Morgunblaðið - 02.11.1957, Blaðsíða 9
Laugardagur 2. nóv. 1957
mopr.rnsnr mðíð
»
Kristján Albertsson:
HIN NÝJA STÉTT
1.
MEÐAN vestrænir blaðamenn og
rithöfundar voru svo að segja
einir um að fræða frjálsan heim
um stjórnarhætti og lífskjör aust-
an járntjalds, átti forherðing og
þrjózka hægt um vik með að
kalla alla rétta fræðslu um
kommúnismann Rússaróg og öðr-
um álíka nöfnum. En nú hefur
einn af fyrri höfuðgörpum eins
kommúnistaríkis, Júgóslavinn
Milovan Djilas, lýst vonbrigðum
sínum og örvænting í bók sem
staðfestir í einu og öllu þá vit-
neskju sem vestrænn heimur
hafði fengið um ástandið austan
járntjalds. Þeir sem haldið hafa
uppi lyga-áróðri til að gylla það
ástand, hafa ekki orðið fyrir
meira áfalli, en þetta rit mun
reynast — Hin nýja stétt, sem út
kom á ensku í sumar, og nú mun
verða þýtt á flestar tungur hins
frjálsa heims.
Djilas gerðist ungur lærður
marxisti og eldheitur kommún
isti, barðist við hlið Títós fyrir
frelsi Júgóslavíu undan oki Hitl-
ers, varð einn af fremstu forvígis-
mönnum við uppbyggingu hins
unga kommúnistaríkis og vara-
forseti landsins. En þegar frá leið
og reynslan kvað upp dóm sinn,
og hvarvetna blasti við hörmung
og öngþveiti, skarst hann úr leik
valdhafanna, játaði hvernig kom-
ið væri, hóf sannorða og hlifðar
lausa gagnrýni á aðfarir og skipu
lag. Honum var vikið úr flokkn-
um, 1954. Og í fyrra var hann
dæmdur í þriggja ára fangelsi fyr
ir að láta í ljós andstyggð sína,
þegar Júgóslavia sat hjá við at-
kvæðagreiðslu á þingi Sameinuðu
þjóðanna um tillögu, sem for-‘
dæmdi vopnaða árás Sovét-Rúss-
lands á hendur Ungverjum.
Júgóslavía hafði eignazt nýja
þjóðhetju — mann, sem elskaði
sannleikann og reis gegn forsmán
og kúgun, án þess ao hirða um
hverjar afleiðingar það hefði fyr-
ir sjálfan hann.
En áður en Djilas var varpað
i fangelsi hafði hann lokið við
bók sína, og komið handritinu úr
landi. Hér skal stuttlega gerð
grein fyrir lýsingu hans á ríki
því, sem stofnað var með bylt-
ingu í nafni öreiganna.
2.
1 þessu ríki vegnar öllum verr
en áður, til sálar og líkama, nema
kommúnistum sjálfum. Nýr eigna
réttur hefur skapazt, eign á valdi,
flokkseinokun á valdi, sem notað
er til þess að skipta þjóðartekj-
unum, ákveða laun, stjórna fjár-
hagsþróuninni. Þessi nýi eigna-
réttur er í höndum kommúnista,
sem þannig verða hin nýja eigna-
stétt landsins. Stétt sem reynir
að fela sig bak við „sósíalískt
orðahjóm", en þó einkum bak við
hinn nýja „sameiginlega eigna-
rétt“ — sem er í reyndinni ekki
annað en eignaréttur valdhaf-
anna á öllum og öllu. Allir þeir,
sem vilja geta lifað eins og blóð-
sugur á annarra kostnað, keppa
að völdum. Að vera meðlimur í
kommúnistaflokknum er að til-
heyra forréttindastétt landsins.
„Kjarni flokksins er einráðir yf-
irdrottnarar og arðræningjar“,
segir Djilas.
Stalin skóp hina nýju stétt, eft-
ir að byltingu kommúnismans
var lokið, og rótfesti vald henn-
ar. Síðan var farið eins að í hin-
um minni kommúnistaríkjum.
„Hetjutímanum er lokið. . . . Tími
hagsýnna manna hefur tekið við.
Hin nýja stétt hefur verið sköpuð.
Hún er nú á hátindi valda sinna
og auðlegðar, en snauð af nýjum
hugmyndum. Hún hefur ekkert
nýtt að segja fólkinu. Hið eina
sem hún á eftir, er að réttlæta
sjálfa sig“.
„Sumarbústaðir, beztu íveru-
hús, innanstokksmunir og annað
slíkt hefur verið tekið trausta-
taki, sérstök borgarhverfi og dýr-
indishvíldarheimili stofnsett fyr-
ii æðstu embættismenn, úrval
hinnar nýju stéttar. Á ýmsum
Kommúnismi án Stalinisma
stöðum urðu ritari kommúnista-
fiokksins og æðsti maður leyni-
lögreglunnar ekki aðeins valda-
mestu menn, heldur líka þeir sem
fengu beztu húsin, bíla og önnur
forréttindi. Undirmenn þeirra
nutu svipaðra réttinda, allt eftir
stöðu þeirra og valdi. Fjárveit-
ingar, „gjafir" nýbyggingar og
endurbyggingar urðu að sístreym
andi og ótæmandi lindum hvers
konar hagnaðar fyrir hina póli-
tísku skriffinnskustétt".
Skipulagið leiðir óhjákvæmi-
lega til spillingar, segir Djilas:
„Það verður að hugsa fyrir öllum
fiokksmönnum, sjá þeim fyrir
tekjuháum stöðum, úthluta alls-
konar forréttindum. Hugur þess-
Milovan Djilas
ara manna snýst um þau fríðindi,
sem þeir hafa upp úr flokksfylgi
sínu“. Háttsettur kommúnisti
sagði við Djilas: „Hugur minn er
í raun og veru þrískiptur: Eg sé
þá sem hafa betri bíl en eg hef,
og þó eru ekki tryggari flokki og
sósíalisma en eg; og eg lít ofan
úr hæðunum til þeirra, sem hafa
engan bíl, því þeir hafa ekki til
hans unnið. Og er svo ánægður
með þann sem eg hef“.
3.
Öll eign er að lögum þjóðar-
eign, en farið er með þjóðareign-
ina eins bezt hentar þeirri for-
réttmdastétt sem valdið hefur,
segir Djilas. Þannig verður vald
og eign eitt og hið sama. Þetta
finnur fólkið, og þess vegna verð-
ur sérhver krafa um frelsi að
ógnun, því hún er krafa um íviln-
anir og rétt til gagnrýni, og ef
undan er látið neyðist valdastétt-
in til að taka af sér grímuna og
kannast við arðránið. „Þannig
verður nær ómögulegt að breyta
núverandi skipulagi", segir Djil-
as.
Þetta alræði er hvergi lögfest,
en alls staðar nálægt. „Engin lög
fyrirskipa að leynilögregla skuli
vaka yfir lífi borgaranna, en hún
ræður hverju sem hún vill ráða“.
„Kommúnískt skipulag er stöð-
ug borgarastyrjöld milli fólksins
og stjórnarinnar". Það er í raun
og veru ekki ríkið sem kúgar
borgarana, heldur flokkurinn
sem kúgar bæði ríkið og fólkið.
Flokkurinn berst stöðugri bar-
áttu gegn því að ríki og þjóð losi
sig við hann — og verður því að
hafa menn sína alls staðar á varð
bergi, til að verja völd sín og
hagsmuni, á hverri stjórnarskrif-
stofu, í hverju fyrirtæki, í hverj-
um dómstóli.
Engin lög banna frjálsa hugs-
un, og rétturinn til að mynda fé-
lög er viðurkenndur. Lögin
tryggja borgurunum öll hugsan-
leg réttindi, og gera ráð fyrir
dómstólum óháðum ríkisvaldinu,
En flokkurinn sér um að öll
mannréttindi séu aðeins til á
pappírnum. Frelsið er viðurkennt
en verður að notast „í þágu sósíal
ismans“, og flokkurinn ákveður
hvað sé hans þága. Borgararnir
njóta réttinda, en því aðeins að
þeir séu ekki „óvinir sósíalism-
ans“ — og leynilögregla og dóm-
arar eru einráðir um að ákveða,
hvað teljist óvinátta við skipu-
lagið; skýrgreining í lögum ekki
til.
Dómar fyrir pólitískar misgerðir
eru oftast ákveðnir fyrirfram af
fiokknum. Hlutverk réttarins
verður að finna sannanir fyrir
því, sem sanna skal, teygja lögin
’svo að þau verði að svikahjúp
yfir pólitíska ofsókn. „Fólitísk
málaferli í Júgóslavíu eru aðeins
vasaútgáfa af málaferlunum í
Moskvu“, segir Djilas. Og enn-
fremur:
„Nýrri tíma saga veit engin
dæmi um aðfarir gegn almennri
stjórnarandstöðu sem séu eins
hrottalegar, ómannúðlegar og ó
löglegar eins og framferði komm
únistastjórnanna. Hernámsyfir-
völd og nýlendustjórar grípa
sjaldan til svo miskunnarlausra
aðgerða, enda þótt þær hafi að-
stöðu sigurvegara, og framkvæmi
refsiaðgerðir sínar samkvæmt
reglujn og lögum sem miðast við
undantekningar-ástand. Kommún
ista-valdahafar beita þeim gegn
sínum „eigin“ löndum, og með
því að fótumtroða sín eigin lög“.
Allir vita hvað kosningar eru
í kommúnistískum ríkjum. „Ef
ég man rétt kallaði Attlee þær
„veðreiðar með einum hesti“, seg
ir Djilas. Flokkurinn ræður hverj
ir fá að vera í kjöri. Þingin koma
saman, og ráða engu. Hlutverk
þeirra er að samþykkja í einu
hljóði það sem flokksforustan
hefur ákveðið að samþykkja
skuli. Djilas er ekki myrkur í
máli um þessa stjórnarháttu:
„Það er hvorki loft né birta
undir járnhæl kommúnismans.
. . . Fólkið vantreystir ósjáifrátt
hinni nýju leið, og spyrnir við í
hverju skrefi, og í hverju atriði.
í dag er þessi viðspyrna þjóðanna
hin mesta, raunverulegasta
hætta fyrir kommúnistastjórn-
irnar. Þessar fámennisstjórnir
vita ekki framar hvað múgurinn
hugsar og finnur. Þær finna að
þær eru í hættu staddar úti á haf
djúpi dimmrar óánægju. . . Þótt
sagan viti engin dæmi um skipu
lag, sem jafhvel tókst að berja
niður alla andstöðu, þá hefur
heldur ekkert stjórnarfar nokkru
sinni vakið jafn-djúptæka og al-
menna óánægju. . .Kommúnist-
ískt einræði leiðir til allsherjar-
gremju, þar sem allur ágreining-
ur máist út, nema örvænting og
hatur. Ósjálfráð andspyrna — ó-
ánægja milljónanna með fyrir-
bæri hins daglega lífs — það er
sú andspyrna sem kommúnistar
hafa ekki enn getað unnið bug á“.
„Þessi einræðisklíka sálar-
hjálpræðismanna, þessir árvök-
ulu verndarar, sem gæta þess að
mannleg hugsun villist ekki út á
brautir „glæpsamlegra hugrenn
inga“ eða inn á „and-sósíalistíska
línu“, þessir harðhenntu útveg-
endur ódýrs búðarvarnings, sem
nú er hinn eini fáanlegi; þessir
játendúr úreltra, óbreytanlegra
og ólífrænna hugmynda hafa
stöðvað og fryst hvert vitsmuna-
legt lífsmark með þjóðum sínum.
Þeir hafa upphugsað mannúðar-
snauðustu orðatiltæki — „að
reyta upp úr mannlegri vitund"
— og breytt samkvæmt þeim,
eins og þeir væru að fást við ill-
gresi og rætur, en ekki hugsanir
mannanna. Með því að bæla nið-
ur hugsanalíf annarra, og lama
karlmennskuþrótt mannlegra
vitsmuna, svo þeir glata kjark-
inum til að lyfta sér til flugs,
hafa þeir sjálfir orðið grámyglu-
legir, hugmyndalausir, gersneydd
ir þeim eldmóði sem kviknar af
óháðri hugsun. Leikhús án á-
horfenda: leikendurnir leika og
fyllast fögnuði yfir sjálfum sér.
Þeir hugsa jafn-sjálfkrafa og þeir
éta; heilar þeirra sjóða saman
hugsanir til að fullnægja brýn-
ustu þörfum. Þannig er komið
fyrir þessum æðstuprestum, sem
eru í senn lögreglumenn og eig-
endur allra tækja, sem mannlegt
vit notar til þess að tjá hugsanir
sínar — blaða, kvikmynda, út-
varps, sj ónvarps, bóka og annars
slíks — og jafnframt alls sem til
þarf, að viðhalda lífinu — fæðu
og þaks yfir höfuðuð“.
5.
Oft hefur heyrzt á síðari árum,
Japönsk reknef úr gerviefni
verða reynd fil síldveiða
„SÍÐAN flugfélögin tóku upp
flugsamgöngur milli Evrópu-
borga og Tokíó yfir Pólinn, eins
og það er kallað, er það ekki leng
ur verulegt ferðalag fyrir jap-
anska kaupsýslumenn að skreppa
til íslands í verzlunarerindum".
— Eitthvað á þessa leið fórust
Kazuo Momoi orð, en hann er
framkvstj. Momoi veiðafæraverk
smiðjanna í borginni Ako, sem
stendur í námunda við hina
japönsku milljónaborg Kobe.
Momoi forstjóri var hér á ferð
fyrár nokkrum dögum og hitti
tíðindamaður Mbl. hann að máli
á Hótel Borg.
Forstjórinn kvaðst vera hingað
kominn til að kynna sér veiðar-
færi þau sem íslendingar nota
mest en einkum hinar ýmsu gerð
ir netja. Eins kom ég fil skrafs og
ráðagerða við umboðsmann verk
smiðjanna hér Þórhall Þorláks-
son forstjóra Marco hf., sagði
hann.
Eins og yður mun kunnugt,
sagði Momoi, eru gerviefnin óð-
fluga að útrýma notkun jurta-
efna til veiðarfæragerðar. í dag
þekkist t.d. ekki annað á íslenzk-
um fiskibátum en að þorskanet
sé úr næloni.
Sú spurning mun hafa vaknað
hjá ísl. útgerðarmönnum, úr því
fregnir hafa alltaf annað kastið
borizt um að síld sé í sjónum hér
Kazuo Momoi
við Faxaflóa, en veiðist ekki,
hvað valda muni. Gæti hugsazt
að reknet úr gerviefni væru fiskn
ari en gömlu netin ykkar?
Heima í Japan hefur notkun
gerviefna í veiðafærum jap-
anskra fiskimanna valdið straum
hvörfum í sjávarútvegi lands-
manna.
Eftir síðari heimstyrjöldina
misstu Japanir um helming veiði
svæðis síns. Það er svo aftur stað
reynd að þrátt fyrir þetta, hefur
aflamagnið aukizt sem hinn jap-
að ekki mætti rugla saman komm
únisma og Stalinisma. Staliu
hafi verið meingalláður, komið
óorði á hina „fögru hugsjón“.
Menn yrðu að meta kommúnis-
mann eftir til dæmis Júgóslaviu,
þar hafi allt blessast, því Tító
hafi forðast að draga dám af Stal
in, farið sinar eigin, göfugu leið-
ir að markinu — mannúð, rétt-
læti, bræðralagi, bættum lífs-
kjörum.
En nú vitum við, svo. að ekki
verður framar um það deilt,
hvað kommúnismi án Stalinisma
hefur verið, er og mun verða. Því
það er vafalaust rétt sem Djilas
segir — hin nýja yfirstétt mun
sjá fyrir því, með oddi og egg
ef með þarf, að engin breyting
geti orðið. Kommúnistaflokkur-
inn á ríkið og þjóðina, og er ráð-
inn í að sleppa ekki tangarhaldi
á eign sinni.
Hundruð íslenzkra sjómanna,
kaúpsýslumanna, æskumanna,
hafa á síðari árum haft kynni af
löndum austursins, og alstaðar
heyrir maður sömu sögu: þeir
sem áður voru meir eða minna
hlynntir kommúnisma, vilja ekki
framar á hann minnast, eða játa
hreinlega sárustu vonbrigði, og
djúpa meðaumkun með hinum
kvöldu og kúguðu þjóðum.
En forsprakkar kommúnista,
sem leggja leið sína um austrið
sem dúðaðir heiðursgestir, enda
umboðsmenn Moskvu-valdsins á
íslandi, búa á dýrindis hótelum,
eða hvíldarheimilum forréttinda
stéttarinnar, stundum mánuðum
saman, ef til vill með alla fjöl-
skyldu sína — og það ber ekki
á Því að þeir hafi neitt skilið.
Þeir koma aftur með lofgjörð á
vörum og harðánægðir.
Það má vel vera að þeir hafi
ekkert skilið, nema hvað hinni
nýju stétt leið vel, í bílum sínum
og loðfeldum, — afskaplega vel.
°g allt bendir til þess, að sá
skilningur hafi ekki gert þá að
minni kommúnistum en þeir
voru áður.
Með hverju ári verður erfiðara
að skilja að menn með fullu viti
geti verið kommúnistar á fslandi
af öðru en tilhlökkun eftir
hinni nýju stétt, sem erfi vald-
ið, ríkið, húsin, bílana — og haldi
síðan öllum hinum í miskunn-
arlausum þrældómi.
anski fiskifloti nú landar, miðað
við fyrir heimstyrjöldina. Það
eru gerviefnin í veiðarfærunum
sem þessu valda. Japanir eru
mesta fiskveiðiþjóð heims og eru
um 2 milljónir manna sem starfa
á fiskiskipunum, sem eru allt frá
smæstu trillum upp í stóra togara
álíka og þeir sem þið íslendingar
eigið.
Veiðafæraverksmiðja mín, er
faðir minn stofnsetti, framleiðir
nú 65% þeirra fiskinetja sem
seld eru til útflutnings frá Jap-
an. Ég er sannfærður um, sagði
Momoi að gerviefnin marlon og
livlon, sem þér munið tæplega
hafa heyrt getið, munu ryðja sér
til rúms hér á landi. Þessi efni
eru ódýrari en nælon og þau
hafa reynzt frábærlega vel til
notkunar í reknet og eins í herpi
nætur.
Við munum senda hingað flug
leiðis slík reknet til reynslu
væntanlega þegar í nóvember-
mánuði.
Ég hefi haft þá ánægju að kynn
ast allmörgum íslenzkum útgerð
armönnum og einnig nokkrum
skipstjórum. Bar fundum okkar
saman á fiskiðnaðarsýningunni í
Hamborg fyrir skemmstu. Hefi
ég síðan átt tal við þessa menn
um fiskveiðar hér við Iand og
ýmislegt þeim viðkomandi, mér
til mikillar ánægju og fróðleiks.
Að lokum sagði Kazuo Momoi,
forstjóri, sem er mjög viðkunn-
anlegur maður, hægur í allri
framkomu og yfirlætislaus, að
hann vonaðist til þess að fá tæki
færi til þess síðar að koma hing-
að á björtum sumardegi