Morgunblaðið - 02.11.1957, Page 16
VEÐRIÐ
Norðan gola, léttskýjað
249- tbl. — Laugardagur 2- nóvember 1957
Kristján Aiberfsson
skrifar um Djilas, sjá bls. 9.
Mynd þessi var tekin á Kiljanskvöldi hjá American-Scandinavian Foundation í New York hinn
24. okt. sl. Þar voru margir tslendingar samankomnir og drukku þeir kaffi með skáldinu. — Á
myndinni eru: Garðar Gíslason stórkaupmaður og frú, Halldór Kiljan Laxness og frú og Richard
Richardsson, formaður íslendingafélagsins í New York. — Ljósmynd: Gunnar Andersen.
Svíþjóð sitfraði í norrænu
sundkeppninni 1957
Aukning bar varð 71,72°/*% — jbátt-
taka hér minnkaði um 33,6% frá '54
I GÆR URÐU úrslit kunn í norrænu sundkeppninni á sl. sumri.
Svíar unnu keppnina nú og bikar er Kekkonen Finnlandsforseti gaf
til keppninnar. Takmarkið var að sýna sem mesta aukningu frá því
IE54, og aukning þátttakenda í Svíþjóð nam 71,72%. Næst kom
Noregur, þá Finnland, síðan Danmörk og ísland rak lestina að
þessu sinni.
Fyrirkomulag
Tölur þátttakenda og aukning
íer hér á eftir:
Svíþjóð
Noregur
Finnland
Danmörk
ísland
235205
46027
121168
28130
24631
71,72%
64,65%
■1-23,04%
25,64%
-1-33,60%
Engum blandast hugur um að
keppnisfyrirkomulagið kom ó-
réttlátast niður á íslandi. ísland
hefur áður sýnt þátttöku í keppn
inni, sem er einsdæmi um þátt-
töku í íþróttum, 25,2% þjóðar-
innar syntu 200 metra. Síðan var
farið að keppa um það hver gæti
aukið þátttöku mest og þá höfðu
þær þjóðir, sem mikla þátttöku
höfðu sýnt, litla sem enga mögu-
leika að bæta miklu við. Það má
því enn segja að ísland hafi að
nokkru leyti sigrað nú þegar
þess er gætt hve mörg % íbú-
anna í hverju landi synda en þær
tölur eru þannig: ísland 15,2%,
Svíþjóð 3,2%, Finnland 3,0%,
Noregur 1,4% og Danmörk 0,6%.
Orðsending frá
Morgunblaðinu
VEGNA inflúen-íuiaraldurs
vantar börn til blaðburðar
Meðan þannig stendur a þarf
blaðið að fá börn og unglinga
til að hlaupa í skarðið og taka
að sér biaðburð
Börn þau, sem vilja hjálpa
til eru vinsamlegast beðin að
hringja til afgreiðslu Morgun-
blaðsins, simi 22480, eða koma
og tala við afgreiðsluna Aðal-
stræti 6.
• Þátttaka hér
Aðeins á einum stað á landinu
var þátttaka nú meiri en 1954.
Það var í A-Barðastrandarsýslu,
þar sem 23,5% syntu nú á móti
18,9% síðast. Þessi sýsla er hæst
af sveitunum. Isafjörður er hæst-
ur kaupstaðanna með 31,2%.
Efnt var til keppni milli íbúa
Akraness og Keflavíkur og sigr-
luðu Akurnesingar með 18,7%
móti 18,2%.
Sams konar keppni var milli
Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og
Akureyrar. Akureyringar sigr-
uðu, syntu þar 18,6%, í Hafnar-
firði 17,6% og í Reykjavík 15,2%.
Landsnefnd sundkeppninnar til
kynnti blöðunum úrslitin í gær.
Hafði Erlingur Pálsson, formaður
nefndarinnar, orð fyrir henni og
sagði m. a. að því bæri vissulega
að fagna að fast að 25 þúsund ís-
lendingar hefðu synt 200 metr-
ana. Mörgum hefði hins vegar
þótt þessar norrænu sundkeppnir
of tíðar og jafnvel hefðu þeir
ekki tekið þátt í keppn-
inni nú sem daglega ganga
til lauga. — Aðalatriðið var
að fjöldinn lærði sund eða endur-
nýjaði sundkunnáttu sína fyrir
keppnina. Þegar það er haft í
huga er víst að eðlilegra var að
taka þátt í keppninni, þótt litlar
sigurhorfur væru, en að vera ekki
með. Það er betur |arið en heima
setið.
Augljóst er, sagði Erlingur, að
Island tekur ekki þátt í norrænni
sundkeppni fyrr en að minnsta
kosti að 4 árum liðnum. Erling-
ur færði öllum er að hefðu unn-
íð beztu þakkir.
Benedikt G. Waage, forseti ÍSÍ,
sagði nokkur orð. Ræddi um að
aðalatriðið væri að sem flestir
kynnu sund og héldu við sund-
kunnáttu sinni, hverjir sem svo
sigur bæru úr býtum. Hann lagði
til að slík keppni yrði haldin 4.
hvert ár og jafnan árið eftir
Ölympíuleiki. Þakkaði hann fyrir
hönd ÍSÍ framkvæmdanefndinni
og öllum er að unnu eða tóku
þátt í keppninni.
Faludi kemur í dag
UNGVERSKI ritstjórinn George
Faludi kemur hingað til lands í
dag á vegum félagsins Frjálsrar
menningar. Á morgun heldur
hann ræðu á fundi, sem félagið
Síldar leitað
AKRANESI, 1. nóv. — Tveir
reknitabátar héðan frá Akranesi
fóru út í dag að leita síldar, Sig-
urvon og Júlíus Björnsson. Fimm
bátar fóru og út frá Sandgerði
í dag, og aðrir 5 frá Keflavík. Á
morgun mun varðskipið Ægir
fara út í síldarleit. Afli trillu-
báta er að glæðast. Sá hæsti fisk-
aði 1000 kg í dag. Hér var þýzkt
skip í dag og lestaði skreið.
—Oddur.
efnir til í Gamla bíói kl. 2 síðd.
í tilefni af ársafmæli ungversku
byltingarinnar. Aðrir ræðumenn
á fundinum verða Gunnar Gunn-
arsson og Kristján Albertsson. —
Einnig leikur Gísli Magnússon
píanóleikari ungverska tónlist.
Lík af manni
fannst í húsi
SÍÐDEGIS í gær fannst í húsi
einu hér í bænum lík af manni.
Við athugun kom í ljós að það
hefur sennilega verið búið að
liggja þar inni í upp undir mán-
aðartíma. Var það mjög tekið að
rotna. — Rannsókn málsins var
á byrjunarstigi í gærkvöldi.
Félagsmálaráðherra
Isiands iortUMoskvu
HANNIBAL Valdimarsson fé-
lagsmálaráðherra leggur í dag af
stað til Moskvu og mun hann
verða um 10—12 daga skeið í
ferðinni.
Sigurður Þórðarson
tekur á ný við stjórr
Karlakórs Rvikur
HINN 20. f.m. hélt Karlakór
Reykjavíkur aðalfund sinn. í
byrjun fundarins skýrði formað-
ur frá því, að Sigurður Þórðarson
hefði látið til leiðast að taka á
ný' við söngstjórn kórsins, en
vegna vanheilsu lét hann af því
starfi fyrir einu ári.
Sigurður hefir verið óslitið
söngstjóri kórsins frá stofnun, að
undanskildu síðasta ári, er dr.
Páll ísólfsson stjórnaði kórnum.
Vænta kórfélagar þess, að þeir
fái að njóta starfskrafta Sigurðar
sem lengst, en framar öllu má
þakka honum þær vinsældir, er
kórinn hefir hvarvetna hlotið.
Stjórn kórsins var öll endur-
kjörin, en hana skipa þessir
menn: Haraldur Sigurðsson, for-
maður, Jón Guðmundsson, gjald-
keri, Þorvaldur Ágústsson, ritari,
Helgi Kristjánsson og Sveinn G.
Björnsson, meðstjórnendur.
Kóræfingar eru að hefjast um
þessar mundir.
Flenzan er
ekki í rénun
EFTIR þeim fregnum, sem blað-
ið hafði í gær, af inflúenzunni
hér í bænum, þá mun hún sízt
vera í rénun. Er veikin hér
sennilega miklu almennari meðal
borgarbúa en í öðrum höfuðborg-
um á Norðurlöndum.
í dag mun fara fram „liðs-
könnun“ meðal kennara og barna
og gagnfræðaskólunum, og reynt
að fá úr því skorið hvort heilsu-
farið meðal þeirra sé nú betra eða
eins og það var þá er skólunum
var lokað.
Iðnþíngi lokið
19. IÐNÞINGI íslendinga lauk í
gær. Var þingið haldið í Hafnar-
firði og stóð það í 3 daga,
Á þingfundi i gær var fjárhags
áætlun Landssambands iðnaðar-
manna afgreidd og rætt um skipu
lagsmál þess. Einar Gíslason,
málarameistari í Reykjavík var
kosinn heiðursfélagi sambands-
ins, en hann hefur setið í stjórn
þess þann aldarfjórðung, er það
hefur starfað. Guðjón Magnússon
skósmiðameistari í Hafnarfirði,
Indrið Helgason rafvirkjameist-
ari á Akureyri og Bárður G.
Tómasson, skipasmíðameistari,
ísafirði, voru sæmdir heiðurs-
merki iðnaðarmanna úr gulli og
Guðmundur H. Þorláksson húsa-
smíðameistari Reyjtjavík og Ás-
geir G. Stefánsson, húsasmíða-
meistari Hafnarfirði voru sæmd
ir merkinu úr silfri. Björgvin
Frederiksen og Tómas Vigfússon
voru endurkosnir í stjórn lands-
sambandsins. Auk þeirra eru í
stjórn: Guðmundur Halldórs-
son, Einar Gíslason og Vigfús
Sigurðsson. Þá var rætt um iðn-
fræðslu og um gjaldeyris- og inn
flutningsmál á fundinum í gær.
Þingslit voru síðdegis.
Alþýðusambandi íslands barst
fyrir nokkru boð frá Verkalýðs-
sambandi Sovétríkjanna um að
senda 3 menn til að vera við há-
tíðahöld, sem efnt verður til í
Moskvu á 40 ára afmæli komm-
únistabyltingarinnar í Rússlandi
hinn 7. þ.m. Alþýðusambands-
stjórnin hefur ákveðið að taka
boðinu og fara mennirnir í dag.
I fylgd með félagsmálaráðherra
verða Einar Ögmundsson, bif-
reiðarstjóri í Reykjavík og
Skeggi Samúelsson, járnsmiður
í Reykjavík.
Próf. Ármann !næv-
arr falar í Hallgrims-
kirkju.
A SUNNUDAGSKVÖLDIÐ verð-
ur kirkjukvöld í Hallgrímskirkju.
Er þetta í annað sinn á þessum
vetri sem slíkt kirkjukvöld er
haldið og er ákveðið að þau verði
haldin í vetur fyrsta sunnudag
hvers mánaðar.
Að þessu sinni mun prófessor
Ármann Snævarr flytja fyrirlest-
ur um siðgæðisreglur og réttar-
reglur, en hann er prófessor í
lögfræði sem kunnugt er. — Þá
mun Kristinn Hallsson, óperu-
söngvari, syngja nokkur lög.
Fyrsta kirkjukvöld Hallgríms-
kirkju, sem haldið var 6. október
sl., var mjög vel sótt.
Heim-
dallur
F jöltefli
SKÁKMEISTARINN Ingvar Ás-
mundsson teflir fjöltefli við
Heimdellinga á sunnudaginn kl.
2 í Valhöll. Heimdallur hefur áð-
Ingvar Ásmúndsson.
ur á þessum vetri gengizt fyrir
fjöltefli, og hafa færri komizt að
en vildu. Menn eru þvi minntir
á að koma tímanlega og hafa með
sér töfl, ef unnt er.
Varðarkaffi í ValhÖll
í dag kl. 3-5 s.d.