
raunverulega lægri nú en í fyrra,
emkum á barnafjölskyldum.
Þegar hér var komiff atkv.
greiðslunni sundraffist liff línu-
kommúnista. Ingi R. var þaff vitl
borinn að neita ekki staðreynd-
um, þótt hann hins vegar feng.
ist ekki til aff fallast á þær. Aft-
ur á móti létu þeir engan bilbug
á sér finna sálufélagar hans Sig-
urffur Guðgeirsson og Guffm.
Vigfússon, sem greiddu atkv.
gegn liðnum, en hann var sam-
þykktur meff 8 atkv. gegn þeirra
atkv. tveim.
8. Bæjarstjórnin beinir þeim
eindregnu tilmælum til Reykvík-
inga að greiða útsvör sem fyrst,
til þess að nauðsynlegar fram-
kvæmdir bæjarfélagsins tefjist
minna en til er stofnað með bréfi
ráðherrans.
Þessi liffur var samþykktur
meff 10 samhljóða atkv. Gengu
nú Þórarinn Tímaritstjóri og
Bárffur Danielsson til liffs viff
meirihluta bæjarstjómar. Magn-
ús Ásmarsson vildi ekki styffja
þá Bárff og Tíma-Þórarin, þar
eð hann vildi ekki taka undir þá
ádeilu sem fram kemur í þessum
Iiff á Hannibal.