Morgunblaðið - 04.01.1958, Page 13

Morgunblaðið - 04.01.1958, Page 13
Laugardagur 4. janúar 1958 MORGVNBLAÐIÐ 13 Valdimar Lárusson ásamt Guðbjarti Ólafssyni forseta Slysa- varnafélags tslands. — Þeir eru að handleika minjagrip, sem gefinn var þeim, sem unnu aö björgun áhafnarinnar af togar- anum St. Crispin veturinn 1955. Vaktmsiður suðurslrandarinnar Valdimar Lárusson íimmtugur í dag ÞAÐ var einu sinni sem oftar, að Slysavarnasveitin í Meðal- landi hafði bjargað skipshöfn af brezkum togara. í náttmyrkri, brimi og sjógangi höfðu Meðal- lendingar brotizt til hinnar sendnu strandar, skotið línu til togarans og dregið skipsbrots- mennina í lani. Eftir nokkrar klst. voru þeir allir komnir heim á bæina í sveitinni og nutu þar drauma sinna í hlýjum rúm- um, sem húsfreyjurnar í Meðal- landi höfðu búið þeim. — Þetta var á útmánuðum. Sumarið eftir komu eigendur togarans austur í Meðalland og héldu björgunarmönnum góða veizlu í Efri-Ey. Þar var mikið um ræðuhöld, bæði á ensku og íslenzku. Slysavarnasveitin var dáð fyrir afrek sitt, og öllum, sem að björguninni unnu, voru af- hentar heiðursgjafir eins og mak legt var. Að lokum kvaddi sér hljóðs umboðsmaður brezkra tog ara hér á landi, Geir Zoega. Hann kvaðst vilja minnast eins manns, sem þarna var staddur. Sá hefði að vísu ekki komið á strandstað- inn þar sem skipbrotsmennirnir höfðu verið hrifnir úr voðans klóm. Engu að síður hefði hann átt einn giftudrjúgan þátt í þess- ari björgun. Eins og endranær hefði hann veitt sína mikilvægu aðstoð, svo nauðsynlega aðstoð, að með sanni mætti kalla þennan mann „vaktmann suðurstrandar- innar.“ —o*o— Hver er þessi vaktmaður suður strandarinnar, maðurinn, sem oft ast fær fyrstu fregnir af því, að skip er í hættu statt úti fyrir brimströndinni, kemur þeim fregnum áleiðis til þeirra, sem hjálp geta veitt og fylgist svo með björguninni gegnum talstöð- ina? Það er símstöðvarstjórinn á Kirkjubæjarklaustri, Valdimar Lárusson. Hann er vaktmaður suðurstrandarinnar. Og nú er hann fimmtugur í dag. Þessi BARNAMYNDATÖKUR Allar myndatökur. grein er afmæliskveðja til hans frá einum af nágrönnunum. — Valdimar Lárusson er fæddur á Kirkjubæjarklaustri 4. jan. 1908, sonur Lárusar alþ.m. Helga sonar og Elínar Sigurðardóttur frá Breiðabólsstað. Ungur fór hann að heiman í skóla og nam fræði loftskeytamanna. Sigldi síð an ótal sinnum kringum landið á hinu aldraða skipi Súðinni. Eftir margar hringferðir kom hann aftur heim á hið forna og fræga óðal föður síns, hefur rek- ið þar búskap.ásamt bræðrum sínum og verið símstjóri og póst- afgreiðslumaður mörg undanfar- in ár. Störf sín öll rækir hann af mikilli prýði. Hann er skyldu- rækinn og áreiðanlegur svo að treysta má hverju hans orði, en sýnir jafnframt þá lipurð og fyr- irgreiðslu, sem einkennir alla góða þjónustu. — Valdimar Lárusson er kvæntur Guðrúnu Ólafsdóttur frá Holtahólum á Mýrum eystra, hinni ágætustu konu, Þau eiga fimm börn. Hafa þau búið sér einkarfagurt og smekk- legt heimili í gamla bænum á Klaustri, þar sem foreldrar Valdi mars bjuggu árátugi við lands- kunna rausn. — Valdimar á Klaustri er glaður og skemmtilegur félagi og góður heim að sækja. Betri nágranni verður vart fundinn. Það get ég borið um af langri reynslu. Ég þakka honum liðna tíma og bið Guð að gefa honum bjarta framtíð og gæfuríka. G. Br. Unglsnga * vantar til biaðburðar við Fjólugöfu Tunguveg * Oðinsgafa Orápuhlíð Sími 2-24-80 'ují UÓSMYNDASTOFA Laugavegi 30. — Sími 19849. Félagslíf Islaudsmótið í liandknatlleik innanhúss, hefst 25. janúar n.k. Þátttaka tilkynnist til H.K.R.R., Hólatorgi 2, Reykjavík, síðasta lagi þann 13. janúar, ásamt þátt- tökugjaldi kr. 35 á hvern flokk. H.K.R.R. Aðstoðarstúika óskast á tannlækningastofu mína. Umsóknir merkt- ar: Aðstoðarstúlka — leggist inn á afgr. Mbl. fyrir mánudagskvöld. RÓSAB EGGERTSSON tannlæknir. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 72., 73. og 74 tbl. Löbirtingablaðs- ins 1957, á v.s. Ernu RE 15, þingl. eign Sturlaugs Jónssonar o. fl., fer fram eftir kröfu Fiskveiðasjóðs íslands og vélbátaábyrgðarfélagsins Gróttu, við skipið þar sem það liggur við Grandagarð, þriðju- daginn 7. janúar 1958, kl. 2,30 síðdegis. Borgarfógetiiin í Reykjavík. Sölumaður Stórt fyrirtæki óskar eftir að ráða sölumann. Vél- stjóra- eða hliðstæð menntun æskileg. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf og með- mælum, ef fyrir hendi eru, óskast lagðar inn á afgr. blaðsins, merktar: „Sölumaður — 3619“, fyrir föstu- daginn 10. janúar 1958. Nýkomið KROSSVIÐUR og NOVO-panel Efni Stærð Þykkt Verð Embero 80x205 5 mm kr. 80.60 Embero 100x200 5 mm — 98.25 Embero 122x240 12 mm — 366.00 Ukola 122x240 12 mm — 366.00 Höfum einnig fyrirliggjandi Embro og Ukola álím- ingar fyrir hurðir. Kristján Siggeirsson hf. Laugavegi 13 — Sími 13879 Bifreiðar feknar fil geymslu SIGURÐUR SIGTRYGGSSON, SÍMI 24102 i Vana beitningamenn vantar strax á m.s. Araklett frá Hafn- arfirði. Uppl. í síma 50165. Nokkrar saumasfulkur óskast nú þegar. Fatagerðin BURKNI HF sími 10860 V erksmiðjuhús óskum eftir að kaupa rúmgott verksmiðjuhús í bænum eða nágrenni. — Tilboð merkt: „Nýr iðnaður — 3624,“ sendist afgr. Mbl. í LOÐ Er kaupandi áð lóð í miðbænum. Seljandi gæti feng- ið húsnæði í væntanlegu húsi. Tilboð sendist Mbl. merkt: Einkamál — 3626 fyrir 7. þ.m. Hafnarfjörður Reglusaman sjómann vantar herbergi til leigu strax. — Uppl. í síma 50165. LAUSAK STOÐUR Opinber stofnun óskar að ráða bókara (skjalavörð) og æfðan vélritara. Laun samkvæmt launalögum. Umsóknir auðkenndar „Ríkisstofnun — 3627“ legg- ist inn á afgr. blaðsins fyrir 8. janúar 1957. Tilboð ósbast í nokkrar fólksbifreiðir, er verða til sýnis að Skúla- túni 4, mánud. 6. þ.m. kl. 1—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag. Nauðsynlegt er að taka fram símanúmer í til- boði. — Sölunefnd Varnarliðseigna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.