Morgunblaðið - 09.01.1958, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 9. janúar 1958
MORCUNBLAÐIÐ
9
Grímur Þorkelsson skipstjóri:
Stórskipahafnir á Suðurlandi
Orkuver og stóribnabur - Fjölbreyttarí
útflutningur - Öruggari gjaldeytis-
öflun og gód lifskjör
Nú er um að gera a3 vanúa sig og missa enga lykkju niður.
í Breióagerðisskóla.
Úr kennslustund í handavinnu
Skólastofurnar í Breiðagerðis-
skóla eru biartar og rúmgáðar
DAG nokkurn fyrir skömmu
lagði fréttamaður Mbl. leið sína
inn í Breiðagerðisskóla, sem er
staðsettur sunnan við Breiða-
gerði milli Mosgerðis og Steina-
gerðis. Utan við skólann lék sér
fjöldi barna í snjónum af því
lífi, fjöri og áhyggjuleysi, sem
æskan ein býr yfir. Og hér voru
börnin úr Breiðagerðisskóla að
leik í frímínútum.
11 skólastofur í notkun
Fullgerður verður Breiðagerðis
skólinn myndarleg bygging,
mikil miðbygging með álmum til
austurs og vesturs, og verða
kennslustofurnar alls 20. í fyrra-
haust var lokið við vesturálm-
una, og hún tekin til notkunar.
Og í haust var lokið kjallara
miðbyggingarinnar og fyrstu
hæð. Eru þá 11 skólastofur í
notkun í Breiðagerðisskólanum.
Efri hæðin er ófullgerð, en kom-
in undir þak. Þar verða m. a.
tvær skólastofur, samkomusalur
og íbúð húsvarðar, og á að vinna
að frágangi þess næsta sumar.
Einnig er í ráði að hefja næsta
sumar byggingu austurálmunn-
ar, og verður sundlaug í kjallara
hennar. Ráðgert er jafnframt að
byggja leikfimisal næsta sum-
ar, og verður salurinn sérstök
bygging.
o—-k—o
Skólastofurnar í Breiðagerðis-
skólanum eru bjartar, rúmgóðar
og vistlegar. Aðalgluggarnir eru
mót norðri, en birta kemur
einnig inn um minni skáhalla
glugga, sem eru uppi undir lofti
mót suðri. í öllum skóla-
stofunum í álmunni er allstór
krókur. Er ætlunin, að þar geti
4—6 börn unnið sjálfstætt að
verkefnum sínum, en kennsla
haldið áfram í sjálfri kennslu-
stofunni eftir sem áður. Þetta
mun vera alger nýjung, að því
er skólastjórinn Hjörtur Krist-
mundsson segir.
Sérinngangur og fatageymsla
fyrir hverja stofu
I álmunni er sérinngangur og
fatageymsla fyrir hverja skóla-
stofu. Þess má geta, að þannig
hagar einnig til í Eskihlíðar- og
Háagerðisskóla. Mikið hagræði er
í því, ekki sízt í vondu veðri,
þegar börnin leika sér inni í
frímínútunum. Þá er hægt að
hafa hvern bekk út af fyrir sig,
ef fjörið færist í aukana, segir
skólastjórinn. í kennslustofunum
er mikið af góðum skápum.
o—★—o
Handavinnustofur drengja og
stúlkna eru í kjallara miðbygg-
ingarinnar. Þær eru einnig mjög
vel búnar að skáparými, og sér-
stök geymsluherbergi eru fyrir
efni, sem notuð eru við handa-
vinnukennsluna og muni, sem
börnin hafa unnið. Handavinnu-
stofu drengja fylgir jafnframt
sérherbergi fyrir vélar, sem nauð-
synlegar eru við undirbúning
handavinnunnar. Gengur kenn-
fjölgar jafnt og þétt eins og í
öðrum skólum bæjarins. Skóla-
árið 1955—’56 voru nemendurn-
ir alls um 400, 1956—’57 um 800
og nú í vetur tæp 1100. Þar er
Drengir við smíðar í Breiðagerðisskóla. —
valdur Sveinbjörnsson.
Kennari er Rögn-
arinn einn um þetta herbergi,
þar sem slíkar vélar eru ekki
taldar barnameðfæri.
o—★—o
Nemendum í Breiðagerðisskóla
því enn nokkuð þröngt á þingi,
og koma varð sjö skólastofum
fyrir í leiguhúsnæði í haust. En
úr því mun rætast eftir því, sem
byggingunni miðar áfram.
Að íesa og skrifa list er góð. — Skriftarkennsla í tíu ára bekk
í Breiðagerðisskóla.
TILGANGUR minn með þessum
línum er einkum eð vekja eftir-
tekt manna á grein um stóriðju
á íslandi er birtist í jólahefti Sjó
mannablaðsins Víkings og einnig
að ræða málið nokkuð sjálfur.
Það er ekki úr vegi að reyna
að gera sér einhverjar hugmyr.d-
ir um það, sem að höndum kann
að bera í framtíðinni og rniða þá
við ótiltekna tímalengd friðsam-
legrar framvindu.
Sú kynslóð, sem borið hefur
hita og þunga dagsins hér á landi
síðasta mannsaldur hefur margt
og mikið afrekað. Samt eru kvik-
fjárrækt ög fiskveiðar sem fyrr
aðalatvinnuvegir þjóðarinnar og
á sjávarafurðum hvílir gjaldeyr-
isöflunin nær eingöngu. í þessu
er stórhætta fólgin. Þetta vita
allir og viðurkenna, en þó er fátt
gert til úrbóta. Aðgerðarleysið á
þessu sviði, þó vel sé unnið að
öðru leyti, getur bitnað á okkur
sjálfum eða komandi kynslóðum,
að minnsta kosti. Markaðskreppa
á fiski getur dunið yfir fyrr en
varir, og það er ekki svo ýkja
langt síðan slíkt bar að höndum.
Það hafði lamandi áhrif í för með
sér hér á landi. Þá yrðu afleið-
ingar minnkandi fiskafla ekki
síður alvarlegar. Á síðari árum
hefur útgerðin verið undirstaða
mikillar velmegunar. Fiskurinn
úr sjónum hefur dugað okkur vel
og lengi. Vonandi á sjávarútveg-
ur eftir að blómgast hér um alla
framtíð, en engin trygging er fyr
ir því. Það er ekki gott að út-
breiða svartsýni, en staðreyndum
þýðir ekki að neita. Það er stað-
reynd að sum auðugstu fiskimið
landsins eru farin að lóta á sjá í
seinni tíð. Þetta er ekki neitt
undarlegt, öllu má ofbjóða, og
er fiskstofninn í sjónum senni-
lega þar engin undantekning.
Fiskveiðar eru studaðar af sí-
fellt meira kappi og með þátt-
töku fleiri og fleiri þjóða. Skipm
stækka og verða stórvirkari. Nýj
ar og afkastameiri veiðiaðferðir
eru fundnar upp. Veiðarfærin
verða fullkomnari og skæðari.
Fiskurinn er eltur uppi með vís-
indalegum aðferðum en síðan
sópað saman og mokað upp úr
sjónum, hvar sem til hans næst.
Afleiðingin er sú að fiskur tregast
fyrst á einstökum miðum, þar
sem áníðslan er mest, en síðan
koll af kolli, að síðustu ef til vill
um allan sjó, hver veit. Ekki er
ástæða til að ætla að varanlegt
fiskileysi skelli hér yfir skyndi-
lega. Vissara er samt að búa sig
undir það að æ erfiðara reynist
að viðhalda hér þeim óhemju
aflabrögðum sem við höfum átt
að venjast.
Setjum nú svo að mikil út-
færsla landhelginnar eða jafnvel
friðun landgrunnsins nái fram
að ganga og tryggi mikinn afla
framvegis og að ekki þurfi að
óttast markaðskreppu á fiski. Þá
þarf samt að nýta náttúrauðæfi
landsins og ráða bót á erfiðleik-
um fjölmeíinra byggðarlaga, sem
búa við hafnleysi.
Þess vegna er það að við
þurfum að virkja vatnsaflið, fá
stóriðnað inn í landið og byggja
hafnir á Suðurlandi. í greininni
um stóriðju á íslandi, er rætt um
hafnargerð við Dyrhólaey. Full-
víst er að margt er hægt að gera
með nútíma þekkingu, ef ekki
skortir afl þeirra hluta sem gera
skal. Þegar á það er litið að
Vestur-Skaftafellssýsla er alger-
lega hafnlaus og að þar eru mikl
ar sveitir og fjöldi óbeizlaðra
vatnsfalla þá verður ljóst að þar
þarf að koma höfn. Svipuðu máli
gegnir um Rangárvallasýslu.
Suðurlandsundirlendið er víð-
lendasta og fi-jósamasta hérað á
landinu. Þjórsá rennur þar til
sjávar miðsvæðis á mörkum Ár-
nes- og Rangárvallasýslna þar
þarf að koma höfn. Oi'kuver og
stóriðnaður.
Beljandi foss við hamrabúann.
hjalar
á hengiflugi undir jökulrótum
þar sem að gullið geyma Frosti
og Fjalar,
segir í þjóðfrægu kvæði um
ónotuð auðæfi austur þar. Til
viðbótar þessu gengur þorskur-
inn þétt upp að ströndum Suður-
lands á vetrarvertíð, en ýsa haust
og vor.
Hafnargerðir á Suðurlandi
verða dýrar í byggingu. Ekki er
að efast um það. Þegar þar við
bætast orkuver og framleiðsla
í stórum stíl til útflutnings, þá
verða þetta framkvæmdir sem
vert er um að tala og við getum
verið fullsæmdir af. Þeir, sem á
annað borð vilja framgang þess-
ara mála, verða að gera sér ljóst
að þar þarf erlent fjármagn að
koma til í stórum straumum.
Þegar búið væri að byggja
hafnir á Suðurlandi, þá risu þar
upp borgir á skömmum tíma.
Þangað væri þægilegt að sækja
kaupstað úr nærliggjandi sveit-
um, þar yrði mikið athafnalíf.
Við verzlun, siglingar, samgöpg-
ur, fáskveiðar, iðnað og flest sem
nöfnum tjáir að nefna. Til orku-
veranna við fallvötnin héldi fólk
ið hópum saman. Hér yrði skort-
ur á fólki bæði fag- og ófaglærðu.
Innflutningur fólks frá öðrum
löndum kæmi til skjalanna. Inn-
anlandsmarkaður á landafurðum
myndi aukast mjög.
I greininni í Víkingi er rætt
nokkuð um framleiðslu hráefna
úr lofti og sjó, en einnig um fulln
aðarvinnslu úr hráefnum, sem
hingað kynnu að verða flutt frá
Kanada og Grænlandi. Hugsan-
legt er líka að hér eigi eftir að
finnast málmar eða önnur verð-
mæti í jörðu, varla hefur það
verið kannað til fullnustu. Sand-
græðslumennirnir keppast nú við
að græða upp eyðisanda og
stemma stigu við uppblæstn
gróðurs. Skógræktarmennirnir
keppast við að grundvalla nytja-
skóga framtíðarinnar með fræ-
sáningu og gróðursetningu
plantna, sem hingað eru fluttar
frá mörgum löndum. Þessir hóp-
ar manna eru að fegra landið
með starfi sínu og gera það byggi
legra. Þeir .eru „Vormenn fs-
lands“ í raun og sannleika. Fróð
ir menn telja að sá tími geti kom
ið að ekki þurfi að flytja inn
timbur erlendis frá. Þá verða
orkuverin komin til sögunnar
fyrir löngu, sennilega víðar á
landinu, en þá koma þau að góð-
um notum einnig á því sviði.
Til þess að fólk hætti að flytja
úr landi og því fjölgi í landinu
þarf að tryggja lífskjör þess og
framtíð, í samræmi við nútíma
tæknigetu og kröfur tímans. Til
þess þurfum við fyrst og fremst
stóriðnað og síðan allsherjar iðn-
þróun landsins.
Bent teílir
í Arsentinu
O
KAUPMANNAHÖFN — Það
verður langt þangað til danski
skáksniliingurinn Bent Larsen,
kemur aftur heim til Danmerk-
ur. Sem stendur dvelst hann í
Kaliforníu, en mun innan skamms
leggja upp i ferð um Mexikó,
Kúbu, Venesúelu og Kólombíu.
í marz tekur hann þátt í hinu
fræga skákmóti Mardel Plata í
Argentínu.