Morgunblaðið - 04.01.1958, Qupperneq 9
Laugardagur 4. janúar 1958
MORCU1VBLAÐ1Ð
9
Við Hamrahlíð á að rísa glæsilegur
skóli með 40 kennslustofum
í Hagaskóla verða 8 slof
ur teknar í notkun 8. jan.
Báðir jbessir skólar eru ætlaðir
barna- og gagnfræðastiginu
EKKI MUN fjarri sanni, að fátt
beri betur vitni menningarstigi
hvers bæjarfélags en það hversu
miklu íbúarnir láta sig fræðslu-
/ senn
ef ná á settu marki í byggingu
skólahúsa í Reykjavík. Þó fór svo
að á fjárlögum var ákveðið að
veita aðeins þriðjung þessarar
verða 23 almennar kennslustofur
og auk þess herbergi skólastjóra
og yfirkennara, kennarastofa og
herbergi dyravarðar, læknisstofa
tannlæknastofa og ljósastofa, á-
samt búningsherbergi, sér
kennslustofur, samkomusalur og
bókasöfn. Auk þess verður byggt
íþróttahús við skólann.
Skólinn við Hagatorg verður
með mjög svipuðu sniði og gagn-
fræðaskólinn við Réttarholtsveg.
Þó verður nokkur munur á, þar
sem um mismunandi þarfir er
að ræða, svo að skólarnir verða
nokkuð mismunandi í útliti að
því er Skarphéðinn Jóhannsson
samsíða álmum með miðgangi
og aðalskólabyggingu, sem inn-
angengt er í úr álmunum. Vænt-
anlega verður ekki innangengt
úr skólabyggingunni í íþróttahús-
ið.
Stórt anddyri notað sem
samkomusalur
Aðalbygging skólans er tveggja
hæða. Áformað er, að anddyri
skólans verði stórt, svo að hægt
verði að nota það jafnframt sem
samkomusal. í anddyrinu á að
vera færanlegur veggur, svo að
skipta megi salnum í tvennt og
nota til ýmissa þarfa. Er hér um
tiýjung að ræða. Með þessu fyrir-
komulagi má spara töluvert, þar
sem rúm það, sem ætlað er sam-
komusal, stendur ekki autt, held
ur kemur dagiega að notum.
Líkan af gagnfræðaskólanum við Réttarholtsveg.
Skólinn við Hagatorg er með mjög svipuðu sniði.
málin varða. Ekki er vafi á því,
að meirihtuti allra Reykjavikur-
búa lætur sig skólamálin miklu
skipta, enda er skipan öll og til-
högun skólamálanna einn þeirra
meginþátta, sem ráða úrslitum í
því, hvernig til tekst um að búa
æskuna undir lífið. Og á þeim
undirbúningi byggist ekki aðeins
framtíð hinnar upprennandi kyn-
slóðar sjálfrar heldur að sjálf-
sögðu jafnframt framtíð Reykja-
víkur í heild.
★
Allir eiga því hagsmuna að
gæta í þessu efni, og mikill og
almennur áhugi ríkir á því, að
sem bezt sé búið að fræðslustofn-
unum bæjarins. Undanfarna ára-
tugi hefir það ætíð komið í hlut
Sjálfstæðismanna sem mynda
meirihluta bæjarstjórnar að hafa
forgöngu um þessi mál, og hafa
þeir beitt sér af lifandi áhuga
fyrir því að bæta á margan
hátt aðstöðuna til að mcnnta börn
og unglinga Reykjavíkurbæjar.
Við margs konar erfiðleika hef-
ir þurft að glíma á þessum vett-
vangi, og hér eins og á öðrum
sviðum hefir hin öra stækkun
bæjarins valdið hvað mestum örð
ugleikum.
Á næsta ári fjölgar skólaskyldum
börnum og unglingum um
tæplega 600
Sífellt er þörf á að reisa fleiri
skólahús, því að börnum og ungl-
ingum á skólaskyldualdri í
Reykjavík fjölgar jafnt og þétt
með hverju ári. Á þessu ári eru
þau um 10 þús., áætlað er, að á
næsta skólaári muni þeim fjölga
um tæplega 600 og á skólaárinu
1959—60 um tæplega 500.
Til þess að geta fullnægt þörf-
inni fyrir aukið skólahúsnæði
vegna þessarar fjölgunar, þarf að
byggja á næstu árum 25 almenn-
ar kennslustofur árlega ef jafn-
framt á að takast að útrýma þrí-
setningu í skólum og flytja úr
leiguhúsnæði í eigið húsnæði.
Á
Að þessu marki er stcfnt, og til
að komast sem næst því, var á
fjárhagsáætlun bæjarins 1958, er
lögð var fram á bæjarstjórnar
fundi skömmu fyrir jól, gert ráð
fyrir, að varið yrði 19 millj. kr,
til skólabygginga. Á bæjarsjóður
að greiða helming þessarar fjár
hæðar, 9.5 millj. kr., og ríkissjóð-
ur hinn helminginn á móti. Mun
vera full þörf á þessari fjárhæð
upphæðar úr ríkissjóði og til
nýrra skólabygginga eru aðeins
veittar 300 þús. kr. Er það fram-
Iag til Hlíðaskólans, og er vart
hægt að hefja byggingu slíks
skóla fyrir svo lítið fé. Hætt er
við, að þessi skerðing valdi töfum
á framkvæmdum við skólabygg-
ingar.
Samkvæmt tillögum fræðslu-
ráðs er áætlað að hefja nú þegar
framkvæmdir við barna- og gagn
æðaskóla við Hamrahlíð með
40 almennum kennslustofum.
Hefja í apríl framkvæmdir við
barna- og gagnfræðaskóla við
Laugalæk og ljúka átta almenn-
um kenslustofum í þessum skóla
fyrir haustið. Alls verða kennslu
stofurnar í Laugalækjarskóla 23.
Skóli við Gnoðarvog er þegar í
smíðum, og áætlað er að ljúka 8
almennum kennslustofum í þeim
skóla á þessu ári, en í Vogaskól-
anum fullgerðum verða 23 al-
mennar kennslustofur. Barna- og
gagnfræðaskóli við Hagatorg er
einmg í smíðum, og á þessu ári
er fyrii'hugað að byggja anddyri,
forstofu og söngsal, og hefja bygg
ingu á 8 alm. kennslustofum, sér-
stofum o. fl., sem ætlað er gagn-
fræðastiginu. Einnig verður unn-
ið að þvi að fullgera gagnfræða-
skóiann við Réttarholtsveg, sem
flutt var í í byrjun þessa skóla-
árs, og barnaskólann við Breiða-
gerði. Allar þessar framkvæmdir
eru háðar fjárfestingarleyfum og
framlagi ríkissjóðs.
Uppdrættir að Hamrahlíðar-
skólanum saniþykktir
Samþykktir voru á bæjarstjórn
arfundi sl. fimmtudag uppdrætt-
ir að barna- og gagnfræðaskóla
við Hamrahlíð. Sigvaldi Thordar
sen arkitekt hefir gert teikning-
arnar. Eins og áður er getið verða
í skólabyggingunni 40 ahnennar
kennslustofur, 24 fyrir barna-
skóla, en 16 fyrir gagnfræðastig.
Hefjast á handa um byggingu
skólans nú þegar, og er ætlunin
að ljúka 8 almennum kennslu-
stofum fyrir næsta haust. Skóla-
byggingunni er skipt í sex hluta.
Þrír hlutar, sem hver er átta stof-
ur, eru ætlaðir barnafræðslustig-
inu, einn hlutinn er fyrir húsnæði
skólastjórnar, heilbrigðisþjón-
ustu o. fl. einn fyrir gagnfræða-
stigið — 16 stofur — og að síð-
ustu íþróttahúsnæði.
£ Hagaskólanum verða 8 stofur
teknar í notkun 8. jan. n.k,
í Hagaskólanum fluugerðum
arkitekt segir, en hann hefir
teiknað báða skólana. í Hagaskól-
um verða allar almennar
kennslustofur á einni hæð í tveim
19 skólahverfi
Nauðsynlegt þykir að miða
staðsetningu skólabygginganna
við það framar öllu, að börnin
þurfi ekki að fara um langan
veg til skólanna og jafnframt að
koma í veg fyrir að svo miklu
leyti, sem mögulegt er, að fjöl-
farnar umferðargötur verði á
vegi barnanna á daglegri skóla-
göngu þeirra. Er því sú stefna
i nú ráðandi að byggja skólahús
í hverju hverfi, sem fullnægir
þörfum þess fyrir skyldustigin
og sem stendur liggja fyrir tii-
lögur um skiptingu bæjarins í 19
skólahverfi.
Það er nú talið langæskilegast
að koma byggingu skólahúsa
þannig fyrir, að þar fari fram
kennsla fyrir öll skólaskyld börn
og unglinga í hverfinu. Þannig
á að haga til bæði í Hagaskólan-
um, Hamrahlíðarskólanum og
Laugalækjarskólanum. Kemur
og til greina, að í skólabygging-
unni eða skólabyggingum á sömu
lóð eða í næsta nágrenni, fari
einnig fram síðari hluti gagn-
fræðanámsins.
★
Þeim börnum, sem nú eiga
lengst að sækja skólana, er séð
fyrir farkosti með skólabíl barna
skólanna, og er áætlað, að varið
verði til þessa rúmlega 300 þús.
kr. á þessu ári.
Segulbandstæki
og kvikmyndavélar
Segja má, að í hverju nýju
skólahúsi, sem rís af grunni,
séu ýmsar nýjungar, sem bæta
aðstæður við kennslu og nám.
Þetta gildir ekki aðeins um
fyrirkomulag bygginganna sjálfra
heldur og ýmis tæki, sem
notuð eru við kennsluna.
Notkun nýjustu kennslutækja,
t.d. segulbandstækja og kvik-
mynda, hefir mjög mikið
aukizt í skólunum. Til þess að
tryggja það, að full not fáist af
þessum kennslutækjum, hafa
verið haldin námskeið fyrir kenn
ara í meðferð þessara tækja, t. d.
var haustið 1956 efnt til tveggja
daga námskeiðs, þar sem öllum
kennurum við barna- og gagn-
fræðaskólana í Reykjavík var
kennt að fara með kvikmynda-,
skuggamyndavélar og segulbands
tæki.
í mörg horn þarf að líta, þegar
bygging og útbúnaður skólahúsa
er annars vegar. Þær rúmar 3
millj., sem greiddar verða úr
ríkissjóði til skólabygginga í
Reykjavík á næsta ári, munu
hröggva skammt til móts við
framlag bæjarsjóðs. Enn einu
sinni hafa stjórnarherrarnir ekki
vílað fyrir sér að láta Reykjavík
sitja a hakanum.
Gangarnir eru bjartir og breiðir í gagnfræðaskólanum við Réttarholtsveg.
Stórir gjiuggar og breiðir gangar
í húsakynnum Réttarholtsskólans
VIÐ stígum út úr bifreið á Rétt-
arholtsveginum uppi á hæðinni
milli Langagerðis og Bústaða-
vegar. Hann gengur á með élj-
um, og það er notalegt að kom-
ast í húsaskjól innan veggja
gagnfræðaskólans, sem er í smíð-
um austan Réttarholtsvegar. í
haust voru fullgerðar átta
kennslustofur í þessum skóla, og
eru þær í tveim samsíða álmum,
sem tengdar eru saman með svo-
kölluðum miðgangi. Þegar gagn-
fræðaskólinn er fullgerðir verða
þar 23 almennar kennslustofur.
300 nemendur stunda nám í
Réttarholtsskólanum
Ekki er að efa, að þetta verður
glæsilegur skóli. Enn er ekki haf
in bygging aðalskólahússins, en
vonir standa til, að brátt verði
hægt að hefjast handa um bygg-
ingu þess. Því, sem nú er lokið
af Réttarholtsskólanum, mun
hafa verið lokið á mettíma. Fram
kvæmdir voru hafnar í byrjun
maímánaðar og þeim lokið í
október. Allt kapp var lagt á,
að hægt yrði að hefja kennslu
í húsinu sem fyrst á þessu skóla-
ári, og við fluttum úr Víkings-
heimilinu, þar sem kennsla hef-
ur farið fram undanfarið,
skömmu eftir að skólastarf hófst
Framh. á bls 15
Fyrsti bekkur A í kcnnslustund. í framtíðinni á ekki að þurfa
að opna gluggana.