Morgunblaðið - 04.01.1958, Side 2

Morgunblaðið - 04.01.1958, Side 2
2 MORGVNBLAÐIÐ taugarðagur 4. janúar 1958 Óblíð veðrátta í Fljótsdal fyrir og um jólin Rætt við Gísla Sigurbjomsson: Verður Hveragerði heilsulindabær? SKRIÐUKLAUSTRI, síðasta sunnudaginn 1957 — Veðráttan hefur verið allstórbrotin um jól- in, og tímabil fyrir hátíðina. Að- faranótt 19. des. gerði hér suð- austan stórúrfelli, snjókomu fyrst, en síðan rigningu. Létti um morguninn laust fyrir birtingu, en aðeins stutta stund, því að rétt á eftir brast á ofsa-vestan- veður með éljahrinum. Var fyrri hluta þess dags fátítt ofsaveður af vestri. Dimmviðri var öðru hverju af éljakófi og hleypti öll- um krapaelgnum er var á jörð- inni í svell. Var því spauglaust að komast leiðar sinnar meðan ofsinn var mestur. Tjón varð þó ekki hér um slóðir, svo vitað sé og mun vellstorkan hafa hjálp- að í því efni. Loftvog stóð svo lágt að morgni 19. des. að fæst- ir muna svo lága stöðu. Þeir, sem loftvog höfðu og athuguðu um morguninn, settu yfirleitt ekki fé til beitar. En nokkrir voru þó búnir að láta út fé, er rokið skall á. Ekki varð þó tjón á skepnum, en ýmsir áttu í erfiðleikum við að ná fénu aftur í hús. Á nokkr- um bæjum var ekki farið að hýsa ær. Aftur gerði vestan-ofsaveður á jólanóttina, sennilega engu minna en hið fyrra, a. m. k. sums staðar, en það stóð skemur. Segja má að látlaus vestan-skakviðri hafi verið lengst af þenna tíma. Jörð er mjög svelluð og ekki gott í högum og fremur erfitt umferðar vegna hálku. Fljótsdals vegur'ær víðast undir glærum ís. Hagstæður vetur En þrátt fyrir þessa rosa, verð- ur vetrarkaflinn, sem liðinn er, að teljast mjög hagstæður hér í dal. Sauðfé allviða ekki tekið fyrr en í rosakaflanum fyrir jól- in. Ekki er þó vafi á, að það hefur verið farið að láta hold, þótt nokkuð hafi það verið mis- jafnt eftir gæðum beitilandsins. En oft mun það vera að spara eyrinn, en gæta ekki krónunn- ar að láta fé ganga langt á vet- ur fram án nokkurrar gjafar. Erlingur á VíðivöIIum sjötugur Laugardaginn 21. des. s. 1. átti Erlingur Sveinsson, bóndi á Víði- völlum ytri, sjötugsafmæli. All- margt sveitunga heimsótti hann þann dag. Nokkrar gjafir voru í DAG hefst ný sýning í Sýning- arsalnum á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis. Að þessu sinni gefst mönnum kostur á að skoða eftirprentanir af málverkum heimsfrægra listamanna. Mynd- irnar eru flestar eftir franska, ítalska og hollenzka málara. Þarna er Mona Lisa á einum veggnum, en mest ber þó á verk- um frá þessari öld og þeirri 19. afmælisbarninu færðar, m. a. mál verk af Þingvöllum frá Kaup- félagi Héraðsbúa, en Erlingur var endurskoðandi þess um langt skeið. Oddviti Fljótsdalshrepps var hann um mörg ár. Erlingur er Skagfirðingur að ætt og á allmörg systkini. Kvæntur er hann Margréti Þorsteinsdóttur. Sonur þeirra, Rögnvaldur, er nú tekinn við búi á hluta þeirra úr Víðivöllum. — J. P. Kosningaskrifsfoía Sjá Ifsf æðisf lokksins í Hafnarfirði SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN í Hafnarfirði hefir opnað kosn- ingaskrifstofu í Sjálfstæðishús- inu, Strandgötu 29. Er hún opin dag hvern frá kl. 10 árd. til 10 síðd. Er allt Sjálfstæðisfólk og aðrir, sem vinna vilja fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í bæjarstjórnar- kosningunum, beðið að hafa sam- band við skrifstofuna. Sími hennar er 50228. LONDON 3. janúar. — Samkv. fréttum, sem borizt hafa frá Nepal, hefir enn orðið vart við hina dularfullu snjómenn, sem íbúar við rætur Himalajafjalla hafa talið sig sjá við og við und- anfarna áratugi. Hefur snjómann anna orðiðvart allvíða í nágrenni Katmandu og margt fólk þykist hafa séð þá. Víðast er kvartað yfir því, að snjómenn- irnir ráðist inn í kornmyllur og matvælageymslur að næturlagi og ræni matvælum. Brjóta þeir þá allt og bramla af feiknaafli. Sérstaklega hefir snjómanna gætt í bæ einum skammt norður af Katmandu — og hafa borizt daglegar fregnir til höfuðborgar- innar af spjöllum, sem þeir hafa unnið þar. Ungur bóndi kveðst hafa komið að einum, þegar hann var að rupla í kornhlöðu bónd- ans. Bóndi hélt í brott og safnaði liði, — en, þegar mannsöfnuður- t.d. eftir Degas, Cezanne, Renoir, Gauguin, Van Gogh, Matisse, Picasso, Utrillo, Modigliani o.fl. Myndirnar eru prentaðar í New York. Þær eru allar til sölu, og er aðeins eitt eintak á boðstólum af hverri þeirra, Þær kosta frá 200—350 kr. Sýningin er opin hvern virkan dag kl. 10—12 f.h. og 2—10 e.h. Hún stendur aðeins í 5 daga og aðgangur er ókeypis. Sósíalisiafélögin laka ákvörðun um íramboð Alþýðu- bandalagsins ÞJÓÐVILJINN auglýsir í gær svo að ekki verður um villzt, hverjir hafa völdin í hinu svo- kallaða Alþýðubandalagi. Þar er á fyrstu síðu svohljóð- andi auglýsing: „Fundur Sósíalistafélaganna og Æ.F.R. í kvöld Sameiginlegan fund halda Sósíalistafél. Reykjavíkur, Kven- félag sósíalista og Æ. F. R. 1 kvöld klukkan 8,30 í Þórskaffi (gengið inn frá Hlemmtorgi). Fundarefni: 1. Framboð Alþýðubandalags- ins við bæjarstjórnarkosn- ingar í Reykjavík. 2. Verkalýðsmál. 3. önnur mál. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og mæta stundvis- lega“. Hér sannast enn, að Alþýðu- bandalagið er aðeins grímubún- ingur, sem kommúnistar hafa klæðzt í því skyni að fela betur Moskvu-þjónustu sina. inn kom á vettvang, hvarf snjó- maðurinn út í snjódrífuna og skildi einungis eftir spor sín. Bolganin ræðir um Sputnik MOSKVU 3. janúar. — Bulganin ræddi við erlenda fréttamenn í móttöku í sendiráði Burma í kvöld. Sagði hann, að Sputnik 1. mundi sennilega falla til jarðar 5. eða 6. þessa mánaðar, en ekki gat hann sagt neitt um hvar hann kæmi niður ef hann eyddist ekki í fallinu. Mikojan, fyrsti aðstoðarforsætisráðherra, skýrði þá svo frá, að líklegt væri að ein- stakir hlutar gervihnattarins mundu „komast í gegnum“ loft- hjúpipn og ná til jarðarinnar. Bætti Bulganin þá við, að rúss- neskir vísindamenn biðu þess enn að Bandaríkjamenn skiluðu leifum eldflaugarinnar, sem bar Sputnik 1. út í geiminn, og Krú- sjeff sagði hafa fallið niður í Alaska í fyrra mánuði. Kveöjuorð MAGNÚS Guðmundsson, for- maður, Ólafsfirði, er borinn til grafar í dag. — Kynning okkar Magnúsar var minni en ég hefði óskað, vegna þess að leiðir okk- ar lágu ekki saman. Samt sem áður er hann minnisstæður mér og ég hygg öllum sem þekktu hann. Tryggðatröliið, með sterku vinnuhendurnar, en hlýja hand- takið og fallega, saklausa brosið, hlaut að verða þeim, sem kynnt- ust honum ógleymanlegur. Ég sé hann I anda, sitja undir stýri á bátnum sínum, og bjóða Ægi kalli byrginn, með rósemi karlmennskunnar og trausti á Guð, enda stýrði hann ævinlega báti sínum heilum í höfn. Ég sé hann líka í anda, sitja með smábörn í fanginu og miðla þeim af sínum þróttmikla kær- leika og tengja þau sér órjúfandi vináttuböndum. Þannig minnist eg hans, manns ins með stóra hjartað, sem í blíðu og stríðu vildi öllum vel gjöra. Ég þakka þessar minningar og kveð þig vinur, með þeirri fuliu vissu, að þú hafir tekið land handan móðunnar miklu og feng- ið góðar viðtökur. Vertu í Guðs friði. Kristján Karlsson. BLAÐAMENN áttu í gær tal við Gísla Sigurbjörnsson, for- stjóra Elli- og hjúkrunar- heimilisins Grundar. Sýndi hann þeim m. a. skýrslu, sem nýlega hefur borizt frá þýzk- um vísindamönnum, er dvöldust hér á landi fyrri hluta ágústmánuðar í sumar og rannsökuðu ýmis hvera- svæði með tilliti til hagnýt- ingar þeirra til lækninga. — Telja hinir þýzku sérfræð- ingar, að frá náttúrunnar hendi séu góð skilyrði til að gera Hveragerði að heilsu- lindabæ, en benda á, að enn sé þörf á miklum rannsókn- um og undirbúningi. Gísli Sigurbjörnsson sagði m. a. um rannsóknir og skýrslu Þjóðverjanna: í ágústmánuði sl. komu hing- að til lands fjórir þýzkir vísinda- menn á vegum Elli- og hjúkrun- arheimilisins Grundar, í sam- vinnu við hreppsnefnd Hvera- gerðis. Gerðu þeir athuganir varð andi notkun hverahita, bæði vatns, gufu og leirs, til lækninga. — Menn þessir eru allir prófess- orar við háskólann í Giessen, en þar er sérstök kennsludeild i þessum fræðum, en þau nefnast balneologie á erlendum málum. Nýlega hefir borizt ýtarleg skýrslu þeirra um athuganir og niðurstöður. Skýrsla Þjóðverjanna er í þrem hlutum. Fyrst skrifar dr. Franz Michels um hina jarðfræðilegu hlið málsins. Telur hann nauðsyn legt að sett verði lög til að koma í veg fyrir rányrkju hverasvæð- anna íslenzku. Þa ræðir hann um umgengni á jarðhitasvæðum og telur henni að ýmsu leyti ábóta- vant hér á landi. Loks ræðir hann nokkuð um eiginleika hveranna í Hveragerði og telur að nauðsyn- legt sé að gera nákvæmt kort af þeim og framkvæma ýtarlegri rannsóknir á efnum í hvera- vatninu. Dr. Robert Kampe ritar næsta hluta skýrslunnar. Er prófessor- inn verkfræðingur og sérgrein hans grunnvatn og lindir. Hann bendir á að nauðsynlegt sé að taka sem fyrst ákvörðun um það, hverjir skuli standa fyrir fram- kvæmdum við hagnýtingu jarð- hitans í Hveragerði og hver rétt- indi skuli veitt í því sambandi. Hann minnist einnig á nauðsyn þess, að skipulagi Hveragerðis verði hagað með tilliti til heilsu- hælanna, og ræðir um kortagerð og boranir. Loks minnir hann á, að jarðskjálftar geti valdið breyt ingum á hverasvæðinu. Síðasti hluti skýrslunnar er saminn af tveimur læknum, dr. Rudolf Thauer, sem er sérfræð- ingur í lífeðlisfræði og hjarta- sjúkdómum, og dr. Victor R. Ott, sem er sérfræðingur í gigtar- lækningum. Þeir telja, að í Hvera gerði séu góð skilyrði til að koma upp hælum til gigtarlækninga og ýmiss konar endurþjálfunar. Myndi hið síðarnefnda einkum verða í þágu lamaðs fólks. Gisli Sigurbjörnsson kom víða við í spjalli sínu við blaðamenn í gær. M.a. ræddi hann um nokk- ur fleiri atriði, sem snerta heilsu lindir í Hveragerði. Hann kvaðst vona, að skýrslan, sem nú hefur borizt, verði til þess, að skriður komist á mál þetta. Til fram- kvæmda þyrfti mikið fjármagn og þekkingu á sviði læknisfræði og tækni. Taldi Gísli nauðsynlegt að fá þetta að miklu leyti erlend- is frá. Kvaðst hann telja, að það myndi kosta a.m.k. 160 millj. kr. að koma upp nauðsynlegum stofn unum í þessu sambandi, en ekki væri vafi á, að það myndi svara kostnaði, enda væri mun betra að selja fólki heilsu en fisk! D-listinn REYKVÍKINGAK! Listi Sjálfstæðismanna við bæjarstjórnarkosning arnar 26. janúar er D-list- inn. Athugið hvort þér eruð á kjörskrá. Kæru- frestur rennur út á sunnu dagskvöld. Efns lærisl I aukana -kvenfólká bæn CATANIA, Sikiley. — Kvenfólk baðst fyrir krjúpandi á knjánum á götum og gatnamótum hér í dag, í fjallsrótum Etnu, sem nú hefur aftur byrjað að gjósa. Hraunstraumur mikill rennur nú í áttina að byggðinni undir fjalls rótunum — og fer straumurinn með hraða sem nemur 500 metr- um á dag. Að vísu hófust þessi eldsumbrot fyrir mörgum mán- uðum, en hingað til hefur lítið að þeim kveðið. Nú hefur Etna hins vegar færzt 1 aukana — og mikið hraunkast er nú upp úr gígnum. Stór hraunbjörg þeytast um 300 metra upp í loftið og hraunstraumurinn fer vaxandi. í kvöld var jaðar hans um 3,5 mílur undan næsta byggða bóli. Frægur pólsker vísindamaður flúinn WASHINGTON 3. janúar. — Pólski vísindamaðui'inn Nowin- sky hefur hlotið hæli í Banda- ríkjunum sem pólitískur flótta- maður. Kona hans og dóttir dvelj ast um þessar mundir í Bretlandi. Nowinsky er sérfræðingur í lög- málum þeim er gilda um þanþol efna og hefur getið sér heims- frægðar í rannsóknum sínum um þau efni. Jafnframt er vitað að hann hefur mikla þekkingu á árangri þeim, er Rússar hafa náð á þessu sviði, og þá sérstaklega hvað viðvíkur núningsmótstöðu efna við loft. Er þetta mjög mikil vægt hvað viðvíkur smiði hrað- fleygra flugvéla og gervihnatta. Frá „25 króna veltunni” VELTAN er nú í fullum gangi og hefir mikill fjöldi fólks tekið þátt í henni bæði með því að koma á skrifstofuna í Sjálfstæðis- húsinu og greiða kr. 25.00 og skora um leið á aðra 3 menn, og eius með því að verða við áskorun er aðrir hafa sent. Þrátt fyrir mjög góðan árangur er þó þörf að brýna fyrir fóiki að láta ekki dragast að svara áskorunum heldur að koma greiðslunni og nýja áskorunarseðlinum, helzt samdægurs er áskorunarbréfið berst, á skrifstofuna i Sjálfstæðishúsinu, sem er opin alla virka daga frá kl. 9 að morgni til kl. 7 að kveldi. Æskilegt er einnig að menn fylgist með því hvort þeir, sem þeir sjálfir skora á, hafa orðið við áskoruninni eða ekki. Takmarkið er að sem allra flestir Sjálfstæðismenn taki þátt í veltunni. Veltuþátttakendur komið eða sendið á skrifstofuna strax í dag, gerið skil og látið velta. Sími skrifstofunnar er 16845 og 17104 Eruð þér á kjörskrá? KÆRUFRESTUR vegna kjörskrár er til 5. janúar næst- komandi. Rétt til að vera á kjörskrá í Reykjavík hafa þeir, sem þar voru búsettir í febrúarmánuði sl. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Vonarstræti 4. aðstoðar við kjörskrárkærur. Skrifstofan er opin í dag frá kl. 9—12 og frá kl. 1—6. Símar 1-71-00 og 2-47-53. Litprent selt í Sýningarsolnum Enn berast tregnir um snjómenn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.