Morgunblaðið - 02.10.1957, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.10.1957, Blaðsíða 2
MORnrnyitT 4ðið Miðvikudagur 2. okt. 1957 Árásirnar út af útsvörum í Reykjavík eru kosningaáróður og ekkert annað Samanburður á útsvarsstiganum i Reykjavik og i tveimur bæjarfélögum, Jbcrr sem vinstri menn ráða öllu ÞAÐ eru tvær meginstað- reyndir, sem ber að hafa í huga í sambandi við ádeilu stjórnarblaðanna á niður- jöfnunarnefnd og bæjar- stjórnarmeirihluta Sjálf- stæðismanna í Reykjavík í sambandi við útsvarsálagn- inguna í ár: 1) Sú aðferð, sem nú var höfð við álagninguna, var nákvæmlega hin sama og höfð hefir verið undanfarin ár og sambykkt var af full- trúum núverandi stjórnar- flokka í niðurjöfnunar- nefnd, enda voru ekki gerð- ar neinar athugasemdir þá af hálfu þeirra flokka- sem nú Iáta sem mest. Skýring- in á þessu er sú, að nú eru bæ j arst jómarkosningar framundan, og er því hér um kosningaáróður og ekk- ert annað að ræða. 2) Sú upphæð, sem nið- urjöfnunarnefnd Reykjavík ur lagði endanlega á, var 1,3 milljón króna lægri en sú útsvarsupphæð, sem Hanni- bal Valdimarsson sjálfur Ieyfði að lögð yrði á. Niður- jöfnunarnefnd hafði heim- ild ráðherrans til að jafna niður 199,4 millj. kr. í út- Tekjur svör, en hin endanlega nið- urjöfnun, áður en útsvars- skrá var lögð fram öðru sinni, nam 198, 1 millj. kr- Þessar tvær meginstað- reyndir er rétt að bæjarbú ar hafi í huga í sambandi við hinn látlausa kosninga- áróður Þjóðviljans og ann- arra stjórnarblaða í sam- bandi við útsvörin. Hvernig eru útsvarsstigarnir? Þjóðviljinn birti á sunriudag tveggja ára gamlar tölur um út- svör í hinum ýmsu bæjar- og sveitafélögum, en lætur líta svo út í fyrirsögn, sem þær eígi að sýna ástandið í dag. Þarna tekur blaðið til meðferðar gami- ar tölur. vai'ðandi meðalútsvör í ýmsum bæjarfélögum. En það, sem her skiptir öllu máli, þegar rætt er um útsvarsbyrði al- mennings, ei-u útsvarsstigarnir sjálfir, en á þá minnist Þjóðvilj inn ekki. Ef bornir eru saman út- svarsstigar í Reykjavík og öðr- um bæjarfélögum, er sá saman- burður Reykjavík mjög í hag. Skal hér beni á dæmi um út- svarsálagninguna í tveim bæjar- félögum, þar sem vinstri-menn ráða. Er þar um að ræða saman- burð á útsvarsstiganum í Rvík annars vegar og Hafnarf. og Akra nesi hins vegar. Er hér fyrst tafla sem sýnir tekjuupphæð og út- svarsálagningu á hana eftir út- svarsstigum Hafnarfjarðar og Reykjavíkur og er talið í krón- um. Ú ts varsupphæð Einhl. Hjón Hjón m. 1 barn Hjón m. 2 börn Hjón m. 3 börn Hjón m. 4 börn Hjón m. 5 börn Hjón m 6 börn Hafnarfj. 40000 4610 3810 3010 2210 1410 610 Reykjavík 40000 4390 3590 2540 1440 flafnarfj. 45000 5660 4860 4060 3260 2460 1660 860 Reykjavík 45000 5390 4590 3540 2440 1240 Hafnarfj. 50000 6735 5935 5135 4335 3535 2735 1935 1135 Reykjavík 50000 6390 5590 4540 3440 2240 940 Hafnarfj. 55000 7835 7035 6235 5435 4635 3835 3035 2235 Reykjavík 55000 7390 6590 5540 4440 3240 1940 540 fiafnarfj. 60000 8960 8160 7360 6560 5760 4960 4160 3360 Reykjavík 60000 8390 7590 6540 5440 4240 2940 1540 Ef þessi tafla er athuguð, sýn- ir hún að útsvörin i Hafnarfirði í ár, eru miklu hærri á f jölskyldu fólki en í Reykjavík. Að öðru leyti tala þessar tölur sínu máli og þurfa engar útskýringar. Þá er hér tafla, sem sýnir út- svör á hjónum með 3 börn á Akranesi annars vegar og í Reykjavík hins vegar. Tekjur Akranes Reykjavík Mismunu Kr. 30.500,00 40,00 40,00 — 35.000,00 900,00 900,00 — 40.000,00 1.850,00 1.850,00 — 40.800,00 2.010,00 400,00 1.610,00 50.000,00 3.850,00 2.240,00 1.610,00 — 60.000,00 5.970,00 4.240,00 1.730,00 70.000,00 8.090,00 6.740,00 1.350,00 - 80.000,00 10.200,00 9.240,00 960,00 _ 100.00Q,00 14.200,00 14.240,00 ~ 40,00 — 125.000,00 19.700,00 21.740,00 -^2.040,00 Þigar þessi tafla er athuguð, sést, að bæjarstjórnarmeirihluti vinstri manna á Akranesi, leggur miklu þyngri útsvarsbyrðar á þær fjölskyldur, sem hafa Iágar tekjur og miðlungstekjur, heldur en gert er í Reykjavík. Á hinu bóginn er svo augljóst, að hinir sömu vinstri menn á Akranesi, hlífa heldur þeim, sem meiri tekj ur iiafa. Það er sérstaklega athyglisvert í sambandi við útsvarsstigana i Hafnarfirði og á Akranesi, að í þeim bæjarfélögum eru núver- andi stjórnarflokkar í meirihluta og talar það sínu máli. Þegar þess ar upplýsingar eru athugaðar, verður það auðskilið af hverju stjórnarblöðin þora ekki að birta upplýsingar um útsvarsstigana, heldur grípa til þess að blekkja með tveggja ára gömlum tölum, sem teknar eru upp úr tímariti og enga þýðingu hafa í sambandi við ástandið eins og það er í dag rúmlega þrem þúsundum hærri en á sama tíma í fyrra, en það samsvarar rúmlega 20% aukn- ingu. Guðfrœ&inámskeið PRESTAFÉLÖG dönsku og norsku kirkjunnar hafa boðið Prestafélagi fslands að senda full trúa á vísindaleg námskeið í guð- fræði, er fram eiga að fara seinni hluta október mánaðar í Osló og Kaupmannahöfn. — Séra Páll Þorleifsson prófastur á Skirínastað og séra Jón Auðuns dómprófastur munu sækja nám- skeið þessi fyrir hönd íslenzkra presta. Borgarstjóri flytur ræðu við opnun tómstundaheimilisins í gær. Við háborðið eru: Magnús Gísla- son, námsstjóri, frú Auður Auðuns, forseti bæjarstjórnar, Helgi Hermann Eiríksson, form. Æsku- lýðsráðs Reykjavíkur, borgarstjóri og Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri. Fremst á myndinni eru: sr. Jón Auðuns, dómprófastur, og Ragnar Jónsson, forstjóri. (Ljósm.: Gunnar Rúnar) Æskulýðsráð Beykjavikur heldur uppi murgþættu starfi til að s|á ungu fólki fyrir tómstundaiðþi BORGARSTJÓRINN í Reykjavík opnaði í gær fyrsta tómstundaheimili Æskulýðsráðs Reykjavíkur. Heimilið er að Lindargötu 50 og eru þar rúmgóð salar- kynni, sem notuð verða til ýmiss konar starfsemi í þágu ungra Reykvíkinga. Á morgn- ana fer þar fram kennsla í Gagnfræðaskóla verknáms. eftir hádegi verður húsnæðið notað sem lestrarsalir fyrir skólafólk og síðdegis og á kvöldin fer fram ýmiss konar tómstundaiðja pilta og stúlkna — saumar og bast- vinna, bókband, útvarpsvirkj - un og ljósmyndagerð. — Þá verða þarna skrifstofur Æsku lýðsráðs Reykjavíkur. Ráðið hefur nú starfað um nær tveggja ára skeið og unnið mikið og gott verk til að auð- velda æskufólki að verja tóm- stundum sínum við þrosk- andi störf og skemmtanir. — Meðal ræðumanna við opnun tómstundaheimilisins í gær voru formaður ráðsins, Helgi Hermann Eiríksson, og fram- kvæmdastjóri þess, séra Bragi Friðriksson. Æskulýðsráð Reykjavíkur Helgi Hermann Eiríksson tók fyrstur til máls. Hann rakti sögu Æskulýðsráðs Reykjavíkur, er borgarstjóri skipaði seint á árinu 1955. Þann vetur gekkst ráðið fyrir tónleikum, skákkennslu o. fx. en ráðið ræddi auk þess við fjölda unglinga, kynnti sér ástæð ur æskunnar og áhugamál og fékk bendingar um það, er gera þurfti. Haustið 1956 var séra Bragi Friðriksson ráðinn framkvæmda- stjór* ráðsins, og skipuiagði hann ýmiss konar tómstundastarf á þess vegum. Var unnið í mörgum flokkum í húsnæði, sem fengið var að láni á ýmsum stöðum í bænum. Nú hefur ráðið fengið leigt gott húsnæði, og þakkaði ræðumaður öllum þeim, sem hjálpað hafa til að það yrði, einkum borgarstjóra fyrir að koma starfseminni af stað og styðja hana með ráðum og dáð. „En framtíðardraumur- inn er eigið hús“ sagði Helgi Her mann að lokum. Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri sagði m.a.: í Reykjavík er reynt að rétta æskunni hjálpandi og styrkjandi hönd. í Heilsu- verndarstöðinni er ungbarna- vernd og mæðrahjálp. Síðan taka við ýmsar stofnanir, þar sem at- hafnaþrá barnanna fær útrás í leikum eða þeim börnum er séð farborða, sem ekki eiga nákomna að. Til þess eru leikvellir og ým- iss konar barnaheimili. Þegar börnin eldast taka svo skólarnir við: barnaskólar, unglinga- og gagnfræðaskólar og ýmsir sér- skólar. En æskan á tómstundir, sem stemma verður stigu við, að sé eytt í iðjuleysi eða óho’llar skemmtanir. Þess vegna eru ungu fólki í skólum og við störf í atvinnulífinu sköpuð tækifæri til að svala athafna- og skemmt- anaþrá sinni á heilbrigðan hátt. Það er þjóðfélaginu til hags, að ungmennunum sé forðað frá freistingum. Hlutverk Æskulýðs ráðs Reykjavíkur er því bæði vandasamt og veglegt: að vígja æskuna Guði og hjálpa henni að temja sér góða siði og hollar lífs venjur. Séra Bragi Friðriksson gat þess í ræðu sinni, að Æskulýðsráðið ætti bæði að vera vettvangur til umræðna um æskulýðsmál og sá aðili, sem af bæjarfélagsins hálfu vinnur að þvi að fá ungu fólki þroskandi tómstundastörf og auka heilbrigða gleði hennar. Þá lýsti ræðumaður hinum nýju húsakynnum. Eru þau alls um 160 ferm., tveir stórir salir, skrifstofuherbergi, lítið vinnu- herbergi og Ijósmyndaklefar. Voru þeir teknir í notkun s.l. vor. Eins og fyrr segir fer þarna fram verknám á morgnana á vegum Gagnfræðaskóla verknáms. Eftir hádegi geta unglingar komið og lesið námsbækur sínar 2—3 klst., en síðan hefst ýmiss konar tóm- stundaiðja. Kennarar verða þau Jón Pálsson og Ingibjörg Hannesdóttir, og hafa þau unnið mikið starf við að koma húsnæðinu við Lindar- götu í gott horf. Við það hafa einnig unnið unglingar, sem síð- ar munu ásamt félögum sinum njófli góðs af því, er þarna hefur verið gert. Séra Bragi ræddi sér- staklega um þátt æskunnar í að koma upp tómstundaheimilum, en víða erlendis, og reyndar einn xg hér i Reykjavík — hafa ein- staklingar og hið opinbera fengið æskulýðssamtökum í hendur ó- notað húsnæði og þau síðan lag- fært það sjálf. Hefur það verið mjög þroskandi starf. Séra Bragi drap nokkuð á aðra starfsemi æskulýðsráðsins. Það stendur að tómstundastarfi víða um bæinn í vetur — í Langholti, Smáíbúðahverfi, Laugarnes- hverfi, í Miðbæjarskólanum, Fé- lagsheimili KR og e.t.v. víðar. Þá vinnur ráðið að því að fá sam- tök, er vinna í þágu æskunnar, skátafélögin, íþróttafélögin og kirkjuna, til að taka upp ýmsa starfsemi. Veitir ráðið aðstoð í því sambandi. Mun í vetur verða félagsleg miðstöð fyrir æskufólk í flestum hverfum í bænum. Þá stuðlar æskulýðsráðið að því, að ungt fólk geti notið ýmiss konar lista. Sinfóníuhljómsveitin mun halda 2 tónleika í samráði við það í vetur, efnt verður til jólasöngva o. fl. ★ Er tómstundaheimilið var opn- að í gær voru viðstaddir ýmsir forystumenn í uppeldismálum. Auk fyrrnefndra ræðumanna tóku þeir séra Jakob Jónsson og Arngrímur Kristjánsson, skóla- stjóri til máls. í æskulýðsráði eiga þessir menn sæti: Helgi Hermann Ei- ríksson (formaður), Baldur Möll er, Berndt Bendtsen, frú Elsa Guðjónsson, Ingimar Jóhannes- son, séra Jón Auðuns, Ragnar Jónsson, og dr. Símon Jóh. Ág- ústsson. Ráðunautar þess eru Jónas B. Jónsson og Magnús Gislason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.