Morgunblaðið - 02.10.1957, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.10.1957, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 2. okt. 1957 MO*rr?\itT 4Ð1Ð 9 Aðalfundur Verzlunarráðsins: Horfið af braut frjálsra viðskipta Vikizt undan merkjum alþjóðlegrar samvinnu Varað við óheiIlaþróun Réttarbóndinn, Högni Pétursson á Ósi, t. h. á myndinni. Lengst til vinstri er Ólafur Hálfdánsson, fyrrum bóndi í Meirihlíð. Mytedorleg ný ifárrétt vígð í Bolungarvík Kostaði um 150 þúsund krónur BOLUNGARVÍK, 27. sept. — Mánudaginn 23. þ. m. voru göng- ur hér í Bolungavík og var þá vígð ný fjárrétt hér, sem stendur á sandinum rétt innan við kaup- túnið. Gamla réttin var á Hóli, og mjög úr sér gengin, en útrétt er svo í Skálavík utan heiði. — Búnaðarfélagið hefur staðið fyrir framkvæmdum þessum, en hreppsfélagið mun greiða Vi hluta kostnaðarverðs, og Búnað- arfélagið sjálft að líkindum nokk urn hluta, en hitt munu fjáreig- endur greiða í hlutfalli við fjár- eign sína, og er talið, að þeir muni þurfa að greiða sem svarar 50 krónum á hverja kind, sem þeir eiga. Áætlað er að kostnaðurinn alls muni verða í kringum 150 þús. kr. Réttin er mikið mannvirki. Steyptar undirstöður og staurar, en milliskilrúm úr trégrindum. 33 dilkar eru í henni, en réttin er hringlaga, og er í henni miðri stór almenningur. Aðrekstur er mjög góður frá veginum fram sandinn, og rennur féð eftir nokkurs konar trekt inn í rétt- ina. Aldrei hefur jafnstór fjár- hópur verið réttaður hér í Bolungarvík sem nú, en fjáreign- in mun nú vera um 2500 ær. Mest af fé þessu eiga bændur í hreppn- um, en fjölmargir menn í kaup- túninu eiga og kindur, og er að því hin mesta búbót. Mikil ánægja og gleði ríkti „á réttinni" líkt og í gamla daga. Fánar voru við hún í réttinni, og látlaus straumur fólks kom til að skoða mannvirkið. Réttarbóndi var að þessu sinni Högni Pétursson bóndi að Ósi. Búnaðarfélaginu er mjög þökkuð forganga þessa máls, en formaður þess er Þórður Hjaltason sím- stöðvarstjóri. Um kvöldið hélt Búnaðarfélagið samkomu í Félags heimilinu. Þar hélt Steinn Emils- son sparisjóðsstjóri ræðu um bú- skap í Hólshreppi fyrir 100 ár- um, og gerði hann samanburð á aðstöðu og framkvæmdum þá og nú. Síðan var stiginn dans fram eftir nóttu. —Fréttaritari. . A AÐALFUNDI Verzlunarráðs íslands, sem nýlega er lokið voru I gerðar ýmsar ályktanir um við- skipta- og efnahagsmál. Fara hinar helztu þeirra hér á eftir: Viðskiptamál Fyrir nokkrum árum mörkuðu stjórnarvöld landsins þá stefnu, að viðskiptin við útlönd og inn- anlands skyldu vera sem frjáls- ust og haftaminnst, og að at- vinnuvegirnir skyldu standa á eigin fótum án styrkja. Þessi stefna var einnig yfirlýst með þátttöku í alþjóðasamtökum, sem vinna að eflingu frjálsra við- skipta og hafa náð góðum á- rangri, aðildarþjóðunum til mik- illa hagsbóta. Nú hefur verið horfið af þess- ari braut hér á landi, tekin upp höft og auknir styrkir, og vikizt undan merkjum hinnar alþjóð- legu samvinnu. Það er augljóst, að með lögunum um útflutnings- sjóð hefur ekki tekizt að ná jafn- vægi í greiðsluviðskiptunum við útlönd. Verzlun landsmanna hef- ur á ný verið færð í Ijötra og þjónusta hennar við almenning lömuð. Varað við óheillaþróun Aðalfundur V. 1. 1957 varar eindregið við þessari óheillaþró- un og bendir á nauðsyn þess, að gerðar verði sem fyrst ráð- stafanir, sem miði að sem frjáls- ustum viðskiptum, enda hefur reynslan sýnt, að frjáls viðskipti við eðlilegar aðstæður skapa hag- stæðust verzlunarkjör fyrir neyt- endur. Fundurinn gerir sér ljóst, að nauðsynlegt skilyrði fyrir því, að þessu marki verði náð, sé það, að fjárfesting og neyzla þjóðar- innar verði ekki meiri en raun- verulegar þjóðartekjur leyfa. Það er því nauðsynlegt, að ríki og bæjarfélög, sem ráða yfir mikl- um hluta þjóðarteknanna stuðli að jafnvægi með því að stilla ' hóf framkvæmdum sínum og öðrum útgjöldum. Það er ennfremur höfuðnauð- syn, að skapað verði traust á verðgildi peninga, svo að sparn- aður eflist, en hann er undir- staðan undir eðlilegri, hafta- lausri fjárfestingu. Þótt slíkar ráðstafanir komi ekki sizt niður á verzlunarstétt- inni, telur fundurinn þær óhjá- kvæmilegar, til þess að frjálst og heilbrigt efnahagslíf fái þróazt. Verðlagsmál. Aðalfundur V. I. 1957 vill benda ríkisstjórn og verðlags- yfirvöldum á þá staðreynd, að verðlagsákvæði þau, sem sett hafa verið á þessu ári, eru hvergi nærri í samræmi við kostnað við innkaup og dreifingu vara í land- inu, en lögum samkvæmt ber að miða við þörf fyrirtækja, sem hafa vel skipulagðan og hag- kvæman rekstur. Verðlagsákvæðin gera verzlun- inni ókleift að veita fullnægj- andi þjónustu og hafa viðunandi vöruúrval á boðstólum, en það hlýtur að bitna á almenningi í landinu. Aðalfundurinn krefst þess, að eðlileg samkeppni um hagkvæm innkaup og þjónustu við almenn- ing verði látin ráða úrslitum um vöruverð, en að öðrum kosti verði verðlagsákvæðin endur- skoðuð og miðuð við raunveru- legan kostnað við innkaup og dreifingu vara í landinu. Utanríkisviðskipti. Aðalfundur V. 1. 1957 varar við þeirri hættu, sem verzlun landsmanna stafar af því, að binda utanríkisviðskiptin æ meir við vöruskiptalöndin. Fundurinn skorar á ríkisstjórn- ina að stefna að því, að mark- aðir, sem fyrir hendi eru í frjáls- gjaldeyrislöndunum, séu nýttir betur en verið hefur. Skortur á nauðsynjavödum Aðalfundur V. í. 1957 vekur at- hygli á því, að yfirfærsla fyrir frílistavörum sé að miklu leyti stöðvuð, og því sé orðinn skortur á ýmsum nauðsynjavörum, og valdi það truflunum í ýmsum greinum atvinnulifsins, sem ráða þyrfti bót á sem fyrst. Jafnframt gerir aðalfundurinn kröfu til þess, að innflutnings- yfirvöld og gjaldeyrisbankar hafi nánara samstarf við V. 1. um reglur þær og ágætlanir, sem gerðar eru um innflutning slíkra vara. ‘V ' ■; ' Hin nýja fjárrétt Bolvíkinga. Ebenezer Þor- láksson 80 ára Ebenezer Þorláksson, fyrrum bóndi að Rúfeyjum í Breiðafirði, er áttræður í dag. Hann er fædd ur á Melum á Skarðsströnd, son- ur hjónanna Þorláks Bergsveins sonar frá Svenfneyjum og Jó- hönnu ívarsdóttur konu hans. Dvaldist hann á Melum til tví- tugsaldurs, en fluttist þá til Rúf- eyia með doreldrum sínum. Tók þar við búi og bjó í aldarfjórð- ung. Hann hefir átt heima í Stykkishólmi frá 1928 og stundað sjómennsku lengst af. Ebenezer er hagleiksmaður og vann mikið að bátasmíði. Hann kvæntist árið 1903 Margreti Magnúsidóttur, œtt aðri af Skarðsströnd og eiga þau 3 börn. — í dag dvelst Ebenezer að dælustöðinni að Reykjum í Mosfellssveit hjá syni sínum. Á Kennarafundur ÞRETTÁNDI aðalfundur Kenn- arasambands Austurlands vsir haldinn á Seyðisfirði dagana 14. og 15. sept. sl. Fundinn sátu 16 kennarar af félagssvæðinu. Vegna slæmrar færðar á Fjarðarheiði komu færri en ætluðu. Fundarstjórar voru þeir Ragnar Þorsteinsson, Eskifirði, og Ármann Halldórs- son, Eiðum. Sambandsstjórnin hafði fengið þá Kristin Björnsson, sálfræð- ing, og Óskar Halldórsson, kenn- ara, Reykjavík, til að halda er- indi á fundinum. Nefndi Kristinn sitt erindi „Sitt af hverju um námsörðugleika og afbrigðileg börn í skóla“. Óskar -talaði um móðurmálskennsluna. Spunnust um bæði erindin miklar um ræður. Að loknum fundi hlýddu fundarmenn messu hjá séra Er- lendi Sigmundssyni. Þá var gest- um sýnt hið ágæta leikhús Seyð- isfjarðar, Herðubreið, og að síð- ustu sátu fundarmenn kaffiboð fræðslunefndar Seyðisfjarðarbæj ar. Fundurinn samþykkti margar ályktanir og tillögur. Stjórn sambandsins skipa nú: Þórður Benediktsson, Egilsstaða- kauptúni, Guðmundur Magnús- son, s. st., og Ármann Halldórs- son, Eiðum. Keflavík — Njarðvík Strauvél, Empire, til sölu. Sími 233. — Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja frá Þingdal í Villingaholtshreppi í DAG fer fram bálför Guðbjarg- ar Jónsdóttur. Grettisgötu 19 B, hér í bæ. Hún var fædd 9. des. 1880, að Siðra-Velli í Gaulverja- bæjarhreppi, hún lézt að heimili sínu Grettisgötu 19 B, 24. sept. sl. Guðbjörg giftist árið 1915 Guð- mundi Guðmundssyni bónda að Þingdal, sem þá var ekkjumaður, og átti 3 ung börn. Guðmundur er látinn fyrir nokkrum árum. Með manni sínum átti Guðbjörg eina dóttir, Rögnu, sem búsett er á Grettisgötu 19 B. Guðbjörg reyndist þeim vanda vaxin að reynast frammúrskar- andi góð stjúpmóðir og móðir, lét hún sér í einu og öllu eins annt um stjúpbörnin, sem sitt eigið barn. Við hjónin vorum gerkunnug þessu heimili, okkur er því bæði skylt og ljúft að minnast þessara ágætu hjóna með þakklæti og virðingu. Með Guðbjörgu Jónsdóttur er horfin sjónum vorum geðþekk og góð kona, sem ætíð lét lítið á sér bera, enn reyndist því betur þegar á reyndi. Þegar ég hugleiði starfsferil Guðbjargar og þau kynni er ég hafði af henni og heimili hennar, verður mér það ljóst að horfin er sjónum vorum fyrirmyndar húsfreyja, sem í einu og öllu reyndist köllun sinni trú. Að fara fleiri orðum um þessa kyrrlátu konu er engin þörf, allir þeir er kynni liöfðu af henni, munu sakna hennar og minnast Herbergi óskast strax í eða nálægt Miðbæn- um, með aðgangi að baði og síma. Ágætt tækifæri fyrir þann, eða þá, sem vilja tryggja sér kennslu í tungu málum. Tilb. merkt: „Gra- duate — 6791“, sendist blað inu fyrir föstudagskvöld. með þakklæti og hlýhug, og þá fyrst og fremst stjúpbörnin, einka dóttirin og dótturbörnin. Orðstír góðrar móður deyr aldrei. — H. J. Ráðskona — Húsnæði óska eftir ráðskonuslöða, eða taka á leigu 1—2 stof- ur. Má vera hjá manni, er óskað’ heimilishjálpar. Hef sjálfstæða heimavinnu. Kjör eftir aðstöðu. Tilb. sendist Mbl., til mánudags, merkt: „Áreiðanlegheit — 6796“. Vegna flutninga er til sölu strax, 2ja liuroa fataskápur, rúmgóðúr. Raf- urmagns bökunarofn, þýzk gerð A. E. G. — 4ra manna tjald. Nýr svefnpoki. Her- mannabeddi. Olíuvél, góð í sumarbústað. Nýr prírnus, hljóðlaus. Nýr bónkústur. Uppl. í íma 10801.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.